Austurland - 06.07.1956, Side 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 6. júlí 1956.
Ferðapæiiir
Framhald af 2. síðu.
steinn 90 kg. að þyngd. Er hann
brot úr 100 tonna loftsteini, sem
féll til jarðar í Síberíu. Eru 95%
hans járn, en 5% aðrir málmar,
I aðalstöðvum fisbiirann-
sóknanna
Einn daginn heimsóttum við
aðalstöðvar fiskirannsókna Sov-
étríkjanna. Þarna sáum við m. a.
ýmsar iðnaðarvörur unnar úr
hvalafurðum, en Rússar leggja
mikla stund á hvalveiðar í Suður-i
höfum. Þarna mátti sjá allskonar
gerfiskinn unnið úr hvalkjöti, t. d.
sólaleður. Einnig gerfigúmmí.
I kjallara hússins er fiskirækt
og sáum við þar margar tegundir
af fiski, aðallega vatnafisk svo sem
styrju og ýmsar karfategundir.
Einnig var okkur sýnd kvikmynd
af nýjum veiðiaðferðum og fisk-
klaki.
Hafrannsóknir Sovétríkjannía
eru mjög umfangsmiklar. Stofn-
un þessi hefur til umráða 180
rannsóknarbáta og skip allt að
3000 tonn að stærð.
Sovétríkin eiga um 560 togara
af ^ýmsum stærðum. Stunda þeir
aðallega veiðar í Norðurhöfum og
Kyrrahafi. Eru þeir allt að 2700
tonn að stærð með rúmlega 100
manna áhöfn. Á einum þeirra
stærstu er 105 manna áhöfn, karl-
ar og konur og er kona skipstjóri.
Sá togari stundar frá Murmansk.
Launakjör fiskimanna eru góð,
sérstaklega þeirra, sem vinna
norðan heimskautsbaugs. Hafa
þeir um helmingi hærri laun en
verksmiðjufólk og margvísldg
hlunnindi s. s. lengra sumarfrí,
sem þeir gjarnan eyða í hinum
sólríka suðurhluta Sovétríkjanna.
Einnig fá þeir eftirlaun fyrr en al-
mennt gerist og eins er um námu->
menn.
Aflinn er ýmist saltaður eða
seldur nýr. Sumir nýju togararnir
eru fullkomin verksmiðjuskip, þar
sem aflinn er hraðfrystur og nýtt-
ur til fullnustu.
Sovétríkin eru nú mjög að auka
fiskveiðar sínar, einkum við
Kyrrahaf.
Um 150 rússnesk síldveiðiskip
stunda veiðar í Norðurhöfum
mestan hluta ársins.
Lenin og Stalín heimsóttir
Við komum í grafhýsi Lenins og
Stalins á Rauðatorginu og full-
vissuðum okkur um, að líkamsleif-
ar Stalíns hvíla þar enn, þrátt fyr-
ir allt sem um hann hefur verið
rætt og ritað að undanförnu.
Liggja þeir þarna hlið við hlið og
er líkast því sem þeir sofi. Hafa
þeir báðir verið menn lágir vexti.
Einkum hefur Lenin verið smá-
vaxinn.
Frá grafhýsinu héldum við til
sveitaþorps í Gorki-héraði. Þar bjó
Le}nin síðustu ár ævinnar. Hús
hans er með sömu ummerkjum og
á hans dögum, meira að segja
dagatalið hangir þar og hafði Len-
in rifið af því daginn sem hann
dó, svo dagatalið sýnir dánardagi
inn. Húsið er nú Leninsafn og þar
varðveittar ýmsar persónulegar
eigur hans. 1 úthýsi eru geymdir
tveir fornfálegir bílar sem Lenin
átti, og sleði, sem hann notaði til
vetrarferða.
1. maí
Um kvöldið 30. apríl fórum við
út til að skoða borgina, en hún var
þá komin í hátíðarskrúða og fram-
Hótel
Moskva.
úrskarandi fagurlega skreytt. Ók-
um við fyrst svokallaða Hring-
braut, sem er 16 km. að lengd og
var hún öll böðuð í ljósadýrð.
Ferðina enduðum við hjá háskóL
anum á Leninhæðum, sem eru 80
m hærri en borgin og er þaðan
mjög góð útsýn yfir borgina. Há-
skólinn og aðalstöðvar símans
virtust mest og fegurst skreyttar.
I háskólanum stunda nám tveir
Islendingar, Arnór Hannibalsson
og Árni Bergmann og hittum við
þá báða.
