Austurland - 26.01.1968, Qupperneq 3
Neskaupstað, 26. janúar 1968.
AUSTURLAND
1
3
Skráning atvinnulausra í Neskaupstað samkvæmt lögum nr.
52/1956 um vinnumiðlun, og reglugerð nr. 130/1956 um vinn-
miðlun, fer fram á skrifstofu Verklýðsfélags Norðfirðinga í
félagsheimilinu dagana 1.—3. febrúar 1968, kl. 10—12 og
15—17.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað.
^•/V/WVAA^/\A^AA/»A^/\AA/\/\A/»AA/WWWWVWW\A/\/\/WW\AAA/\>WVWWVNAA/W\/V\^/\A/»/WWVA/<
Símanotendur
sem skulda áfallin símagjöld, eru minntir á, að eindagi þeirra
: var í gær.
1 Sím'stjóri.
Þorroblót í nýjum sið
Framhald af 1. síðu.
stöðum, en a. m. ik. á árunum
milli 1930 og 1940 voru þau hald-
in til skiptis á fjórum stöðum: Á
Egilsstöðum, Ketilsstöðum, í
Vallanesi og á Hallormsstað (eft-
ir að Húsmæðraskólinn þar tók
til starfa). Eftir að Egilsstaða-
hreppur var stofnaður voru blót-
in á Ketilsstöðum og Hallorms-
stað og nú síðustu arln í félags-
heimilinu Iðavöllum.
Þorsteinn kaupfélagsstjóri
minntist þessarar vísu, sem varð
til eftir eitt þorrablótið á Egils-
stöðum:
Á Egilsstöðum enn er mót,
sem ýmsra iléttir buddu.
Þar var haldið þorrablót
og þar fékk Stebbi Guddu.
Þorsteinn fluttist til Reyðar-
fjarðar árið 1919 og eftir það
kvað hann þorrablót hafa verið
haldin reglulega í því byggðar-
lagi.
Að lokum vildi ég geta eins
atriðis í þessu sambandi: Það eru
nokkuð margir í minni sveit, sem
tala um þorramót, en ekki nota
orðið þorrablót.
Hallormsst. á Bræðramessu 1968,
Si’g. Blöndal.
Óssmileð froÉonto
Framh. af 1. síðu.
svo einn af starfsmönnum út-
varpsins látinn hringja í Magnús
til að tilkynna honum, að ekki
sé lengur rúm fyrir þátt hans í
dagskránni, og verði hann því að
falla niður. — í útvarpsráði er
sem sagt logið upp forsendum til
að fjarlægja þáttinn úr dag-
skránni og síðan óábyrgur aðili
látinn hringja í flutningsmann til
að tilkynna honum niðurstöðuna!
Enginn rökstuðningur hefur enn
komið fram frá ráðamönnum út-
varpsins fyrir þessari dæmafáu
málsmeðferð og ókurteisi, þegar
þetta er ritað. — En í leiðara
Morgunblaðsins sl. laugardag eru
Magnúsi ekki vandaðar kveðjurn-
ar í pistli undir fyrirsögninni
„Misheppnaður útvarpsþáttur".
Þar sést hverjir hafa hönd á
þeim þráðum, sem leikbrúðurnar
í stjórn útvarpsins dansa eftir.
Formaður útvarpsráðs er Bene-
dikt Gröndal, langeygur vonbið-
ill eftir embætti utanríkisráðherra
íslands. Við hægri hönd hans sit-
ur Sigurður frá Vigur Morgun-
blaðsritstjóri. Þessir menn kunna
til verka á sinn sérstæða hátt.
Vert er að almenningur veiti
þessum lítilmótlegu vinnubrögð-
um athygli, Með þeim er á órök-
studdan hátt vegið að málfrelsi
við útvarpið á sama tíma og þar
er látnir mala viku eftir viku og
ár eftir ár menn, sem virða lög-
boðna óhlutdrægni stofnunarinn-
ar að vettugi. — H.G.
Bót rok ó lond
Norðvestanrok gerði á Norð-
firði aðfaranótt mánudags. Slitn-
aði þá upp af legunni v/b Dröfn
og rak á land í krókinn fyrir inn-
an innri bæjarbryggjuna. Bátur-
inn skemmdist mikið, er jafnvel
ónýtur.
Dröfn er einhver elzti bátur
landsins, keyptur hingað frá Ól-
afsfirði fyrir mörgum árum og
hét þá Anna. Upphaflega var bát-
urinn smíðaður sem hákarlaskip,
en var síðan umbyggður og
stækkaður í 40 tonn.
Ekkert tjón annað varð af
veðrinu. ’ i
tAAAAAAAAAAAAAA^^^AAA^AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^^^^WWWWWWWWW
B
Egilsbúð
SÍÐASTI NJÓSNARINN
Sýnd föstudag kl. 8 og á sunnudag kl. 3.
LESTIN !
Sýnd sunnudag kl. 5. Bönnuð börnum innan 14 ára. Síðasta
sinn.
HRINGFERÐ ÁSTARINNAR
Mynd um hringekju ástarinnar. Aðalhlutverk: Hildegard
Knef, Walter Giller, Lllli Palmer. — Bönnuð börnum innan
16 ára. — Sýnd sunnudag kl. 9.
:
HVÍTT SPRED SATIN
i ALLABtÐ.
SKÍÐASLEÐAR
KAUPFÉLAGIÐ FRAM
Þorrablól
Alþýðubandalagsfélags Neskaupstaðar verður haldið í Egils-
búð laugardaginn 27. jan. nk. og hefst kl. 20.30 með sam-
eiginlegu borðhaldi.
Ýmis skemmtiatriði ásamt almennum söng meðan á borð-
haldi stendur.
Félagsmenn, mætið með gesti ykkar stundvíslega.
Höskuldur og félagar leika fyrir dansinum.
Pantaðir aðgöngumiðar verða seldir féiagsmönnum I miða-
sölu Egilsbúðar kl. 5—7 e. h. á föstudag 26. jan.
Matartrog verða sett á borð kl. 17.00—18.30 á laugardag.
Stjórnin.
Slysavarnakonur Norðfirði
Munið fundinn í sjómannastofunni í kvöld kl. 9. Áríðandi mál
á dagskrá. Hafið með ykkur handavinnu og kaffi.
Stjórnin.
HAAA/¥WWW¥WWWWWWW\AAA^WWAAAAAAAAAAAAAA%AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/
Öllum þeim, sem sendu mér skeyti og gjafir, og auðsýndu
mér á annan hátt vináttu og h’ýhug á 80 ára afmæli mínu
17. janúar 1968, þakka ég hjartanlega fyrir.
Lifið heil.
Þorsteinn Einarsson.