Ísland - 23.06.1934, Síða 1
Útgefandi: Flokkur pjóðernissinna.
MMBBga—nmiM111' 'i nii'iaBE——
Reykjavík, 23. júní 1934. I. ár. 6. tbl.
*
Mii S. Jónsson.
Efsíi iJiir F-listans
PRÁTT fyrir pað, að fiLelgi Jónsson
sé ungur maður, er hann nú pegar
landskunnur vegna afskifta sinna af
landsmálum. Peir, sem á liann hafa
hlustað, bæði í útvarpi og annarsstaðar,
hafa dáðst að mælsku hans og póli-
tískum proska.
Flokkur pjóðernissinna á Helga mikið
að pakka. iíann var einn af hvata-
mönnunum aö stofnun hans, og hefir
allra pjóðernissinna ósleitilegast barizt
fyrir framgangi ílokksins, en einu
launin, sem hann hefir hlotið af hálfu
pjóðfélagsins fyrir stjórnmálastafsemi
sína, sameiniiíg alira stétta, er at-
vinnusvifting og lúaleg bakmælgi.
Reykvíkingar, og ekki sízt ÆbKAN,
munu að pessu sinni taka sér stöðu
við hlið tlelga og senda hann á ping
sem fulltrúa sinn. Pá væri málum
peirra bezt borgið.
1
Við þjóðernissinnar vitum, að útgerð-
in er illa stödd og að f jöldi útvegsmanna
hefir verið að tapa eignum sínum og
trausti síðastliðin ár, enda þarf þao
engan að furða, því sannleikurinn er
sá, að það gengur allt út á það hjá
sjálfstæðismönnum, og þó sérstaklega
hjá rauðu flokkunum, að skifta misjafnt
með þeim mönnum, sem vinna á landi
og sjó, og vil ég skýra þetta með nokkr-
um orðum.
Hjá ríkisstjórn og bæjarfélögum haí'a
opinber gjöld og tollar verið að hækka,
og í landi hafa kommúnistar og »jafn-
aðarmenn« sífellt verið að hækka kaup-
ið og á annan hátt að þrengja að útgerð-
inni og' þeim mönnum, sem fiskveiðar
stunda. Jafnhliða þessu hefir verðið á
sjávarafurðum alltaf verið að lækka,
einmitt á þeim afurðum, sem öllu eiga
að halda uppi og- allir þessir skattar eru
teknir af. Enda er nú svo komið, að
helzt fæst enginn maður til að fara til
sjós lengur og róa fyrir hlut sínum, ef
hann á nokkurs annars úrkostar. Fisk-
verðið er nú lægra en fyrir stríð, en öll
gjöld og fiskverkun fjórum sinnum dýr-
ari en fyrir stríðið.
Hvernig halda menn, að það geti
gengið, að ganga alltaf á hlut sjómanna
með þessu lága fiskverði og halda alltaf
sömu vitleysunni áfram í landi?
Það er furðulegt, að »jafnaðarmenn«,
sem þykjast vöra einhverjir frelsarar
fólksins, skuli vera alveg starblindir í
þessu efni. Peir ættu þó að vita, að sjó-
maðurinn verður að borga öll sín gjöla
og alla sína aðkeyptu vinnu í landi af
fiskverðinu. Hann hefir ekki úr neinu
öðru að spila en því litla, sem hann fær
fyrir fisk sinn.
Eg skal taka nokkur dæmi. •— Þegar
verkalýðsfélögin fengu framgengt á
Siglufirði 36 tíma sunnudegi með
þriggja króna kaupgjaldstaxta, -eða 108
krónum fyrir siglfirzkan sunnudag, frá
hverjum var þá þetta kaup tekið öðr-
um en sjómönnunum, sem ýmist gátu
Úskar Halldórsson, frambjóðandi
l'jóðernissinna í Vestmannaeyjum.
ekki fengið síldinni landað eða þá urðu
að selja hana fyrir lægra verð?
Þegar Héðinn Valdimarsson fær því
framgengt að láta bílana fá tvo kaffi-
tíma á dag með kr. 4,50 um tímann, af
hverjum er þetta þá tekið öðrum en
þeim sjómönnum, sem róa fyrir
hlut sínum og þurfa að nota bíla til að
losa fiskinn úr bátunum? 1 hvers vasa
haldið þið, að mismunurinn fyrir að
verka 1000 skippund af fiski í Kefla-
vík og í Reykjavík fari? 1 Keflavík
kostar 15 krónur að verka skippundið,
en í Reykjavík 20 krónur. Ætli þessi
5000 króna munur renni ekki til sjó-
manna og útgerðarmanna í Keflavík, en
í Reykjavík er honum eytt í yfirspennt
kaup og vitleysu.
Eg þykist með dæmum þessum hafa
sýnt, að kommúnistar og »jafnaðar-
menn« gera misjafnt upp á milli hinna
vinnandi stétta og hafa bókstaflega
gengið á hlut sjómanna með sinni póli-
tík.
Kjósið þjóðernissinna á þing og látið
ekki hina pólitísku spekúlanta stétta-
flokkanna hræða ykkur frá þVí. ötti
þeirra við okkur stafar aðeins af því,
að fylgi þeirra er að deyja, en stefna
okkar á framtíðina fyrir sér.
