Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.03.1976, Blaðsíða 6

Siglfirðingur - 08.03.1976, Blaðsíða 6
6 SIGLFIRÐINGUR Mánurlagur 8. marz 1976. STEINGRlMUR KRISTINSSON : VID HÖFNINA Loðnan Sigurður RE kom með fyrstu loðnuna, sem landað var hér á þessu ári, þ. e. 630 lestir þann 31. janúar. Þessu aflamagni var landað við Öldubrjót, nú eins og oftast áður, en hundruð mill- jóna löndunarbúnaður Síldar verksmiðja ríkisins ónotað- ur nokkru sunnar við höfn- ina, eins og undanfarin ár. Þó hafa orðið framfarir hjá S. R. varðandi löndunar- búnað þann, sem nú var not- aður og kom þessi endur- bætti búnaður í veg fyrir t.d. að mikið magn af sjó (ca. 30%) væri keypt á loðnu- verði, — að hluta þessa sjó- magns, auk loðnu, væri drit- að í ríkum mæli á leið þeirri er bílar keyrðu hráefninu til þróarrýmis hjá S. R., — að rándýrri olíu væri eytt til að „þurrka“ óþarfa magn af sjó, — og síðast en ekki sízt jók þessi búnaður hráefnis- nýtinguna mjög mikið, og stuðlar því m. a. að raunhæf- ara mati á öllum hliðum rekstrar þessa fyrirtækis. Ekki er þó þessi bætti bún- aður gallalaus, því sami ó- þrifnaðurinn virðist í kring- um hann sem áður, og ekki er mögulegt, eins og stend- ur, að nota sama vökvann, sem kemur frá skiljunni, aft- ur og aftur, eins og ætlast er til, því að bannað er að nota mengaðan sjó úr höfn- inni saman við hráefnið, eins og raunar hefur verið gert. Nýtingin. Alls bárust hingað á land 6030 lestir af loðnu og úr þessu varð um 20.400 pokar af mjöli, um 16,7% nýting. 'j-ölur um lýsi hef ég ekki áreiðanlegar, en nýting mun hafa verið í meðailagi. Fita í mjöli þótti heldur mikil, og er gömlum pressum, sem upphatiega voru framleiddar sem síidarpressur, kennt um. En nýtingu má þó télja mjög góða. Fyrsti mjölfarmurinn er þegar farinn héðan til út- flutnings. Heimabátar. Afh kominn á land frá heimabátum í janúar 1976: Dagný, tog, 3 sjóf. 312 1. (104 1. í sjóf.) Stálvík, tog 2 sjóf 262 - (131 1. í sjóf.) Tjaldur, lína, 9 sjóf 30 - (3,3 1. í sjóf.) Aldan, net, 33 - Dagur, net 20 - Berghildur 17 - Guðrún Jónsdóttir 21 - Jökultindur 7 - Dröfn 7 - Ýmsir 10 - Afli jan. 1975 343 lestir. Sigluvík var í klössun meiri hluta janúar hér heima en hélt til veiða 29. janúar, undir stjórn „nýs“ skip- stjóra, Sigurjóns Jóhanns- sonar. Afli til löndunar í febrúar 1976 (á Siglufirði): Stálvík, tog, 1 sjóf. 66 1. Sigluvík, tog, 2 sjóf 104 - (52 1. í sjóf.) Dagný, tog, 2 sjóf. 191 - (95 1. i sjóf.) Tjaldur, lína, 7 sjóf. 30 - (4.3 1. í sjóf.) Selvík, lína, 3 sjóf. 5 - (1,7 1. í sjóf.) Dagur, net 19 - Berghildur, net 11 - Jökultindur, net 7 - Guðrún Jónsdóttir 8 - Aldan 16 - Dröfn 6 - Ýmsir 8 - 471 1. 719 1. ; Afh í febr. 1975 544 lestir. í Verkfall hófst 16. febrúar og stóð til 29. febrúar. Stál- vík landaði 143 lestum fyrir ikr. 70,00 pr. kg. í Færeyjum þann 25. febrúar. | Dagný var í vélaklössun jhér heima fyrripart febrúar (frá 5.—20. febr. ca.) Steingrímur Nato og landhelgin Eins og jafnan áður hafa kommúmstar óspart notað deilur okkar við Breta og fleiri nági’anna okkar, sem útfærzia iandhelginnar hefur ævinlega vakið upp, til þess að reyna að fá því fram- gengt að við segðum okkur úr NATO og rækjum varn- arliðið burt. Þeir vita sem er, að æðsti draumur þeirra — Sovét-Island — getur því aðeins rætzt, að land okkar sé slitið út úr varnarkerfi vestrænna þjóða, og það lagt varnarlaust fyrir fætur böðla Gúlag-^yjaklasans. Kommúnistum hefur tek- izt furðu vel það áróðurs- bragð sitt að læða því inn hjá fólki, að ef NATO og varnarliðið geti ekki varið okkur fyrir ofbeldisaðgerð- um bandalagsþjóða okkar, sé það með öllu gagnslaust, og engum tilgangi þjóni að vera áfram í banadlaginu né hafa varnarlið hérlendis. Þetta er auðvitað ekkert annað en helber blekking. Atlantshafsbandalagið var stofnað í einum ákveðnum tilgangi, þ. e. að sporna gegn frekari útþenslu Sovétríkj- anna í Evrópu og tryggja bandalagsþjóöirnar gegn á- rásum úr þeirri átt. Og við það verkefni hefur starfsemi bandalagsins síðan einvörð- ungu miðast. Það er því með öllu óraun- hæft að blanda landhelgis- dehu okkar við Breta nú saman við veru okkar i NATO. NATO tryggir okkur einungis gegn þeirri hættu, sem okkur stafar af út- þenslustefnu kommúnism- ans, en það er jafnframt án alls efa einhver sú mesta hætta, sem nokkurn tíma hefur að þjóð okkar steðjað. NATO hefur fullkomlega tekizt að gegna hlutverki sínu fram til þessa, þar sem engin einasta af þjóðum V.