Morgunblaðið - 23.06.2011, Page 4
lægri hlut í neinum leik í deildinni
eða bikarnum, og þá vann það 14
Evrópuleiki á síðasta tímabili sem er
portúgalskt met.
Eftir að Villas-Boas sagði starfi
sínu lausu hjá Porto á mánudaginn
og upplýst var að klásúla í samningi
hans um „lausnargjald“ hafði verið
greidd, 13,3 milljónir punda, var
ljóst að Portúgalinn var á leið til
London á ný.
„André var langbesti kosturinn í
starfið. Hann er einn efnilegasti
ungi knattspyrnustjórinn í dag.
Hann hefur þegar náð miklum ár-
angri á skömmum tíma. Metnaður
hans, kraftur og ákveðni er í stíl við
Chelsea og við erum sannfærðir um
að undir forystu Andrés mun liðið ná
betri árangri í stóru mótunum heima
og erlendis,“ sagði í yfirlýsingu sem
Chelsea gaf út í gærmorgun.
Tíð stjóraskipti frá 2007
Frá því Villas-Boas yfirgaf Stam-
ford Bridge ásamt Mourinho í sept-
ember 2007 hafa stjóraskipti verið
tíð hjá Chelsea. Avram Grant stýrði
liðinu í níu mánuði, Luiz Felipe Scol-
ari í sjö mánuði, Guus Hiddink í þrjá
mánuði og Carlo Ancelotti í tvö ár,
auk þess sem Ray Wilkins hljóp í
skarðið í einum leik þegar Scolari
var sagt upp. Nú hefur liðlega þrí-
tugur maður sest í þetta heita sæti,
jafnaldri sumra leikmannanna.
Hann þarf væntanlega að skila ár-
angri strax næsta vetur. Roman
Abramovich og hans menn hafa ekki
mikla þolinmæði ef titlarnir láta á
sér standa, eins og sagan sýnir. En
þeir þekkja André Villas-Boas eftir
fjögurra ára dvöl hans á Stamford
Bridge og báðir aðilar ættu því að
vita mætavel að hverju þeir ganga.
Reuters
Sigursæll André Villas-Boas vann allt sem hægt var að vinna með Porto í vetur og fagnar hér sigrinum í Evrópu-
deild UEFA. Nú blasir við honum ný áskorun á Stamford Bridge, þar sem hann þekkir reyndar vel til.
Strákurinn á Stamford
Hinn 33 ára gamli André Villas-Boas er nýr knattspyrnustjóri Chelsea
Aðeins tveggja ára reynsla sem aðalþjálfari en sigurgangan er mögnuð
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
André Villas-Boas, 33 ára gamall
Portúgali, var í gærmorgun ráðinn
knattspyrnustjóri Chelsea. Hann
tekur við af Carlo Ancelotti sem var
rekinn í lok síðasta keppnistímabils.
Villas-Boas kannast vel við sig á
Stamford Bridge í London því þar
var hann í fjögur ár sem aðstoð-
armaður landa síns, Josés Mour-
inhos. Samvinna þeirra hefur verið
enn lengri en það því Villas-Boas var
áður með Mourinho hjá Porto í eitt
ár og síðan fylgdi hann félaga sínum
til Inter Mílanó á Ítalíu.
Óhætt er að segja að Villas-Boas
hafi slegið í gegn á stuttum ferli sem
aðalþjálfari. Hann sagði skilið við
Mourinho sumarið 2009 og var í
október ráðinn til Académica, sem
þá sat á botni efstu deildarinnar í
Portúgal og hafði ekki unnið leik.
Strákurinn sneri gengi liðsins við,
það endaði að lokum í 11. sæti deild-
arinnar, tíu stigum fyrir ofan fall-
sæti.
Landsliðsþjálfari Bresku
Jómfrúreyja
Reyndar var þetta ekki fyrsta
verkefni Villas-Boas sem aðalþjálf-
ari. Hann brá sér vestur í Karíba-
hafið um síðustu aldamót, aðeins 22
ára gamall, og stýrði landsliði
Bresku Jómfrúreyja í nokkra mán-
uði. Ekki var árangurinn sérstakur,
tveir tapleikir, eitt mark skorað
gegn fjórtán, enda landslið eyjanna
eitt það lakasta í þeim heimshluta.
Villas-Boas hefur þjálfað frá 16
ára aldri þegar Bobby heitinn Rob-
son, fyrrum landsliðsþjálfari Eng-
lands, tók hann inní hóp aðstoðar-
manna sinna hjá Porto í Portúgal.
Robson reyndist piltinum vel og
hjálpaði honum að stíga fyrstu
skrefin á ferlinum. Robson er sagður
hafa hrifist af enskukunnáttu þessa
portúgalska stráks en skýringin á
henni mun vera sú að föðuramma
hans er ensk.
Samfelld sigurganga
með Porto
Fyrrgreindur árangur Villas-
Boas með lið Académica leiddi til
þess að hans gamla félag, Porto, réð
hann til sín sem aðalþjálfara í júní á
síðasta ári. Framganga liðsins undir
hans stjórn var síðan óslitin sigur-
ganga í eitt ár. Á þessu eina ári með
Villas-Boas við stjórnvölinn vann lið-
ið alla þá stóru titla sem í boði voru.
Varð tvöfaldur meistari í Portúgal, í
deild og bikar, og sigraði í Evrópu-
deild UEFA. Porto tapaði ekki fyrir
neinu portúgölsku félagi, beið ekki
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Næstu mótherjar Íslands í und-
ankeppni Evrópumóts kvenna í
knattspyrnu hafa gert það gott í vin-
áttulandsleikum
að undanförnu.
