Austurland - 13.08.1965, Qupperneq 1
Amlurlmú
Málgagn sósíalista á Austurlandi
15. árgangur. Neskaupstað, 13. ágúst 1965. 31. tölublað.
Útsvör og aðstöðugjöld á Eski-
firði 9.3 milljónir
1 fyrradag voru lagðar fram
skrár um útsvör og aðstöðugjöld
á Eskifirði. Upphaflega voru út-
svörin áætluð kr. 5.909.000.00, en
hreppsnefndin hækkaði /þau um
kr. 600.000.00, í kr. 6.509.000.00
nýlega. Þessum fcr. 600.000.00 á
að verja til framkvæmda.
Alls var jafnað niður kr. 7.141.
625.00 á 265 gjaldendur. 1 fyrra
var jafnað' niður um 4.3 millj. á
255 gjaldendur. Útsvörin hækka
í heild um ca. 65%. Ástæðan fyr-
ir því, að gjaldendum fækkar til-
tiltölulega miklu iminna en í kaup-
stöðunum, er sú, að hreppar eru
ekki bimdnir af ákvæðinu um nið-
urfellingu útsvara undir 1500
krónum. Lægstu útsvör á Eski-
firði eru 100 krónur.
Samskonar ákvæði gilda á
Eskifirði sem- í Neskaupstað um
sjómannafrádrátt, frádrátt á
launatekjum giftra kvenna og
Fram að þessu hefur ekki verið
heimilt að veita lán úr Bygg-
ingasjóði ríkisins til byggingar
leiguhúsnæðis. I vor var sú mik-
ilsverða breyting gerð á lögunum,
að heimilt skyldi að veita sveitar-
félögum lán til að koma upp leigu-
húsnæði.
Strax og lögin höfðu verið birt,
var af háifu Neskaupstaðar sótt
um lán til byggingar 20 leiguí-
búða. Svar Húsnæðismálastjómar
var vinsamlegt, en þó gat hún
ekki heitið láninu þar sem enn
hefur ekki verið sett reglugerð
um fyrirkomulag hinna nýju lán-
veitinga.
Á fundi bæjarstjórnar s. 1.
föstudag var einróma samþykkt
að stefna að því að hefja á næsta
ári byggingu sambyggingar með
um 20 íbúðum. Teiknistofa Hús-
næðismálastofnunar ríkisins mun
teikna húsið og sá, sem það verk
vinnur, kemur væntanlega austur
til að kynna sér aðstæður og stað-
hætti.
Fyrir bæjarstjóm vakir að
byggja vandaðar smáíbúðir, flest-
ar tveggja herbergja, en sumar
ef til vill þriggja herbergja. Ibúð-
i gjaldfrelsi þeirra, sem orðnir eru
67 ára.
Veittur var 22% afsláttur frá
hinum lögboðna útsvarsstiga.
Útsvör á Eskif. eru eftir þessu
að dæma, nálægt 45% lægri en
í fyrra á sömu tekjur til jafnað-
ar. 1 fyrra var veittur 7% af-
sláttur frá þágildandi útsVars-
stiga.
Álögð aðstöðugjöld nema 2.2
millj. kr. og fara uim 100 þús. kr.
fram úr áætlun.
Þessi félög greiða hæst útsvar:
Hraðfrystih. Eskifj. hf. 2.087.000
Jón Kjartansson hf. 551.000
Þessir einstaklingar bera hæst
útsvar:
Ragnar Sigurm.s., vélst. 118.400
Ari Hallgrímsson, vélstj. 110.000
Jóh. Klausen, netag.meist. 99.600
Aðalst. Vald.son. skipstj., 76.000
Árni Halld.son, skipstj. 71.000
Kristinn Jónss, fr.kv.stj. 66.300
irnar verða alls ekki seldar, held-
ur leigðar og er hugmyndin sú,
að þarna geti búið ungt fólk, sem
er að byrja búskap, á meðan það
er að komast yfir eigið húsnæði,
innflytjendur á meðan þeir eru að
koma sér upp íbúð, svo og annað
fólk, cem lendir í húsnæðisvand-
ræðum. Það er því ekki gert ráð
fyrir að hver fjölskylda búi
þarna, nema um takmarkað ára-
bil.
Bæjarstjórn hefur enn ekki á-
kveðið hvar húsið skuli reisa, en
minnst hefur verið á Þiljuvallar-
tún, ofan væntanlegra Blómstur-
valla, seim hugsanlegan bygg-
ingarstað hússins. Œtla máað
lán Byggingarsjóðs ríkisins geti
nurr.ið um helming byggingarupp- ,
hæðarinnar. Enn hefur ekki verið
afráðið hvernig hins helmings
fjárins verður aflað.
Ekkert stendur bænum eins
mikið fyrir þrifur og húsnæðis-
skorturinn, sér í lagi skortur
leiguhúsnæðis. Það væri því mjög
mikilsvert, ef orðið gæti af þess-
ari ráðagerð um byggingu þegar
á næsta ári.
