Austurland


Austurland - 05.07.1957, Blaðsíða 4

Austurland - 05.07.1957, Blaðsíða 4
4 ... AUSTURLAND Neskaupstað, 5. júlí 1957. Merkur tónlistaryiðburdur Sinfóníuhljómsyeit íslands í hljómleika ferð um Norður- og Austurland Síðast liðinn miðvikudag lagði Sinfóníuhljómsveit íslands upp í mikla hljómleikaferð, þá stærstu, sem hún hefur farið til þessa. Ætlunin er að leika á 12 stöð- um víðsvegar á Norður- og Aust- urlandi, hér eystra á Eskifirði, Seyðisfirði, Norðfirði og Egils- stöðum, en þaðan fer hljómsveit- in með flugvél til Hornafjarðar og heldur þar síðustu hljómleika fararinnar. Sinfóníuhljómsveitin er að þessu sinni skipuð 35 hljóðfæra- leikurum, stjórnendur eru þeir dr. Páll Isólfsson og Paul Pampichler. Dr. Páll Isólfsson er öllum Islend- ingum kunnur fyrir frábær tón- listarstörf, tónsmíðar, orgelleik, söngstjórn og hljómsveitarstjórn. Paul Pampichler er Þjóðverji, sem hingað réðst á vegum Sin- fóníuhljómsveitarinnar, mjög vel menntaðjur tónlistarmjaður1. Auk þess að vera tronipetleikari í hljómsveitinni hefur hann tekið mikinn þátt í tónlistarlífi okkar öðru, verið stjórnandi Lúðra- sveitar Reykjavíkur, karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði, kennt lúðra sveit drengja í Reykjavík o. fl. Hann hefur einnig stjórnað Sin- fóníuhljómsveitinni á hljómleik- um í Reykjavík. Tveir okkar ágætu söngmanna eru með í förinni, þeir Kristinn Hallsson og Þorsteinn Hannesson. Óefað gera þeir þessa hljóm- leikaför enn vinsælli. Um efnisskrá er það vitað, að hún er að nokkru frábrugðin því, sem venja er um á sinfóníu- tónleikum. Á efnisskránni eru mörg ís- lenzk þjóðlög og önnur sönglög, sem þeir syngja Þorsteinn og Kristinn með undirleik hljóm- sveitarinnar. Þeir munu syngja á sínum hljómleikimum hvor, en vera má þó, að báðir komi þeir fram saman á hljómleikum. Þá verða flutt hin smærri verk eftir ýmsa hina kunnustu höf- unda heims, en minna verða um hina tormeltari tónlist. Hljóð- færaleikararnir eru sem áður segir 35 og hefur það að sjálf- sögðu nokkur áhrif á efnisvalið, en stærri flokk þótti ekki fært að fara með í svo stóra ferð, sem hér er, vegna kostnaðar og að- stöðu til móttöku á hinum ýmsu stöðum. Framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar er Jón Þórar- insson, tónskáld. Hér hefur lauslega verið skýrt frá þætti Sinfóníuhljómsvleitar- innar, merkum listviðburði, sem við eigum ekki oft kost á að í njóta. Það er vitað, að hljóm- sveitarmenn, söngvarar, stjórn endur og forráðamenn hljóm- sveitarinnar leggja mikið af mörkum til þess að hljómleikar þessir verði hinir ánægjulegustu. För þessi er ekki farin í gróða- skyni, á henni hlýtur að verða mikið fjárhagslegt tap, enda er verði aðgöngumiða mjög stillt í hóf, aðeins 25 kr. aðgöngumiðinn, Förin er farin okkar vegna til þess að gefa okkur tækifæri á að njóta góðrar tónlistar og heyra og sjá ýmsa hinu beztu tónlistar- menn, sem við eigum. Eftir er nú að vita hver verður hlutur okkar áheyrenda. Austurland vill hvetja alla, sem þess eiga kost, að sækja þessa hljómleika. Þá, sem áður hafa sótt hljóml'eika Sinfóníu- hljómsveitarinnar þarf ekki að hvetja. En nú gefst mörgum á að hlýða í fyrsta sinn. Þeir mega ekki láta þetta tækifæri ónotað. Síldveiðarnar Laugardaginn 29. júní höfðu