Austurland - 07.06.1963, Síða 3
Neskaupstað, 7. júní 1963.
wAUSTURLAND
3
Þið ungu kjósendur
Ekki væri furða, þótt unga
fólkið væri efins um, að kosning-
ar og kosningabaráttan hefðu
eitthvert raunhæft gildi. Svo
heiftarlega stangast fullyrðingar
stjórnmála'mannanna á, og hver
og einn segist styðja hinn eina
rétta málstað.
En þið, ungu kjósendur, látið
ekki meting stjórnmálamannanna
sefja ykkur. Kosningarétturinn er
dýrmætasti iþáttur a'lmennra
mannréttinda. Með því að nota
sér þann rétt, getur hver einstak-
lingur haft áhrif á stjórn lands-
mála. i i li 1II q;
Þetta ber ykkur, ungu kjós-
endur, sem gangið nú að kjör-
borðinu í fyrsta sinn, að hafa ríkt
í huga.
En það er ekki sama, hvernig
atkvæðinu er beitt. Það er hægt
að beita því á þann hátt, sem er
hverjum einstaklingi og um, leið
þjióðarheildinni hæSttulegur.
Hverjum sönnum manni hlýtur
að vera ljóst, að slikt er misbeit-
ing á kosningaréttinum. Þess
vegna veitir hann þeim flokki
brautargengi á kjördag, sem hann
telur, að standi fastast á rétti og
hagsmunum þjóðarheildarinnar.
Um leið kýs hann sér í hag.
Ungt fólk með ábyrgðartilfinn-
ingu kýs ekki stjórnarflokkana,
Sjálfstæðisflokkinn og Alþýðu-
flokkinn. Þessir flokkar hafa
margsinnis hótað að halda áfram
hungurstefnu sinni, fái þeir fylgi
til þess. Þá verður nær útilokað
fyrir unga fólkið að stofna sér
heimili og hefja búskap. Þá verð-
ur Island innlimað í Efnahags-
handalagið og þar með dagar
sjálfstæðis þess taldir. Þá vierður
gengið fellt ennþá einu sinni og
kaupmáttur launanna enn rýrður.
Þetta er aðeins það helzta af
því fári, sem vænta má frá
stjórnarflokkunum.
Unga fó'lkið kýs heldur ekki
Framsóknarflokkinn. Sá flokkur
er í flestu óráðinn, og veit eng-
inn, hvaða stefnu hann tekur eftir
kosningar. Enginn veit, hvers
vænta má af honum eftir kosn-
ingar.
Það er því óviturlegt að kasta
dýrmætu atkvæði sínu á hann,
því að e. t. v. gengur hann á lið
með „viðreisnar“-flokkunum.
Stefna Framsóknarflokksins er
þó skýr í einu máli, og það er í
hernámsmálinu. Hann hikar ekki
við, ásamt stjórnarílokkunum, að
leiða ógnir kjarnorkustríðs yfir
landið okkar. Þessir flokkar
hræðast ekki helryk kjarnorku-
sprenginga á Suðvesturlandi.
Alþýðubandalagið er hinn trausti
málsvari, sem unga fólkið getur
reitt sig á, og því er það listi
þess, G-listinn, sem það styður á
kjördag.
Alþýðubandalagið er sívaxandi
samfylking allra sannra vinstri
manna. Það berst einlægri bar-
áttu fyrir að vernda sjálfstæði
landsins gegn hvers konar er-
lendri ásælni, vill hlutleysi lands-
ins, fordæmir vígbúnað, krefst
friðar.
Munið það, ungu kjósendur,
sem næstum aillir eruð launþsg-
ar, að Alþýðubandalagið berst
fyrir kjörum ykkar, hefur komið
í því efni rnörgu til leiðar, en get-
ur enn meira sé það eflt í þessum
kosningum.
