Morgunblaðið - 10.10.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.10.2011, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2011 íþróttir Körfubolti Keppni í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik hefst í vikunni. Birna Val- garðsdóttir spáir í spilin fyrir veturinn og farið er yfir breytingar á liðunum 4-5 Íþróttir mbl.is FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Keflvíkingar hafa ekki gengið frá ráðingu á nýjum þjálfara í stað Willums Þórs Þórssonar en ým- islegt bendir til þess að Zoran Daní- el Ljubicic og Gunnar Oddsson verði næstu þjálfarar Suðurnesjal- iðsins. „Við erum búnir að ræða við þá Zoran og Gunnar og nú erum við að skoða stöðuna. Þeir eru tveir fyrstu kostirnir og við höfum ekki rætt við neina aðra en þá. Það yrði gaman ef okkur tækist að fá þá en það er okk- ar vilji að fá þá til starfans,“ sagði Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við Morgunblaðið í gær en hann var þá að undirbúa lokahóf knatt- spyrnudeildarinnar sem fram fór í gærkvöld. Hvað leikmannamálin varðar sagði Þorsteinn að verið væri að semja við þá leikmenn sem væru með lausan samning en sagði að menn vildu eðlilega vita hverjir yrðu þjálfarar áður en þeir tækju ákvörðun. Willum inni í myndinni hjá Grindvíkingum Grindvíkingar eru einnig í þjálf- araleit en Ólafur Örn Bjarnason hefur tekið ákvörðun um að einbeita sér að spilamennskunni og ætlar ekki að þjálfa á næstu leiktíð. Ekki er þó víst hvort Ólafur verður áfram í herbúðum Grindvíkinga en hann vill bíða með að ákveða sig þar til nýr þjálfari verður ráðinn til starfa. Undir stjórn Ólafs náðu Grind- víkingar að halda sæti sínu í Pepsi- deildinni með því að vinna ÍBV í Eyjum, 2:0, í lokaumferðinni þar sem Ólafur Örn skoraði fyrra mark liðsins. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru Grindvíkingar með nokkur nöfn á blaði og eitt þeirra er nafn Willums Þórs Þórssonar sem stýrt hefur Keflavíkurliðinu und- anfarin tvö ár. Zoran og Gunnar fyrsti kostur  Keflvíkingar hafa rætt við Zoran Daníel Ljubicic og Gunnar Oddsson Morgunblaðið/Jim Smart Þjálfari Zoran Daníel Ljubicic lék með Keflavík. LANDSLIÐIÐ Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, vonast til að geta gengið frá samningi við Svíann Lars Lag- erbäck í vikunni um að hann taki við þjálfun íslenska landsliðsins í knattspyrnu en Ólafur Jóhann- esson lauk störfum á föstudags- kvöldið þegar Íslendingar töpuðu fyrir Portúgölum, 5:3, í frábærum leik. „Ég vonast til að geta klárað málið í vikunni. Það er lítið sem stendur út af borðinu,“ sagði Geir Þorsteinsson í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöld. Eru á villigötum Skiptar skoðanir eru um það hvort rétt sé að ráða erlendan þjálfara og horfa menn þá til kostnaðarhliðarinnar en vitað er að erlendur þjálfari er mun dýrari kostur en íslenskur. Willum Þór Þórsson, sem á dögunum hætti sem þjálfari Keflvíkinga, var til að mynda harðorður í viðtali við Stöð 2 Sport um helgina varðandi ráðn- ingu á erlendum þjálfara og Heim- ir Guðjónsson, þjálfari FH-inga, tók í sama streng. „Ég heyrði hvað þessir ágætu menn sögðu en þeir eru á villigötum. Þær tölur sem þeir nefndu eru alveg út úr korti. Við erum ekki fara út í neitt rugl og erum ekki að spenna bog- ann of hátt,“ sagði Geir. Heimi boðið að vera aðstoðarlandsliðsþjálfari Morgunblaðið hefur áreið- anlegar heimildir fyrir því að Heimi Hallgrímssyni, sem nýlega ákvað að stíga til hliðar sem þjálf- ari ÍBV, hafi verið boðið að taka við stöðu aðstoðarlandsþjálfara. Spurður út í þau mál sagði Geir; „Það eru ýmsar sögur í gangi. Ráðning á aðstoðarþjálfara þarf eðlilega að vera í samráði við landsliðsþjálfarann og málið er ekki komið svo langt. Heimir er á lausu sem þjálfari og hann hlýtur að koma til greina,“ sagði Geir. Spurður hvort Lagerbäck hafi komið fram með óskir um aðstoð- armann sagði Geir; „Nei, hann hefur ekkert komið inn á þau mál og við höfum ekki eytt miklum tíma að ræða þetta atriði. En þessi mál koma til með að skýrast á næstunni,“ sagði Geir. Morgunblaðið/Ómar Aðstoðarmaður Heimir Hall- grímsson, fyrrum þjálfari ÍBV. Lagerbäck ráðinn í vikunni  Erum ekki að fara út í neitt rugl, segir formaður Knattspyrnusambandsins Ólafur Stefánsson, landsliðsfyr- irliði í handknattleik, er allur að koma til eftir meiðsli í hné sem hafa komið í veg fyrir að hann spili sinn fyrsta leik fyrir danska meist- araliðið AG Köbenhavn sem hann kom til frá Rhein-Neckar Löwen í sumar. Ólafur, sem fór í speglun hérlendis undir lok ágústmánaðar, hefur sett stefnuna á að spila næsta leik liðsins í Meistaradeild Evrópu sem er gegn franska stórliðinu Montpellier en það hefur á að skipa köppum á borð við Nikola Karab- atic og ljóst að róðurinn verður þungur fyrir Ólaf og félaga. „Ég vonast til að vera klár í slag- inn innan tveggja vikna. Markmið mitt er að spila gegn Montpellier þann 23. október,“ sagði Ólafur við Ekstrabladet. Ólafur segist þó ekki ætla að fara sér að neinu óðslega en ljóst er að dýrmætt er fyrir íslenska landsliðið að hann verði í góðu standi á Evrópumótinu í Serbíu í janúar. sindris@mbl.is Morgunblaðið/Golli Væntanlegur Ólafur Stefánsson snýr aftur á handboltavöllinn von bráðar eftir að hafa jafnað sig á meiðslum í hné. Ólafur stefnir á Montpellier Guðrún Ósk Maríasdóttir, lands- liðsmarkvörður í handknattleik, þarf líklega að gangast undir að- gerð á ökkla á næstunni. Meiðslin komu vel í ljós í leikjum Fram við Alcoa FKC í Evrópukeppni bik- arhafa um helgina að sögn Guð- ríðar Guðjónsdóttur, aðstoðarþjálf- ara Fram. „Guðrún er meidd og búin að vera mjög slæm í ökklanum. Það er eitthvert bein þarna sem ertir lið- inn. Hún hefur ekkert getað æft og þarf líklega að fara í aðgerð. Meiðslin komu upp síðasta vetur og það var vonast til að þetta myndi lagast með hvíldinni í sumar en svo er ekki. Þetta skýrist eftir helgi,“ sagði Guðríður. Guðrún Ósk er í lands- liðshópnum sem leikur í und- ankeppni EM 20.-23. október. sindris@mbl.is Guðrún Ósk þarf líklega í aðgerð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.