Austurland - 30.08.1968, Page 2
2 •'
Neskaupstað, 30. ágúst 196$.
AUSTURLAND
Greiðsluörðugleikar
Framh. af 1. síðu.
miklir innheimtuörðugleikar, má
öllum ljóst vera, að sveitarfélög-
in eru þess ekki megnug, að halda
í horfinu um framkvæmdir og
þjónustu.
Símstöðvarhus
Framh. af 4. síðu.
um Islendinga en útlendinga þó
að innlendu tilboðin væru 5—10%
hærri en þau útlendu. Samskonar
sjónarmið hafa jafnan gilt um val
á aðilum til almennra verka, þeg-
ar gera hefur þurft upp á milli
staða.
Á Reykjavíkursvæðinu hefur
verið allmikið .að gera í bygginga-
framkvæmdum, enda þar staðið
yfir stórframkvæmdirnar við
Búrfell og í Straumsvík og íbúða-
búsabyggingarnar í Breiðholti.
Á Austurlandi hefur hins veg-
ar stórlega dregið úr öllum fram-
kvæmdum eins og kunnugt er.
Það er því í fyllsta máta fanta-
leg framkoma hjá ráðherranum,
sem metur að engu aðstöðu
heimamannsins, en velur í stað
hans verktaka af aðal fram-
kvæmdasvæði landsins. Um það
er ekki að villast, að í þessu til-
felli voru tilboðin svo jöfn, að
eðlilegt var að velja verktaka
eftir almennri aðstöðu og hæfni.
Sú ákvörðun að velja þann að-
ilann frá Reykjavíkursvæðinu sem
hæsta tilboðið átti, sýnir, að ráð-
herrann valdi ekki einvörðungu
eftir tölum. Og sá litli mismunur
sem var á tilboði þess sem verkið
hlaut og heimamannsins réttlætir
á engan hátt það að fela honum
fremur verkið.
Hér er um býsna hættulegt for-
dæmi að ræða. Verði því fylgt
af öðrum, gæti svo farið að mörg
verk almenns eðlis lentu í hend-
ur Reykvíkinga en hæfir heima-
menn sætu eftir verkefnalitlir.
Hér er líka um mikið hags-
munamál byggðarlaganna að
ræða. Heimamenn greiða gjöld til
byggðarlaganna, en það gera
hlaupamenn ekki.
Ráðherrann sem tók ákvörðun-
ina um það að láta aðrar reglur
gilda um verktakann í Neskaup-
stað en á Höfn í Hornafirði og
afhenti byggingamanni frá
Reykjavíkursvæðinu verk í Nes-
kaupstað, sem heimamaður bauðst
til að vinna á sambærilegu verði
(þar sem munurinn á tilboðunum
var innan við 3%), hann hefur í
þessu tilfelli misnotað vald sitt.
Eftir því mun verða munað og
ekki er ósennilegt að flokksmenn
hans hér í bæ kunni þessum
hlutdræga íhaldsráðherra litlar
þakkir fyrir þessa ráðstöfun
hans.
Fram að þessu hefur þó orðið
lítill samdráttur í starfsemi
sveitarfélaga, a. m. k. hefur Nes-
kaupstaður lítið dregið saman
seglin. Með sanni má þó segja, að
þess hefði þurft, en bæði er, að
þörfin er mikil og svo eru menn
alltaf að vona, að úr rætist.
En nú verður ekki haldið áfram
lengur með sama krafti. Vegna
mikilla ríkisframlaga verður þó
mögulegt að halda eitthvað áfram
með lænisbústað og íþróttahús.
Bagalegast er, ef framkvæmdir
stöðvast eða dragast á langinn
við vatnsveituframkvæmdirnar.
Ekki þarf stórátak til þess að
koma vatnsveitunni í gagnið og
er illt til þess að vita, ef bæjar-
búar þurfa enn, í vetur að búa við
ófremdarástandið í vatnsmálunum
vegna þess, að bærinn ekki fær
tekjur sínar á tilsettum tíma. En
næstu vikur skera úr um það,
hvort unnt verður að leggja fram
það fé, sem til þess þarf, að
tengja nýju vatnsveituna bæjar-
kerfinu.
Ástandið getur þó snögglega
breytzt til batnaðar. Komi síld
verður skjótt mikil breyting á.
Og enn gera allir ráð fyrir að
hún komi. Það var ekki fyrr en
um 10. sept. í fyrra að síldin hóf
göngu sína í átt til íslands og er
þess varla að vænta, að hún sé
miklu fyrr á ferðinni í ár.
