Austurland - 04.11.1966, Síða 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 4. nóvember 1966.
r
Hikið verðfall d bræðslosíldaraf irðn
Rœtt við Hermann Lárusson, framkvœmdastjóra
Svo er að sjá sem íslenzkir sjó-
menn munl enn setja aflamet á
síldveiðum, a. m. k. ef veiði verð-
ur haldið áfram með eðlilegum
hætti. En alvarlega biiku hefur
dregið á loft, sem er mikið verð-
fall á bræð'slusíldarafurðum. Ein
af afleiðingum þessa mikla verð-
falls var sú, að hráefnisverðið
lækkaði tilfinnanlega 1. október
og uppi eru raddir um enn frek-
ari lækkun nú um helgina.
Norðmenn hafa nú hætt síld-
veiðum vegna verðfallsins, að
sagt er og formaður Síldarverk-
smiðja ríkisins, Sveinn Benedikts-
son, hefur í blaðaviðtali játað, að
á góma hafi borið, að hætta einn-
ig síldveiðum hér.
Verðfall bræðslusíldarafurðanna
hefur að sjálfsögðu skapað mikil
og fjölþætt vandamál og valdið
miklum truflunum á sviði fram-
kvæmda og fjármála.
Blaðið hafði í gær tal af Her-
manni Lárussyni, framkvæmda-
stjóra Síldarvinnslunnar hf. og
Jeitaði fregna af rekstri verk-
smiðjunnar hér og fleiru í sam-
bandi við framleiðslu og sölu
bræðslusíldarafurða.
— Hvað hefur verksmiðjan
tekið á móti mikilli síld frá því
veiðar hófust í maí?
—* Um 80 þúsund tonnum.
— En hvað tók hún á móti
miklu magni í fyrra?
— Rúmlega 68 þúsund tonnum,
en rúmlega 70 þúsund tonnum sé
janúar meðtalinn. Miðað er við
að 135 kg. séu í hverju máli.
— Hvað gæti verksmiðjan tekið
á móti miklu magni til viðbótar
fram' til áramóta, miðað við stöð-
ugan rekstur?
— Um 30 þúsund tonnum. En
það er of mikil bjartsýni að ætla
að svo miklu verði afkastað.
Þrengsli í geymslum eru svo mik:
il, að sífellt liggur við stöðvun.
Ef vel á að vera þurfum við að
afskipa 1000—1500 tonnum á
viku. Og svo er nú komið fram á
vetur og ekki hægt að búast við
að verksmiðjan hafi alltaf nóg
hráefni. En þurfi hún aldrei að
stöðvast, getur hún enn unnið úr
30 þúsund tonnum af síld.
— Hvað er nú búið að fram-
leiða mikið af lýsi?
— Búið var að framleiða um
13.800 tonn 1. nóvember.
— En af mjöli?
— 14000 tonn nú um mánaða-
mótin. í
— Hvað var framleiðslan mdkil
í fyrra?
— 14.800 tonn af mjöli og
10.200 af lýsi.
— Hvað er búið að selja mikið
lýsi og hvað miklu hefur verið
afskipað ?
— Búið er að s'elja 12.600 tonn
og hefur 9.800 nú verið afskipað.
Afgangurinn á að fara í þessum
mánuði og þeim næsta.
— En af mjöli?
— Seld hafa verið 15.300 tonn,
eða nokkru meira en nú er búið
að framleiða. Búið er að afskipa
10.300 tonnum. Afgangurinn fer í
nóv.—febr.
— Er nauðsynlegt, vegna vönt-
Hvaö
Frá Breiðdal
Breiðdalsvík, 2. nóv. — G.S./B.S.
Unglingaskóli að Staðarborg
I vetur verður í fyrsta sinn
starfræktur unglingaskóli í Breið-
dal. Verður hann til húsa í heima-
vistarbarnaskólanum að Staðar-
borg. Kennarar verða hinir sömu
og við barnaskólann: Heimir Þór
Gíslason, skólastjóri, Anna Þor-
steinsdóttir og Birgir Einarsson.
1 unglingadeildinni verða 13
börn í vetur, nær öll úr Breiðdal.
Á Breiðdalsvík eru orðin svo
mörg börn, að þau yngri verða
ekki látin sækja skólann að Stað-
arborg. Verður þeim því kennt
úti í þorpi í nokkurs konar útibú
frá skólanum. Til kennslunnar
hefur fengizt húsnæði í gömlu
verzlunarhúsi í eigu kaupfélags-
ins. Hefur verið búið í húsinu, en
það er að' losna um þessar mund-
ir, og kennsla að hefjast. Kenn-
ari er Guðjón Sveinsson.
Til sjós og lands
Allmikið hefur borizt af síld til
Breiðdalsvíkur á þessari vertíð.
