Austurland


Austurland - 22.09.1967, Blaðsíða 2

Austurland - 22.09.1967, Blaðsíða 2
AUSTURLAND Neskaupstað, 22. septerriUer 1967. 2 ' n Austfirshir sveitarstjérnarmenn þinga Aðalfundur Sambands sveitar- félaga í Austurlandskjördæmi var haldinn á Höfn í Hornafirði 16. og 17. september. Fundurinn var ágætlega sóttur og tók til með- ferðar mörg hagsmuna- og fram- faramál fjórðungsins. Gestir fundarins voru Magnús E. Guð- jónsson, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga, sem flutti erindi um Lánasjóð sveit- arfélaga, Torfi Ásgeirsson, hag- fræðingur, sem flutti erindi um vissa þætti skólamála, og allir þingmenn kjördæmisins, en tveir þeirra voru jafnframt fulltrúar. 1 þessu blaði er ekki rúm til að birta ályktanir fundarins, en þær munu birtar síðar, eftir því, sem tækifæri gefst. Fundarstjórar voru Óskar Helgason, stöðvarstjóri, Höfn, oddviti Hafnarhrepps og Egill Benediktsson, bóndi Þórisdal, odd- viti Bæjarhrepps. Fundarritarar voru Stefán Sigurðsson, Ártúni, oddviti Hjaltastaðahrepps, og Þórður Benediktsson, bankastjóri, Egilsstaðakauptúni. Stjórnin var endurkosin, en hana skipa: Bjarni Þórðarson, Neskaupstað, Hrólfur Ingólfsson, Seyðisfirði, Jóhann Klausen, Eski- firði og Sveinn Jónsson, Egils- stöðum. Stjói’nin hefur enn ekki skipt með sér verkum. 1 varastjórn eru: Kristján Ing- ólfsson, Eskifirði, Reynir Zoega, Neskaupstað, Sigurður Hjaltason, Höfn, Theódór Blöndal, Seyðis- firði og Vilhjálmur Sigurbjörns- son, Egilsstaðakauptúni. Voru þeir allir endurkosnir, nema hvað Sigurður Hjaltason var kosinn í stað Axels Jónssonar, sem andað- ist skömmu eftir að stofnfundur- ;inn var haldinn. Þótt rétt hafi verið talið að endurkjósa stjórn- ina að þessu sinni, er meining fulltrúa að mannaskipti verði tíð í stjórninni og var jafnvel um það rætt, að setja ákvæði þar að iútandi í lög sambandsins, en þau verða endurskoðuð á næsta þingi samtakanna og var kosin milli- þinganefnd til þess að hugleiða það mál. Það var almannamál á íundin- ■um, að þetta fyrsta starfsár sam- bandsins hafi sannað tilverurétt þess og virtust fulltrúar mjög ánægðir með störf þess. Á Höfn var fulltrúunum tekið með miklum ágætum og nutu þeir hins bezta atlætis á hinu nýja og glæsilega hóteli staðarins. Það eru ekki margir staðir utan höf- uðborgarinnar, sem státað geta af jafn ágætu gistihúsi. Fundurinn var haldinn í Sindrabæ, félagsheimili Hafnar- búa og er þar liin ágætasta að- staða til að halda ráðstefnur sem þessa. Undirbúningur þingsins þar á staðnum og fyrirgreiðsla í sambandi við þinghaldið, hvíldi einkum á herðum sveitarstjórans, Sigurðar Hjaltasonar, og verður þar ekki að fundið. Eftir að félagsheimili var reist á Hornafirði, og sér í lagi þó eft- ir að hótelið tók til starfa, er Höfn hinn ákjósanlegasti staður Síldveiðar í sumar hafa verið með eindæmum erfiðar. Síldin hefur haldið sig lengst norður í höfum í grennd við Svalbarða og var lengi a. m. k. fjögurra sólar- hringa sigling þaðan til íslenzkr- ar hafnar. Þetta hafa því verið ákaflega erfiðar veiðar og þreyt- andi fyrir sjómennina, en kostn- aðarsamar fyrir útgerðina. Síldarflutningaskipin Síldin og Haförnin hafa verið í stanzlaus- um síldarflutningum af miðunum til Siglufjarðar og Reykjavíkur, en meirihluta aflans hafa veiði- skipin sjálf flutt að landi um all- an þennan veg. Síðustu vikurnar hefur síldin mjög nálgazt ísland og mun nú um tveggja sólarhringa sigling af miðunum til íslenzkrar hafnar. Er þess vænzt, að hún verði komin á miðin hér fyrir Austurlandi eftir 2—3 vikur. Eins og gefur að skilja hefur ekki verið unnt að salta eða frysta síld eftir svona langa sigl- ingu. Því hefur engin síld verið söltuð í sumar, nema hvað síðustu dagana hefur verið saltað eitthvað af síld, sem flutt hefur verið ís- varin eða í pækli í land. Hér í bæ var fyrsta síldin á þessu ári solt- uð á miðvikudaginn í þessari viku. Munu engin dæmi þess, að síldarsöltun hafi hafizt svo seint á landi hér, eftir að þessi atvinnu- vegur hófst. Síldarverksmiðjurnar hafa skilj- anlega haft takmörkuð verkefni í sumar, og minni bræðslurnar hafa ýmist fengið mjög lítið eða alls ekkert af síld. Ástæða er til að æitla, að þær verði afskipta í haust, vegna þess, að sjómenn og útgerðarmenn munu óttast, að þær geti ekki greitt hráefnið. Er því áríðandi að þeim verði gert kleift að setja tryggingu fyrir verði