Austurland - 30.11.1956, Page 1
M S0 I |f «& §f m sósfalis ta á Austnrlan di
6. árgangur.
Neskaupstað, 30. nóvember 1956.
40. tölublað.
Alþýðusambandsþinginu lokið
Sameiningarmenn endurkosnir í sambandsstjórn
Héðan fóru 5 fulltrúar á 25.
þing Alþýðusambands íslands, sem
lauk í Reykjavík 25. þ. m.
Fjórir fulltrúanna komu með
flugvél á þriðjudaginn var.
Blaðið hitti Einar Guðmunds-
son formann Verklýðsfélags Norð-
firðinga að máli, en hann var einn
af fulltrúunum, og spurði hann
frétta af þinginu.
Sagðist Einari svo frá:
Þingið var hið fjölmennasta sem
til þessa hefur verið haldið, en
það sóttu yfir 320 fulltrúar. I
upphafi þingsins varð samkomu-
lag og full eining um þingforseta
en hann var Sigurður Stefánsson
frá Vestmannaeyjum. Einnig voru
nefndir sjálfkjörnar.
Það, sem flýtti afgreiðslu mála
á þinginu, var það einsdæmi hin
síðari ár, að stuttur tími fór til
umræðna urn kjörbréf. Þingið
stóð í 5 daga. Alþýðusambandið er
40 ára á þessu ári og var þess
minnzt með samkomu í Austur-
bæjarbíói, þar sem öllum þingfull-
trúum var boðið. Þá bauð Félags-
málaráðherra, Hannibal Valdi-
marsson þingfulltrúum til kvöld-
verðar að Hótel Borg.
Jóhannes Stefánsson
skipaður form.
Byggingarfél. alþýðu
Félagsmálaráðherra skipaði ný-
lega Jóhannes Stefánsson for-
mann Byggingarfélags alþýðu til
4 ára.
Jón Einarsson byggingarmeist-
ari, sem hafði verið skipaður for-
maður fyrir tveim árum, sagði af j
sér sl. sumar. Þá skipaði Stein-
grímur Steinþórsson félagsmála- j
ráðherra, rétt áður en hann hætti
ráðherradómi, Erling Ólafsson
byggingarmeistara til að gegna
formannsstarfi, en Erlingur end-
ursendi skipunarbréfið og kvaðst
ekki taka við formennsku í félag-
inu.
Jóhannes hefur áður verið for-
maður byggingarfélagsins um 11
ára skeið,
Þingfundir hófust kl. 2 á öag~
inn og stóðu venjulega fram um
miðnætti.
Mjög mörg mál voru tekin til
umræðu og fjöldi ályktana gerðar.
1 flestum málum ríkti mikil ein-
ing á þinginu og var stjórn ASl
vottað traust einróma fyrir unnin
störf. Við stjórnarkjör varfð
Hannibal Valdimarsson sjálfkjör-
inn forseti sambandsins og aðrir
í sambandsstjórn eru ákveðnir
sameiningarmenn, en þeir eru
þessir:
Ritari: Snorri Jónsson, varafor-
seti: Eðvarð Sigurðsson. Mið-
stjórnarm'nn fyrir Suðurland:
Ásgeir Guðmundsson, Kristján
Guðmundsson, Sigríður Hannes-
dóttir, Ingimar Sigurðsson, Björn
Nýlega voru þeir hér á ferð Þor-
steinn Einarsson íþróttafulltrúi
og Guðmundur G. Hagalín bóka-
fulltrúi. Þorsteinn ræddi við for-
ystumenn íþróttamála bæjarins
um íþróttavöllinn, byggingu
íþróttahúss og framtíð sundlaug-
orinnar. En þegar Grímsárvirkj-
unin verður tengd við bæjarksrfið,
sem væntanlega verður eftir rúmt
ár, er burtu kippt þeim hitagjafa
sem á mjög ódýran og hagkvæm-
an hátt hefur liitað sundlaugina,
þ. e. kælivatnið frá vélum raf-
veitunnar.
Taldi Þorsteinn þörf á að fara
að undirbúa strax þau umskipti
sem verða, með byggingu húss
fyrir hreinsitæki og hitageyma
fyrir næturhitun eða aðra hitun.
Það má telja mjög ósennilegt,
að tök verði á að hita útisundlaug
upp með rafmagni yfir vetrarmán-
uðina vegna of mikils kostnaðar.
En það er einnig ósennilegt, að
ráðizt verði í að byggja yfir þessa
sundlaug. Slíkt er að mörgu leyti
óæskilegt, því laugin er einkar vel
staðsett og heppileg sem útilaug.
