Austurland


Austurland - 06.01.1956, Blaðsíða 4

Austurland - 06.01.1956, Blaðsíða 4
4 AUSTURLAND Neskaupstað, 6. janúar 1956. Þór og Hamar Framhald af 1. síðu. bagga og valið kafla til birtingar, t. d. um álit skáldsins á íhaldinu eða heiðarleik Morgunblaðsins. Þá er birt löng pólitísk æsinga- og blekkingaræða eftir Bjarna Ben. og getur ekki talizt smiekk- legt að birta slíkan þvætting í jólablaði. Fáeinar línur hafa íhaldsmenn hér fært í letur. Er það endursögn á því sem útvarpið sagði um fréttaflutning sinn fyrir aldar- fjórðungi og annað álíka frum- legt. Þetta mun vera eina tölublað Þórs á liðnu ári og hefði íhalds- mönnum áreiðanlega verið sæmra að gefa ekkert blað út á árinu. Hamar kom út rétt fyrir ára- mótin og er það talið 6. tbl. ár- gangsins. (Hvar eru hin fimm?). Ritstjórinn kvartar undan því, að fáu hafi verið lokið af fram- kvæmdum bæjarins á liðnu ári. Hinsvegar lætur hann að mestu hjá líða að geta þess, sem þokazt hefur áfrani'. Hann t. d. sér ekki sjúkrahúsið, en stórkostlegt átak hefur verið gert í byggingu þess á síðasta ári. Máski hefur Oddur eitthvert samvizkubit vegna af- 3töðu sinnar til byggingar þess, þegar hafizt var handa. Og flokk- ur hans hefur alltaf sýnt þessu stórkostlega velferðarmáli bæjar- ins fullan fjandskap. Það er t. d. geymt en ekki gleymt, að fyrr- verandi bæjarfulltrúi flokksins komst svo að orði á bæjarstjórn- arfundi að þetta væri „vitlaust sjúkrahús“. En líklega þykir Oddi ekki vænlegt til vinsælda að hafa hátt um þessa afstöðu nú, þegar árangurinn af forystu sósíalista í sjúkrahússmálunum er að fullu að koma í ljós. Sjúkrahúsið mun taka til starfa innan fárra mánaða. Vissulega ber ekki að færa það átak þessu nýbyrjaða ári einu til tekna, held- ur öllum árunum 1948—1956. En það eru horfur á því, að það verði ekkert smáræði, sem Oddur getur í næsta áramótablaði fært bæjarstjórn til tekna af fullgerð- um framikvæmdum: sjúkrahús, nýr togari, vatnsveita, samtals framkvæmdir upp á líklega 17— 18 milljónir króna. En þó þessum framkvæmdum ljúki árið 1956, á þó starf bæjarstjórnar á liðnu ári og árum sinn mikla hluta af verk- inu. —o— Þá sér Oddur ástæðu til að hella sér yfir félagsheimilið, stað- arval þess og fyrirkomulag. Ekki sér Austurland ástæðu til að taka upp rökræður um þetta. Telur blaðið, að félögin, sem standa að þessari byggingu og einróma sam- þykktu staðarval og teikningu, hafi full vel vitað hvað þau voru að gera og áreiðarilega betur en Guðmundur Magnússon: Það er skömm fyrir okkur Þegar ég varð fimmtugur fékk ég bók í afmælisgjöf með vísu á. Ég vissi að vjsan gat ekki verið eftir þann, sem bókin var frá, en mér fannst endilega ég finna eftir hvern hún væri, enda reyndist sá grunur minn réttur. Vísan var eftir Einar Svein Frímanns. Einhvern veginn fannst mér bók- in stækka við það að vísan var eftir hann, þó hún (bókin) sé ágæt, enda eftir frægan höfund. Ég hafði þá margt heyrt og lesið eftir Einar Svein, bæði bundið og óbundið mál, þar á meðal verð- launasöguna hans Austfjarða- þokan. Svo hafði hann oft sjálfur látið mig heyra margt eftir sig, sem ég veit ekki hvort er geymt. eða gleymt. Ég hef sjálfsagt ekki mikið vit á skáldskap, en frá mínu sjónarmiði er það, semi ég hef heyrt eftir Einar Svein vel hugs- að og vel skrifað. Og mér finnst enginn þurfa að setja upp sterk andans gleraugu né horfa lengi í gegnum þau á andleg verk Einars Sveins til að sjá að hann var meira en hagyrðingur. Hann var skáld, enda vitmaður mikill. Ég hefði gaman af, ef einhver gæti bent mér á illa gerða vísu eða illa gerða setningu eftir hann. Ekki efa ég það, að einhvern tíma kemur sá tími, að verkum Einars Sveins verður safnað og þau gefin út á prenti, það er að segja þau sem eru vís. Sum eru sjálfsagt glötuð og er það skaði, því ekki get ég varizt þeirri hugs- un, að margt hafi komið út ó- merkilegra. Einar Sveinn Frímanns var lengi hér í bænurru og margir voru hér góðir kunningjar hans og hann þeirra. Þar að auki skemmti hann oft fólki hér með gaman- kvæðum og fleiru, þó fólk skildi hann misjafnlega eins og gengur. Það er nú meiri vandi en vegsemd að gera svo öllum líki og það allra froðusnakkar á borð við Odd. Frásögn Austurlands af amie- rísku kvikmyndavélinni hefur far- ið ónotalega i taugar ptstjóra Hamars. Þó kemst hann ekki hjá að viðurkenna sannleikann í frá- sögn Austurlands. En vélin ,ejr hvorki seld eða gefin, heldur lát- in í té með láns- og leigukjörum „á ábyrgð nokkurra manna úr þrem flokkum, en geymd