Austurland - 27.10.1967, Qupperneq 4
ATJSTURL'ANÐ
4 t r
Neskaupstað, 27. október 1967.
Hvaö er í fréttum?
Frá Breiðdai
Breiðdal, 26. okt. — H.G./G.Ö.
Héðan eru engin stórtíðindi,
lieldur dauft yfir atvinnulífinu og
peningar með minna móti. Þó
hefur töluvert borizt hingað af
síld og búið að salta í nær 3000
tunnur. Bátarnir héðan voru með
þeim fyrstu sem fóru út með
tunnur og gafst það vel, síldin
reyndist góð og mest af henni
farið.
Heyöflun var sæmileg og nýt-
ing heyja góð. Kal var hér mjög
lítið, eitthvað þó á tveim bæjum.
Haustveðrátta var sérlega mild.
Ber voru týnd fram í miðjan
október.
1 fyrra voru sett 2000 laxa-
seiði í Breiðdalsá og munu þau
eitthvað hafa skilað sér aftur í
sumar, að minnsta kosti töldu
veiðimenn að svo væri, en áin er
leigð stangveiðimönnum.
Rjúpnaveiði er engin enn, því
að rjúpa hefur varla sézt. Ekki
var heldur mikið um gæsir í
haust, en þann fugl veiða menn
af meiri ánægju en aðra fugla.
Ber tvennt til. Gæsir eru skað-
valdar í allri ræktun og einnig
ágætur matur.
Umferð var hér allmikið í sum-
ar en færri leituðu til gistístaða
en áður, sennilega af sparnaðar-
ástæður.
Vegurinn suður af Breiðdals-
heiði að sunnan var undirbyggður
i sumar, en eftir er að yfirkeyra
hann. Er að þessari vegagerð
mikil samgöngubót og öruggt að
Breiðdalsheiði verður oftar fær
að vetrinum en áður. Hins vegar
eru vegir í byggð með allra versta
móti.
Lítið er um framkvæmdir í
byggðariaginu. Það er helzt í
sambandi við síldarsöltunina,
byggð verbúð og skemma til að
salta í innanhúss.
Haustslátrun er að ljúka. Gekk
mjög vel, slátrað um 400 á dag.
Frá Egilsstöðum
Egilsstöðum, 25. okt. SG/HG.
Djúpt á heita vatnið
Eins og greint var frá í blað-
inu fyrir þremur vikum, var gerð
tilraun til að bora eftir heitu
vatni á Ullartanga gegnt Egils-
stöðum. Þar var borað niður á
100 metra dýpi, en árangurslaust.
Fluttu bormenn sig þá yfir að
Urriðavatni og tóku til við gamla
holu á bakka vatnsins, þar sem
borað hafði verið niður á 114
metra í hitteðfyrra og hiti þá
reynzt 37 °C, en hafði síðan
hækkað um tvær gráður.
I þessari sömu holu er nú kom-
ið niður á 190 metra og hitinn
hækkað í 44° C, og er það vonum
minna. Þó stendur til að halda
þarna áfram niður í 240 metra,
en eins og stendur er borinn í
lamasessi. Einnig er í bígerð að
bora aðra holu sunnar með vatn-
inu.
Frá Borgafirði
eystra
Borgarfirði, 26. okt. GE/HG.
Atvinnulíf
Á Borgarfirði var mjög lítið um
atvinnu framan af sumri, en helzt
vinna við byggingu símstöðvar-
húss, sem nú er komið undir þak.
1 ágúst rættist nokkuð úr, því
að þá fiskaðist ágætlega á smá-
báta, og voru um tíma gerðir út
5—6 bátar. Fékk sá hæsti,
Skjótanes, yfir 60 skippund. Afl-
inn var verkaður hjá annarri sölt-
unarstöðinni og fór allur i salt.
Skapaði þetta talsverða atvinnu.
Síld sáum við ekki fyrr en síð-
asta hálfan mánuðinn, og munu
nú komin um 200 tonn í bræðslu
og 1000 tunnur verið saltaðar á
tveimur söltunarstöðvum. Síðustu
Ur bœmim
Hjónaband t
Ungfrú Matthildur Sigursveins-
dóttir, Urðarteigí 1 og Haraldur
Jörgensen, bílstjóri, Sverristúni 2,
voru gefin saman í hjónaband í
Norðfjarðarkirkju 21. október.
Séra Þorleifur Kristmundsson á
Kolfreyjustað framkvæmdi at-
höfnina.
AfmæM
Þorleifur Árnason, verkamaður,
Miðstræti 8A, varð 75 ára í gær,
26. okt. Hann fæddist í Græna-
nesi í Norðfjarðarhreppi, en hef-
ur verið búsettur hér í bænum
síðan 1933.
daga höfum við þó ekkert fengið
vegna þess, hve slæmt hefur ver-
ið í sjó. Byggt hefur verið yfir
aðra söltunarstöðina og tjaldað
með plasti yfir 'hina, þannig að
aðstaða er sæmileg.