En full ástæða er fyrir alla,
einstaklinga jafnt og stofnanir, að
hafa fulla gát á útgjöldum sínum.
Afmæili.
Skarphéðinn Stefánsson, verka-
maður, Egilsbraut 9, varð 60 ára
27. ágúst. Hann fæddist á Seyð-
isfirði, en hefur verið hér búsett-
ur síðan 1961.
Helga Sigurðardóttir, verka-
kona, Naustahvammi 2, varð 75
ára í gær, 29. ágúst. Hún fæddist
á Brimbergi í Seyðisfirði, en hef-
ur átt hér heima síðan 1929.
Andlát.
Kristín Sæinundsdóttir, vistkona
á elliheimilinu andaðist 22. ágúst.
Hún fæddist að Kirkjubóli í
Vaðlavík 27. marz 1892, en átti
hér heima frá 1950.
Kirkjan.
Messa verður laugardagskvöld
31. ágúst vegna vísitasíu biskups.
Æskilegt, að fermingarbörn og
foreldrar þeirra mæti.
Til sölu
Honda 50 cc. árg. ’68, ekin
2000 km, til sölu.
Uppl. gefur Ásmundur Eiríks-
son, sími 217 eða 347, Neskaupst.
BARNAVAGNAR 2 stærðír.
Í BARNAKERRUR með skyggni og svuntu. FÁKUR, símí 20«.
/%/yyvyy* i/viAWVtfvvwv vwvwv\AA^vwwy*rt/>^fW'>«y
Breytingar Kaypfðxf! á samningi Verkalýðsfélags Norðfirðinga, Nes- :
kaupstað, sem gildir frá 1. september 1968. Kaup breytist :
samkvæmt hækkun kaupgreiðsluvísitölunnar sem er 5.79%.
1. taxti eftir 2 ár 5. taxti eftir 2 ár.
Dagvinna 51.03 53.58 Dagvinna 59.21 62.02 j
EfUrvinna 75.15 78.90 Eftirvinna 87.30 91.51 1
Næturvinna 95.41 100.18 Næturvinna 110.89 116.28
2. taxti 6. taxti
Dagvinna 52.45 55.07 Dagvinna 61.19 64.10 ;
Eftirvinna 77.24 81.11 Eftirvinna 90.27 94.63 i
Næturvinna 98.06 102.96 Næturvinna 114.65 120.28
3. taxti 7. taxti
Dagvinna 55.06 57.69 Dagvinna 63.41 66.43 i
Eftirvinna 81.09 85.02 Eftirvinna 93.60 98.13 :
Næturvinna 102.95 107.97 Næturvinna 118.95 124.75 :|
4. taxti 8. taxti
Dagvinna 57.27 59.98 Dagvinna 68.02 71.25 ;
Eftirvinna 84.35 88.45 Eftirvinna 100.51 105.39 :
Næturvinna 107.16 112.36 Næturvinna 127.80 134.04
Öll vinna, sem er í samningi félagsins, og ekki er tekin hér :
upp, hækkar um 5.79% frá grunnkaupi.
Skrifstofan gefur allar nánari upplýsingar.
Neskaupstað, 30. ágúst 1968.
Verkalýðsfélag Norðfirðinga.
Drenp- n sveinamót Austurlands
í frjálsum íþróttum verður haliið í Neskaupstað sunnudaginn
8. september og hefst kl. 2 e. h.
Þátttaka tilkynnist Eiríki Karlssyni, Neskaupstað, eigi síðar
en 6. september.
Frjálsíþróttaráð U. I. A.
STRIGASKÓR á börn og unglinga.
SIGFÚSARVERZLUN.
Fró barnaskölanum
Miðvikudaginn 4. sept. hefst kennsla í 1., 2. og 3. bekk
barnaskólans.
Börn í 2. og 3. bekk mæti kl. 9 f. h.
Börn í 1. bekk kl. 1 e. h.
Skólastjóri.
Norðfirðingar
Afmælishátíð Þróttar hefst með kaffidrykkju í Egilsbúð kl.
8.30 stundvíslega.
Dansleikur hefst að loknu borðhaldi.
Hljómsveitin Póló, Erla og Bjarki leika og syngja gömlu og
nýju dansana.
Miðar að dansleiknum verða seldir við innganginn.
Hittumst öll í Egilsbúð.
Afmælisnefnd.