Öskar Halldórsson.
Fimlioii GuOiimdssog
frambjóðandi þjóðernissinna í
Gullbringu- og Kjósarsýsiu.
Ií J Ö S E N Ð|U R Gullbringu- og Kjósarsýslu
fylkja sér um frambjóðanda Flokks pjóðernis-
sinna, undir kjöroröinu stétt nieð stétt —
gegn »konungdómix íhaldsins — og rauðu
stéttaflokkanna.
Löghelgar lygar.
Með hinum almennu hegningarlögum
eiga borgararnir að vera verndaðir fyrir
lygum og svikum.
»Hið háa Alþingi« hefir sett lög þessi
sem önnur er í þessu landi gilda. Al-
þingismennirnir, sem öðru hvoru heita
frambjcðendur, hafa samþykkt lög þessi.
Þá hefir þeim skilizt, að þörf b<æri til
að leggja þessi höft á borgarana. Að
ljúga, lofa og svíkja er hegningarvert
samkvæmt lögum, er til allra eiga að
ná, nema löggjafanna sjálfra meðan þeir
eru í þingsalnum.
Látum svo vera, að þeir hafi með lög-
um um friðhelgi þingsins leyft það aó
ljúga mætti, lofa og svíkja í hinum hclgu
sölum Alþingis. Löggjafarnir eru þó öði u
hvoru utan friðhelginnar og eiga þar að
lúta sömu lögum og annar landslýður.
Það kynni þó að vera, að einhverii
óspilltri sál, sem aldrei hefir Alþingi séð,
öðruvísi en í ljóma fjarlægðarinnar eða
fornrar frægðar, komi þessi sérréttindi
þingmanna undarlega fyrir sjónir. Sú
sál, ef hún finnst á þessu landi, myndi
líta svo á, að lygar, rógur og loforða-
svik væru hvergi fjær neinum öðrum
stað en þeim, þar sem örlög þjcðarinnar
hanga í einum þræði innan í skjaldborg
föðurlandsvinanna og fulltrúa lands-
manna.
Við, sem höfum lesið blöðin og' séð'Al-
þingi, skiljum vel nauðsyn þessa máls.
Við skiljum hversvegna lygar og loforða-
svikin á Alþingi hafa verið vernduð með
slíkum lögum.
Undanfarið höfum við heyrt og' séð
þessa fyrverandi og tilvonandi löggjafa
í blöðum og útvarpi.
Hvort sem það er af vana eða af virð-
ingarleysi fyrir lögum landsins, hafa
þessir löggjafar hegðað sér eins og þeir
sæta í friðhélginni á Alþingi, þar sem
lygar og svik eru lögvernduð. Þannig
hefir framkoma þessara manna verið,
þeirra manna, sem ranglega telja sig
fulltrúa þjóðarinnar, en eru umboðs-
menn klíku og stétta, ómettanlegir eins
og gauksungar í tittlingshreiðri.
Eg spyr því hina íslenzku þjóð, eftir
að hún hefir undanfarið hlustað á þessa
stétta- og klíkuforingja, sem nú bjóðast
til þess að vera umboðsmenn hennar á
Alþingi, hvort hana hrylli ekki við að
leggja örlög sín og sinna afkomenda i
hendur þessara manna.
Þessir menn, sem hafa það hlutverk
að leysa vandræði þjóðarinnar á þeim
voðatímum, sem nú eru, eyða öllum
kröftum í það eitt að skamma og sví-
virða hvern annan. — Eftir framkomu
þeirra mætti álykta, að sá, sem lengst
kemst í svívirðingum og skömmum, væri
beztum kostum búinn til að bjarga þjóð-
inni.
Sér ekki þjóðin, hvaða skrípaleikur er
leikinn, og að fulltrúarnir, sem hún ætl-
ar að velja, eru ekki lengur vandanum
vaxnir, heldur aðeins trúðleikarar i
því hringleikhúsi, sem einu sinni var
Alþingi?
Því er ver, að þessu verður ekki breytt
í ár. Þjóðin vaknar ekki fyrir þessar
kosningar, og þess vegna helzt ástand-
ið áfrám.
Á meðan foringjar stéttaflokkanna
fá leyfi til'að ljúga að þjóðinni og svíkja
öll loforð, er þeir hafa gefið henni, get-
ur ástandið ekki breytzt.
Kjósendur! munið, hverju sjálfstæðis-
flokkurinn hefir lofað ykkur og berið
það saman við efndirnar. Gleymið ekki,
hvað þeir hafa lofað að gera, og hvað
þið viljið að þeir geri. Það eru Magnús
Guðmundsson og Jakob Möller, sem
eiga að stjórna eftir kosningarnar og
uppfylla heitin.
Kjósendur! munið, að Flokkur þjóð-
ernissinna gerir, þegar þið kjósið hann,
það sem hinir svíkja.
En umfram allt. Leyfið ekki þeim, er
þið kjósið, að skjótast undir löghelgi
lyganna aftur.
Því tímabili á að vera lokið á tslandi
næsta mánudagsmorgun. *
Reyk:vík;ingai*I KJÓSIÐ F-listannl
Llfi hio samvirka Pjoönki framriöarinnar!