Austurland - 24.05.1968, Page 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 24. maí 1968.
Frd iiferðaröryððisiclid leskaupstaðar
Eftir nokkra daga, eða nánar
tiltekið 26. maí, breytist umferð
á landi voru úr vinstri yfir í
hægri.
Það er harla ótrúlegt að í dag
sé nokkur sá til, sem kominn er
til vits og ára, sem ekki veit um
þessa umferðarbreytingu og ekki
hefur velt fyrir sér, hvað helzt
beri að varast í umferðinni, á
meðan verið er að venjast hinum
breyttu aðstæðum.
Þessi kort, sem hér birtast eru
auðvitað eingöngu ætluð þeim, er
í Neskaupstað búa eða þar dvelj-
ast á meðan á umferðarbreyting-
unni stendur.
Á yfirlitskortinu eru aðalbrautir
bæjarins litaðar svartar. Ástæða
er til að vekja sérstaklega athygli
bæjarbúa á því, að Mýrargata,
Sverristún, Miðstræti og hluti af
Melagötu verða aðalbrautir. Mynd-
ast þannig hringur sá, er vel
kemur fram á kortinu. Með þess-
ari ráðstöfun hefur öryggi veg-
farenda á þessum götum og hlið-
argötum þe:rra verið stórlega
bætt. |
Myndirnar af gatnamótunum
þarfnast ekki skýringa. Þær eru
ekki neinar kenndlumyndir, held-
ur miklu fremur ætlaðar til þess
að vekja vegfarendur til umhugs-
unar um það, hvermg þeir eigi að
haga sér á þessum gatnamótum
og öðrum eftir umferðarbreyting-
una.
Margt ber auðvitað að varast í
hægri umferð óg þá sérstaklega
fyrstu dagana. Erfitt er að gera
sér grein fyrir því, hvað helzt
geti valdið slysum. Eitt af því,
sem hættulegt getur orðið í um-
ferðinni er án efa gleymska veg-
farenda. Hugsanlegt er, að öku-
maður, sem sezt upp í bifreið
sína og ekur af stað, sé búinn að
gleyma breytingunni og hagi sér
eins og í vinstri umferð. Nú eru
til lítil H-merki, sem líma má á
framrúðu eða bílhurð. Ef til vill
geta þau hjálpað upp á minnið og
fyrirbyggt svona mistök.
Hér austanlands eru vegir
flestir það mjóir, að að öilu jöfnu
er ekið eftir þeim miðjum. Hafi
ökumaður ekið þannig langtímum
saman án þess að mæta öðru öku-
tæki er mikil hætta á því, að hann
bregð!st við samkvæmt vinstrl
venjunni, sérstaklega ef umferð
á móti birtist skyndilega. Fjölda
áminningarmerkja um hægri um-
ferð verður komið upp meðfram
þjóðvegum landsins, og er þess
að vænta, að hér á Austurlandi
verði ekki lengra á milli þeirra
en svo, að komi að gagni. Hættu-
legar beygjur og blindhæðir verða
væntanlega betur merktar en áð-
ur.. I'’lestir munu sanimála um
það, að einmitt þossir sta,3ip géu