Austurland - 31.12.1956, Page 3
Neskaupstað, 31. desember 1956.
AUSTURLAND
3
Frá Alþingi
Frumv. um útflutningssjóð
Fyrir jólin var frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um ráðstafanir í
efnahagsmálum, afgreitt sem lög
frá Alþingi. Frumvarpið er í meg-
inatriðum eins og rakið var í síð-
asta blaði. Smábreytingar voru þó
gerðar á frumvarpinu, en engar
veigamiklar. Dagstyrkur til tog-
ara, sem veiða í ís fyrir erlendan
markað, var hækkaður um kr.
500.00, í kr. 4.000.00, en það þýðir
kr. 1.000.00 lækkun frá því sem
nú er.
Öllum ber saman um, að mikið
sé undir því komið hvernig til
tekst um framkvæmdir. Einkum
mun mikið velta á því, að verðlagS-
eftirlit takist vel. Þegar hefur
verið auglýst hámarksálagning á
margar vörutegundir og er álagn-
ing heildsala stórlega lækkuð.
Þingstörfum frestað
Störfum Alþingis hefur nú verið
frestað til 21. janúar. Þann tíma
mun ríkisstjórnin nota til að und-
irbúa lagasetningu í samræmi við
stefnu sina og til að hindra áfram-
haldandi óheillaþróun á sviði
efnahagsmála, Er hér t. d. um að
ræða frumvörp um verðlagseftirlit,
nýsköpun bankamála og útflutn-
ingsverzlun.
Fjárlög óafgreidd
Eins og gefur að skilja tókst
ekki að afgreiða fjárlög fyrir ára-
mót, þar sem fjárlagaafgreiðslan
hlýtur mjög að mótast af efna-
hagsmálaráðstöfununum. Hefur
ríkisstjórnin aflað sér heimildar
til bráðabirgðafjárgreiðslu úr rík-
issjóði og gildir sú heimild til
febrúarloka.
Ihaldið í öngum sínum
Ihaldinu varð ekki að þeirri von
sinni, að stjórnarsamstarfið rofn-
aði á efnahagsmálunum. Af-
greiðsla þeirra mála hefur styrkt
ríkisstjórnina og fest hana í sessi.
Ihaldið er mjög miður sín og hag-
ar sér eins og fáviti sé að verki.
Það sér fram á mjög skerta gróða-
aðstöðu braskara og milliliða, en
það eru slíkar afætur, sem íhaldið
vill vernda eftir mætti. — I ráð-
leysi sínu lögðu aðalleiðtogar
íhaldsins, Ólafur og Bjarni, fram.
rétt áður en þingfundum var
frestað, tillögu um þingrof og
nýjar kosningar. Brosa menn nú
um allt land að ráðleysisfálmi
íhaldsins, enda er enginn grund-
völlur fyrir slíkri tillögu.
Gjafir til sjúkrahússins.
Maður, sem ekki vill láta nafns
síns getið, hefur fært sjúkrahús-
inu kr. 1000.00. Er það áheit.
Þá hafa nokkur fyrirtæki ákveð-
ið að sýna hug sinn til þessarar
merku stofnunar með því að gefa
henni þarflega og nauðsynlega
hluti á vígsludeginum.
NorSfjarSarbió
■ ■
t
Sýningar á nýársdag:
j Palli var einn í
heiminum
í með nýjum spennandi köflum j
j úr ýmsum kvikmyndum.
Sýnd á nýársdag kl. 3.
Arásin
i Spennandi kvikmynd með :
i Van Heflin í aðalhlutverki.
Sýnd á nýársdag kl. 5.
Bönnuð innan 12 ára. :
Beztu óskir um
Gleöilegt nýár!
flytjum við félagsmönnum okkar, starfsmönnum og öðrum
viðskiptavinum. Þökkum samskiptin á íiðnu ári.
Dráttarbrautin h. f.
Sigur læknisins
j Amerísk stórmynd frá 20th
j Century-Fox.
s Aðalhlutverk:
Gary Grant
Jeanne Crain
j Kvikmyndin hefur hlotið met-
j aðsókn þar sem hún hefur ver-
! ið sýnd.
Sýnd nýársdag kl. 9.
Tapað
Þeim, sem getur gefið upplýs-
ingar um þann sem stal aftur-
hjóli með öllu saman úr reið-
hjóli er stóð fyrir neðan bíl-
skúr minn, heiti ég hundrað
króna verðlaunum. Framan-
skráður atburður skeði fimmtu-
daginn 13. desember.
Sigfinnur Karlsson.
!
Austurland j
Ritstjóri: Bjarni Þórðarson. ■
Kemur út einu sinni í viku. i
Lausasala kr. 2.00.
Árgangurinn kostar kr. 60.00. ;
Gjalddagi 1. apríl.
NESPRENT H-P
Lítið að þakka
Austri hefur nú fengið framtíð-
arhaus og flytur einhverjum
listamanni miklar þakkir fyrir að
hafa búið l'staverkið til.
Austurlandi þykir litið fyrir að
þakka, því „listaverkið“ er þannig
til komið, að það er tekið upp úr
„Stafabók fyrir útsaum“, eftir
Erlend Einarsson og Pál Sigurðs-
son, sem út kom 1944, stafirnir
aðeins minnkaðir.
Félagsmönnum okkar, starfsfólki og öðrum viðskiptavinum
færum v*ið beztu óskir um
Gleðilegt nýár!
Samvinnufélag útgerðarmanna
Olíusamlag útvegsmanna
Frá landssímanum
Frá 1. janúar 1957 verða símanotendur að greiða reikninga
sína á pósthúsinu eða hjá símastjóra á tímabilinu frá 6. fil 20.
hvers mánaðar. Þeim, sem ekki hafa greitt á þessum tíma verð-
ur einu sinni gert aðvart, en allir sem eiga ógreidda reikninga 23.
hvers mánaðar verða fyrirvaralaust teknir úr sambandi. Þá
tilkynnist að frá sama tíma geta ekki aðrir haft reikninga við
landssímann en símanotendur.
| Tíl sölu
j Barnakerra til sölu.
Haraldur Guðmundsson.
Símastjori.
Austnrland
óskar öllum lesendum sinum
GLEÐILEGS NÝÁRS!