Morgunblaðið - 15.10.2011, Síða 4
Á KRÓKNUM
Björn Björnsson
sport@mbl.is
Fyrsti leikur haustsins í körfubolt-
anum á Sauðárkróki, þegar Stjarnan
sigraði Tindastól 105:91, hófst með
miklum hraða og var skemmtilegt að
sjá að ekki var neinn haustbragur á
liðunum. Ekkert var um mistök,
sendingar fínar og bæði liðin spiluðu
að vísu svolítið gloppótta vörn, en
sóknin var í góðu lagi og hittnin góð,
þó var eins og stundum áður nokkur
munur á vítahittni, þar sem hallaði
verulega á heimamenn.
Eini haustbragurinn sem sjáan-
legur var reyndist vera á dómgæsl-
unni, báðir dómararnir virkuðu þung-
ir og fylgdu leiknum illa efttir. Nýi
Kaninn í liði Tindastóls, Maurice
Miller, kom firnasterkur inn, en hann
kom í flugi frá Boston í gærmorgun,
flaug til Akureyrar og kom í húsið
stuttu fyrir leik og var stigahæstur í
liði heimamanna með 22 stig. Þá átti
Svavar Birgisson 20 stig og Tray
Hampton og Helgi Rafn 17 stig hvor.
Er ljóst að Miller á eftir að gera góða
hluti ef fram fer sem horfir. Í liði
Stjörnunnar bar eins og stundum áð-
ur mest á Justin Shouse, en hann var
allt í öllu í fyrri hluta leiksins, og skil-
aði að lokum 24 stigum, en í seinni
hluta var Fannar Freyr Helgason sá
sem dró vagninn, með 26 stig, en
Keith Cothran og Guðjón Lárusson
með 18 stig hvor.
Allan leikinn voru gestirnir yfir og
lengstum með 8 til 10 stigum, en í
þriðja leikhluta náðu heimamenn að
saxa forskotið niður og var það þá
lengstum 3-5 stig. Þegar komið var
fram í fjórða leikhluta skiptu gestirnir
um gír, eða þá að heimamenn slokkn-
uðu en Stjarnan lék þá á als oddi og
breytti stöðunni úr 78:82 í 91:105.
Alls enginn haustbragur
Stjarnan vann Tindastól 105:91 í góðum leik á Sauðárkróki Nýi Bandaríkja-
maðurinn hjá Tindastóli mætti á staðinn rétt fyrir leik og skoraði 22 stig
Á HLÍÐARENDA
Kristinn Friðriksson
sport@mbl.is
Í fyrsta heimaleik Vals í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta síðan tímabilið 2002-3 varð skammarleg
frammistaða lykilleikmanna liðinu að falli. Ung-
liðahreyfing Njarðvíkur afgreiddi leikinn á Hlíð-
arenda í hraðsuðukatli á aðeins 21 mínútu og vann
stórsigur, 92:63.
Fyrsti leikhluti fór vel af stað, bæði lið hittu vel
en varnarleikurinn var líka ennþá að klæða sig inni
í klefum beggja liða – þar sem þeir voru á Rótarýf-
undi og komu seint. Gestirnir spiluðu agaðri bolta
og líklegri í öllum aðgerðum. Þegar líða tók á ann-
an leikhluta urðu sóknir heimamanna tilvilj-
unarkenndar, ekkert skipulag í sóknaraðgerðum
og vörnin álíka undarleg. Erlendir leikmenn Vals,
Curry Collins og Darnell Hugee, voru afspyrnu
daprir. Igor Tratnik sýndi smálífsmark og baráttu
en það var maður leiksins hjá Val, Birgir Pét-
ursson, sem sá til þess að munurinn í hálfleik var
„aðeins“ 17 stig.
Þolinmæði, grimm vörn og leikgleði
Ég fékk þá tilfinningu í hálfleik að leikurinn
væri svo gott sem afgreiddur og geri ráð fyrir því
að Valsmenn hafi fundið það líka því það tók gest-
ina ekki nema tvær mínútur að staðfesta þann
grun. Með Travis Holmes, Elvar Friðriksson og
Cameron Echols í fararbroddi afgreiddu Njarðvík-
ingar leikinn mjög sannfærandi strax á fyrstu mín-
útum seinni hálfleiks. Þolinmæði í sókn, grimm
vörn og leikgleði gerði Njarðvík að yfirburðaliði í
þessum leik.
Það var ljóst í hvert stefndi þegar sex mínútur
voru eftir af þriðja leikhluta og tóku báðir þjálfarar
á það ráð að leyfa varamönnunum að spreyta sig.
Ég vil þakka þjálfurunum sérstaklega fyrir þetta
vegna þess að leikurinn varð skemmtilegri fyrir
vikið. Þrátt fyrir að Valsmenn skoruðu ekki mikið
sýndu þeir það sem ekki sást hjá lykilleikmönnum
í fyrri hálfleik; baráttu, jákvæðni, leikgleði og betri
ákvarðanatöku. Alexander Dungal og Igor Tratnik
voru ágætir en varamenn Vals eiga mest hrós skil-
ið.
