Austurland - 27.10.1967, Síða 1
MALGAGN ALÞÝGIÍ8ANDALAGSINS A AUSTURLANDI
17. árgangur.
Neskaupstað, 27. október 1967.
39. tölublað.
Hvað er að gcrast í efiahags-
idiii hjóðarinnar!
Um fátt er meira talað um
þessar mundir en ástandið í efna-
hagsmálunum og tillögur ríkis-
stjórnarinnar um stórfelldar álög-
ur og kjaraskerðingu.
í hverju eru þessar tillögur rík-
isstjórnarinnar fólgnar í aðalat-
riðum ?
Samkvæmt þeim gerir ríkis-
stjórnin ráð fyrir að afla rikis-
sjóði nýrra tekna, sem nema 750
millj. kr. með nýjum sköttum og
hækkuðu vöruverði.
Helztu álögurnar sem hér er
um að ræða, eru þessar:
í fyrsta lagi: Ríkissjóður minnk
ar niðurgreiðslur á landbúnaðar-
vörum, sem nemur 410 milljónum
króna. Afleiðingar þess verða
stórfelld hækkun á verði búvara
og kemur það því þyngra niður á
heimilin sem þau eru fjölmennari,
I öðru lagi: Fasteignaskattur
mun stórhækka, þar sem ákveð-
ið er að tólffalda fasteignamat,
nema í sveitum, þar sem það
verður sexfaldað. Afleiðingar
þess verða þær, að allir, sem eiga
sæmilegar íbúðir, verða að greiða
verulega hækkun á eignaskatti.
I þriðja lagi: Sjúkrasamlags-
gjöld eiga að hækka og önnur
gjöld til Almannatrygginga.
1 fjórða lagi: Lagður verður á
sérstakur farmiðaskattur, kr.
3.000,00 á hvern farmlða til út-
landa.
í fimmta lagi: Tóbak og áfengi
hækkar í verði um 13%.
I sjötta lagi: Síma-, póst- og
útvarpsgjöld eiga að hækka.
I sjöunda lagi: Daggjöld á
sjúkrahúsum hækka.
Samkvæmt upplýsingum ríkis-
stjórnarinnar munu verðhækkan-
ir vegna þessara ráðstafana valda
14 stiga hækkun á vísitölunni. 1
frumvarpi ríkisstjómarinnar er
lagt til, að þessi 14 vísitölustig
verði látin falla niður úr kaup-
gjaldsvísitölunni. Launafólkið á að
kunna önnur ráð en a.ð lækka um-
bótalaust. Þannig væri allt kaup
lækkað um 7 Vz %- með lögum.
Ráðstafanir þessar telur ríkis-
stjórnin að gera þurfi til þess að
rétta við fjárhag ríkissjóðs, en
skýrt er tekið fram, að enginn
eyrir af þessum nýju álögum eigi
að ganga til atvinnuveganna.
Þegar að ríkisstjórnin er krafin
sagna um hvað hún ætli að géra
til stuðnings atvinnuvegunum,
segir hún, að um það getí hún
ekkert sagt að svo stöddu. Ástand
atvinnuveganna er þó orðið hið
ískyggilegasta og má nefna eftir-
farandi dæmi um það:
1 fyrsta lagi: Frystihúsin hafa
tilkynnt stöðvun á Öllum rekstri
sínum frá næstu áramótum, fái
þau ekki aukna aðstoð.
í öðru lagi: Síldárverksmiðjur á
Suðvesturlandi hafa stöðvað alla
síldarmóttöku.
1 þriðja lagi: Fundur Lands-
sambands íslenzkra útvegsmanna
hefur krafizt stóraukins stuðnings
við bátaflotann og talið er, að
bátaflotinn verði stöðvaður innan
skamms.
I fjórða lagi: Síldarverksmiðjur
á Austurlandi hafa rætt um að
stöðva vegna mikils tapreksturs.
Ástandið er því orðið uggvæn-
legt og ríkisstjórnin virðist ekki
kunna önnur ráð en að lækki um-
samið kaup þeirra, sem þegar
hafa tekið á sig störfellda launa-
skerðingu vegna minnkandi at-
vinnu.