hráefnisins. Þessí hegðun síldarinnar hefur auðvitað skapað mikil og marg- þætt vandamál. Þar sem smærri verksmiðjurnar eru, hefur at- vinnuástandið verið mjög slæmt og hvergi hefur verið nein spenna í líkingu við það, sem verið lief- ur undanfarin ár. Víðast hvar fyrir allskonar ráðstefnur og fundi og má búast við að mjög færist í vöxt, að menn komi þar saman. Og ekki spillir, að jafn- framt eiga menn þess kost að komast í nokkur kynni við hina tignarlegu og sérkennilegu nátt- úrufegurð Skaftafellssýslu. hefur smábátaútgerð lagzt niður að mestu eða öllu leyti. Menn hafa treyst á síldina og ekki tryggt sér neinar bakstöðvar. Svipur löndunarhafnanna hefur verið allt annar en áður, þegar göturnar voru oft fullar af sjó- mönnum og hafnirnar af fiski- og flutningaskipum. í sumar hefur hvílt miklu meiri ró yfir þessu öllu og alger friður ríkt á söltun- arstöðvunum. Og mönnum hafa brugðizt tekjuvonir og hætt er við, að margur æskumaðurinn, sem hugði á nám í vetur og treysti á síldina, eigi nú erfitt um vik. En nú nálgast síldin lengst norðan úr Dumbshafi. Enginn þarf að efa, að rösklega verði tekið á móti þeim afla, sem sjó- mennirnir flytja að landi, saltað, fryst og brætt af kappi í haust og vetur. Úr bœnum Afmæli. Á meðan Austurland var í sumarfríi áttu þessir bæjarbúar merkisafmæli, svo blaðinu sé kunnugt: Guðný Pétursdóttir, húsmóðir, Hlíðargötu 7, varð 50 ára 31. júlí. Hún fæddist að Höfða í Vallahreppi, en hefur átt hér heima síðan 1919. Jóhann Sigmundsson, efnalaug- areigandi, Miðstræti 1, varð 50 ára 1. ágúst. Hann fæddist hér í bæ og hefur átt hér heima mest- an hluta ævinnar. Rósaniunda Eiríksdóttir, hús- móðir, Nesgötu 32, varð 60 ára 11. ágúst. Hún fæddist á Krossa- nesi, Helgustaðahreppi, en hefur átt hér heima síðan 1914. Guðrún Eiríksdóttir, húsmóðir, Kvíabólsstíg 4, varð 70 ára 9. september. Hún fæddist í Sand- vík í Norðfjarðarhreppi, en hef- ur átt hér heima síðan 1904. Gísli Bjarnason, verkamaður, Strandgötu 24, varð 50 ára 14. september. Hann fæddist í Seldal í Noi'ðfjarðarhreppi, en flutti liingað 1942. : Thailand... Framh. af 4. síðu. Yfir „veturinn" er loftslag á- þekkt heitu sumri á meginlandi Evrópu. Þetta er um áramótin og stendur dýrðin ekki nema um sex til átta vikur, en komið getur fyrir að kalda tímans verði alls ekki vart og að hann hverfi al- gerlega í hitamolluna. Á hinn bóginn getur hitinn farið allt nið- ur í 12°C til 15° C að nóttu til um þetta leyti árs og svara slík- ar náttúruhamfarir til ísavetra hjá okkur en gamalt og lasburða fólk deyr þá unnvörpum. Veldur þessu, að híbýli manna eru byggð með það fyrir augum að láta loít leilra sem mest um þau, en skjól- föt eru álíka sjaldséð og bikini var á íslandi á árunum fyrir stóð- . .. I ! I i Thailenzkur almenningur getur ekki veitt sér þann íburð að kæla íbúðir sínar og fá þarlend fyrir- tæki eru svo efnum búin að skrif- stofur þeirra séu loftkældar. Þó seljum við (þ.e. fyrirtæki það, er ég vinn fyrir) um og yfir eitt hundrað loftræstivélar (room air- conditioners) á mánuði og erum við eitt af fimm stærstu fyrir- tækjum landsins á þessu sviði. Mun yfir helmingur þessara við- skipta vera við vesturlenzkt fólk. Ennfremur gerum við stór loft- ræstikerfi og þó einkum frysti- hús og stórar ísverksmiðjur í mjög stórum stíl fyrir innlent at- vinnulíf og virðist ekkert lát á þorsta Thailendinga eftir ís og kælingu. Það er ekki til sú aum- asta „sjoppa“ eða sá söluvagn, en slík fyrirbæri eru fleiri en götuhornin, að ekki megi fá þar ískaffi, íste eða hvað það nú heitir, með ís út í fyrir einn baht (tvær krónur). Fyrir tveimur árum gerði ég lauslega áætlun yfir þessa ís- neyzlu og komst að raun um, að framleiðslugetan í Bangkok og nágrenni nam þá um 3000 tonnum á dag. Heildarísframleiðslugetan úti á landi nam um 5000 itil 7000 tonnum á dag, sem þýðir, að hægt er að framleiða um 8000 til 10000 tonn af is í landinu á dag. Um 70% þessarar framleiðslu mun vera nýtt ef reiknað er meðaltal yfir allt árið, en af því magni fara um 60% til 70% til fisk- iðnaðarins. Framhald. Segja upp störfum Helena Ottósdóttir, Ijósmóðir í Neskaupstað, hefur sagt lausu starfi sínu frá 15. desember nk. Bæjargjaldkerinn í Neskaup- stað, Birgir Stefánsson, hefur sagt starfi sinu lausu frá nk. ára- mótum að telja. Síldin nálgasí

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.