Kom á óvart hve góðir við vorum
Hjá Njarðvík spiluðu allir og skoruðu ellefu leik-
menn liðsins, fimm þeirra sín fyrstu stig í deildinni.
Eftir leik hafði Elvar Friðriksson þetta að segja
aðspurður um þátt allra í liðinu í leiknum: „Við
óskuðum okkur þessarar byrjunar, og það kom
mér smá á óvart hversu góðir við vorum og hversu
andlausir Valsmenn voru.“ Hann var líklega ekki
hvað hefði klikkað í leik hans manna hafði Birgir
Pétursson þetta að segja. „Við erum búnir að æfa
vel en í kvöld spiluðum við enga vörn og því fór
sem fór.“
Þetta var klárlega „einn af þessum dögum“ fyrir
heimamenn en þeir mega hins vegar ekki verða of
margir í vetur. Ágúst þjálfari þarf að sjá til þess að
„allt“ liðið mæti jafntilbúið og varamennirnir í
næsta leik.
Dómarar leiksins: Það góðir að enginn tók eftir
þeim. Var ánægður að sjá „hreyfihindrunarvillur“
dæmdar en þeir hefðu alveg eins getað verið heima
að horfa á stórmyndina „Á meðan laufin sofa liggja
spaðarnir andvaka“.
einn um þetta því fyrirfram var búist við hörkuleik.
Enginn hjá Njarðvík steig feilspor, enginn með
stórleik en frammistaða Elvars var eftirtekt-
arverð; hann hitti vel, tók góð skot og losaði bolt-
ann fljótt á kantinn sem kom sókninni strax af
stað. Stórt hrós fyrir mjög skemmtilegt Njarðvík-
urlið sem sýndi alltof fáum áhorfendum hversu
gaman það er að spila þessa íþrótt.
Valsmenn þurftu ekki á svona heimaleik að
halda. Það versta í mínum huga var þessi pirringur
sem skein úr andlitum nokkurra lykilleikmanna
liðsins; þetta bitnaði auðvitað ekki bara á þeirra
leik, heldur líka á þeim sem voru þó að berjast inni
á vellinum. Þá skorti allt flæði í sókn. Aðspurður
Óskabyrjun Njarðvíkur
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Frammistaða lykil-
manna Vals til skammar
Engin feilspor skemmti-
legra Njarðvíkinga
Stigahæstur Hjörtur Hrafn Einarsson skoraði mest fyrir Njarðvíkinga, 18 stig. Hér er hann með bolt-
ann en Valsmennirnir Snorri Þorvaldsson og Igor Tratnik sækja að honum. Tratnik gerði 22 stig.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2011
Tindastóll – Stjarnan 91:105
Sauðárkrókur, Iceland Express-deild
karla, 14. október 2011.
Gangur leiksins: 5:5, 11:11, 12:17, 19:27,
23:34, 30:39, 38:48, 46:54, 56:60, 65:69,
73:80, 76:82, 78:93, 79:99, 87:102, 91:105.
Tindastóll: Maurice Miller 22/6 fráköst,
Svavar Atli Birgisson 20, Trey Hampton
17/12 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 17/5
fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 9, Pálmi
Geir Jónsson 2, Loftur Páll Eiríksson 2,
Einar Bjarni Einarsson 2.
Fráköst: 19 í vörn, 11 í sókn.
Stjarnan: Fannar Freyr Helgason 26/8 frá-
köst/5 stoðsendingar, Justin Shouse 24/4
fráköst, Keith Cothran 18/5 fráköst, Guð-
jón Lárusson 18, Marvin Valdimarsson
17/8 fráköst, Sigurjón Örn Lárusson 2.
Fráköst: 15 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Davíð Kr. Hreiðarsson, Eggert
Þór Aðalsteinsson.
Valur – Njarðvík 63:92
Vodafonehöllin, Iceland Express-deild
karla, 14. október 2011.
Gangur leiksins: 6:6, 9:15, 14:21, 21:30,
23:37, 27:39, 33:48, 35:52, 37:57, 38:65,
40:69, 42:75, 44:77, 50:83, 58:90, 63:92.
Valur: Igor Tratnik 22/9 fráköst, Birgir
Björn Pétursson 13/9 fráköst, Alexander
Dungal 6/6 fráköst, Curry Collins 6, Bene-
dikt Blöndal 4/4 fráköst, Bergur Ástráðs-
son 4, Snorri Þorvaldsson 3, Austin Magn-
us Bracey 3, Darnell Hugee 2.
Fráköst: 23 í vörn, 13 í sókn.
Njarðvík: Hjörtur Hrafn Einarsson 18,
Travis Holmes 16, Ólafur Helgi Jónsson
12/4 fráköst, Cameron Echols 12/5 fráköst,
Elvar Már Friðriksson 11, Oddur Birnir
Pétursson 7, Styrmir Gauti Fjeldsted 4,
Sigurður Dagur Sturluson 4, Rúnar Ingi
Erlingsson 4/6 fráköst, Óli Ragnar Alex-
andersson 2, Maciej Stanislav Baginski 2.
