Austurland - 02.08.1968, Blaðsíða 4
4 '~">r
AUSTURLAND
Neskaupstað, 2. ágúst 1968.
Hvað er í fréttum?
son og 1. vélstjóri Ástvaldur Ara-
son.
Skipið fer nú á síldveiðar.
Frá Seyðisfirði
Seyðisfjörður, 1. ág. — GS/RS
Rækjuveiðar gætu orðið
arðvæn,Ieg atvinnugrei'n
Undanfarið hefur verið mikill
áhugi fyrir því að kannað yrði til
hlítar hvort til væru rækjumið
fyrir Austfjörðum. Dr. Finn De-
vold, norski fiskifræðingurinn,
sem undanfarin ár hefur stjórnað
síldarrannsóknum Norðmanna,
hefur margoft látið það uppi, að
út af Austfjörðum væru mjög góð
rækjumið, einkum í Seyðisfjarð-
ardýpi. Þetta hefur lítið verið
kannað, utan smá tilrauna ein-
stakra manna með ófullkomin
veiðarfæri.
Fyrir um það bil sex árum var
Ingvar Hallgrímsson, fiskifræð-
ingur á yfirlitsferð kringum land-
ið við fiskirannsóknir á mb. Auð-
birni og mun þá hafa kannað
Þetta lítillega. Eftir því, sem ég
bezt veit, mun hann ' hafa ýtt
undir þessar hugmyndir, ásamt
Unni Skúladóttur, fiskifræðingi.
Nú hefur Hafrannsóknarstofn-
unin ákveðið að gera ýtarlegar
rannsóknir á þessum hugmynd-
um. Hefur stofnunin tekið á
leigu 20 lesta bát, Þórveigu ÍS
222 til þessara rannsókna. Skip-
stjóri og eigandi bátsins er Bald-
ur Sigurbaldursson frá Isafirði,
er stundað hefur rækjuveiðar fyr-
ir Vestfjörðum undanfarin ár.
Með honum eru tveir skipverjar.
Eftir sögn skipstjórans er bát-
urinn búinn beztu fáanlegum
rækjubotnvörpum, sem hann hef-
ur unnið við að betrumbæta og
telur sig geta togað á 160 faðma
dýpi við sæmileg skilyrði.
Prá Hafrannsóknarstofnuninni
stjórnar rannsóknunum Hrafn-
kell Eiríksson, fiskifræðingur og
með honum á bátnum er einn að-
stoðarmaður.
Áætlað er, að í þessari rann-
sóknarferð, sem nú er hafin og
mun taka um tvær vikur, verði
aðallega kannað svæðið út af
Seyðisfirði, suður eftir út af
Reyðarfirði og þeir firðir báðir.
Hrafnkell Eiríksson kom til
Seyðisfjarðar í fyrrakvöld og
strax í gærmorgun hófust rann-
sóknir og veiðitilraunir í Seyðis-
firði. i |
Tekin voru 5 „höl“ á firðinum.
1 fyrsta halinu festist varpaz. í
gömlum sæsímastreng, í öðru hal-
inu innarlega í firðinum rékkst
ekkert, í þriðja hali út af Brim-
nesi á 50 til 70 faðma dýpi feng-
ust 250—300 kg. af rækju. Síð-
an var togað til baka og sunnar,
fengust þá 80 kg. í hali. Þá var
togað á grynnra vatni, 30—40
föðmum norður eftir á miðjan
Loðmundarfjörð. Pékkst þá lítið
sew ekkert, trúlega verið of
grunnt. Aflinn var blandaður, góð
meðalstærð af rækju, ekkert mjög
smátt, en mjög stór rækja inn á
milli.
Skjaldarlengd rækjunnar er 20
—21 mm og aldur hennar mun
hafa verið 3—5 ár og eldri. Fiski-
fræðingurinn og skipstjórinn sögðu
eftir þessa fyrstu tilraun, að
þessi mjög góði árangur hefði
komið þeim mjög skemmtilega á
óvart og eru þeir fullir af áhuga
á að gera nákvæmari rannsóknir,
þar sem veður er nú mjög gott.
