Austurland - 06.07.1956, Blaðsíða 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 6. júlí 1956.
1 vetur fór til Sovétrkjanna á vegum Alþýðusambandsins 5
manna sendinefnd í- boði Verklýðssambands Sovétríkjanna og dvaldi
hún þar eystra í um það bil þrjár vikur og ferðaðist um landið.
Sigurður Hinriksson, verkamaður í Neskaupstað var einn þess-
ara fimm manna, sem sendinefndina skipuðu. Auk hans voru í
nefndinni Sigurrós Sveinsdóttir, form. verkakvennafélagsins Fram-
tíðin í Hafnarfirði, Guðbjörg Guðjónsdóttir varaformaður sama fé-
lags, Kristján Guðmundsson, sjómaður, Reykjavík og Sigurvin Öss-
urarson, bílstjóri, Reykjavík og var hann formaður nefndarinnar og
fararstjóri.
Blaðið hefur hitt Sigurð að máli og spurt hann um ferðina. Hef-
ur hann frá mörgu að segja og meiru en rúm blaðsins leyfir að eft-
ir sé haft. Fer frásögn Sigurðar hér á eftir.
Háskólinn í Moskva.
Það mun hafa verið laust fyrir
miðjan apríl að mér var gefinn
kostur á að takast þessa ferð á
hendur. Þurfti ég ekki að hugsa
mig lengi um áður en ég tók boð-
inu, því slíkt tækifæri fannst mér
ég ekki geta látið mér úr greip-i
um ganga, Og ég sé vissulega ekki
eftir þessu, því förin var bæði
rkemmtileg og fróðleg.
Ferðin til Moskva
Héðan að heiman fór ég 17.
apríl með Lagarfossi áleiðis til
Reykjavíkur. Frá Reykjavík var
svo haldið þann 24. með Sögu,
millilandaflugvél Loftleiða til
Bergen og þaðan eftir klukku-
stundar viðdvöl til Kastrupflug-
vallarins við Kaupmannahöfn. Þar
í borg gistum við um nóttina, en
flugum svo með finnskri flugvél
daginn eftir til Helsingfors í ein-
um áfanga. Þar vorum við um
nóttina og næsta dag til kvölds.
Notuðum við tækifærið til að litast
um í borginni. Fórum við m. a. upp
í 72ja metra háan útsýnisturn, sem
er rétt hjá íþróttasvæðinu og sér
þaðan vel yfir borgina. Við notuð-
um líka tækifærið til að heimsækja
íslenzka ræðismanninn 1 Helsing-j
fors og eins sendiráð Sovétríkj-
anna.
Frá Helsingfors fórum við að
kvöldi hins 26. með finnskri flug-
vél áleiðis til Moskva. Glaða
tunglsljós var og tilkomumikið að
horfa yfir landið baðað í tungls-
Ijósi.
Komfið til Moskva og mót-
tökurnar þar
Seint um kvöldið var svo lent á
flugvellinum við Moskva. Er hann
um 40 km utan við borgina. Þar
tóku á móti okkur 10 menn, karÞ
ar og konur, af hálfu verklýðssam-
bandsins, sem bauð okkur heim.
Með þeim var túlkur, rússneskur
maður, sem talaði ensku. Var hann
með okkur allan tímann, sem við
dvöldum þar eystra og fylgdist
með okkur á ferðum okkar.
Einnig var með okkur rússnesk
kona, sem talaði mjög vel dönsku
og var hún nefndinni til mikillar
hjálpar. Formaður nefndarinnar
hafði einn full not af enskunni, en
nefndin öll hafði full not af dönsk-
unni.
Af flugvellinum var svo ekið til
Hótel Moskva, sem er mikil bygg-
ing. Þar var setzt að matarveizlu
með ýmsum forystumönnum verk-
lýðssambandsins. Annars voru okk
ur víða haldnar veizlur bæði af
vsrklýðsfélögum og starfsfólki
ýmsra verksmiðja. Var þar ríku-
lega á borð borið. Ég get ekki
stillt mig um að geta þess, að
okkur var sagt, að við hafi borið,
að menn, sem komið höfðu til Sov-
étríkjanna í sendinefndum hafi
haft með sér matarpinkla því þeir
hafa trúað því, að sannar væru
sögurnar um matarskortinn og
hungrið í Sovétríkjunum. En þeir
sem það gerðu voru'fljótið að
sannfærast um að ótti þeirra við
hungurdauðann var ástæðulaus.
Aðbúnaður á hótelinu var fram-
úrskarandi góður. Hverju okkar
var fengin til íbúðar stór stofa
mjög vel búin þægilegum húsgögn-
um. Geta má þess, að í hverju
herbergi var sjónvarpstæki, en
sjónvarpið er orðið almennings-
eign í Sovétríkjunum. Þessi her-
bergi höfðu nefndarmennirnir all-
an tímann sem dvalizt var þar
eystra. Voru þau ekki tekin til
annarra afnota meðan við vorum
í ferðalögum og gátum við skilið
þar eftir þann farangur sem við
óskuðum.