Alþýðubanda-lagið vill trausta
vinstri stjórn, sem hækkar laun-
in ykkar, geri-r ykkur kleift að
stofna heimili og byggja, sér öll-
um fyrir nægri vinnu og stendur
vörð um sjálfstæði og heill þjóð-
arinnar.
Minnizt þessa á kjördag, ungu
kjósendur, og þá er enginn vafi á
því, að þið treystið Alþýðubanda-
laginu bezt fy-rir málum ykkar og
kjósið G-listann.
Egilsbúð &
Laugardag kl. 9: SAGAN AF RUT
Amerísk stórmynd í litum og cinemaskope, byggð á frásögn
Biblíunnar.
Sunnudag kl. 5:
ÁSTARSKOT Á SKEMMTIFERÐ
Barnasýning.
Sunnudag kl. 9: LEYNIVÍGIÐ
Mjög sérkennileg og spennandi japönsk verðlaunamynd í
cinemascope.
Bönnuð innan 12 ára.
''''VWVAAAAA^WWWVWVWWWWWWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWVWWWWW
Hjartans þakkir til allra nær og fjær, sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu við andlát og útför L L L C - i 2
Guðrúnar Stefaníu Stefánsdóttur.
Halldóra Marteinsdóttir.
Guðgeir Jónsson. b
>»'AAA^Wwwwwwwvwwwwwvw‘^^WW\AAAAAA#W>AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
,'AAAAA^AAAAAASAAAAAA^WWWVWWWWWVWWWWWWWWWW\AA/\^(^^AAA^AVW
Matsala
Opnum matsölu í dag í Félagsheimilinu. — Sími 221.
Félagsheimilið.
Herbergi
Þeir, sem hyggjast leigja út herbergi fyrir ferðamienn í sum-
ar, vinsamlegast hafið samband við Svein Jóhannsson, sími
222 eða 193. t . li
Félagsheimilið.
AAAAAAAAAAAAAA/WWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWVWVWWVW<
Auglýsing
frá verzluninni Fönn
FYRIR HERRA:
Terlínf-öt, stakir jakkar, stakar terlínbuxur.
’ Nylonskyrtur, hvítar og mislitar. j
Nvlonfrakkar.
; Herra nærföt, sokkar.
Hálsbindi — slaufur.
FYRIR DÖMUNA:
Popplínfrakkar, ljósir og dökkir.
Ljósar sumarkápur
Teriinpils — Sundbolir og margt fleira.
Ef ykkur vantar teppin í híiana, komið inn í Fönn.
VERZLUNIN FÖNN
Neskaupstað.
/WWWWWWWWWWWWWVWWWWWWWWWWWWWWWWVWVWW\A*WWWWVM
K j örf undur
fyrir Neskjördeild til að kjósa 5 alþingismenn fyrir Austur-
landskjördæmi, hefst á bæjarskrifstofunni í Nieskaupstað,
Hólsgötu 5 sunnudaginn 9. júní 1963 kl. 10 og lýkur eigi síðar
j; en kil. 23 -sama dag. ;
Umboðsmenn mæti kl. 8.
Með hliðsjón af fyrirmælum 4. töluliðs 133. gr. laga nr. 52/
1 1959 um kosningar til Alþingis, -hefur kjörstjórnin ákveðið, að
næsta nágrenni við kjörstaðinn skuli teljast svæði milli Stekkj-
argötu að austan, Miðstrætis að norðan, Hafnarbrautar að
sunnan og Konráðslækjar að vestan.
Kjörstjórnin í Neskaupstað, 7. júní 1963.
Jón Guðmundsson.
Erlingur Ólafsson. Þórður Þórðarson.
^WW^W^AAA/UMVWWWMWMWW^^WV>^WAAAAAAAAAAAAAAM<WMAAAAAAAAAAAAAMMAA^W
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við frá-
fall
Björgúlfs Gunnlaugssonar.
Eiginkona, börn og tengdasynir.
WVWWVWWWWWWWAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAI