Siglfirðingur


Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 7

Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 7
i7 SigKtr&Sfpir Brey tingar tillögur S j álf stæðismanna við fjárhagsáætlun 1985 Sumar tillögurnar teknar traustataki af „meirihlutanum“. Lokafrestur til þess að skila breytingatillögum við fjárhags- áætlun bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 1985 rann út við upphaf bæjarráðsfundar kl. 9 að morgni þriðjudagsins 23. apríl s.l. Fulltrúi Framsóknar- flokksins lét nægja að vitna til áður fluttra tillagna á bæjar- stjómarfundi 10. apríl s.l. og er um þær fjallað á öðrum stað hér í blaðinu, en frá Sjálfstæðis- flokknum voru lagðar fram ná- kvæmlega sundurliðaðar til- lögur um sparnað í rekstri, samtals að upphæð kr. 1.812.000 og lagt til að þeim peningum yrði heldur varið til framkvæmda, aðallega gatna- gerðar og íþróttahússbygg- ingar. Við allar sparnaðartil- lögur var þess vandlega gætt að skera hvergi svo mikið niður af nokkrum lið að ekki væri nóg eftir til að sinna viðkomandi rekstrarlið á árinu að skað- lausu. Lækkun launaliða bygg- ist á því að launahækkanir fari ekki mikið fram úr 10% 1. sept. n. k. og eru því flestir launaliðir endurskoðaðir samkvæmt því og innbyrðis samræmi haldið þó lækkun sumra launaliða sé ekki mikil. Meginstefnan í þessum sparnaðartillögum var sem sagt sú að spara sem víðast, lítið á hverjum stað, með það í huga að margt smátt gerir eitt stórt. Þar sem breytingartillög- urnar eru svo margþættar sem raun ber vitni eru þær birtar hér eins mikið samandregnar og kostur er og skal þess getið til glöggvunar að allar upphæðir sem eru innan sviga tákna sparnað eða auknar tekjur, en þær svigalausu aukin útgjöld. „Það vakti því óneitanlega talsverða furðu er fulltrúar Alþýðuflokks og Aiþýðubandalags óskuðu eftir stuttu fundarhléi á fyrrnefndum bæjarráðasfundi 23. apríl s.l. til þess að skrifa niður þær breytingartillögur sem þeir sögðust vilja gera við fjárhagsáætlunina eftir að hafa fengið í hendur Ijósrituð eintök af breytingartillögum Sjálfstæðismanna REKSTUR: Yfirstjórn bœjarins: Laun og launatengd gjöld .......... Fargjöld og dvalarkostnaður ....... A Im.tryggingar og félagshjálp: Laun og launatengd gjöld .. Vistgjöld Leikskóla ........ Hreinlætisvörur v. Leikskóla Leikföng v. Leikskóla ...... Viðhald húss Leikskóla .... Framlag v. Sjúkrasamlags .. Frœðslumál: Endurgreiðslur ríkissjóðs Laun og launatengd gjöld Bækur v. skólasafns .... Menningarmál: Laun og launatengd gjöld Bækur v. Bókasafns . ... Æskulýðs-, útivistar- og íþróttamál: Laun og launatengd gjöld ....... Viðhald Sundhallar ............. Brunamál og alm.varnir: Laun og launatengd gjöld Hreinlœtismál: Snjómokstur .............. ( 100.00) ( 100.00) ( 200.00) • ( 52.000) . ( 70.000) . ( 10.000) . ( 20.000) . ( 25.000) . ( 50.000) ( 227.000) . ( 27.000) . ( 53.000) . ( 15.000) ( 95.000) . ( 15.000) . ( 25.000) ( 40.000) . ( 34.000) . ( 35.000) ( 69.000) ( 10.000) ( 918.000) Skipulags- og byggingarmál: Laun og launatengd gjöld ....................... ( 14.000) Vinna bæjarstarfsmanna ......................... ( 24.000) Aðkeypt skipulagsþjónusta ...................... ( 75.000) ( 113.000) A tvinnu- og landbúnaðarmál: Girðing og fjárrétt ............................ ( 60.000) Fjármagnskostnaður: Ymiss kostnaður ................................ ( 80.000) Samtals frá rekstri ( 1.812.000) GJALDFÆRÐ FJÁRFESTING: Gatnagerðargjöld: Gatnagerðargjöld A .............................. ( 125.000) — B ............................. ( 1.300.000) ( 1.425.000) Framkvœmdir: Vetrarbraut: Malbikun frá Gránugötu að togarabryggju ................................. 