Morgunblaðið - 23.06.2011, Síða 1
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
íþróttir
Ungur stjóri André Villas-Boas er aðeins 33 ára gamall en hefur verið ráðinn knattspyrnu-
stjóri Chelsea. Mögnuð sigurganga á stuttum ferli. Var áður á Stamford Bridge í fjögur ár. 4
Íþróttir
mbl.is
Stjörnugolf
Einfaldasta leiðin til að leggja niður
gott leikskipulag er að hugsa allar
brautir afturábak frá flöt að teig og
finna þannig bestu staðina til þess að
setja boltann sinn á. Haldið golfinu
ykkar einföldu með góðu leikskipulagi,
þannig helst boltinn í leik og færri
högg tapast með of djörfum ákvörð-
unum.
Brynjar Eldon
Geirsson
Ólafur Már
Sigurðsson
Fimmti þáttur: Leikskipulag
KRAFTLYFTINGAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, lykil-
maður í liði KR, hefur ákveðið að
segja skilið við körfuboltann og
mun snúa sér alfarið að kraftlyft-
ingum. Guðrún segist lengi hafa
haft gaman af því að rífa í lóðin en
hún keppti á Íslandsmótinu fyrir
Ármann eins og Morgunblaðið
greindi frá í mars. Guðrún Gróa
hefur átt velgengni að fagna í
körfuboltanum. Hún hefur orðið
bæði Íslands- og bikarmeistari með
KR og andstæðingar hennar völdu
hana besta varnarmann deild-
arinnar síðustu tvö árin. Guðrún
Gróa staðfesti við Morgunblaðið í
gær að hún muni alla vega ekki
leika með KR á næstu leiktíð.
„Eins og útlitið er núna þá er
nokkuð ljóst að ég mun ekki spila
körfubolta á næsta tímabili. Síð-
asta vetur var ég farin að snúa mér
æ meira að lyftingunum og að
tímabilinu loknu langaði mig ein-
faldlega meira til þess að snúa mér
að lyftingunum heldur en að halda
áfram í körfunni. Sú hugsun hefur
blundað í mér frá því um áramót,“
sagði Guðrún Gróa og benti á að
keppni í kraftlyftingum fer illa
saman með boltanum.
„Þetta er svo ólíkt. Ég reyndi að
gera þetta samhliða í aðdraganda
Íslandsmótsins og það gekk eigin-
lega ekki upp. Þá lyfti ég meira en
gott þykir fyrir körfuna og það sást
á minni frammistöðu á vellinum,“
sagði Guðrún en hún hefur tilkynnt
Hrafni Kristjánssyni, þjálfara KR,
ákvörðun sína. „Hann sagðist virða
ákvörðun mína.“
Óx HM 2011 í augum
Metnaðurinn í fjölskyldu Guð-
rúnar er kunnur en hún er systir
Helgu Margrétar sjöþrautarkonu.
Guðrún stefnir að því að komast í
heimsklassa í kraftlyftingum. „Ef
ég geri þetta almennilega þá held
ég að ég eigi möguleika á því að
komast í heimsklassa og ætla mér
að gera það þar til annað kemur í
ljós,“ sagði Guðrún ennfremur en
hún mun keppa fyrir Ármann og er
undir handleiðslu Ingimundar
Björgvinssonar. Guðrún hefur ekki
lagt drög að neinum stórsigrum í
lyftingunum á þessu ári en 2012
gæti orðið stórt ár hjá henni.
„Ég hafði hugsað mér að fara á
heimsmeistaramót unglinga í sept-
ember á þessu ári en það óx mér í
augum. Mér fannst ég ekki hafa
nægilega langan tíma til að undir-
búa mig og ég á hvort sem er eitt
ár eftir í unglingaflokki sem er
miðaður við 23 ára aldurinn. Ég
stefni því bæði á HM og EM í ung-
lingaflokki á næsta ári. Norður-
landamót fer einnig fram árið 2012
og þar keppi ég væntanlega ef allt
gengur að óskum en hugsanlega í
flokki fullorðinna. Það er meira en
að segja það að hoppa úr körfunni
yfir í þetta prógramm og núna er
ég því bara að styrkja mig og læra
meira. Það er ágætt fyrir mig að fá
aðlögunartíma,“ sagði Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir við Morgun-
blaðið.
