Austurland - 11.05.1956, Qupperneq 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 11. maí 1956.
U nglinga vinna
vinnuskóli
j Ansturland
■
5 Ritstjóri: Bjarni Þórðarson. [
B ■
■ Kemur út einu sinni í viku. :
■
■
Lausasala kr. 2.00.
: Árgangurinn kostar kr. 60.00. |
■
Gjalddagi 1. apríl.
NESPRENT H-P
........................
Tryggið vinstri
stjórn
Islenzk alþýða á margt sameig-
iginlegt þó henni andstæð öfl liafi
komið ár sinni það vel fyrir borð,
að hún hefur ekki náð að sam-
eina krafta sína velferðarmálum
sínum til framdráttar.
En augu alþýðufólksins er nú
sem óðast að opnast fyrir því hver
óvinafögnuður sundrung hennar
er. Og þessi vaknandi skilningur
birtist í hinum ágætu viðtökum,
sem Alþýðubandalagið hefur feng-
ið og kosningarnar í sumar munu
sanna, að augu fólksins eru að
opnast. Og þann dag, sem alþýð-
unni verður sá einfaldi sannleik-
ur ljós, að hagsmunalega og skoðn
analega er hún í raun og veru ein
heild og á að standa saman, er
lokið völdum afturhaldsins á Is-
landi.
Það er von íslenzkrar alþýðu,
að upp úr næstu kosningum verði
vinstri stjórn í landinu. Og vissu-
lega er mikil ástæða til að vænta
þess. Þegar er auðséð, að Alþýðu-
bandalagið fær mikið fylgi í kosn-
ingunum' og verður án nokkurs
efa næst stærsti flokkurinn hvað
atkvæðamagn snertir. Og einmitt
við styrk Alþýðubandalagsins eru
bundnar vonir manna um vinstri
stjórn.
Framsókn sver nú og sárt við
leggur að hún vilji ekkert sam-
neyti hafa við íhaldið framar.
Samt situr hún enn þann dag í
dag með því í ríkisstjórn. Fram-
sókn hefur áður svarið af sér allt
samneyti við íhaldið fyrir kosn-
ingar, en lagzt með því þegar er
þær voru afstaðnar.
Það er ráðagerð Eysteins og
annarra afturhaldspostula Fram-
sóknar, að fleyta flokki sínum yfir
brim og boða kosninganna með
upploginni íhaldsandstöðu og
kjaftæði, sem ekkert er meint
með, um vinstra samstarf. Og
takist að fleyta lekahripi Fram-
sóknar nokkum veginn ósködd,-
uðu í höfn, á aftur að ganga í
eina sæng með íhaldinu og allir
vita, hvort sem þeir viðurkenna
það fyrir sjálfum sér eða ekki,
hvað það þýðir fyrir alþýðuna.
Komi Alþýðubandalagið sterkt
út úr þessum kosningum, miui
Eins og kunnugt er gekkst Nes-
kaupstaður fyrir unglingavinnu í
fyrrasumar. Umsjón með þeirri
vinnu hafði Gunnar Ólafsson,
skólastjóri. Hann hefur nýlega
látið bæjarstjórn í té umsögn um
reynslu sína af þessari vinnu og
gert tillögur um fyrirkomulag
hennar á þessu sumri. Gunnar
segir:
„Tvennt var það einkum, sem
ég taldi athugavert við fram-
kvæmd unglingavinnunnar í fyrra:
1. Of langur vinnudagur.
2. Kaup greitt samkvæmt dag-
launataxta.
Um fyrra atriðið mætti segja
þetta:
I fyrra var vinnuvikan 44
stundir eða langt til eins og hjá
fullorðnum verkamönnum, og
lengri heldur en hjá mörgum
stéttum manna. Það var reyndar
til mikilla bóta, að þriðju hverja
viku var frí .. .
Það kom greinilega í ljós, eink-
um þegar leið á vinnutímann, að
drengirnir voru farnir að þreyt-
ast, þeir héldu sig ver að vei’ki
og voru beinlínis afkastaminni..