Hana má nota yfir sumartímann.
Þorsteinn Einarsson hvatti til
Bjarnason og Kristján Jónsson.
Norðurland: Björn Jónsson og
Jón Friðbjörnsson. Austurland:
Ásbjörn Karlsson og Alfreð
Guðnason. Til vara: Sigfinnur
Karlsson og Benedikt Þorsteins-
son. Vesturland: Albert Kristjáns-
son og Ágúst Vigfússon. Suð-
Vesturland: Sigurður Stefánsson
og Herdís Ólafsdóttir.
Kvað Einar það mjög mikil-
vægt fyrir alþýðusamtökin að svo
giftusamlega skyldi takast með
þingið og kosningu sambands-
stjórnar, sem raun ber vitni, eink-
um vegna áframhaldandi sam-
starfs vinstri flokkanna í ríkis-
stjórn og þess mikilvæga þáttar,
sem verklýðssamtökin koma til
með að eiga í einingu vinstra
samstarfs.
þess að undirbúa byggingu yfir-
byggðrar kennslusundlaugar, rétt
við útilaugina, sem yrði notuð yf-l
ir kaldasta tímann.
Þá fannst Þorsteini brýn þörf
fyrir bæjarbúa að fá aðgang að
nýju, rúmgóðu iþróttahúsi, þar
sem æskan gæti notið kennslu og
leikja. Og fullorðna fólkið gæti
stundað hverskonar íþróttir og
boltaleiki, sem nú færist mjög í
vöxt að iðka jafnt af gömlum sem
ungum.
Þorsteinn skoðaði einnig þær
framkvæmdir sem þegar hafa
verið gerðar í félagsheimilinu og
ræddi við gjaldkera þess, bygging-
armeistara og formann byggingar-
nefndar hússins um framkvæmdir
á næsta ári. Byggingarkostnaður
er orðinn tæp hálf milljón króna.
Guðmundur Hagalín hélt fund
með bókasafnsnefnd, bæjarstjóra
og bókaverði um rekstur bóka-
safnsins og framtíð þess, en því er
ætlaður staður í suðvestur-álmu
félagsheimilisins á neðri hæð.
Þeir félagar fóru héðan til að
sitja menningarvöku Héraðsbúa
að Egilsstöðum, en þeir voru gest-
ir vökunnar.
Sj óma nnar áð-
stefna A.S.f.
Þegar þingi Alþýðusambandsins
lauk hófst sjómannaráðstefna
sambandsins. Sækja hana fulltrú-
ar víðast að af landinu. Sigfinnur
Karlsson situr hana sem fulltrúi
Verklýðsfélags Norðfirðinga.
Aðalviðfangsefni ráðstefnunnar
er fiskverðssamningarnir og upp-
sögn þeirra.
Er talið sennilegt að einhver
hækkun verði á fiskverði upp úr
áramótum til útgerðarmanna, og
er þá sjálfsagt að sjómenn vilji
fá þá hækkun einnig að sínum
hluta.
Verklýðsfélag Norðfirðinga hef.
ur til athugunar að segja upp
fiskverðssamningnum, en hann
gildir til 28. janúar 1957.
Fugladráp
Mikið hefur borið á því undan-i
farna vetur, að menn stundi
„skyttirí" hér á höfninni þrátt
fyrir að það sé bannað með öllu.
Hefur það litla af sjófugli, sem
leitað hefur inn í höfnina verið
skotinn, enda hefur fuglinn farið
stórum minnkandi hin siðari ár.
Gengið hefur þetta svo langt, að
menn hafa skotið upp við land-
steina í bænum, og stundum frá
bátunum að landi. Gagn það, sem
i þeir er á „skyttirí“ fara, hefur á-
reiðaniega ekki verið mikið af
þessu fyrir þá sjálfa. Tillitsleysið
í þessu efni gerir mikið ógagn
fuglalífinu inni í höfninni.
Undanfarna daga hefur lög-
reglustjóri tekið hart á þessu
broti lögreglusamþykktarinnar og
tekið byssurnar af lögbrjótunum
og sektað þá. Voru teknar byssur
af 10 mönnum fyrri hluta þessar-
ar viku. Verður væntanlega áfram^
hald á því að taka menn fyrir
þetta fugladráp, svo þeir sem
brotlegir gerast, sjái sitt óvænna
og hætti uppteknum hætti.
T o gararnir
Goðanes landar hér í dag 150
lestum af fiski.
Austfirðingur seldi 203 lestir í
Þýzkalandi í gær fyrir rúm 92
þúsund mörk.
ísólfur og Vöttur eru á veiðum.
íþróttahús og yfirbyggð sundlaug