Samtök launastéttanna hafa
mótmælt fyrirætlunum ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum og lýst
yfir því, að þau muni ekki sætta
sig við fölsun vísitölunnar.
Ríkisstjórnin hefur þegar
neyðzt til að stöðva frumvarp
sitt í þinginu um vísitölufölsunina
og hafið viðræður við fulltrúa
1 Framh. á 2, síðu.
í fyrravor var hafizt handa um
byggingu flugstöðvarhúss á Eg-
ilsstaðaflugvelli og var ekki van-
þörf á, því þar hafði frá upphafi
verið algjörlega óviðunandi að*-
staða fyrir farþega og eins til
þess að taka á móti vörum, en
vöruflutningar með flugvélum
hafa vaxið jafnt og þétt.
En fjárráð Flugráðs hafa jafn-
an verið lítil miðað við hina miklu
þörf, sem að hefur kallað á öllum
sviðum flugmála og í september
hafði verkið stöðvazt sökum fjár-
skorts.
Skömmu eftir að verkið hafði
stöðvazt, hélt Samband sveitarfé-
laga á Austurlandi aðalfuna sinn.
Að frumkvæði formanns þess,
Sveins á Egiisstöðum, fól fundur-
inn sambandsstjórn að reyna að
hlaupa hér undir bagga með því
ao útvega lán til þess að unnt
væri að gera bygginguna nothæfa
fyrir veturinn. Það tókst. Banka-
útibúin þrjú lánuðu samtals hálfa
milljón króna og eru nú fram-
kv^mdir hafnar að nýju. Þó bygg-
ingunni verði ekki að fullu lokið
fyrir það fé, nægir það þó til þess
að skapa góða aðstöðu fyrir far-
þsga og eins fyrir vöruflutninga.
Byggingafélagið Brúnás í Eg-
ilsstaðakauptúni annast þessar
framkvæmdir.
Frestað
Ekki varð úr aðalfundi Kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsins,
sem boðað hafði verið til um síð-
ustu helgi á Höfn í Hornafirði.
Ákvað stjórnin með fyrirvara að
fresta fundinum, þar eð fyrirsjá-
anlegt var, að ekki gæti nema
helmingur fulltrúa í ráðinu mætt,
en í því eiga nú sæti 30 fulltrú-
ar. Verður varla hægt að boða til
slíks fundar fyrr en með vordög-
um, eins og vetrarsamgöngum er
háttað hér á Austurlandi,
Ógæitir
Miklar ógæftir hafa verið að
undanförnu og því lítið borizt á
land, bæði af síld og öðrum fiski.
Öðru hvoru hafa síldveiðiskipin
þó getað verið að og hef.ur þá
stundum fengizt góð veiði. Síld-
arsöltun hefur því verið allmikil
suma daga.
Ekkert lát virðist á ógæftun-
um. 1 morgun var norðaustan
stormur og ausandi rigning, en
spáð er norðanátt og snjókomu.
Ýmsir fjallvegir á Norðurlandi
eru nú ófærir vegna snjóa og eins
á Austurlandi. Þannig hafa veg-
irnir um Fjarðarheiði og Odds-
skarð lokazt, og sömuleiðis veg-
urinn um Möðrudalsöræfi.
Þingmúli í Skriðdal
Þingmúli í Skriðdal er 508 m á hæð, og blasir f jallið víða við af
Héraði utanverðu. Eflaust er Múlinn Ieifar af gömlu eldfjalli, gerð-
ar bæði úr móbergi og basaltlögum liið efra. Þar er víða að finna
steingerfinga, sem eru leifar af forniun skógi. Ofan af Múlanum
er víðsýnt suður til jökla og út um allt Fljótsdalshérað.
Undir Þingmúlanum stendur samnefndur bær, ldrkjustaðlar og
fornt liöfuðból, og þar var fyrrum fjérðung'sþingstaður fyrir Aust-
fi rðingafjórðung. Af þingstað þessum er svo nafn Múlasýslna
dregið.