Austurland - 19.02.1965, Blaðsíða 1
Amturlmd
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur.
Neskaupstað, 19. febrúar 1965.
7. tölublað.
Fjögurra hreyfla flugvél í Norð-
f jardarflugið í apríl
Ágætur árangur al samstarfi
Flugsýnar og bæjarstjórnar
Frá því hefur verið skýrt í
blaðinu, að Flugsýn hefði í huga,
að kaupa aðra flugvél til að geta
betur rækt þjónustuna við Norð-
fjörð. Raunar hefur Flugsýn rækt
þessa þjónustu frábærilega vel,
frá því áætlunarflugið hófst í
apríl í fyrra, en smæð flugvélar-
innar setur þeirri þjónustu þó
viss takmörk.
Nýja fiugvétin.
Flugvél sú, er Flugsýn er nú
að kaupa, er af gerðinni Heron.
Hún hefur alltaf verið í eigu
sama aðila, Shellolíufélagsins,
sem mun hafa notað hana til að
flytja forstjóra sína og sérfræð-
inga. Flugvélinni hefur jafnan
verið mjög vel við haldið og er
mJög vel búin siglingar- og ör-
yggistækjum.
Flugvélin verður innréttuð með
15 farþegasætum og hefur auk
þess allmikið rúm fyrir flutning.
Hvert sæti er við glugga og út-
sýni sagt með ágætum. Hæð und-
ir loft í vélinni er 1,76 m. Hún
er á neíhjóli og því miklu stöð-
ugri á flugvelli í misvindi.
Hreyflar vélarinnar eru 4,
samtals 1000 hestöfl. Flugþol er
mikið, 7—8 klukkustundir. Flug-
hraði er svipaður og þeirrar vélar,
sem notuð hefur verið í Norð-
fjarðarflugið, en þó öllu meiri.
Vélar þessar eru mikið notaðar
erlendis í ferðum til fámennari
staða. í Noregi hefur flugfélag
Brátens notað svona vélar tals-
vert og er látið vel af.
Verð og greiðsluskilmálar.
Verð flugvélarinnar er 35 þús.
sterlingspund, eða um 4,2 millj.
kr. — Útborgun er 13 þús. pund,
en afgangurinn er lánaður til
þriggja ára.
Aðstoð Síldarvinnslunnar
og bæjarins.
Flugsýn hefir ekki boimagn tíl
að greiða neitt að ráði í kauþ-
verði vélarinnar. Hefur það þvi
orðið að ráði, að Síldarvinnslan
lánaði Fiugsýn 1.3 millj. kr., eða
meginhluta útborgunalruppþæðar
innar.
Bæjarstjórn hefir gengið í
bakáibyrgð fyrir 22 þús. punda
láninu, eða um 2.640 þús. kr.
Viðvíkjandi þeirri áhættu, sem
Síldarvinnslan og bærinn taka á
sig með þessum ráðstöfunum, er
það að segja, að hún virðist ekki
mikil. Sameiginlega hafa Síldar-
vinnslan og bærinn 1. veðrétt í
flugvélinni og vátryggingafé
hennar. En vitanlega fylgir allt-
af nokkur áhætta öllum ábyrgð-
um.
Okkur Norðfirðingum er orðlð
það löngu ljóst, að ef við ekki
leysum sjálfir okkar samgöngu-
mál hvað flugið snertir, þá gera
ekki aðrir það. Og hjá því verð-
ur ekki komizt, að láta þeim, sem
flugið annast, í té fjárhagslegan
stuðning í formi lána og ábyrgða.
Hygg ég, að bæjarbúar séu um
fátt jafn sammála og að aðstoða
Flugsýn til að bæta aðstöðuna
til að halda uppi áætlunarflugi
til Norðfjarðar.
Kemur í apríl
Hinn nýi farkostur á að af-
hendast kaupanda í síðasta lagi
15. april í vor og verður hann
þá tilbúínn að hefja áætlunar-
ferðir. j
Með samningum þeim, sem
bæjarstjórn geroi við Flugsýn
fyrir xúmu ári, og með þeim á-
byrgðum, sem hún lét í té og
gerðu flugvélarkaupin möguleg,
voru merkileg kapítulaskipti í
samgöngumálum bæjarins.
Svo vel hefur þetta gefizt, að
aðeins ári síðan kemur önnur
flugvél, sem flutt getur meira en
helmingi fleiri farþega og miklu
meiri farangur. Er öllum, sem að
þessu máli standa, fagnaðarefni,
að þessi þróun skuli eiga sér
stað.
Fátt er einu byggðariagi nauð-
synlegra, e„i góðar og öruggar
íamsöngur. Með samstarfi bæj-
arins og Flugsýnar hefur tekizt
að leysa þcrfina á flugsamgöng-
um' milli Neskaupstaðar og höf-
uðstaðarins á mjög vel viðunandi
hátt.