hjá undirrituðum“. (Pistillinn er nafnlaus og vélin þá liklega hvergi geymd). Því skal trúað, að vélin sé lán- uð, en svo getur hver og einn gert sér í hugarlund í hvaða tilgangi áróðurs- og njósnastofnanir Bandaríkjastjórnar, láta erlend- um stjórnmálaflokkum áróðurs- tæki í té. helzt í gamni. Það hefur víst eng- um tekizt. Ég sagði áðan að verk Einars Sveins mundu ekki tínast, heldur verða gefin út. En það er annað týnast. Og það er hvorki meira né minna en leiðið hans. Ég hygg að þetta sé skömm fyrir okkur Norð- firðinga. Það mikið af kvæðum og lausavísum lifir á vörum fólks hér í bænum og reyndar víðar, og mun lifa eftir hann, að ég sé okk- ur ekki fært, sóma okkar vegna, að láta leiðið hans glatast. Ég hef átt tal við þó nokkra menn hér í bænum, þ. á. m. Bjarna Þórðar- son, bæjarstjóra, og Jón L. Bald- ursson, sparisjóðsstjóra, um það hvort\ við ættum ekki að hef ja fjársöfnun í þeim tilgangi, að reisa stein á leiði skáldsins. Allir, sem ég hef átt tal við um þetta, hafa verið því mjög fylgjandi og lofað að leggja eitthvað af mörkum. Sömuleiðis hefur Jón L. Baldurs- son lofað að taka á móti því, semi safnast, í Sparisjóðinn. Norðfirðingar, sýnum að við unnum ljóðum og sögum og að við viljum ekki gleyma skáldunum, sem þau gera. Þess vegna skulum við öll eignast hut I steini á leiði skáldsins Einars Sveins Frí- manns. ★ ★ ★ Að gamni mínu læt ég fylgja eina vísu eftir Einar Svein, en ég verd þá um leið að segja til- arög hennar. Eitt vor var smiður hér í bæn- um að vinna í báti, sem lá við bæjarbryggjuna. Þetta var um sauðburo og austan krapahríð og kalsaveður. Einar Sveinn var þá einbúi og bjó í litla húsinu, sem hann átti og stóð það þar sem nú stendur kaupfélagshúsið. Hann kemur ofan á bryggju og sér mikið af höggspónum og smáspýt- um á bátsdekkinu og biður smið- inn að gefa sér fáeina spæni til að ylja upp hjá sér. Smiðurinn segir: „Sæktu þá poka. Þú berð varla mikið í tómum höndunum“. Það stóð ekki á pokanum og heldur ekki á að fylla hann og var ekki af dregið og fór skáldið með hann. Nokkru síðar kemur drengur með miða til smiðsins og var á honum þessi vísa: Krókna lömib í krapabyl, kúrir spóinn hljóður. En ég hef fengið amaryl, — andskoti er hann góður. Allir hjóta að skilja hver hann er, smiðurinn, sem skáldið gat fengið arnaryl frá, því hér er ekki nema einn smiður kenndur við örn. Hann hefur lofað að borga vísuna með tillagi í stein á leiði skáldeins. G. M. Dr bænum Afmæli: Þórstína Pálsdóttir, kona Jóns Einarssonar, Haugsstöðum, varð 60 ára í gær — 5. pan. — Hún fæddist á Þiljuvöllum í Berunes- lireppi, en hefur átt hér heima síðan 1934. Hjónabönd: 30. des. voru gefin saman í hjónaband Þórunn Bjömsdóttir og Sveinbjörn Jóhannesson, verkamaður, Vindheimi. Ennfrem- ur Ágústa Guðmundsdóttir og Bjartmiar Magnússon, verkamað- ur, Brekku. Á gamlársdag voru gefin sam- an í hjónaband Ólafía Einars- dóttir og Jón plafsson, verka- maður, Miðstræti 10. Ennfremur Guðbjörg Hjartardóttir frá Lækj- armóti, Fáskrúðsfirði og Sgurjón Jónsson, sjómaður, Haugsstöðum. Séra Ingi Jónsson framkvæmdi allar þessar hjónavígslur og alls gaf hann saman 13 hjón á liðnu ári. . Trúlofun: Á Þorláksmessu opinberuðu trúlofun sína ungfrú Þórey Hann- esdóttir (Ivarssonar), Neskaup- stað og Gunnar L. Pétursson, vélvrki, Þvervegi 12, Rvík. — Þjv. Á gamlársdag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Erla Jónsdótt- ir (Finnssonar, bílstjóra) Sand- brekku, Neskaupstað, og Hjörleif- ur Þórlindsson frá Fáskrúðsfirði. Bát rekur á land. Að kvöldi 2. jan. gerði hvass- viðri af VSV. V. b. Sæfaxi var ný- kominn úr slipp og lagstur við festar inni í Vík. Slitnaði hann upp og rak á land rétt innan við dráttarbrautina. Báturinn náðist út í fyrradag óskemmdur. S. Brekkan lætur af organistastarfi Nú um áramótin lét Sigdór Brekkan af organistastarfi við Norðfjarðarkirkju, en því hefur hann gegnt um langt árabil. Við miessu í kirkjunni á nýárs- dag minntist sóknarprestur starfs Sigdórs við kirkjuna. Gat hann þess, að nú væru um 50 ár liðin frá því Sigdór hóf fyrst að leika við messur. Var hann fyrst org- anisti í Mjóafirði um átta ára skeið, en síðan hér á árunum 1915 —25 og aftur 1938 til síðustu áramóta. í forföllum annarra hef' ur hann einnig oft leikið. Hefur hann starfað meira og minna með Öllum þeim prestum, sem hér hafa verið á þessari öld. Minntist sóknarprestur sam- vizkusemd og traustleika SigdórS Framhald á 3. síðu.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.