Síðara atriðið er auðvitað ná-
tengt því sjónarmiði, hvort líta
beri á unglingavinnuna sem upp-
eldisatriði eða fjáröflun. Ég þarf
varla að taka það fram, að síðara
atriðið tel ég ákaflega fráleitt, en
því miður gaf tilhögun vinnunnar
í fyrra því of mikið undir fótinn.
Enginn ber á móti því, að börn og
unglingar eiga að vinna, en sú
vinna á fyrst og fremst að þjóna
tvennum tilgangi, í fyrsta lagi
gefa þeim viðfangsefni og í öðru
lagi veita þeim kennslu og æfingu
í vinnubrögðum bæði til lands og
sjávar.. .
I nokkrum bæjum hefur ung-
lingavinna verið skipulögð um
árabil, og þá fyrst og fremst í
Reykjavík, þó að hún sé þar
kannski smæst í sniðum miðað við
íbúafjölda. Siglufjörður er kann-
ski sambærilegur við okkar að-
stæður og hef ég fengið ágætar
upplýsingar þaðan varðandi alla
framkvæmd og tilhögun. Einnig
hef ég haft fréttir af samskonar
unglingavinnu í Hafnarfirði.
Hvergi er vinnudagur lengri en 5
Eysteinn ekki treysta sér til að
leiða Framsókn enn einu sinni í
hús íhaldsins. Þá sér hann hvert
stefnir og þorir ekki annað en að
ganga til vinstra samstarfs.
Aðeins stórsigur Alþýðubanda-
lagsins er trygging fyrir vinstri
stjórn. Hvert atkvæði, sem greitt
er Framsóknarflokknum, stælir
hann til að halda áfram íhalds-
samvinnunni. Framsóknarflokk-
urinn þarf að fá ráðningu í kosn-
ingunum. Það er eina ráðið til að
koma fyrir hann yitinu.
—6 stundir og kaup 25—45 krón-
ur á dag. Það þekkist hvergi að
greitt sé samkvæmt launataxta
verklýðsfélaga.
Að fengnum þessum upplýsing-
um, en þó fyrst og fremst vegna
reynslu minnar af vinnunni í
fyrra, vildi ég gera eftirfarandi
tillögur um unglingavinnuna á
komandi sumri.
1. Unnið verði í tveim flokkum
daglega verði eftirspurn svo mik-
il, að nauðsyn sé á skiptingu, en
ég tel óráðlegt að hafa fleiri en
6—8 í flokki. ..
2. Vinnudagur sé 5—6 stundir,
líklegast heppilegast 5 stundir og
sé þá unnið frá kl. 7—12 og kl.
I— 6 með i/2 tíma hvíld og helzt
klukkustundar hvíld, enda sé þá
tíminn notaður til munnlegrar
fræðslu um þau störf, sem verið
er að vinna hverju sinni.
3. Kaup verði kr. 30.00 fyrir
II— 12 ára, en kr. 40—45 fyrir
13—14 ára.
4. Verkstjóra sé heimilt að
verja a. m. k. einum degi í mán-
uði á þann hátt að verða megi
unglingunum á einhvern hátt til
sérstakrar skemmtunar eða fróð-
leiks, svo sem ferðalags eðs
skoðunar á vinnustað o. s. frv.
5. Að" því er að verkefnum lít-
ur, sérstaklega varðandi sjó-
vinnustörf, verði reynt að semja
við vinnustöðvar eins og t. d.
hraðfrystihúsin og einstaklinga.
Greiði þeir aðilar þá kaup ung-
linganna, en bærinn greiði ávalt
kaup verkstjóra, enda sé fyrst og
fremst litið á hann sem kennara“.