Ljóst er að KR mun mæta með
talsvert breytt lið til leiks í Iceland
Express-deild kvenna næsta haust.
Auk Guðrúnar ákvað Hildur Sig-
urðardóttir að snúa heim í Stykkis-
hólm og KR sér því á eftir tveimur
lykilleikmönnum. Ofan á það bæt-
ist að ekki liggur fyrir hvaða
ákvörðun Signý Hermannsdóttir
tekur varðandi körfuknattleiks-
iðkun. Á hinn bóginn hefur KR
fengið Bryndísi Guðmundsdóttur
frá Keflavík sem hefur verið einn
besti leikmaður deildarinnar und-
anfarin ár.
Snýr sér
alfarið að
lóðunum
Guðrún Gróa hætt í körfubolta
Ætlar í heimsklassa í kraftlyftingum
Stefnir á HM og EM 2012
Morgunblaðið/Ómar
Sterk Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hefur verið einn besti varnarmaðurinn í
körfubolta kvenna hér á landi. Nú beinir hún kröftunum að lóðunum.
Það verða Spánverjar og Svisslend-
ingar sem mætast í úrslitaleik Evr-
ópukeppni landsliða skipaða leik-
mönnum 21 árs og yngri á laugar-
daginn. Spánn vann Hvíta-Rússland
og Sviss hafði betur gegn Tékkum
en úrslit í báðum viðureignum réð-
ust í framlengingu. Spánverjar
hafa tvisvar hampað Evróputitl-
inum, síðast árið 1998. Sviss hefur
hinsvegar aldrei leikið til úrslita í
keppninni sem hófst árið 1978.
Sama hvað gerist fara bæði liðin á
Ólympíuleikana í London á næsta
ári. Baráttan um þriðja og síðasta
sætið á leikunum sem liðin vinna
sér í gegnum Evrópumótið verður
milli Hvít-Rússa og Tékka. Nánar
um úrslit og markaskorara á bls 2.
omt@mbl.is
Sviss aldrei leikið
til úrslita á EM
Ragnar Sigurðs-
son spilaði sinn
síðasta leik fyrir
sænska knatt-
spyrnuliðið
Gautaborg í gær
þegar það gerði
jafntefli við Elfs-
borg 1:1. Hann
heldur nú til
Danmerkur til að
spila með meist-
araliði Kaupmannahafnar. Ragnar
hefur unnið huga og hjörtu stuðn-
ingsmanna sænska félagsins og var
hann kvaddur með virktum. Fyrir-
sögnin á heimsíðu félagsins hljóm-
aði eins og sú sem er við þessa
grein þar sem stuðningsmenn voru
hvattir til að mæta þó ekki væri
nema til að hylla og kveðja þennan
íslenska varnarmann. Hann var
sagður eiga það skilið og jafnframt
var skrifað: „Allar góðar sögur
verða að enda. Við skulum samt
vona að það sé bara hlé í þessari
sögu.“ Greinilegt er að Ragnar er
velkominn aftur ef hann kýs svo
þegar fram líða stundir, jafnvel
sem forseti! omt@mbl.is
„Ragnar til
forseta“
Ragnar
Sigurðsson
Morgunblaðið/Ernir
Það var glatt á hjalla og um mikið að spjalla þegar nokkrir af elstu ólympíu-
förum Íslands hittust í íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum í gær. Þórdís,
Óskar og Vilhjálmur kepptu öll á leikunum í London árið 1948. Á myndinni
eru, frá vinstri: Guðmundur Gíslason sundmaður, Vilhjálmur Vilmundarson
kúluvarpari, Óskar Jónsson hlaupari, Þórdís Jóhanna Árnadóttir sundkona
og Jóhann Vilbergsson skíðamaður.