Munu þeir fyrst beina rannsókn-
um út af fjörðunum á dýpra
vatni.
Aðal tíminn til rækjuveiða mun
vera að hausti, frá því í septem-
ber og fram eftir vetri. Veiði-
magn á þeim tíma sker úr um
hvort nægilegt rækjumagn sé fyr-
ir hendi til þess að hægt sé að
hefja vinnslu. Ekki þarf nema
700 kg. dagsveiði til að skapa
vinnu fyrir 12—14 stúlkur.
Auðséð er, að þetta rannsókn-
artímabil, tvær vikur, muni vera
allt of skammur tími til fullkom-
innar reynslu og verður að ýta á
eftir því, að frekari tilraunir
verði gerðar í haust. Hér stendur
fullt af ónotuðum fiskvinnslu-
stöðvum og vinnuafl ónotað.
Með mjög litlum fyrirvara og
tilkostnaði væri hægt að hefja
rækjuvinnslu til frystingar hér.
Valtýr Þorsteinsson frá Akur-
eyri hefur sýnt mikinn áhuga og
ýtt á þessar rannsóknir. Hann á
nýbyggt frystihús á Seyðisfirði og
ennfremur á hann niðursuðutæki,
sem hann gæti sett upp á skömm-
um tíma. , , ,
Frá Hornafirði
Höfn, Hornafirði, 1. ág. — ÞÞ/RS
Nýr Gissur hvíti
Nýtt fiskiskip kom til Horna-
fjarðar laugardaginn 27. júlí,
Gissur hvíti SF 1. Er þetta 270
smálesta skip, samkv. nýjum mæl-
ingarreglum, hefði verið 350 smá-
lestir samkv. gömlu mælingaregl-
unum. Skipið er smíðað í Sönne-
borg í Danmörku. Hófst smíði
sk'psins 1966 og átti að afhend-
ast í febrúar sl., en afhending
hefur dregizt þar til nú.
Vélakostur skipsins er 825 hest-
afla Mannheim aðalvél, auk þess
eru í skipinu 2 ljósavélar af sömu
gerð með 100 kw. orku samtals.
Ganghraði skipsins á heimleið-
inni reyndist 11.2 sjómílur.
í skipinu er Triplers kraftblökk
með tilheyrandi búnaði, 20 tonna
togvinda og síldardæla.
Frystilest er í skipinu fyrir um
20 til 30 lestir af ís með 22°
frosti, ennfremur bjóðageymsla
fyrir 40 bjóð með 22° frosti. Fyr-
irhugað er að frysta síld í þess-
um geymslum, þegar skipið er á
síldveiðum.
Tvær ratsjár eru í skipinu 24
milna og 64 mílna, tvö asdictæki
og dýptarmælir og önnur þau
siglingartæki, sem nú tíðkast.
Vistarverur áhafnar eru aftur í
skipinu og skiptast í eins og
tveggja manna klefa fyrir 16
manns.
Eigendur skipsins eru Óskar
Vald:marsson, Óskar Guðjónsson
og Ársæll Guðjónsson, Höfn.
Skipstjóri er Guðmundur Illuga-
Virkjun að hefjast
Virkjun Smyrlabjargarár er nú
senn að hefjast og mun Norður-
verk hf. Akureyri taka að sér
framkvæmdir.
Brúargerð
í sumar hefur verið unnið að
brúargerð á Fellsá og Hrútá, og
mun brúargerð á Hrútá senn lok-
ið. Ennfremur verða brúaðar í
sumar tvær smáár í Öræfum, og
verður þá vel fært öllum bílum að
Skaftafelli í Öræfum.
Ný stjórnmdlasamtök
Að undanförnu hefur verið
allmikið um það rætt, að í aðsigi
sé nrkil breyting á flokkaskipun-
inni í landinu. Forsetakosningarn-
ar hafa mjög aukið á þessar um-
ræður, enda þóttu úrslit þeirra
benda til þess, að flokkaskipunin
sé að riðlast og nýjar fylkingar
að skapast. Að vísu voru kosning-
arnar ekki flokkspólitískar að því
leyti, að enginn stjórnmálaflokk-
ur tók beina afstöðu, en þrátt
fyrir það hljóta forsetakosningar
að vera hápólitískar.
