Austurland - 29.03.1968, Qupperneq 3
Neskaupstað, 29. marz 1968.
AUSTURLAND'
r
3
Von ó oieirí loðnu!
Alllangt er nú síðan loðna hef-
ur borizt til Austfjarðahafna og
eltu bátarnir hana suður fyrir
land, en minna varð úr veiði en
vænzt var, vegna þrálátra illviðra.
Fréttir hafa borizt um loðnu-
torfur í Meðallands- og Mýrabugt
og eru einhverjir bátar komnir á
vettvang, en ekki hefur enn frétzt
af veiði.
Fáist loðna á þessum slóðum,
má vænta frekari löndunar á
Austfjarðahöfnum.
NÝTT HLUTAFÉLAG:
Friðþjófur hf.
í Lögbirtingablaðinu, sem út
kom 2. marz, er tilkynnt um
stofnun nýs hlutafélags á Eski-
firði. Heitir það Friðþjófur hf.
„Tilgangur félagsins er að reka
útgerð og fiskverkun". Stofnend-
ur eru Árni Halldórsson, Kristinn
Karlsson, Bjarni Stefánsson, Unn-
ar Björgólfsson, Ragnhildur Krist-
jánsdóttir, Bára Hólm, Bára Haf-
steinsdóttir og Jónína Jónsdóttir,
öll til heimilis á Eskifirði.
Hlutafé er kr. 500.000.00,
Hœtt að ryðja
I fyrradag var byrjað að ryðja
snjó af Oddsskarðsvegi, sem ver-
ið hefur ófær um skeið. í gær var
verkið stöðvað vegna veðurútlits.
Norðfjarðarmegin var þá búið að
ryðja upp í Blóðbrekkur. Allmik-
ill snjór mun á veginum.
Ur bœnum
Afmæli
Jóhann S. Eyjólfsson, verka-
maður, Hafnarbraut 32, er sjö-
tugur í dag — 29. marz. Hann
fæddist í Sandvík í Norðfjarðar-
hreppi, en fluttist hingað 1919.
Andlát.
Björn Einarsson, vélstjóri, Hlíð-
argötu 5A, andaðist á sjúkrahús-
inu hér í bænum 23. marz. Hann
fæddist. að Ormsstaðastekk í
Norðfjarðarhreppi, en hafði átt
hér heima lengi.
Hjónaband
Þann 25. marz voru gefin sam-
an í hjónaband í Stortford í Eng-
landi ungfrú Brenda Isajbella
Mitchell, flugfreyja og Lúðvík S.
Sigurðsson, flugmaður frá Nes-
kaupstað.
....... ■»—nrB|-~7 j
Egilsbúð
\ OFAN FRÁ SOHO
Sýnd föstudag kl. 8. — Bönnuð börnum innan 14 ára. — j
Síðasta sinn.
STRIPLINGAR Á STRÖNDINNI
j Sýnd sunnudag kl. 3. — Allra síðasta sinn.
RÚSSAR OG BANDARÍKJAMENN Á TUNGI INU
með Jerry Lewis. — Sýnd sunnudag kl. 5. — Síðasta sinn.
THE OSCAR
Heimsfræg amerísk litmynd er fjallar um meinleg örlög í
heimi frægra leikara og umboðsmanna þeirra. — Aðalhlut-
verk: Stephen Boyd, Tony Bennett, Elke Sommer. — Sýnd
sunnudag kl. 9. — íslenzkur texti.
»^*AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA*AAAAAAOA*AAAAAAAAAAAAAA«W>AAAAAAAA**A«..-|-rtvwvw|AnJ
KRAFTLAKK — GRÁTT
------------------- -|nj-Lru-U1.->|-m<-L-
ALLABÚÐ
RJÓMAKÖKUR Á SUNNUDAG
BAKARÍIÐ.
ÚRVAIS
FYRIR DRENGI:
Reiðhjól margar gerðir
Ferðaritvélar í tösku
Skrifborðsstólar
Bifhjól N.S.U. og Tempo
FYRIR STÚLKUR:
Reiðhjól margar gerðir
Ferðaritvélar í tösku
Hárþurrkur margar gerðir
Saumavélar (Necchi)
Sendi í póstkröfu. — Pantið tímanlega.
FÁKUR, sími 20«.
frj- •
Neskaupstað.
Aðalfundur
Iðnaðarmannafélags Norðfjarðar verður haldinn þriðjudaginn 2.
apríl 1968 kl. 8.30 síðdegis í Egilsbúð.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Styrktarsjóður. i
3. Önnur mál.
Stjórnin.