433.000 Siglufjarðarskarð: Vegarbætur .................... 253.000 Göngustígar: Malbikun stíga milli Hólavegar og Hvbr.......... Hólavegur: Malbikun kafla er var jarðvegsskiptur sumarið 1984 .................. 1.340.000 Gjaldfærð fjárfesting alls 769.000 EIGNFÆRÐ FJÁRFESTING: Leikskóli, nýbygging: Jarðvinna í grunni .......... 218.000 íþróttahús, nýbygging: Steyptir sökklar ........... 700.000 Hlutabréfakaup í Þróunarfélagi Islands hf.......... 250.000 Eignfærð fjárfesting alls: 1.168.000 Ofangreint samandregið: Lán v. hlutabréfakaupa í Þróunarfélagi ............ ( 125.000) Sparnaður í rekstri ................................ (1.812.000) Gatnagerðargjöld ................................... (1.425.000) Gjaldfærð fjárfesting ................................ 2.194.000 Eignfærð fjárfesting ................................. 1.168.000 0 Eins og sjá má á þessum viðamiklu breytingartillögum, var búið að leggja í þær mikla kvöld- og helgarvinnu, enda sinna bæjarfulltrúar nánast öllum sínum bæjarmálastörf- um utan hins daglega vinnu- tíma. Það vakti því óneitanlega talsverða furðu er fulltrúar Al- þýðuflokks og Alþýðubanda- lags óskuðu eftir stuttu fundar- hléi á fyrrnefndum bæjarráðs- fundi 23. apríl s.l. til þess að skrifa niður þær breytingartil- lögur sem þeir sögðust vilja gera við fjárhagsáætlunina EFTIR AÐ HAFA FENGIÐ í HENDUR LJÓSRITUÐ EIN- TÖK AF BREYTINGARTIL- LÖGUM SJÁLFS TÆÐIS - MANNA. Með þær tillögur í höndunum véku þeir síðan af fundi í 5—10 mínútur og hrip- uðu eftirfarandi á blað og skil- uðu síðan sem sameiginlegum tillögum Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags: Lœkkun gjalda: Erlend samskipti .. . 100.000 VWPickup ........... 128.000 Endursk. og upps.ársr. 100.00 Lækkun launaliða . 346.000 Ráðstöfun fjármagns: Vetrarbraut ........ 432.000 Iþróttahús ......... 242.000 674.000 Jafnframt lögðu þeir til að fellt yrði niður framlag til Fjórðungssambands Norðlend- inga að upphæð kr. 280.000 og því varið til að bæta greiðslu- fjárstöðu bæjarsjóðs, án þess þó að útskýra hvernig það ætti að vera mögulegt á meðan Siglu- fjarðarkaupstaður hefur ekki sagt sig úr sambandinu, en þangað til það verður gert er ekki annað séð en bænum beri skylda til þess að greiða sín umsömdu framlög, eins og öðrum aðilum að þeim (slæma?) félagsskap. Eins og af breytingartillögum Sjálfstæðismanna sést eru þær grundvallaðar á þeirri stefnu að ljúka þeim framkvæmdum sem hafnar hafa verið á undanförn- um árum og meiriháttar ný- framkvæmdum á sviði gatna- gerðar frestað á meðan. En á undanförnum áruni hefur verið alltof mikið gert af því að hlaupa frá hálfloknum verkum og byrjað á nýjum með þeim afleiðingum, að alls staðar blasa við hálfunnin verk. I þeim málum sem öðrum hafa Sjálf- stæðismenn ákveðna stefnu og fylgja henni fast eftir, en hafi einhver Siglfirðingur staðið í þeirri trú fram að þessu að „meirihlutaflokkarnir“ í bæjar- stjóm ynnu að bæjarmálum með einhverri ábyrgðartilfinn- ingu, hlýtur sá hinn sami að hafa komist á öndverða skoðun eftir að hafa fylgst með dæma- lausum vinnubrögðum þeirra við þessa fjárhagsáætlanagerð fyrir árið 1985. Þau vinnubrögð verða vafalaust lengi í minnum höfð og mega raunar ekki gleymast, því til þess eru vítin að varast þau. Axel Axelsson Sjóvátryggt vel tryggt Hafið þér kynnt yður hvaða tryggingamöguleika SJÓVÁ býður yður? Við bjóðum allar alhliða tryggingar. SKRIFSTOFAN AÐALGÖTU 15 er opin frá 9—11 og 1—4. Sími 21792. HERMANN JÓNASSON Sími heima 71248. 674.000

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.