Bæjarráð hefur fjallað um þetta
erindi Gunnars og unglingavinn-
una yfirleitt. Féllst það á sjónar-
mið Gunnars og samþykkti að á
vegum bæjarins skyldi í sumar
rekinn vinnuskóli fyrir 12—1A
ára drengi. Daglegur vinnutími
skal verða 5 stundir og kaup
drengja yngri en 13 ára vera kr.
35.00 á dag, en eldri drengja kr.
45.00 á dag.
Samkvæmt þessu verður viku-
kaup yngri drengjanna 210 krón-
ur, eða kr. 7.00 um tímann, en
eldri drengirnir hafa kr. 9.00 um
tímann, eða kr. 270.00 á viku.
Ef við tökum þriggja vikna
tíma til samanburðar og liöfum
það í huga, að í fyrra var frí
þriðju hverja viku, kemur eftir-
farandi í ljós:
I fyrra var vinnutími þriggja
vikna 88 stundir, en nú er gert
ráð fyrir að hann verði 90 st. —
Miðað við kauptaxta verklýðsfé-
lagsins í dag, ættu drengir undir
14 ára að hafa í kaup kr. 8.89,
en þeir sem náð hafa 14 ára aldri'
kr. 13,68. Mundi þá þriggja vikna
kaup í fyrra tilfellinu nema kr.
782.52, en í hinu síðara kr.
1203.84.
Nú er hinsvegar gert ráð fyrir
að yngri drengir en 13 ára hafi
í kaup 630 krónur á þrem vikum,
en eldri drengir kr. 810.00.
Tilgangur bæjarstjómar með
unglingavinnunni var frá upphafi
.sá, að fá drengjunum verkefni og
forða þeim á þann hátt frá sið-
spillandi iðjuleysi og göturápi.
Launin hafa frá sjónarmiði bæj-
arstjórnar jafnan verið aukaat-
riði, en sjálfsagt er þó að greiða
drengjunum kaup. Það eykur
sjálfsvirðingu þeirra og áhuga.
Og þegar að er gætt, er þetta ekki
svo lítið kaup fyrir börn.
Starfsmaður sjúkra-
húss ráðinn
Sjúkrahússstjórn hefur ráðið
Stefán Þorleifsson til að veita
byggingarframkvæmdum forstöðu,
koma rekstrinum af stað og veita
honum forstöðu. Gildir ráðningin
til 1. maí næsta ár. Hefur Stefán
vegna þessa fengið ársleyfi frá
störfum við sundlaugina, en ann-
ast þó sundkennslu þar til annar
sundkennari hefur verið ráðinn.
Stefán hefur raunar haft með
höndum umsjón með byggingar-
framkvæmdum að undanfömu og
er' þeim málum manna kunnastur.
Augljóst er, að byggingarfram-
kvæmdimar standa allt þetta ár
og eitthvað fram á það næsta.
Benda má á, að eftir er með öllu
að reisa allstórt hús á spítalalóð-
inni. Verður þar þvottahús,
geymsla fyrir tvo bíla, líkhús og
geymsla. Þá eru og óunnin ýms
störf, sem að því lúta að undir-
búa rekstur sjúkrahússins. Sjúkra
hússstjómin leit svo á, að nauð-
synlegt væri fyrsta árið að sam-
eina framkvæmdastjórn við bygg-
inguna og ráðsmannsstarfið.
Næsta vor ætti öllum byggingar-
framkvæmdum að verða lokið og
reksturinn kominn í fullan gang.
Þá ætti líka að hafa fengizt
reynsla, sem sker úr um það hvort
ráðsmannsstarfið er fullkomið
starf, eða hvort fært verður að
sameina það einhverju öðru starfi.
Eins og áður er getið er hér um
bráðabirgðaráðningu að ræða, en
næsta vor verður starfi forstöðu-
manns spítalans ráðstafað til
frambúðar.
Bæjarreilmingar
afgreiddir
Á fundi bæjarstjórnar í fyrra-
dag voru reikningar bæjarsjóðs,
hafnarsjóðs og rafveitu fyrir árið
1955 endanlega afgreidjdir.