1. maí héldum við á Rauða torg-
ið og komum okkur fyrir öðru
megin við grafhýsið ásamt öðrum
erlendum sendinefndum, en þær
voru 36 í Sovétríkjunum um þess-
ar mundir. Skammt frá okkur, á
grafhýsinu, stóðu leiðtogar Sov-
étríkjanna, þeirra á meðal Búlgan-
ín og Krústjoff.
Hátíðin byrjaði með því að fót-
göngulið og fluglið fylkti liði á
torginu og kannaði Súkoff mar-
skálkur liðið og hélt ræðu. Því
næst fór fram hergagnasýning.
Var hún smá í sniðum og mun
hafa kveðið miklu minna að henni
en áður. Þá var líka flugsýning
og tóku þátt í henni einungis
þrýstiloftsknúðar flugvélar. Þá
fór fram hópganga íþróttafóiks og
verkafólks. Bar fólkið spjöld með
áletruðum kjörorðum og hvatning-
arorðum um framkvæmd 5 ára á-
ætlunarinnar. Einnig bar verka-
fólkið margskonar framleiðslu-
vörur sem sýnishorn iðju sinnar.
— Hópgangan var 4 stundir að
ganga yfir torgið, en alls stóðu
hátíðahöldin á torginu í 5 stundir.
Kveðjusamkoma
Síðasta kvöldið, sem við vorum
í Moskva áður en við lögðum upp
í ferð okkar um landið 2. maí,
var öllum sendinefndunum boðið
á skemmtistað verklýðsfélaganna.
Er hann í geysistóru húsi og
skrautlegu. Var þarna ágæt veizla.
og skemmtun.
Aldrei sá ég vín á manni á
skemmtunum eða í samkvæmum
en örfáa sá ég á götum úti undir
áhrifum víns. Vín var þó borið á
borð í veizlum, bæði sterk og létt,
en einnig gosdrykkir og aldinsaf-
ar í ríkum mæli, svo enginn var
nauðbeygður til að neyta víns, ef
hann þurfti að væta kverkarnar.
Af skemmtun verklýðsfélaganna
héldum við beint á járnbrautar-
stöðina og síðan með næturlest
áleiðis til Leningrad.
Segir siðar frá því sem fyrir
augun bar í Leningrad og á hinni
löngu ferð um Ráðstjórnarríkin.
NorSf}arSarhíó
m ■
■ ■
Frú Guðrún Brunborg leigir :
| húsið laugardag kl. 5 og 9 fyr- •
j ir kvikmyndina
I Óstýrilát æska
i ' i
I Robinson Crusoe i
■ ■
■ ■
Framúrskarandi, ný, ame-;
j rísk stórmynd í litum. Myndin
j er gerð eftir samnefndri sögu.
Sýnd föstudag kl. 9.
Sýnd sunnudag kl. 3.
Á flótta
j Spennandi kvikmynd.
u
5 Bönnuð innan 12 ára.
■
Sýnd sunnudag kl. 5.
'jForboðnir ávextir
Ný, frönsk úrvalsmynd með
j dönskum texta. Er mynd þessi
: var sýnd í Kaupmannahöfn,:
: gekk hún í 5 mánuði í sama j
: bíóinu. :
■ *
Sýnd sunnudag kl. 9.
Tapaá-FuTiáið
Peningaveski með peningum :
j tapaðist frá Bakkabúð að j
■ Garðshorni. í veskinu er síni- :
■ skeyti til Rögnu Björgvinsdótt- j
j ur Djúpavogi. Finnandi vin- j
[ samlegast skili því að Garðs- j
■
• horni
Til sölu
I
j Til sölu er trillubátur. — j
j Upplýsingar gefur Sigfinnur j
j Karlsson, sími 109, Neskaup-:
: stað.
■ ■
Aiastiirlaiid j
■ ■
j Ritstjóri: Bjarni Þórðarson. j
■ ■
■ Kemur út einu sinni í viku. \
m ,>i
Lausasala kr. 2.00. 4>\
■ ■
■ ■
j Árgangurinn kostar kr. 60.00. j
■
Gjalddagi 1. apríl.
■ •
■ ■
■ t
NESPRENT H-P ■
Afmæli:
Björg Jónsdóttir, kona Einars
Markússonar, Strandgötu 58B
varð 60 ára 2. júlí. Hún fæddist á
Stóra-Sandfelli í Skriðdal en hef-
ur átt hér heima síðan 1949.
Sjór og menn
Bók Jónasar Árnasonar, Sjór og menn, er 1. bók í
fimmta bókaflokki Máls og menningar.
Fæst hjá undirrituðum.
L
Gunnar Ólafsson.