Enginn vafi er á því, að mikil
ólga er í öllum stjórnmálaflokk-
um og allra veðra von. Einkum
er það unga fólkið, sem er óá-
nægt og telur margt úrelt og
staðnað í starfsemi flokkanna. Og
án efa hefur það margt til síns
máls.
Það er heldur ekki að undra
þótt þörf sé á breyttri flokka-
skipan. Núverandi flokkaskipan
er í meginatriðum meir en hálfr-
ar aldar gömul. Hún mótaðist við
allt aðrar þjóðfélagsaðstæður en
nú eru fyrir hendi. Breytt þjóð-
félagsástand kallar á nýja flokka-
skipan og ný vinnubrögð. Og eft-
ir því sem ný kynslóð, með að
mörgu leyti ný viðhorf, lætur
meir að sér kveða á vettvangi
þjóðmálanna, verða breytingarnar
meir knýjandi. Og þeir flokkar,
sem taka fullt tillit til hinna
breyttu aðstæðna og veita æsku-
lýðnum nægilegt svigrúm til á-
hrifa og athafna, munu lifa og
dafna, en hlutskipti hinna verð-
ur kyrrstaða og afturför.
Opinberlega hefur borið mest á
sviptingum innan Alþýðubanda-
lagsins, enda má segja að í þeim
flokki einum hafi ágreiningsmál-
in verið rædd fyrir opnum tjöld-
um. Þótt þær deilur hafi ekki ver-
ið ánægjulegar fyrir Alþýðu-
bandalagsmenn, hafa þær þó haft
sínar jákvæðu hliðar og að sumu
leyti verið lærdómsríkar og auð-
velda Alþýðubandalagsmönnum að
taka málin réttum tökum, þegar
þeir móta samtök sín til fram-
búðar.
En enginn skyldi halda, að eng-
ir flokkar aðrir en. Alþýðubanda-
lagið eigi við að stríða vandamál
af þessu tagi. Þau eru engu síður
fyrir hendi í öðrum flokkum. En
þar hefur tekizt að halda deilun-
um innan flokkssamtakanna að
mestu, svo allt virðist með felldu
á yfirborðinu. En allir eiga þeir
eftir að ganga í gegnum þann
hreinsunareld, sem Alþýðubanda-
lagið er nú að komast úr. Og
líklega hefði verið heillavænlegra
fyrir þessa flokka, ef þær deilur
og þau átök, sem þar eiga sér
stað, hefðu ekki verið bældar nið-
ur og faldar. Það er nauðsynlegt,
þegar deilumál koma upp, að þau
séu rædd opinberlega.
Á þessu ári verður Alþýðu-
bandalaginu breytt í formlegan,
sósíalistískan stjórnmálaflokk,
sem ekki heimilar meðlimum sín-
um að vera í öðrum flokkum.
Stjórnmálasamtök hinnar sósíalist
ísku hreyfingar munu verða fyrst
til að tileinka sér viðhorf hins
nýja tíma og veita ungu fólki með
að mörgu leyti ný viðhorf svig-
rúm til starfa, eða a. m. k. verð-
ur maður að vona að svo verði.
Mestu máli skiptir fyrir fram-
tíð hinnar sósíalistísku hreyfing-
ar, að Alþýðubandalagið líði inn-
an sinna vébanda afbrigðilegar
sósíalistískar skoðanir og viður-
kenni rétt minnihlutans til að
túlka sjónarmið sín og til að eiga
aðild að stjórn samtakanna. I Al-
þýðubandalaginu á að vera hátt
til lofts og vítt til veggja, þannig
að allir þeir, sem aðhyllast sósíal-
istiskar lífsskoðanir, geti talið sig
eiga þar heima.
Innan Alþýðubandalagsins
starfa nú nefndir að því að undir-
búa lög og stefnuskrá þess fyrir
landsfundinn í haust. Þess verður
að vænta, að þessar nefndir geti
lagt fyrir landsfundinn í haust
tillögur, sem unnt verður að
Framh. á 3. síðu,