- Evrópu hefur orðið komm- únismanum að bráð síðan það var stofnað. Með veru okkar í bandalaginu höfum við fengið þá tryggingu, sem við sóttumst eftir, og get- um því vel við unað hvað það snertir. Úrsögn úr NATO vegna landhelgismáls ins væri svona álíka gáfu- leg og ef maður segði bruna- 'tryggingu húss síns upp, þegar hann kæmist að raun um, að hún bætir ekki rúðu- brot af völdum foks. Ef við óskum eftir trygg- ingu gegn fleiri hættum en þeirri, sem NATO verndar okkur fyrir, verðum við að leita annarra leiða. 1 því sambandi gætum við hugsan- lega óskað eftir endurskoð- un á varnarsamningnum með það fyrir augum, að Banda- ríkjamenn skuldbindu sig til að veita okkur vernd gegn hvers konar erlendu ofbeldi, hvort sem það kemur frá þjóðum innan eða utan NATO. Það er nokkuð, sem gjarna mætti skoða nánar. Færeyskur vinabær Fyrir stuttu barst bæjar- 'ráði erindi frá Norrænafé- laginu, Siglufirði, þar sem óskað er eftir viðurkenningu á færeyska bænum Eidi á Eysturöy sem vinabæ Siglu- fjarðar. En eins og kunnugt HITAVEITAN: Tenging húsa við heita vatnið gengur vel Knútur Jónsson, forseti bæjarstjórnar, opnar fyrir heita vatnið að Hávegi 14. Sunnudaginn 21. des. s. 1. var Hitaveita Siglu- fjarðar formlega tekin í notkun með því að forseti bæjarstjórnar, Knútur Jónsson, opnaði fyrir rennsli heits vatns úr lindunum í iSkútudal inn á hitavatns- kerfi húss Óskars Garðarssonar að Hávegi 14. Flutti forseti af þessu tilefni stutta tölu, þar sem hann minntist helztu áfanga í hitaveitumálum Siglufjarðar og lét í Ijós ánægju með þann árang- ur, sem náðst hefur. Þá útskýrði bæjarverkfræð- ingur, Þorsteinn Jóhannesson, ýmis tæknileg atriði varðandi hitaveituna. Viðstaddir þessa athöfn voru ýmsir framámenn bæjarins og þeir, sem stjórnuðu verkinu og unnu við það s. 1. sumar. Seinna um daginn bauð bæjarstjórn til kaffidrykkju að Hótel Höfn, þar sem skálað var í kaffi, löguðu úr hita- veituvatni. Voru þar haldnar margar stuttar ræð- ur, þar sem menn fögnuðu einróma merkum áfanga í þessu mikilsverða hagsmunamáli Siglfirðinga. Unnið hefur verið við tengingu húsa við lagna- kerfi Hitaveitimnar í vetur, og hefur því verki mið- að allvel áfram. Mun nú vera búið að tengja um 60 hús, en áætlað var að tengja 107 hús í vetur. Nokkur töf varð að vísu á þessu verki í janúar- mánuði vegna vöntunar á sérstakri gerð krana, en nú er unnið af fullum krafti. Óhætt er að segja, að allir, sem hafa fengið hita- veituvatnið í hús sín, séu mjög ánægðir með um- skiptin. Enda er það sannast sagna, að heita vatn- ið úr Skútudal er í algjörum sérflokki, hvað gæði snertir.. Er það alveg laust við það sérkennilega bragð og lykt, sem venjulega einkennir hitaveitu- vatn. Sé það kælt niður til drykkjar, verður það vart greint frá tærasta bergvatni. Munu þessa fá ef nokkur dæmi, um heitt uppsprettuvatn á Islandi. er hafa Færeyjar, ásamt Á- landseyjum, fyrir nokkru hlotið viðurkenningu innan Norðurlandaráðs, svo sem hin Norðurlöndin. Það þarf auðvitað ekki að spyrja um undirtektir bæjarráðs eða bæjarstjórnar við slíku erindi, og munu allir Siglfirðingar áreiðan- lega fagna því, að færeysk- ur bær bætist í hóp vinabæja Siglufjarðar. Nokkur samskipti hafa þegar tekizt milli Eidi og Siglufjarðar, þar sem K. S. sendi þangað knattspyrnulið s. 1. sumar, og mun Eidi end- urgjalda þá heimsókn með því að senda hingað keppnis- flokk í endaðan júlí í sumar. Framhald á 3. síðu

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.