Austurland - 11.05.1956, Page 4
4________________________________ AUSTURLAND Neskaupstað, 11. maí 1956.
Um hvað kjósum við?
Að svo mikiu leyti sem kosið er um persónur, kjósa Sunn-
mýlingar um það hvort Lúðvík Jósepsson heldur þingsæti
sínu — hvort Sunnmýiingar fá tvo þingmenn eða þrjá.
Kosningabaráttan virðist þegar vera komin í algleýming
og verður sýnilega mjög hörð. Stjórnmálalqiðtogar eru á sí-
felldu ferðalagi landshornanna á milli til fundarhalda, enda
þykir nú mikið við liggja.
Kosningaúrslit eru mjög óviss í allmörgum kjördæmum og
liggur í hlutarins eðli að þar verður kosningabaráttan hörðust.
Ef við lítum á þetta kjördæmi, Suður-Múlasýslu, með hlið-
sjón af síðustu kosningum, blandast okkur ekki hugur um hver
úrslitin muni verða. Framsókn sigraði þá með það miklum yf-
irburðum, að telja verður að hún haldi báðum sætunum hér ör-
ugglega. Enda þótt líklegt sé að flokkurinn hafi tapað ein-
hverju fylgi, verður að gera ráð fyrir að bandalagið við hægri
krata bæti það tap upp að meistu, þó þeir ráði ekki yfir miklu
atkvæðamagni umfram það, sem þeir létu Framsókn í té í síð-
ustu kosningum.
Úrslitin hvað snertir kjördæmakosnu þingmennina geta
ekki verið tvísýn.
En það er annað, sem er tvísýnt í þessum kosningum og
það er hvort Lúðvíki Jósepssyni tekst að halda uppbótasæti
sínu. Við síðustu kosningar munaði aðeins hársbreidd.
Fullvíst má telja að Alþýðubandalagið fái til muna fleiri
atkvæði en Sósíalistaflokkurinn fékk í síðustu kosningum, en
samt sem áður er engan veginn víst að það dugi Lúðvíki vegna
þess að vitað er að Alþýðubandalagið fær alls staðar meira
fylgi en Sósíalistaflokkurinn og gætu aðrir frambjóðendur vel
orðið Lúðvíki hlutskarpari.
Kosningabaráttan í Suður-Múlasýslu snýst í raun og veru
um það hvort Lúðvík nær þingsæti eða ekki — hvort Sunn-
mýlingar eiga að hafa tvo þingmenn eða þrjá. Þetta er atriði
sem hver einasti kjósandi þarf að athuga gaumgæfilega og gera
sér Ijóst.
Fyrir íslenzka alþýðu yrði illt að missa Lúðvík af þingi,
því hann hefur verið einn ötulasti talsmaður hennar þar og öt-
ull forvígismaður vinstra samstarfs.
Fyrir Austfirðinga sem heild yrði illt ef Lúðvík félli, því
hann hefur allra manna skeleggast barizt fyrir sérmálum þeirra
og hefur sérlega staðgóða þekkingu á þeim.
En það er á valdi kjósenda þessa kjöfrdæmis hvort hann
kemst að.
Þrír flokkar munu bjóða hér fram, Alþýðubandalagið,
Framsókn og íhaldið, Þjóðvarnarmenn eru líka að reyna að
hnoða saman framboði, en ekki er vitað hvort það tekst.
Framsóknarflokkurinn hefur yfir nægu kjörfylgi að ráða
til að tryggja kosningu beggja sinna manna. Það er því ástæðu-
laust að auka kjörfylgi hans, enda falla dauð þau atkvæði, sem
flokkurinn fær umfram það, sem með þarf til að fá mennina
kosna.
íhaldið er víðsfjarri því að geta unnið kjördæmið. Það eru
heldur engar líkur til að það fái nokkurs staðar uppbótasæti.
Til þess þarf það að tapa a. m. k. 4 þingsætum. Öll atkvæði,
sem íhaldið fær hér falla dauð.
En hvert einasta atkvæði, sem Alþýðubandalagið fær kem-
ur að fullum notum. Það styður að því að Lúðvík haldi þing-
sætinu.
Ef menn ekki vilja ógikla atk\æði sitt kjósa þeir Alþýðu-
bandalagið.
Kjörstjórn
Austurlandsvegur
Byggingarfulltrúi
Nýlega var starf byggingar-
fulltrúa Neskaupstaðar auglýst
laust til umsóknar. Tvær umsókn-
ir bárust, frá húsasmíðameistur-
unum Erlingi Ólafssyni og Ivari
Kristinssyni.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var Ivar Kristinsson ráðinn bygg-
ingarfulltrúi.
Bæjarstjórn Neskaupstaðar
hefur nú kosið kjörstjóm vegna
þingkosninganna. Skipa hana
Gunnar Ólafsson, Magnús Guð-
mundsson og Erlingur Ólafsson.
Varamenn eru Jón Guðmundsson,
Davíð Áskelsson og Jakob Her-
mannsson.
Áður hefur verið frá því skýrt
á þessum vettvangi, að Lúðvik
Jósepsson hafi á síðasta þingi
flutt þingsályktunartillögu þess
efnis, að lögð skyldi áherzla á
að gera góðan upphlaðinn veg frá
Mývatni til Jökuldals og skyldi
stórvirkum vélum beitt við verkið.
Vegur þessi hefur verið stór-
kostlega vanræktur undanfarið og
fé það sem til hans hefur verið
veitt hefur ekki verið notað til
að bæta hann, heldur tekið til ein-
hverra annarra vegaframkvæmda,
kannski í allt öðrum landshluta.