Byggja síldarbrœðslu
ó Seyðisfirði
1 Lögbiríingablaðinu, sem út
kom 9. febrúar, er tilkynnt
stofnun hlutafélagsins Hafsíld á
Seyðisfirði. Tilgangur þess er „að
byggja og reka síldarverksmiðju
á Seyðisfirði, fiskverkun, verzlun,
skipaútgerð, fiskveiðar, rekstur
fasteigna og annan skyldan at-
vinnurekstur".
Stofnendur féiagsins eru: Ingv^
ar Viihjáimsson, Sveinn Guð-
mundsson, Vilhjálmur Ingvars-
son, Jón Ingvarsson, Sverrir
Sveinsson, Jónas Jónsnon, Guð-
laugur Jónsson og Markús Sveins-
son. Eru þeir allir búsettir í
Reykjavík, neana Guðlaugur, sem
á heima á Seyðisfirði.
Stjórnarformaður er Ingvar
Vilhjálmsson, en framkvæmdastj.
Vilhjálmur Ingvarsson.
Hlutafé hins nýja félags er 9
millj. kr. og er það allt innborg-
Borið til baka
í Austurlandi 29. jan. var frá
því skýrt, iað útvarpsstjóri hefði
skýrt þingmönnum svo frá, og
síðan áréttað það í útvarpserindi,
að þar sem sJiá-endurvarpsstöðv-
ar væru hér eysíra, væru sérstak-
ir menn, sem hefðu eftirlit með
stöðvunum og gætu menn snúið
sér til þeirra með kvartanír sín-
ar. Nafngreindi útvarpsstjóri
þessa eftirlitsmenn og sem eftir-
litsmann í Neskaupstað nefndi
hann Baldur Böðvarsson, út-
varpsvirkja.
Baldur hefur nú tjáð blaðinu,
að þetta sé ekki rétt. Hann sé
ekki sá eftirlitsmaður með endur-
varpsstöðinni hér, sem útvarps-
stjóri vilji vera láta.
að og má af því álykta, að hér
eru engir öreigar á ferðinnl. ]
Framkvæmdir við verksmiðju-
bygginguna eru þegar hafnar og
mun að því stefnt, að verksmiðj-
an hefji vinnslu fyrir næsta síld-
veiðidmabil.
Byrjað að ryðja
Oddsskarð
í morgun var byrjað að ryðja
snjó af veginum um Oddsska^ð.
Snjór sýnist ekki mikill, en Vega-
gerðin áætlar að verkið taki tvo
daga.
OddsSkarð hefur nú verið ófært
síðan á jólum, eða um 8 vikna
skeið. Hefur þessi lokun vegarins
komið sér mjög illa fyrir marga.
Stofnfundur Mjó-
firðingaiélags
Laugardaginn 13. febrúar var
stofnað félag búsettra Mjófirð-
inga hér í Neskaupstað og Maut
nafnið „Mjófirðingafélagið". Er
það einkum stofnað í þeim til-
gangi, að lífga örlítið við félags-
líað og verða haldnir málfundir,
kvöldvökur, skemmtikvöld og
spilakvöld eftir því sem bezh
hentar hverju sinni. Fyrirhugað
er að hafa skemmtikvöld 6. marz
n. k. með kaffi og ýmsum
Ekemmtiatriðum og dansi. Verður
þið fyrsta samkoma félagsins.
í stjórn félagsins voru þessi
kosin:
Sveinn Vilhjálmsson, formaður;
Svanbjörg Gísladóttir, ritari og
Sesselja Sveindóttir, gjaldkeri.
Varaformaður Auðbj. Njálsdóttir.
Meðstjórnendur: Elín. Magnús-
dóttir, Jóhanna Þormóðsdóttir.
í skemmtinefnd voru kosin:
Unnur Jóhannsdóttir, Jónas Elí-
asson, Víglundur Gunnarsson,
Heiga Vilhjálmsdóttir, Brynhildur
Haraldsdóttir og Ragnheiður
Stefánsdóttir.
Stofnfundurinn var allvel sótt-
ur, en þess skal getið, að margir
eru fjarverandi úr bænum. Alls
munu vera 62 meðlimir skráðir.
Haft er í
að svo bölvað, sem sé að hlusta
á endunarpssícðina að Eið-
um, sé enáirvarpsstöð
Landssímans héj- ölíu verri;
að varasamt sé að ta'a hér um
trúnaðarmál í síma, því
menn e"gi það á hættn, að
því verði utvarpað;
að einu daginn haíi rödd ein-
hvers ástkærs eiginmanns
yfirgnæft þulinn og sagt:
„Eiskan mín, vertu bara
róleg og komdu með Hekl-
unni".