Íslenska lands-
liðið, sem vann
Búlgaríu í fyrsta
leik sínum í vor,
spilar fjóra leiki til
viðbótar í keppn-
inni í september
og október, gegn
Noregi, Belgíu,
Ungverjalandi og
Norður-Írlandi.
Noregur, sem mætir Íslandi á
Laugardalsvellinum 17. september,
gerði sér lítið fyrir og lagði Bandarík-
in, 3:1, á æfingamóti í Austurríki. Það
var nokkur uppreisn fyrir norska lið-
ið sem hafði steinlegið fyrir Þjóð-
verjum, 0:4. Emilie Haavi, Lene
Mykjåland og Cecilie Pedersen skor-
uðu fyrir norska liðið eftir að Carli
Lloyd skoraði fyrst fyrir Bandaríkin.
Bæði lið búa sig undir lokakeppni
HM sem hefst í Þýskalandi um
helgina.
Belgar lögðu Norður-Kóreu
Lið Belgíu, sem mætir á Laug-
ardalsvöllinn 21. september, kom
mjög á óvart með því að sigra Norð-
ur-Kóreu, sem er í 8. sæti heimslist-
ans, 1:0. Norður-kóreska liðið er á
leið á HM og hefur lengi verið í
fremstu röð í heiminum. Belgía er í
35. sæti heimslistans.
Ungverjar, sem taka á móti ís-
lenska liðinu 22. október, töpuðu á
dögunum naumlega fyrir Kanada,
0:1. Kanadíska liðið er í 6. sæti heims-
listans og leikur á HM eftir að hafa
unnið Mið- og Norður-Ameíku-
keppnina þar sem það skaut Banda-
ríkjunum afturfyrir sig.
„Þetta eru allt afar athyglisverð
úrslit og sýna að okkar riðill er sterk-
ari en margir halda. Enda voru
Belgía og Ungverjaland einna sterk-
ustu liðin í sínum styrkleikaflokkum
og það sést á þessu að við eigum
hörkuleiki fyrir höndum í haust,“
sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari við Morgunblaðið.
Erfitt að fá vináttuleik
Sigurður sagði að mikið hefði verið
reynt til að fá vináttulandsleik í ágúst
til undirbúnings fyrir leikina í haust.
„Það hefur gengið vægast sagt illa.
Við athuguðum með mörg af sterkari
liðum heims en þetta passaði ekki
inní dagskrána hjá neinu þeirra. Við
erum ekki búin að gefa upp alla von
en líkurnar á því að við fáum leik í
ágúst fara minnkandi,“ sagði Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson.
Mótherjar
Íslands í
góðum gír
Sigurður Ragnar
Eyjólfsson
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Allt útlit er fyrir að landsliðs-
markvörðurinn Sveinbjörn Pét-
ursson verði áfram í herbúðum Ak-
ureyrar Handboltafélags á næstu
leiktíð líkt og þeirri sem lauk nú í
vor. Sveinbjörn var á láni frá HK
en hann er samningsbundinn Kópa-
vogsfélaginu til ársins 2013. Ekki
er ljóst hvort Sveinbjörn verði lán-
aður aftur eða seldur til Akureyrar.
„Samningurinn við Akureyri
kláraðist núna við enda tímabilsins
þannig að núna standa málin þann-
ig að það er verið að vinna í því að
semja aftur svo ég geti spilað fyrir
norðan næsta vetur. Það er vilji
allra sem koma að þessum málum
Fyrirspurnir frá Þýskalandi
og Norðurlöndunum
Frammistaða Sveinbjörns hefur
vakið athygli erlendis og hann hef-
ur fengið fyrirspurnir frá félögum
bæði í Þýskalandi og á Norðurlönd-
unum.
„Eftir tímabilið heyrði maður af
áhuga hér og þar en það varð ekk-
ert meira úr því enda var það ekk-
ert á planinu að reyna að fara út
núna. Maður hefði getað komist út
hefði maður reynt það en ég vil
taka alla vega eitt ár í viðbót hér
heima og vinna í því sem þarf að
vinna í og vinna einhverja bikara
áður en maður reynir fyrir sér úti.
Langtímamarkmiðið er hins vegar
auðvitað að komast út. “
að ég spili fyrir norðan en það þarf
að finna einhverja lausn á því. Það
er í ágætis farvegi og leysist von-
andi fljótlega,“ sagði Sveinbjörn
sem var einn besti leikmaður N1-
deildarinnar á síðustu leiktíð og
átti stóran þátt í góðu gengi Ak-
ureyringa sem unnu deildina, fóru í
úrslit í bikarkeppninni og töpuðu
svo fyrir FH í úrslitum Íslands-
mótsins.
Sveinbjörn var valinn besti
markvörður N1-deildarinnar á síð-
ustu leiktíð. Hann lék einnig sína
fyrstu landsleiki fyrir A-landslið Ís-
lands þegar það mætti Svíþjóð og
Noregi á æfingamóti í desember
síðastliðnum. Hann lék svo með lið-
inu gegn Þýskalandi í undankeppni
Evrópumeistaramótsins í mars.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Fagnar Sveinbjörn Pétursson ofsakátur eftir sætan sigur Akureyringa í vet-
ur. Hann reiknar með að spila áfram með norðanmönnum.
Vilji allra að ég spili fyrir norðan
Sveinbjörn er samningsbundinn HK í tvö ár í viðbót