Fráköst: 23 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jón Þór Ey-
þórsson.
Haukar – Snæfell 89:93
Ásvellir, Iceland Express deild karla, 14.
október 2011.
Gangur leiksins: 6:2, 12:9, 16:19, 20:22,
28:24, 30:31, 37:39, 43:43, 52:49, 57:55,
63:63, 71:69, 79:73, 82:73, 86:81, 89:93.
Haukar: Jovanni Shuler 20/7 fráköst, Örn
Sigurðarson 16/6 fráköst, Davíð Páll Her-
mannsson 14/8 fráköst, Haukur Óskarsson
14/5 fráköst, Sveinn Ómar Sveinsson 9,
Sævar Ingi Haraldsson 9/6 stoðsendingar,
Helgi Björn Einarsson 5, Emil Barja 2/4
fráköst/5 stoðsendingar.
Fráköst: 24 í vörn, 11 í sókn.
Snæfell: Brandon Cotton 33, Quincy Hank-
ins-Cole 17/15 fráköst/6 stoðsendingar,
Pálmi Freyr Sigurgeirsson 16/5 fráköst,
Sveinn A. Davíðsson 12/7 stoðsendingar,
Ólafur Torfason 7/8 fráköst, Jón Ólafur
Jónsson 6/9 fráköst, Hafþór Gunnarsson 2.
Fráköst: 33 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Jón Bender, Steinar Orri Sig-
urðsson.
Staðan:
Njarðvík 1 1 0 92:63 2
Stjarnan 1 1 0 105:91 2
ÍR 1 1 0 109:101 2
KR 1 1 0 90:84 2
Grindavík 1 1 0 86:80 2
Snæfell 1 1 0 93:89 2
Haukar 1 0 1 89:93 0
Þór Þorl. 1 0 1 84:90 0
Keflavík 1 0 1 80:86 0
Fjölnir 1 0 1 101:109 0
Tindastóll 1 0 1 91:105 0
Valur 1 0 1 63:92 0
1. deild karla
Ármann – Breiðablik .......................... 81:86
Ármann: Illugi Auðunsson 11/13 fráköst/4
varin skot.
Breiðablik: Þorsteinn Gunnlaugsson 22/14
fráköst/5 stoðsendingar.
Þór Ak. – ÍA ......................................... 58:75
Þór: Þorbergur Ólafsson 16/4 fráköst.
ÍA: Terrence Watson 35/17 fráköst/6 stoln-
ir, Dagur Þórisson 12/5 fráköst.
ÍG – FSu ................................................ 95:91
ÍG: Helgi Jónas Guðfinnsson 27/10 fráköst,
Guðmundur Bragason 20/11 fráköst.
FSu: Orri Jónsson 23/4 fráköst.
Svíþjóð
Sundsvall – Jämtland.......................... 94:79
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 15 stig
fyrir Sundsvall, Hlynur Bæringsson skor-
aði 11 og tók 13 fráköst og Pavel Ermol-
inskij skoraði 7.
Brynjar Björnsson skoraði 3 stig fyrir
Jämtland.
Norrköping – Solna............................. 79:77
Logi Gunnarsson skoraði 10 stig fyrir
Solna og átti 7 stoðsendingar.
KÖRFUBOLTI
Snæfell lagði Hauka að velli, 93:89, í hnífjöfnum
og æsispennandi leik í úrvalsdeild karla í körfu-
bolta í gærkvöld en viðureign liðanna fór fram á
Ásvöllum í Hafnarfirði.
Eftir jafnræði frá fyrstu mínútu virtust Hauk-
ar vera að sigla fram úr Hólmurum í fjórða leik-
hluta þegar þeir komust í 82:73. Þá tóku Snæfell-
ingar heldur betur við sér með Quincy
Hankins-Cole í stóru hlutverki, sérstaklega í
varnarleiknum. Þeir sneru blaðinu við og voru
komnir í 91:86 Þegar hálf mínúta var eftir. Davíð
Páll Hermannsson gaf Haukum von með þriggja
stiga körfu en Pálmi Freyr Sigurgeirsson inn-
siglaði sigur Snæfells með tveimur vítaskotum
þegar 12 sekúndur voru eftir.
Brandon Cotton átti stórleik með Snæfelli og
skoraði 33 stig. Jovanni Shuler skoraði 20 stig
fyrir Hauka. vs@mbl.is
Snæfellssigur í spennuleik á Ásvöllum Mikasadeild kvenna
Afturelding – Þróttur N. .........................3:1
(21:25, 25:20, 25:13, 25:16)
Zaharina Flipova var stigahæst hjá Aft-
ureldingu með 16 stig og Miglena Apasto-
lova gerði 14 stig. Hjá Þrótti var Helena K.
Gunnarsdóttir með 19 stig og Lilja Ein-
arsdóttir með 6 stig.
Áhorfendur voru um 140.
BLAK