Austurland - 01.11.1968, Blaðsíða 1
MAL6AGN alþýoubandalagsins a austurlandi
18. árgangnr.
Neskauþstað, 1. nóvember 1968.
44. tölublað.
Sósíaíístaflohkiriin hœttir störfum
isH alhýiu oð endorshipuleÉo stjórnmdlflsumtöh sín
Um síðustu helgi var 16. — og
jafnframt að öllum líkindum síð-
asta — þing Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins —
haldið í Reykjavík.
Megin verkefni fundarins var
að taka afstöðu til þeirra við-
horfa, sem skapazt hafa við það,
að Alþýðubandalaginu mun
breytt í fastmótaðan stjórnmála-
flokk á landsfundi þess, sem hefst
í dag.
Deilur urðu allharðar á þing-
inu, en að umræðum loknum var
samþykkt tillaga, og er lokakafli
hennar svohljóðandi:
„Verði Alþýðubandalaginu
breytt í sós'alistískan flokk á
landsfundi þess 1.—!3. nóvember,
svo sem miðstjórn þess liefur
lagt til, og séu, að áliti flokks-
stjórnar, horfur á að Alþýðu-
bandalagið geti, í krafti iaga
sinna og stefnumiða, rækt hlut-
verk sósíalistísks fjöldaflokks, þá
skal flokksstjórn só, er 16. ílokks-
þingið nú kýs, lýsa yfir því, að
Sósíalistaflokkurinn hafi hætt
störfum og heita jafnframt ein-
dregið á alla íslenzka sósialrsta,
Um nokkur ár hefur Flugsýn,
svo sem kunnugt er, haldið uppi
áætlunarflugi milli Reykjavíkur
og Norðfjarðar. Um tíma var
rnjög mikið að gera og færðist
félagið skjótt í aukana. En nú um
tíma hafa flutningar verið sára-
litlir og hefur mjög hallað undan
fæti fyrir félaginu. Hefur það nú
tilkynnt, að það sjái sér ekki fært
að halda þessum ferðum áfram
fyrst um sinn. Þótt þannig sé til
orða tekið er ólíklegt að félagið
hafi nokkru sinni bolmagn til að
hefjast handa að nýju um þetta
flug. Það hlýtur að hafa tapað
miklu undanfarið, auk þess sem
það hefur orðið fyrir öðrum ó-
höppum.
Það er alltaf harmsefni þegar
starf, sem hafið er af svona mik-
illi bjartsýni, fellur niður.
Fyrir Norðfjörð hefur þessi
starfsemi haft ómetanlegt gildi
að sameinast í Alþýðubandalaginu
og gera það að sem sterkustum
og fjölmennustum flokki íslenzkra
sósíalista, er megni að leiða frels-
isbaráttu íslenzkrar alþýðu fram
til sigurs“.
Ályktun þessi var samþykkt
með 57:32 atkvæðum. Uppistaðan
í þeim hópi, sem var á móti, var
meirihluti fulltrúa Sósialistafé-
lags Reykjavíkur og fulltrúar
Æskulýðsfylkingarinnar. Þeim
fylgdu að málum örfáir fulltrúar
úr kaupstöðunum við Faxaflóa,
en ekki einn einasti fulltrúi utan
af landi.
Þar sem fullyrða má, að Al-
þýðubandalaginu verði nú breytt
í sósíalistískan flokk, er saga
Sósíalistaflokksins nú öll. Sú
saga hefur verið mikil baráttu-
saga, saga mikilla sigra og stund-
um ósigra, saga mikilla fórna og
mikilla hugsjóna.
Sósíalistaflokkurinn var stofn-
aður fyrir 30 árum, á miklum ör-
lagatímum, þegar skuggi nazism-
ans hvíldi yfir heiminum og ógn-
aði með tortímingu. Flokkurinn
var stofnaður með þeim hætti, að
og viðbrigðin verða mikil, ef á-
ætlunarflug leggst niður með
öllu á sama tíma og strandferðir
eru svo gott sem engar og fjall-
vegir ófærir. Verði hætt að fljúga
hingað, er það mjög stórt spor
aftur á bak í samgöngumálum
bæjarins.
I fyrrahaust var Flugfélag Is-
lands reiðubúið til þess að taka
að sér að fljúga til Norðfjarðar
þrisvar í viku. Hvort það tilboð
stendur enn er ekki vitað, en
verður að sjálfsögðu kannað.
Yfirleitt hefur mjög dregið úr
farþegaflutningum til Austur-
lands og frá og þarf ekki að rekja
orsakir þess, svo augljósar sem
þær eru. Hefur blaðið heyrt, að
út þennan mánuð muni Flugféiag-
ið fella niður fimmtudagsferðir
til Egilsstaða, vegna minnkandi
verkefna.
kommúnistar og vinstri jafnaðar-
menn tóku höndum saman. Það
var nauðsyn íslenzkrar alþýðu
fyrir öflugri og víðtækari stjórn-
málasamtök, en hún hafði búið
við, sem skapaði grundvöllinn að
myndun Sósíalistaflokksins.
