Austurland - 06.12.1968, Side 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 6. desember 1968.
Fruiítaleg árds . . .
Framhald af 1. síðu.
22% brúttósöluverðs í sjóðinn,
J). e. áður en tollar og löndunar-
og sölukostnaður eru dregin írá.
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir
því, að með þessum hætti takist
henni að reita saman 350—400
millj. kr. og koma þá mikið á
annað hundrað milljónir á bak
sjómanna.
Reksturinn skal einnig
greiddur af óskiptu
En það er ekki aðeins að sjó-
mcnnum sé ætlað að borga stofn-
kostnað útgerðarinnar af hlut
sínum. Þeim er einnig ætlað að
borga drjúgan hluta refesturs-
kcistnacar. Af óskiptum afla er
ákveð ð að 17% renni til útgerð-
arinnar til þess að gera henni
fært að rísa undir þeim auknu
útgjöldum, sem af gengislækk-
uninni leiða.
Samtals eiru því tekin af óskiptu
27%, ef skip er á þorskveiðum, en
37% sé það á síldveiðum.
Reynir fyrst á sjómenn
Af því, sem að framan er sagt,
er Ijóst, að það eru sjómennirnir
sem verða fyrir fyrstu beinu árás-
inni að þsssu sinni. Það kemur
því í þeirra hlut að gera fyrsta
gagnáhlaupið, en þeir eiga vísan
stuðning allrar verklýðsstétbar-
innar, enda vita launamenn á
hverju þeir mega eiga 'von, ef
ríkisstjórninni tekst að kúga sjó-
menn. Sjómannasamtöikin hafa
Jíka lýst yfir þvi að stórfelld
röskun hlutaskipta með lögum
verði e'kki þoluð.
Afstaða ASÍ-þings
Nýafstaðið þing Alþýðusam-
bandsins tók mjög eindregna iaf-
stöðu gegn lögþvingaðri breytingu
kjarasamninga. Og m. a. lýsti
þingið yfir, að því aðeins væri
verklýðshreyfingin reiðubúin til
samvinnu við ríkisstjórn og at-
vinnurekendur um nýja stefnu í
atvinnumálum að engar lögþving-
anir verði á verklýðshreyfinguna
lagðar. — Verði þetta frumvarp
að lögum, er fyrirbyggð sam-
vinna verklýðshreyfingarinnar og
ríkisvaldsins, ef farið er að sam-
þykktum ASÍ-þingsins.
Síoínað til vinnudeilna
Lítil ástæða er til að ætla, að
sjómenn taki þessu áhlaupi án
þess að veita viðnám. Með lögun-
um eru þýðingarmestu ákvæði
kjarasamninga sjómanna ógilt.
Mikillar óánægju gætir í röðum
sjómanna og eru þeir áreiðanlega
við því búnir að taka upp hanzk-
ann.
En ótrúlegt er að ríkisstjórnin
vogi sér að gera svona frunba-
legar árásir á kjör sjómanna án
þess að 'hafa einhvern bakhjarl.
Og sá bakhjarl er meirihluti
hinnar nýkjörnu Alþýðusam-
tundsstjórnar. Enginn skyldi
draga það í efa, að Hannibal og
Björn hafi heitið íhaldinu því, ef
það tryggði þeim forsæti i ASÍ,
að beita sér fyrir samningum við
ríkisstjórnina. Þannig er hinn ein-
dregni stuðningur íhaLdsins við
þá félaga til kominn. En athygli
hefur það vakið, að báðir hafa
þeir Björn og Hannibal tekið sér
frí frá þingstörfum meðan þessi
mál eru rædd á Alþingi.
Sjómenn mega ekki, né heldur
aðiir launþegar, treysta um of á
stjórn ASl og ekki heldur fara í
blindni að fyrirmælum hennar.
