Ísland - 23.06.1934, Side 2
GEGN MAMMONISMA OG MARXISM A!
2
í S L A N D
Foringinn rekinn.
Ólafur Thors bolar Jöni Porláks-
syni frá þingsetu vegna andstöðu
hans við gengislækkun.
Sjálfstæðisflokkurinn gerir nú úr-
slitatilraun til þes að fá algjörðan meiri
hluta nú við alþingiskosningarnar á
morgun. Flokkurinn hefði fyrir löngu
#etað verið kominn í meiri hluta, ef
forystumenn hans hefðu ekki sinkt og
heilagt haft það sem aðalreglu að svíkja
sín helgustu stefnuskráratriði, og auk
þess hafa foringjar hans verið linir í
sókninni 'gegn grimmum andstæðingum.
öllum er það ljóst, að ílokkurinn er
klofinn, og þar af stáfar óheilindi hans
og heigulsháttur. Jón Þorláksson heíir
ávalt, eins og hans var von og vísa, vilj-
að halda fast fram stefnu flokksins.
Það er alþjóð kunnugt, að hann er fast-
ur fyrir og enginn veifiskati, og er mjög
ógeðfellt að sjá, hvernig flokksmenn
hans hafa snúizt sem æfðustu línu-
dansarar í stjórnmálunum.
Hann var á móti því, að flokkurinn
myndaði samsteypustjórn með núver-
andi forsætisráðherra og flokksbroti
hans. Það hefir komið á daginn, aó
flokkurinn hefir beðið hið mesta tjón
af því, að Magnús Guðmundsson hefir
henglazt valdalaus í ráðherrasæti.
Flokkurinn hefir orðið að þola þá raun,
að M. G. hefir þolað Hermann Jónas-
son í lögreglustjóraembætti, þrátt fyrir
mjög ófyrirgefanleg embættisafglöp, og
það mikilmennskubrjálæði, sem nú er
þannig, eins og alþjóð er að verða full
kunnugt, að stappar nærri hreinum
fíflshætti. Það myndi hvergi verða þol-
að stundu lengur í nokkru landi, aö
lögreglustjórinn í höfuðborg landsins
byði dómsmálaráðherra til hólmgöngu
um allar þær vammir og skammir í em-
bættisfærslu, er hann teldi hann hafa
drýgt, sízt þegar athuguð er sú forsaga
málsins, að hlutaðeigandi lögreglustjóri
var dæmdur fyrir alvarlegt brot, og átti
a. m. k. að láta tafarlaust af embætti
um stundarsakir, þar til æðri dómur
hefði gengið um mál hans. Auk þess
er sjálfstæðisflokkurinn orðinn samá-
byrgur á stjórnarathöfnum duglausrar
og huglausrar landsstjórnar. Ef flokk-
urinn hefði aldrei á móti ráðum Jóns
Þorlákssonar blandað blóði sínu við hina
fornu brjóstmylkinga , Jónasar frá
Hriflu, sem nú hafa með öllu svikið
hann, væri aðstaða flokksins allt önn
ur til þess að fá hreinan meiri hluta
núna við kosningarnar.
Jón Þorláksson var alltaf á móti
kreppulánasjóðnum, en Ölafur Thórs og
Tryggvi Þórhallsson unguðu þeim ó-
burði út á tveimur klukkutímum.
Afleiðing þessarar sjóðsstofnunar er
sú, að á jarðeignum landsmanna hvíla
fleiri miljóna króna hærri veðskuldir,
en áður. Um næstu 42 ár verða bænd-
ur að greiða þessar auknu veðskuldir,
og landsmenn sameiginlega að bera á-
byrgð á greiðslu 10i milj. króna.
Ennfremur var J. Þ. á móti hinum
illræmdu norsku samningum, þar sem
landsréttindi Islendinga voru afsöluð
Norðmönnum fyrir svikula von í sölu
6000 tn. af ísl. saltkjöti fyrir smánar-
verð.
Af öllum þessum ósigrum og margs-
konar ofaníáti er J. Þ. nú svo særður
og vonsvikinn, að hann sér sér eigi fært
að verða aftur í kjöri fyrir flokkinn.
Sjálfstæðismenn munu þar sanna, aö
enginn veit hvað átt hefir, fyr en mist
hefir.