alls borizt á land 145.600 mál síldar. Á sama tíma í fyrra 15.096 mál. Undanfarið hefur veður hamlað veiðum. Samkv. veiðiskýrslu Fiskifé- lagsins, sem lesin var í útvarpið sl. mánudag, höfðu Austfjarða- bátarnir aflað sem hér segir: Mál Björg, Neskaupstað 830 Björg, Eskifirði 792 Glófaxi, Neskaupstað 946 Gullfaxi, Neskaupstað 902 Huginn, Neskaupstað 722 Jón Kjartansson, Eskifirði 1014 Langanes, Neskaupstað 1027 Magnús Marteinsson, Nesk. 971 Pálmar, Seyðisfirði 658 Stefán Árnason, Fáskrúðsf. 762 Sunnutindur, Djúpavogi 678 Svala, Eskifirði 664 Snæfugl, Reyðarfirði 857 Sæfaxi, Neskaupstað 661 Þráinn, Neskaupstað 794 Akurey, Hornafirði 738 Helgi, Hornafirði 680 Aflalöndun. „ Togarinn Brimnes frá Seyðis- firði landaði hér í gær og í dag um 160 tonnum af fiski og var það mestmegnis karfi. Gerpir kom af Grænlandsmiðum um kl. 11 í morgun með fullfermi af saltfiski og fer í kvöld með afl- ann áleiðis til Esbjerg. Fréttabréf Framhald af 2. síðu. hætta að fara suður á vertíðir, hætta að fara að heiman til að snúa íshúsum fyrir aðra lands- fjórðunga. Þeir eiga ekki heitari ósk til en geta sótt fiskinn á sín- um myndarlegu bátum á hin auð- ugu sauðausturlandsmið, flutt björgina heim og skapað blóm- legt atvinnulíf í landi. Það er enginn vafi að vilji þorpsbúa er fyrir hendi. Hvað orkar ekki góð- ur vilji þegar ytri aðstæður fara batnandi, því hér er stefna ríkis- stjórnarinnar um jafnvægi í byggð landsins að verki. Og hvernig er svo aðstaðan í landi ? Hraðfrystihúsið er lítið, enda byggt fyrir minni útgerð ein- göngu. Það mun geta unnið úr 10—15 tonnum á sólarhring. Það er því varla önnur leið en salta hinn væntanlega afla af 75 tonna bátnum, en söltunarplássið vant ar. Einn ca. 100 ferm kjallari er fyrir hendi, svo hér verður að hafa hraðan á og byggja undir saltfiskinn. Þegar búið er að leggja fram fé í tvo 75 tonna báta, er ótrúlegt að látið verði standa á svoleiðis framkvæmd. Fiískimjölsverksmiðja tók til starfa á sl. ári. Afkastar hún um 4 tonnum af mjöli á sólarhring. Uppsetning Landssmiðjunnar á þessari verksmiðju er ábyggilega fyrirmynd. Maður hefur það á tilfinningunni að það vanti eitt- hvað í verksmiðjuna, en við nán- ari athugun er hún þarna öll, en sóðaskap vélahlutanna var sakn- að. _ j Samkomuhúsið Stöðfirðingar skemmtu sér í Barnaskólanum sínum eins og svo margir hafa gert og gera enn. Þeir byggðu sér senu við sam- komusalinn og vildu láta sér þetta nægja. Og því nægir það ekki? Unga fólkið og margir heimilis- feður þurfa árlega að leita að heiman í atvinnu, en börn og gamalmenni setja sinn svip á íbúa þorpsins yfir vetrarmánuð- ina. Um fjölbreytt skemmtanalíf I er því ekki að ræða. Nú stinga Stöðfirðingar niður staf. Er gam- all draumur að rætast? Stöðfirð- ingar eru duglegt fólk. Þeir eiga marga ágæta sjómenn. Getur sionur okkar tekið Vertíðina heima? Þarf dóttir okkar ekki suður í íshús? Fær pabbi að vera heima í vetur? Margar spurning- ar vakna. Ef næsti vetur sýnir að eitthvað af þessu er veruleiki, þekkjum við Stöðfirðinga illa ef þeir mynda ekki samtök um byggingu félagsheimilis. Undir- staða menningarstofnana er blóm- legt atvinnulíf. A. Kirkjan NorðfjarðarkSrkja: Messa n. k. sunnudag, 7. júlí, kl. 2.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.