Kristinn Karlss. skipstj. 63.500
Jónas Oddsson, héraðsl. 60.600
Eftirtaldir aðilar greiða hæst
aðstöðugjald:
Hraðfr.hús. Eskifj. hf. 811.900
Jón Kjartansson hf. 345.000
Kaupfélagið Björk 194.800
Jóh. Klausen 162.000
Pöntunarfél. Eskfirðinga 144.300
Síldarafli aust-
firzkra skipa
Við lok síðustu viku var síldar-
aflinn á sumarsíldveiðunum aust-
anlands orðinn 1.315.756 mál og
tunnur (1.603.299 á sama tíma í
fyrra). Vikuaflinn var hagnýttur
sem hér segir: Saltaðar hafa ver-
ið 89.693 uppsaltaðar tunnur
(160.864), frystar 5873 (23.113)
uppmældar tunnur, og í bræðslu
hafa farið 1.220.188 (1.419.322)
mál.
Vitað er um 200 skip sem feng-
ið hafa einhverja veið'i, þar af
hafa 178 fengið yfir 1000 mál og
tunnur.
Afli austfirzku skipanna var
sem hér segir, talið í málum og
tunnum:
Akurey, Hornafirði 5.980
Bára, Fáskrúðsfirði 14.768
Barði, Neskaupstað 15.906
Bjartur, Neskaupstað 16.490
Björg, Neskaupstað 6.748
Björg II., Neskaupstað 5.639
Einir, Eskifirði 6.499
Gissur hvíti, Homafirði 4.283
Glófaxi, Neskaupstað' 4.783
Guðrún Þorkelsd. Eskif. 5.011
Gullberg, Seyðisfirði 14.599
Gullfaxi, Neskaupstað 7.440
Gullver, Seyðisfirði 17.735
Gunnar, Reyðarfirði 9.476
Hafrún, Neskaupstað 3.553
Heimir, Stöðvarfirði 19.175
Hoffell, Fáskrúðsfirði 3.820
Hólmanes, Eskifirði 8.895
Hvanney, Hornafirði 1.798
Jón Eiríksson, Hornafirði 4.163
Jón Kjartansson, Eskifirði 19.570
Kambaröst, Stöðvarfirði 4.212
Krossanes, Eskifirði 17.805
Sigurður Jónss. Breiðdalsv. 9.771
Sigurfari, Hornafirði 2.544
Skálaberg, Seyðisfirði 4.021
Snæfugl, Reyðarfirði 6.147
Stefán Ámason, Fáskr.f. 2.324
Sunnutindur, Djúpavogi 10.906
Sæfaxi II., Neskaupstað 4.390
Þráinn, Neskaupstað 6.236
Kalt sumar
Sumarið í sumar hefur verið
mjög kalt og sólarlítið á Austur-
landi.Hægviðri hafa verið, en lít-
ið hefur rignt. Vafalaust hefur
þetta veðurfar dregið úr ferða-
mannastraumnum hingað austur.
Eins og kunnugt er, varð
grasspretta mjög lítil í vor og
sláttur hófst mjög seint hér um
slóðir. Þurrkleysa hefur lengst af
verið og gengur heyskapur því
báglega. Hér við bætist svo hið
stórkostlega kal í túnum víða um
Austurland, en það dregur mjög
úr heyskap. Horfur fyrir land-
búnaðinum á Austurlandi eru
því ærið skuggalegar og verður
að grípa til róttækra ráðstafana,
ef koma á í veg fyrir, að þessi
þýo’ingarmikli atviunuvegur drag-
ist hættulega mikið saman.
Annarsstaðar á Norðurlöndum
hefur einnig verið kalt í sumar.
Sagt er, að þetta sé kaldasta
sumar um langan aldur í Stokk-
hóiir.i. Þar hefur einnig rignt
mikið.
Bœrinn kaupir
fasteignir
Samningar hafa verið undirrit-
aðir um kaup bæjarsjóðs Nes-
kaupstaðar á fjórum fimmtu
hlutum fasteigna þeirra, er áður
tilheyrðu Sigfúsarverzlun. Er hér
um að ræða fjóra fimmtu hluta
allra fasteignanna, þar með talið
íbúðar— og verzlunarhúsið og
fjögur hundruð í Nesi. Kaupin
eru miðuð við 1. júlí s. 1.
Eigandi fimmta hlutarins er
Guðmundur Sigfússon og er eign-
in sem stendur í óskiptri sameign
bæjarins og Guðmundar, en vafa-
laust krefst bæjarstjórn mjög
fljótlega skipta.
Haft er í
flimtingum
að uppvíst hafi orðið um
stærsta brennivínssmygi
Islandssögunnar;
að sektir fyrir smyglið geti
numið um 2 millj. kr.;
að sektirnar renni í menn-
ingarsjóð;
að aldrei hafi fyrr hlaupið
svona á snærið fyrir ís-
lenzkri menningu..
Ráðgerð bygging 20 leiguíbúða