Vegurinn milli Austurlands og
Norðuriands er mjög þýðingar-
mikill fyrir Austfirðinga og skipt-
ir miklu að hann sé greiðfær en
ekki ruðningur aðeins og skorn-
ingar. Ef þarna yrði gerður raun-
verulegur vegur upphlaðinn og
ve^arstæði valið með hliðsjón af
því að hann yrði sem lengst fær
vegna snjóa, mundi leiðin milli
Norður- og Austurlands opnast
miklu fyrr að vori og lokast seinna
að liausti, auk þess sem hann yrði
miklu fljótfarnari.
Framsóknarmenn sjá auðvitað,
að þeir eru komnir í mestu skömm
með framferði sitt í þessu máli og
til þess að reyna að láta menn
halda, að þeir séu ekki alveg sof-
andi í vegarmálum, fluttu tveir
Austfjarðaþingmenn, Vilhjálmur
Hjálmarsson og Halldór Asgríms-
son, þingsályktunartillögu um að
athugað skyldi vegarstæði um
Sprengisand milli Norður- og Suð-
urlands. Tillaga þessi er vafalaust
allrar athygli verð, en mörgum
mun þykja, að nær hefði legið
fyrir þessa þingmenn að hlutast
til um, að gerður yrði raunveru-
legur vegur milli Austur- og
Norðurlands, en að fara að berj-
ast fyrir nýjum vegi milli Norður-
og Suðurlands.
Tillaga Lúðvíks hlaut ekki af-
greiðslu í þinginu. Framsóknar-
mennirnir í fjárveitinganefnd, sem
hafði málið til meðferðar, fengust
ekki til að styðja hana. — Hins-
vegar hækkaði þingið benzínskatt
til vega um 5 aura á lítra og
nokkrar vonir standa til að Aust-
urlandsvegur fái nokkurn hluta
þessa fjár þó engin yfirlýsing hafi
fengizt um það. Hinsvegar stóð
ekki á því að Eysteinn lofaði að
eitthvað af benzínskattinum
skyldi renna til svonefnds Aust-
urvegar svo Sunnlendingar gætu
fengið fjórða veginn milli Reykja-
víkur og Suðurlandsundirlendis-
ins.
Austfirðingar hafa verið full
fylgispakir við Framsókn. Allir
þingmenn Múlasýslna og þing-
maður Austur-Skaftfellinga hafa
um árabil verið úr flokki Fram-
sóknarmanna. En frammistöðu
þeirra í málum Austfirðinga má
marka af því ófremdarástandi sem
Austurlandsvegur er í. Fram-
sóknarmenn telja sýnilega að í-
tök þeirra meðal Austfirðinga séu
svo rótgróin að þeim sé óhætt að
sýna málum þeirra lítilsvirðingu
og bjóða þeim hvað sem er. En
svo má áreiðanlega brýna deigt
járn að bíti. Og væri nú ekki ráð-
legt, Austfirðingar góðir, að sýna
þessum þingmönnum að við látum
ekki bjóða okkur allt, þó við séum
miklu þolgæði gæddir? Væri ekki
ráð að láta fylgi Framsóknar í
kosningunum í vor rýrna pínu-
lítið? — Ef við gerum það, munu
áhrifin verða hin ótrúlegustu.
Br bænum
Af mæli:
Kristján Eyjólfsson, verkamað-
ur, Gilsbakka, varð 70 ára 8. maí.
Hann fæddist á Vöðlum í Vaðla-
vík, en fluttist hingað 1919.
Eiríkur Guðnason, sjómaður,
i Framtíð, varð 50 ára 8. maí. Hann
fæddist hér í bæ og hefur alltaf
átt hér heima.
Einar Markússon, Strandgötu
58B varð 60 ára 9. maí. Hann
fæddist á Reyðarfirði, en fluttist
hingað 1949.
Þórður Björnsson, skipstjóri,
Vonarstræti 2, varð 65 ára 10. maí-
Hann fæddist á Krossi í Mjóafirði,
en fluttist hingað 1947.
Dánardægur:
Hjálmar Ólafsson, Ekru, andað-
ist á sjúkrahúsi í Reykjavík 5.
maí eftir þunga legu.
Hjálmar var fæddur á Seyðis-
firði 4. nóv. 1883. Hingað fluttist
hann á fyrsta ári og átti hér
heima síðan. Hann gekk ungur i
þjónustu Sigfúsarverzlunar og var
verkstjóri hennar áratugum sam-
an og sýndi í því starfi mikinn
dugnað.
Hjálmar var í fyrstu hrepps-
nefnd Neshrepps og átti þar sæti
nokkur ár.
Kvæntur var Hjálmar Bjarnýju
Stefánsdóttur, sem látin er fyrir
allmörgum árum. Eignuðust þan
tvær dætur, sem báðar eru bu-
settar í Reykjavík.
Stefán Kristjánsson, Sigfúsar-
húsi, andaðist snögglega 7. mar
Hann fæddist á Gunnólfsvík á
Langánesi 14. marz 1884. Hingað
fluttist hann 1906 og átti jafnan
heima í Sigfúsarhúsi.
Barnastúkan Vorperla
minntist í gær 70 ára afmælis
unglingareglunnar á íslandi. ForU
börnin í skrúðgöngu frá Sam-
komuhúsinu í kirkju, þar sem
guðsþjónusta fór fram, og var
Lúðrasveitin í fararbroddi. Síðar
um daginn var hátíðarfundur '
stúkunni og dansleikur um kvöldið-