Morgunblaðið - 23.06.2011, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 23.06.2011, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011 ÓLYMPÍUDAGURINN ER Í DAG – LAUGARDALNUM Ólympíudagskráin: 19:00 Setning við bílastæðin. 19:00–22:00 Akstursíþróttanefnd verður með sýningu á fjórum til fimm keppnis- bílum, allt frá kvartmílu til gókart, á bílastæðinu hjá Þrótti/Ármanni. 19:00–21:30 Skylmingar. 19:00–22:00 Keila, borðtennis, skotíþróttir, krakkablak og strandblak, tennis, og rathlaup (sjá nánar á www.rathlaup.is). 21:00–21:40 Dans – sýning og létt kennsla. 22:00 Miðnæturhlaupið. Skráning á www.maraþon.is Fylgstu með nýjum atriðum sem óðum bætast inn á dagskrána á fésbókarsíðu okkar: Ólympíudagurinn 23. júní. Komdu í Laugardalinn á Ólympíudaginn og taktu þátt í fjörugri dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Taktu fjölskylduna með og prófaðu spennandi íþróttagreinar undir handleiðslu landsliðsfólks í skylmingum, tennis, skotíþróttum, blaki, borðtennis, keilu og dansi. Komdu og gerðu þér glaðan dag. Gerðu þitt besta Vinátta • Virðing um leik. „Sagan hjálpar manni svo sem ekkert fyrir þennan leik en það er að sjálfsögðu hugur í mönnum. Bikarkeppnin er skemmtilegt krydd í tilveruna og það er gríðarlega spennandi að fá alvöru lið eins og ÍBV. Ég veit að menn munu leggja mikið á sig til að stríða þeim,“ sagði Ásmundur og hann er hrifinn af ÍBV-liðinu. „Við erum rosalega spenntir og það er gott að fá ns og boltinn spilast í dag þá er ÍBV annað af bestu liðum landsins. Ég á mmtilegum leik og mikilli stemningu í m.“ Gengi Fjölnismanna hefur verið upp og ofan í 1. deildinni en sú deild er nánast í hnút ef frá eru dregin lið ÍA og HK. „Við erum á sæmilegu róli en eins og margir aðrir myndum við vilja hafa fleiri stig. Við teljum okkur eiga eitthvað inni og eigum að geta spilað betur en við höfum sýnt undanfarið. Þetta er allt í lagi eins og staðan er í dag og enn er mikið eftir.“ Eftirtalin lið mætast í 8-liða úrslitum: BÍ/Bolungarvík/Breiðablik – Þróttur Þór – Grindavík Fjölnir – ÍBV KR/FH – Keflavík Myndbandsviðtöl við Pál Viðar Gíslason, þjálf- ara Þórs, og Orra Frey Hjaltalín, fyrirliða Grinda- víkur, er að finna á mbl.is/sport. kris@mbl.is m landsins að mati Ásmundar Stórleikur verður í 8-liða úrslitum Valitor-bikars kvenna þegar Stjarnan fær Val í heimsókn en þessi lið börðust um bikarinn í úr- slitaleiknum í fyrra. FH er eina 1. deildarliðið sem eftir er í keppn- inni og liðið þarf að fara í Árbæinn og spila við Fylki. Þjálfari FH er Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari, og hún sagði FH-inga vera spennta fyrir því að reyna sig gegn úrvalsdeildarliði. „Maður gat átt von á öllu og við ætluðum bara að vera tilbúnar í hvað sem er. Okkur langaði til þess að komast í 8-liða úrslit og við teljum okkur eiga fullt er- indi. Það er gaman fyrir okkar unga lið að fá að spreyta sig á móti liði úr efstu deild,“ sagði Helena þegar Morgunblaðið ræddi við hana í gær. Styrk- leikamunurinn þykir mikill á milli deildanna. Helena segir það vera staðreynd. „Við munum reka okkur á að hraðinn verður meiri í þessum leik en í leikjunum í 1. deild. Við verðum bara að undirbúa okkur vel fyrir það og við höfum mikinn áhuga á því að sanna okkur,“ sagði Helena ennfremur. Eftirtalin lið mætast í 8-liða úrslitum: Fylkir - FH Stjarnan - Valur KR - Grindavík ÍBV - Afturelding Myndbandsviðtöl við Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur, fyrirliða Stjörnunnar, og Gunnar Borgþórsson, þjálf- ara Vals, er að finna á mbl.is/sport. kris@mbl.is FH-ingar fá að reyna sig gegn Fylki Helena Ólafsdóttir Bergþóra Holton Tómasdóttirmun ekki leika með Fjölni í 1. deildinni í körfuknattleik á næstu leiktíð því hún mun halda til Bandaríkjanna og leika körfubolta með menntaskólaliði í N-Karól- ínuríki. Bróðir hennar, Tómas Heiðar Tómasson, er einnig á leið vestur og ekki verður langt á milli þeirra systkina því Tómas verður í S-Karólínuríki. Brotthvarf Berg- þóru er talsverð blóðtaka fyrir Fjölni en hún var einn öflugasti leikmaður liðsins þrátt fyrir að vera einungis 17 ára gömul.    Andri SteinnBirgisson úr Keflavík og Hörður Sigurjón Bjarnason úr Víkingi R. voru úrskurðaðir í eins leiks bann hvor á fundi aga- og úrskurð- arnefdar KSÍ. Báðir vegna fjögurra gulra spjalda. Þeir verða því báðir fjarri góðu gamni í 8. umferð Pepsi-deildar karla, en Víkingur leikur við Val á sunnudaginn og Keflavík við Breiðablik á mánudaginn.    Ruth Þórð-ardóttir úr Fylki fékk tveggja leikja bann vegna brottvísunar í leik liðsins gegn Breiðabliki á dögunum. Hún missir af leik Fylkis gegn Þrótti í kvöld og gegn KR á þriðju- daginn kemur. Soffía A. Gunn- arsdóttir úr Stjörnunni fékk eins leiks bann vegna brottvísunar og missir af toppslagnum gegn ÍBV í kvöld.    Úr 1. deild karla fengu einsleiks bann þeir Birkir H. Sverrisson úr BÍ/Bolungarvík, Grétar Atli Grétarsson úr Hauk- um, Ólafur H. Kristjánsson úr Leikni R. og Guðfinnur Þórir Óm- arsson úr Þrótti R. Sá síðastnefndi tók bannið út í bikarleik Þróttar gegn Fram í fyrrakvöld. Fólk sport@mbl.is KNATTSPYRNA Valitor-bikar karla, 16-liða úrslit: Torfnesv.: BÍ/Bolung. – Breiðablik .... 19.15 KR-völlur: KR – FH ................................. 20 Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin: Stjörnuvöllur: Stjarnan – ÍBV ................. 18 Þórsvöllur: Þór/KA – Afturelding ...... 18.30 Vodafonev.: Valur – Breiðablik ........... 19.15 Grindavíkurv.: Grindavík – KR........... 19.15 Fylkisvöllur: Fylkir – Þróttur R......... 19.15 1. deild kvenna: Akranesvöllur: ÍA – Fjölnir...................... 20 Selfossv.: Selfoss – Víkingur Ó................. 20 Leiknisvöllur: Leiknir R. – Haukar......... 20 3. deild karla: Fjöln./gerv.: Vængir Júp. – Markaregn.. 20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.