Búskapur hér í sveitinni mun
hafa gengið sæmilega, þrátt fyrir
kalt vor og nokkrar kalskemmd-
ir. Slátrun er nýlega lokið hjá
Kaupfélaginu.
Verzlunarhættir
Það má ti'l tíðinda teljast, að
Kaupfélag Borgfirðinga varð að
hætta störfum nú í haust sökum
rekstrarörðugleika, og til að forða
skuldaskilum yfirtók Kaupfélag
Héraðsbúa starfsemi félagsins
með leigusamningi um óákveðinn
tíma.
Eríiðleikar
Ýmsir erfiðleikar blasa hér við
nema verulega rætist úr með
síldveiðarnar og rekstrargrund-
völl síldarverksmiðjunnar. Fyrir-
hugaðar ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar eru ekki til þess fallnar að
vekja bjartsýni með fólki og bæt-
ast þær álögur ofan á þann mikla
tekjumissi, sem þegar er orðinn.
Þórarinn Sveinsson, verkstjóri,
Blómsturv. 8, varð 50 ára í gær,
26. október. Hann fæddist í Sand-
vík í Norðfjarðarhreppi, en hefur
átt heima hér í bænum síðan 1919.
Minningargjöf til Kvennaddildar-
innar
Nýlega hefur Jón Kerúlf frá
Norðfirði, nú búsettur í Reykja-
vík gefið' Kvennadeild Slysavarn-
arfélagsins hér í bæ 10 þúsund
krónur til minningar um konu
sína, Hjálmfríði Hjálmarsdóttur,
og foreldra sína, Guðrúnu Frið-
rikku Þórarinsdóttur og Guð-
mund Guðmundsson, sem lengi
bjuggu að Mel hér í bæ.
Kvennadéildin færir Jóni alúð-
arþakkir fyrir gjöfina.
Skínfaxí
Blaðinu hefur borizt tímaritið
Skinfaxi, 2.-3. hefti 1967. Heftið
hefst á greininni „Vormenn Is-
lands! — yðar bíða...“, eftir
Eirík J. Eiríksson, form. UMFl,
þá er viðtal við Stefán Magnús-
son, íþróttakennara, sem var
framkvæmdastjóri samtakanna í
sumar, greinin Að stækka Island,
segir frá landgræðslu á afréttum,
Starfað austanlands, nefnist við-
tal við Kristján Ingólfsson form.
UÍA og segir þar frá undirbún-
ingi landsmótsins að Eiðum næsta
sumar, birt er ræða eftir Guðm.
Böðvarsson, skáld, grein er um
Sigurð Greipsson og Haukadals-
skólann, Gísli Sigurðsson skrifar
40 ára íþróttaminningu, blrt er
greinin Glíman fyrr og nú, og
loks er þátturinn Af vettvangi
ungmennafélaganna. Heftið er
skreytt mörgum myndum og
vandað að allri gerð.
Ritstjórar eru Eiríkur J. Eiríks-
son og Eysteinn Þorvaldsson.
I fjárlagafrumvarpinu fyrir ár-
ið 1967 er að finna fjárveitingu
til menntaskóla á Austurlandi, kr.
1.350.000,00. Sama upphæð er
veitt til menntaskóla á Isafirði.
Þetta gæti bent til þess, að ein-
hver hreyfing væri að komast á
menntaskólamálið. Þó mun ekki
að vænta framkvæmda við sjálfa
skólabygginguna á næsta ári, til
þess er fjárveitingin of lítil, en
eitthvað mætti vinna að undir-
búningi verksins, svo sem teikn-
ingum.
En fyrst af öllu þarf að ákveða
hvar skólinn skal rísa.
Það er >sem sé orðið tímabært,
að menntamálaráðuneytið ákvarði
hvar reisa skuli menntaskóla
Austurlands. Vonandi vefst það
ekki eins lengi fyrir menntamála-
ráðherra og ákvörðun staðar fyr-
ir iðnskóla Austurlands.
Dálítið er það einkennilegt, að
í fjárlagafrumvarpinu eru þessi
útgjöld kölluð byggingarstyrkur,
rétt eins og einhver annar en
ríkissjóður byggði skólann.
iUSTURLAND
Útgefandi:
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi.
Ritstjóri:
Bjarni Þórðarson.
NESPRENT
AuglýsiB i
Ausfurlandi
>/wvwvwwww
Frá Borgarfirði eystra. Síldarverksmíðjan, Áifaborgin og Staðarfja,li
í baksýn. — Ljósm. H.G.