Og enn krefst nauðsyn íslenzkr-
ar alþýðu þess, að mynduð verði
víðtækari stjórnmálasamtök til
varnar og sóknar í þeirri harð-
vítugu baráttu, sem nú fer í
hönd, og til þess að varna því,
að þjóðin glati sinni sérstæðu
menningu og þjóðlegum erfðum í
því syndaflóði erlendra áhrifa,
sem nú flæða yfir landið.
Um langt skeið hefur Sósíal-
istaflokkurinn verið forystusveit
íslenzkrar alþýðu í hagsmuna- og
þjóðfrelsisbaráttunni. Hann hefur
verið mjög áhrifamikill og sterk-
ur, enda notið fylgis allt að
fimmtungi þjóðarinnar.
Þegar saga Sósíalistaflokksins
verður skráð á hlutlausan hátt,
mun koma í ljós hve gífurleg á-
hrif hans hafa verið og hve
miklu hann hefur áorkað í hags-
muna baráttunni.
Alþýðubandalagið hefur nú
tekið að sér að vera forystusveit
íslenzkrar alþýðu í stjórnmála-
baráttunni. Hvernig því tekst að
rækja það hlutverk, fer að sjálf-
sögðu eingöngu eftir skilningi og
samstöðu fólksins til lands og
sjávar.
AUir þeir, sem aðhyllast sósíal-
istískar skoðanir, eiga heima í
Alþýðubandalaginu. Allt það fólk
á að ganga í samtökin og gera
Alþýðubandalagið að baráttuvett-
vangi sínum.
Jdflí upp samningum
Verklýðsfélag Norðfirðinga hef-
ur nú sagt upp öllum kjarasamn-
ingum sjómanna og ganga þeir
úr gildi um áramót. Er ■ hér farið
að tilmælum Alþýðusambands
Austurlands og einnig hefur Sjó-
mannasamband Islands óskað eft-
ir uppsögn samninga og mun að
því stefnt, að allir sjómannasamn-
ingar verði lausir um áramót.
Ekki veit blaðið hvaða kröfur
sjómenn muni gera, enda munu
þær ekki fullmótaðar.
Brdðnbirgðfllflusn
Svo sem kunnugt er, hefur
sjúkrahúsið i Neskaupstað verið
yfirlæknislaust í nær mánuð. Eini
læknirinn í bænum hefur verið
aðstoðarlæknir sjúkrahússins og
er það algjörlega óviðunandi, bæði
fyrir lækninn og íbúa læknishér-
aðsins.
Nú eru miklar líkur á að þessi
vandræði verði í vetur leyst með
þeim hætti, að læknar Lands-
spitalans verði sendir hingað í
nokkurs konar útlegð 3—4 vikur
hver í senn. Það er að vísu til
bóta, en algjörlega óviðunandi
lausn og er sízt til frambúðar.
Gera verður allt, sem unnt er,
til þess að frambúðarrekstur
sjúkrahússins verði öruggur. Fá-
ist ekki íslenzkir læknar til þess
að gegna störfum við sjúkrahúsið,
verður ekki komizt hjá því, að
leita fyrir sér erlendis. Það er að
vísu íslenzri læknastétt til lítils
sóma og mundi líklega kosta um
eina milljón króna á ári í erlend-
um gjaldeyri.
Ályktun um hnfndrmdl
Á fundi Verklýðsfélags Norð-
firðinga 29. þ. m. var einróma
samþykkt svohljóðandi tillaga um
hafnarmál Neskaupstaðar:
„Fundur haldinn í Verklýðsfé-
lagi Norðfirðinga 29. okt. 1968
harmar þann seinagang, sem átt
hefur sér stað í hafnarfram-
kvæmdum hér í Neskaupstað.
Einnig beinir fundurinn þeim
eindregnu tilmælum til hafnar-
nefndar Neskaupstaðar, að hún
láti nú þegar gera viðlegukanta
nýju hafnaruppfyllingarinnar
þannig úr garði, að mögulegt sé
að hafa skip viö hana í mísjöfn-
um veðrum.
Bendir fundurinn á, að núver-
andi ástand hafnaruppfyllingar-
innar bakar sjómönnum svo mik-
ið ónæði við að verja skip sín, ef
eitthvað er að veðri, að óforsvar-
anlegt er“.
Stöðugar ógœftir
Enn linnir ekki ógæftunum,
sem- í allt haust hafa hindrað
síldveiðar. Væru veður skapleg
mundi nokkur veiði vera, a. m. k.
svo að söltunarstöðvarnar hefðu
sæmileg verkefni. En vonir
manna um bærilegan árangur af
haustveiðunum, dvina með hverri
ógæftavikunni, sem líður.
Einnig á landi hafa veður verið
ill og samgöngutruflanir miklar.
Bændur hafa ekki náð inn öllum
heyjum sinnm, enda engir þurrk-
ar síðan í ágúst. Þá munu kart-
öílur enn sums staðar í jörð.
Talsverður snjór er nú um
þessar slóðir og ýmsir fjallvegir
ófærir.
Það verður ekki með sanni sagt
að náttúruöflin leiki við okkur
Austfirðinga um þessar mundir.
Flugsýn hæliir