Innan sjálfstæðisflokksins er lækkun
íslenzku krónunnar sífellt ágreinings-
efni. J. Þ. og fleiri vilja ekki gjöra
hana að engu, vita sem er, að gengis-
lækkun hefir sömu verkanir þjóðinni
til handa og ef morfinsprauta er gefin
helsjúkum manni. Öl. Thórs ásamt Tr.
Þórhallssyni er þetta hið mesta áhuga-
mál, Öl. Th. vegna persónulegra hags-
muna, en T. Þ. sakir fljótfærni og fá-
vizku. Islenzkir bændur selja megnið af
sínum landbúnaðarafurðum innanlands.
Vörur þær, er þeir selja á útl. markað,
munu alls ekki nægja til greiðslu á þeim
útlendu afurðum, er stéttin kaupir I
heild sinni. Gengislækkun er hinsvegar
stórgróðafyrirtæki stórútgerðarmönnum
til handa, og þeim fáu ísl. kaupmönn-
um, sem liggja með miklar byrgðir af
íslenzkum vörum. Þegar J. Þ. nú hætt-
ir þingmennsku, hafa þeir 01. Th. og
Tr. Þ. að mestu óbundnar hendur um
örlög ísl. krónunnar. Flokksbrot þeirra
geta hvenam sem er skriðið í eina flat-
sæng um það mál, þótt hún verði að
engu leyti þrifalegri en þeirra gamla
fleti, þar sem undirsængin var norsku
samningarnir, yfirsængin kreppulána-
sjóðurinn, koddinn samsteypuráðuneyt-
ið (þ. e. Magnús Guðmundsson) og
svefnmeðalið svik við gamla flokksbræð-
ur, stefnuskrá flokkanna og hag þjóð-
arinnar og velferð á komandi árum.
Margir sjálfstæðismenn munu af
fyrri ára reynslu yfirgefa flokkskútu
sjálfstæðismanna, þetta gamla lekahrip
klíkuháttar og sérhagsmuna, og eigi
sízt, þegar hinn gamli flokksforingi,
sem alltaf verður mikils metinn, þrátt
fyrir sína galla, er hlaupinn f.yrir borð.
Stétt með stétt!
Ihaldið ætlar að útrýma
stéttarbaráttunni aðelns
með stolnu kjörorði frá
þjóðernissinnum.
Eitt ljóst dæmi um rökþrot íhalds-
ins er síðasta kosningabeita þess:
Stétt með stétt. — Ihaldsmenn eru 1
þessu eins og öllu öðru með sitt páfa-
gaukseðli. I blöðum og ræðum okkar
þjóðernissinna hafa þeir séð og heyrt
þau rök, sem við færum fram gegn
stéttabaráttunni, og þeim hefir þótt það
heldur óheillavænlegt að skríða fram
fyrir íslenzka alþýðu sem grímulaus
yfirstéttarflokkur. En að þeir hafi skil-
ið þá hugsjón og þá þjóðfélagslegu breyt-
ingu, sem felst í hugtaldnu STÉTT
MEÐ STETT, þarf enginn að ímynda
sér. ölafur Thórs getur talað um það
23. júní 1934
Islenzkir þjóðernissinnar munu hefja
baráttuna og taka við henni úr hönd-
um sjálfstæðismanna, sem svo skemmi-
lega hafa ra-kt hlutverk sitt og marg
svikið orð sín og eiöa.
fara að vinna fyrir allar stéttir þjóð-
félagsins, en það nægir ekki aðeins að
tala, hér þarf að starfa. Þjóðin bíður
úrlausnar á vandamálum sínum. Hún
hefir ekkert að gera með kosningaloforð,
sem eru svikin strax eftir kjördag.
Ihaldið verður krafið reikningsskapar
á gjörðum sínum, og það er þegar veg-
ið og léttvægt fundið. Þjóðin mun í
framtíðinni skipa því á bekk með öðr-
um sigruðum landplágum. Hún mun
benda börnum sínum á sögu þess, til
þess að þau læri að varast eigingirni,
fláttskap og stéttaríg. Grafskrift hins
deyjandi íhalds skal vera eilíf viðvör-
un til þjóðarinnar gegn nýrri Sturlunga-
öld.________________________________Hsj.
