Austurland - 05.07.1957, Síða 3
Neskaupstað, 5. júlí 1957.
AUSTVRLAND
r
3
Félagsheimilið
Framhald af 1. síðu.
Eldhúsið
Að síðustu skal hér minnzt
nokkrum orðum á eldhúsið. Það
er að flatarmáli 81 ferm. og er
þar með talinn skáli og stiga-
gangur. Eldhúsinu er svo skipt í
smá deildir, ef svo mætti segja,
milli hinna ýmsu þátta eldhúss-
starfsins. Eldhúsið mun m. a,
hugsað sem kennslu-eldhús, þar
ssm félög og skólar geta haft sín
matreiðslunámskeið. Eldhúsinu
fylgja stórar kæligeymslur, sem
eru á neðstu hæð, og er gengið
niður í þær úr eldhúsi.
Staðsetning
Það, sem hér að framan er
sagt, læt ég nægja um skipulag
hússins, en mun víkja nokkrum
orðum að staðsetningu þess, af
því ég hef orðið var við nokkra
óánægju um staðarvalið. Þessi ó-
ánægja hefur einkum beinzt að
því, að þrengsli væru mikil kring-
um húsið, svo að bílastæði væru
þar lítil sem engin. Ég held að
þetta sé mesti misskilningur.
Bílastæði kringum húsið verða
feyki nóg, „Gúttó“ verður flutt
eða rifið og myndast þá mikið
plan ofan við húsið, allt upp í
Rafstöðvarlóð og út undir sund-
laug. Egilsbraut 1 (Bæjarskrif-
stofurnar) verður einnig rifið, og
myndast þá bílastæði með allri
húshliðinni að sunnanverðu og
útundir Grænuborg. Steklg|ar-
götu mun verða lokað frá Mið-
stræti, svo að þar koma líka
möguleikar fyrir bílastæði. Þarna
eru og margir fleiri staðir í
grenndinni, sem nota má sem
bílastæði. Hvað þessa hlið máls-
ins snertir, hefur húsinu verið
valinn góður staður, Þá má einn-
ig benda á, að staðarvalið er
mjög heppilegt með tilliti til þess,
að húsið er miðsvæðis í bænum.
Ég hef ekki orðið var við, að
þeir sem að staðarvalinu hafa
fundið hafi getað bent á annan
stað, sem fil greina kæmi. 1 þessu
sambandi hefur þó verið minnzt
á spilduna milli skrúðgarðs og
sundlaugar.
i—---------------------------*
I fyrsta lagi er það svo, að í
þessari lóð stendur íbúðarhúsið
Svalbarð og í öðru lagi liggur
þessi lóð þannig, að bílastæöi
fyrirfinnast þar engin. Okkar
byggðarlag er þannig „í sveit
sett“ að skipulagið niður við sjó-
inn hlýtur að setja aðalsvipmótið
á bæinn. Á að leyfa byggingu
nýrra skúra í stað þeirra, sem
tímans tönn mylur smátt og smátt
niður (því fyrr fara þeir ekki),
eða setja metnað sinn í að reisa
með strandlengjunni stór og
formfalleg mannvirki?
Verum samtaka
Sá veruleiki blasir nú við okkJ
ur, að okkar félagsheimili er að
rísa af grunni. Við sjáum form
þess betur og betur með hverj-
um deginum sem líður, og sjáum
að þetta verður mikil og glæsileg
bygging. Nokkrir nöldra og segja
að við séum seinir og á eftir öll-
um nágrönnum okkar. (Mér virð-
ist þeir helzt nöldra, sem erfiðast
var að draga út í samvinnu um
þessa byggingu). Um það er ekki
að sakast, heldur er það aðalat-
riðið að allir geri allt, sem þeir
geta til þess að koma þessu
verki áfram. En verum ekki of
bráðlát. Við skulum vanda til
alls. Þá verðum við ánægð með
okkar menningarhöll. S.
N orSf'iarSarbió
Grát ástkæra
fósturmold
Sýnd laugardag kl. 9.
Työ samstillt
hjörtu
Sýnd sunnudag kl. 5 fyrir börn.
Gr afirnarH fimm
fa£i
Kvimynd frá Universel-IntJ
ernational tekin í litum.
Richard Widmark
Sýnd sunnudag kl. 9.
Konur — Athugid
1 næstu viku byrja kvennasundtímarnir aftur og verða
framvegis á þriðjudögum og föstudögum frá kl. 4—5, ef næg
þátttaka verður.
Konur, notið tækifærið og syndið 200 metrana.
Sundkennari.
Sundmót
Sundmót Austurlands verður háð í Selárdalslaug í Vopna-
firði 21. júlí. — Nánar auglýst síðar.
Sundráð U. I. A.
Auglýsing
um umferð og umferðarmerki í Neiskaupstað.
I. Aðalbrautir.
Samkvæmt heimild í 7. gr. umlerðarlaga nr. 24 frá 16. júní
1941, hefur bæjarstjórn Neskaupstaðar samþykkt, að eftirtald-
ar götur í Neskaupstað skuli taldar aðalbrautir:
1. Egilsbraut.
2. Hafnarbraut.
3. Strandgata.
4. Naustahvammur.
Aðalbrautir njóta þess forréttar, að umferð bifreiða og
annarra ökutækja frá vegum sem að þeim liggja, skal skil-
yrðislaust víkja fyrir umferð aðalbrautar og staðnæmast áður
en beygt er inn á aðalbraut, ef þess gerist þörf.
II. Umferðarmerki.
Aðalbrautarmerki standa við hver vegamót, þar sem hlið-*
argötur skera aðalbrautir. Merkið táknar forrétt þann, sem að-
albrautir njóta.
Lýsing: Ferhyrnd málmplata með ávölum hornum máluð
gul eða hvít með svörtum stöfum. Áletrun: Stanz — Aðal-
braut — Stopp.
Framangreind ákvæði um aðalbrautir öðlast gildi jafnóð-
um og viðeigandi umferðarmerki eru sett upp.
Bæjarfógetinn í Neskaupstað, 29. júní 1957.
Axel V. Tulinius.
L. S.
Tilkynning
Athygli innflytjenda og verzlana skal hér með vakin á
tilkynningu Verðlagsstjóra, um ný álagningarákvæði, sem birt- j
ist í Lögbirtingarblaðinu 1. næsta mánaðar. ;
Reykjavík, 29. júní 1957.
Vcrðlagsstjórinn. {
i
Fimleikasýning Ármanns
fer fram við Sundlaugina á sunnudag kl. 4.
Áhalda- og músíkleikfimi.
Dansleiikur í Barnaskólanum. Danspar úr Reykjavík sýnir
„Rock and roll“-dans“. H.G-lsektettinn leikur.
Glímufélagið Armann.
Til sölu
Ibúðarhúsið Fram-Ekra við Ekrustíg 6 er til sölu.
Tilboðum sé skilað fyrir 20. júlí n. k. til Jóns L. Bald-
urssonar, sem gefur nánari upplýsingar.
Emma Jónsdóttir.
Þorsteinn Einarsson.