Bræðslu lauk í verksmiðjunni í
brælunni sem staðið hefur af und-
unar á geymslum, að selja meira
af framleiðsluvörum verksmiðj-
unnar fyrir vertíðarlok, miðað við
að verksmiðjan verði rekin með
eðlilegum hætti til áramóta?
— Þá er óhjákvæmilegt að
selja nokkur þúsund tonn af
mjöli, en nokkru betur er ástatt
með geymslu á lýsi. Þar er líka
stöðugt fyrir hendi sú þrautalend-
anförnu, en vonazt er eftir síld
jafnvel í dag aftur.
Mikið hefur borizt að af ufsa,
en mannafli verið af skornum
skammti við verkun hans.
Annars virðist mannekla vera
mjög mikil við flest störf. At-
vinnan er því yfirdrifin.
Nokkuð mikið er byggt á Breið-
dalsvík, þegar tekið er tillit til
fólksfjölda. í sumar var flutt í 6
nýbyggð hús. Byrjað var hins
vegar aðeins á byggingu eins húss
á sumrinu.
Eitt nýbýli er að rísa í Breið-
dal, er það byggt úr landi Tóar-
sels í Norðurdal. Bóndinn er Hall-
dór Pétursson frá Tóarseli.
—o—-
Frá Eskifirði
Eskifirði, 3. nóv. — J.K./B.S.
Atvinnan
Hér er brætt af krafti í verk-
smiðjunum, og munu hafa borizt
a m. k. 55 þúsund lestir. Söltun
er löngu lokið, en frysting á síld
var sáralítil.
Segja má, að allt líf manna
snúist um' síldina, og ennfremur
um ufsa, sem mikið hefur borizt
af í haust. Frystihúsið tekur ufsa
ing, að flytja lýsið til geymslu í
aðra landshluta.
— Er þér kunnugt um fyrir
hvaða verð lýsi og mjöl er nú
seljanlegt ?
— Gangverð mjöls er nú 16.3
—16.6 shillings á próteineiningu,
og á lýsi um 50 sterlingspund
tonnið.
— Geturðu nefnt mér dæmi um
verðlækkunina ?
—• Já, hæsta fyrirframsala á
lýsi, sem við náðum í fyrravetur,
var 80 pund tonnið, og á mjöli 21
sh. próteineiningin.
— Ég heyri sagt, að þú hafir
nýlega verið á fundi Verðlagsráðs
þar sem fjallað var um nýtt verð
á bræðslusíld. Getur þú nokkuð
um það sagt hvort eða hversu
mikið hráefnisverð muni lækka?
— Á þessu stigi málsins tel ég
mér ekki heimilt að skýra frá
því, sem þar fór fram.
— Telur þú horfur á því, að
síldarverksmiðjur hér á landi
hætti að taka á móti síld á sama
hátt og norskar verksmiðjur hafa
gert? f I j
— Nei, ég tel að verksmiðjurn-
ar eigi ekki og muni ekki hætta
síldarmóttöku. Ég tel að þær eigi
að halda áfram að kaupa síld á
umsömdu verði, enda sé það í
samræmi við afurðaverð.
— Getur þú nokkra grein gert
þér fyrir horfum í markaðsmál-
um á næsta ári?
-— Ég á ekki von á að lýsið
falli frá því sem nú er. Meiri ó-
vissa er með mjölið.
til verkunar, eins og vinnukraft-
ur frekast leyfir. Ennfremur hafa
margir einstaklingar keypt ufsa
og salta sjálfir. Mannekla og
saltskortur háir þó mjög afköst-
um í þessari atvinnugrein.
Framkvæmdir
Framkvæmdum við gatnagerð-
ina er lokið á þessu hausti, en
fyrirhugað er að halda þeim
áfram að vori. Ekki tókst að
steypa eins langt inn aðalgötuna
eins og ætlað var í upphafi. Einn-
ig var aðeins byggður hluti brú-
ar, sem ætlað var að ljúka.
Mikið hefur verið unnið við
nýju hafnargerðina, en fram-
kvæmdum mun Ijúka innan
skamms að þessu sinni. Unnið
var í uppfyllingunni, sem er
geysistór um sig, bæði við að
fylla upp og grafa út til dýpkun-
ar. Þá var komið upp stálþili all-
löngu. Einnig hefur farið fram
undirbúningsvinna undir steypu
plans á hafnaruppfyllinguna.
Verður það steypt næsta vor.
Verið er að koma fyrir nýrri
bílavog, búið að steypa undir-
stöður og á að taka hana í notk-
un í haust.
Síldarverksiniðjan í Neskaupstað hefur tekið á móti
80 þús. tonnum í sumar og haust.
er í fréttum?
Framh. á 2. síðu.