Kjóscndur í Oxillltrinyu ög Kjósaisýslu.
Munió að sctja X fyrlr framan nafn Finn-
bosra Guffmundssonar og- gera engar aðrar
breytingar á kjörseðlinum.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður;
Guttormur Erlendsson.
PRENTSMIUJA JöNS HELGASONAR
G'ama U sjálfstæðismaður.
Fyrirliggjandi:
Sturlaugur Jónsson & Co. Sími 4680.
Kjóstu rétt!
Kjósandi! Þegar þú gengur að kjör-
borðinu, verður þú að gera þér ljóst,
hvað þú átt að velja og hverju þú átt
að hafna. Þitt eina atkvæði getur ráðið,
hvort hér á að ríkja áfram íhald,
skammsýni, hagsmunabarátta og sívax-
andi marxismi, sem miðar að upplausn
og algerðri eymd, eða umsköpun þjóð-
félagsins öllum þegnum þess til hags-
bóta. Þú hefir milli sex flokka að velja,
en eiginlega eru stefnurnar ekki nema
tvær: Annarsvegar íhald og marxismi,
hinsvegar þjóðernisstefnan. Þótt svo sé
látið heita, að mammonismi íhaldsins og
marxismi framsóknarmanna, socialdem-
okrata og kommúnista séu andstæður,
þá er það rangt. Báðar þessar stefnur
hafa eitt og hið sama markmið: Miðalda-
einveldi einnar fámennrar stéttar og
kúgun alls almennings.
Andstætt þessu er stefna þjóðernis-
sinna. Þeir skoða hagsmunum heildar-
innar æðri hagsmunum einstaklinga.
Þeir vilja umskapa þjóðfélagið öllum
þegnum þess til hagsbóta. Þeir vilja
stofna hér samvirkt þjóðríki.
Gjörðu þér þetta ljóst, kjósandi góður
Þá getur ekki hjá því farið, að þú skilir
kjörseðlinum þannig:
A
Listi Alþýduflokksins
B
Listi Bændaflokksias
c
Listi Framsóknarflokksins
D
Listi Kommúnistafl. lslands
E
Listi Sjálfstæðisílokksins
X F
Listi Flokks þjódernissinna
Héðinn Valdimarsson
Sigurjón Á. Ólafsson
Stefán Jóh. Stefánsson
Pétur Halldórsson
Einar Magnússon
Kristínus F. Arndal
Þorlákur Ottesen
Ágúst Jósefsson
Porvaldur Brynjólfsson
Sigurbjörn Björnsson
Sigurón Jónsson
Jens öuðbjörnsson
Theodór Líndal
Skúli Ágústsson
Sigurður Björnsson
Jóhann Fr. Kristjánsson
Jóhann Hjörleifsson
Gísli Brynjólfsson
Hannes Jónsson
Guðm. Kr. Guðmundfson
Magnús Stefánsson
Eiríkur Hjartarson
Guðrún Hannesdóttir
Hallgrímur Jónasson
Guðmundur Ölafsson
Magnús Björnsson
Þórhallur Bjarnarson
Aðalsteinn Sigmundsson
Sigurður Baldvinsson
Sigurður Kristinsson
Brynjólfur Bjarnason
Edvarð Sigurðsson
Guðbr. Guðmundsson
Enok Ingimundarson
Dýrleif Árnadóttir
Rósinkrans Ivarsson
Magnús Jónsson
Jakob Möller
Pétur Halldórsson
Sigurður Kristjánsson
Guðrún Lárusdóttir
Jóhann Möller
Guðmundur Ásbjörnsson
Sigurður Jónsson
Hafsteinn Bergþórsson
Guðni Jónsson
Ragnhildur Pétursdóttir
Jón Björnsson
Helgi S. Jónsson
Guttormur Erlendsson
Jón Aðils
Maríus Arason
Knútur Jónsson
Sveinn ölafsson
Baldur Jónsson
Axel Grímsson
Bjarni Jónsson
Stefán Bjarnarson
Sigurður Jónsson
A Landl. Alþýðufl. B Landl. Bændafl. C Landl. Framsóknarfl. D Landl. Kommúnistafl. E Landl. Sjálfst.fl.
Allif* O t/f At»cíoAl Y I?