Litazt um í Moskva
Ekki höfðum við tíma til að
skoða nema lítinn hluta þess, sem
við hefðum viljað sjá í höfuðborg-
inni. Notuðum við samt tímann
eins og við gátum til að kynnast
borginni, Eitt af furðuverkum
hennar er neðanjarðarbrautin
fræga, mjög íburðarmikil og fögur.
Fyrirhugað er að gera 150 brautir
og eru 45 komnar í notkun. . Talið
er að um neðanjarðarbrautina fari
ein milljón manna á sólarhring
hverjum.
Við heimsóttum marga sögu-
fræga staði og merkar byggingar,
gamlar og nýjar m. a. hina miklu
háskólabyggingu, sem er 37 hæð-
ir og var mér sagt að hún mundi
þriðja stærsta bygging í heimi.
Við komum í leikhús og ýmsa
aðra skemmtistaði. I Stóra leik-
húsinu horfðum við á Svanavatn-
ið. Það leikhús er 180 ára gam-J
alt en hefur eitthvað verið breytt,
manns. Stúkuraðirnar eru í 6 hæð-
um og er keisarastúkan fyrir
miðju. 1 borginni eru 34 almenn
leikhús, en auk þess eru leiksvið
í samkomusölum verksmiðja og
annarra stofnana. Lentum við á
einni slikri samkomu hjá starfs-
fólki kúluleguverksmiðju og voru
skemmtikraftarnir úr hópi verk-
smiðjufólksins. Voru þar ræðu-
höld, hljómlist, söngur, dans o. m.
fl. — Við fórum í sirkus. Við sá-
um óperuna Carmen, sem allir
kannast við Við sóttum íþrótta-
hátíð á Dynamoleikvanginum. Við
horfðum á knattspyrnukeppni
þar sem viðstaddar voru 90—100
þúsundir manna. Öllu þessu sleppi
ég að lýsa nánar en það sannfærði
okkur um, að listir standa með
blóma í Sovétríkjunum og að mikil
rækt er lögð við íþróttir. Moskva-
búar hafa áreiðaníega nóg tæki-
færi til að nota tómstundir sínar
til hollra skemmtana.
1 aðalstöðvum verklýðs-
félaganna
Við heiímsóttum aðalstöðvar
verklýðssambandsins. Þar fengum
við miklar og verðmætar upplýs-
ingar um starfshætti verklýðsfé-
laganna, mennijngrarstarfsemi
þeirra, launakjör og annað, sem
máli skiptir um lífskjör verka-
fólks. Mun ég drepa á sumt af því
síðar. Verklýðsfélögin koma fram
fyrir hönd verkalýðsins á öllum
sviðum, svo sem við samninga um
laun og verðlag.
Heimsókn í barnaskóla
Skólaskylda er 10 ár í Sovét-
ríkjunum, frá 7—17 ára. Við
heimsóttum einn barnaskóla þar
sem 880 börn nutu kennslu. Við
þann skóla starfa 48 kennarar.
Skólahúsið er stórhýsi, 5 hæðir.
Það var einkum tvennt, sem vakti
athygli mína, hve kennslan er líf-
ræn og hve mikil áherzla er lögð á
verklegt nám. 1 dýrafræði er t. d.
notað heilt dýrasafn við kennsh
una. í kjallara skólans eru full-
komnar vinnustofur. Þar eru full-
komin trésmíða- og járnsmíða-
verkstæði og raftækjasmiðja Þar
sem nemendur smíða ýms raftæki
stór og smá. Þar voru líka Þrír
bílar af ólíkum gerðum. Taka nemJ
endur þá sundur stykki fynr
stykki og setja saman aftur. Margt
fleira mætti segja um verklega
kennslu þarna og fleira varðandi
skólastarfið og skólalífið, en rúms-
ins vegna orðlengi ég það ekki
frekar.
Síðar í ferðinni komum við í
kennslustofu 10. bekkjar í Stal-
íngrad, þar sem kennd er stjörnu-
fræði. Stofan var með hvolfþaki.
Ljósið var látið deyja út sniátt
og smátt og var sem eðlilegt dag-
setur væri. Eftir því sem rökkrið
færðist yfir birtust fleiri og fleir'
stjömur á hvolfþakinu og þegai-
aldimmt var orðið var sem maður
horfði í alstirndan himin og var
þarna að sjá nákvæma eftirlíkingu
af himinhvolfinu. Þekkti ég þarna
margar gamalkunnar stjömur svo
sem Stóra-vagninn og Pólstjörn-
una.
Þama var okkur sýndur járu-
Framh. á 4. sfðu.
Ferðaþæiiir frá
So véir ík j unum
Frásögn Sigurðar Hinrikssonar
og eru þar sæti fyrir 2—3 þús.