Miðstjórnin er að meirihluta und-
ir sterkum áhrifum frá ríkis-
stjórninni og sumir miðstjórnar-
menn eru beinlínis handbendi
hennar. Launþegar verða að þessu
sinni að treysta mest á sjálf
stéttarfélögin og starfsgreina-
samböndin.
Ályktanir Alþýðusambands-
þingsins voru ágætar á margan
hátt, róttækar og skorinorðar. En
þingið eyðilagði þær sjálft með
því að kjósa samtökunum stjórn,
sem hvorki hefur vilja né getu til
-að framfylgja þeim.
Þess vegna ættu sjómenn ekki
að ofmeta gddi samþykkta ASl
um málefni sjómanna. Það eru
þeirra eigin stéttarsamtök, sem
þeir verða að treysta á. Og veik-
lýðshreyfingin stendur áreiðan-
Framh. af 1. síðu. i
kjarabaráttunni er ekki ástæðu-
laus a. m. k. býst enginn við
því að fulltrúar íhalds og krata
sjái nokkuð athugavert við
stefnu stjómarinnar nú frekar en
endranær og er því varla ástæða
til að ætla að þeir sem nú ganga
til samstarfs við þá geri það frek-
ar.
I þesisu sambandi má geta þess,
að ríkisstjórnin hefur nú boðað
afnám verðtryggingar á laun og
miðar við að hún breytist ekki
frá því sem hún er og kaup verði
hið sama í eitt ár.
Þá má og benda á það, að nú
liggur fyrir Alþingi frumvarp um
að afnema hefðbundinn rétt sjó-
manna til sama verðs fyrir sinn
aflahlut og útvegsmenn fá.
Er hér um að ræða hina fyrstu
lögþvingun á verkalýðssamtökin í
þessari atrennu gegn þeim og
jafnframt einhverja þá ósvífn-
ustu sem um getur í sögu 'hreyf-
ingarinnar.
Þá var og samþykkt á þinginu
vönduð ályktun um atvinnumál.
Er í henni gerð grein fyrir hvern-
ig ástand 1 atvinnumálum hefur
farið sí versnandi í tíð núverandi
ríkisstjórnar og sýnt fram á hve
algert stjórnleysi ríkir í þessum
mikilvægustu málum þjóðarinnar.
I þessari ályktun em taldar í 15
liðum helztu tillögur alþýðusam-
takanna um úrbætur í atvinnu-
málum.
Er þar í fyrsta lið lagt til, að
skipaðar verði atvinnumálanefndir
í öllum kjördæmum landsins og
a. m. k. tveir af nefndarmönnum
verði tilnefndir af ASI og verka-
lýðsfélögum í kjördæmunum.
Nefndum þessum er ætlað það
verkefni að gera tillögur um úr-
bætur í atvinnumálum og sjá um
framkvæmdir í sambandi við
bráðabirgðaráðstafanir í þeim
efnum. Er þessum nefndum ætlað
að starfa í samvinnu við atvinnu-
málastofnanir er komið yrði á fót
samhliða nefndunum.
Þá var og lagt til í atvinnu-
málaályktuninni, að takmarkaður
verði eða bannaður innflutningur
á þeim iðnaðarvörum og smíði,
sem íslenzkur iðnaður hefur sýnt
að hann er samkeppnisfær um
verð og vörugæði.
íslendingar hafa sízt efni á því
i ástandi sem nú ríkir, að flytja
inn vinnuafl í formi ýmis konar
varnings er þeir geta auðveldlega
framleitt sjálfir.
Eitt af höfuðmálum þingsins
var skipulagsmálin, en þau liafa
lega einhuga með þeim, hvað sem
kann að lí'ða braski ríkisstjómar-
innar og Hannibalista með kjara-
málin, en í því braski er hags-
munamál launþega gjaldmiðill.
verið aðalmál undanfarinna
þriggja þinga og var samþykkt
umræðulítið frumvarp frá laga-
og skipulagsnefnd.
Hin nýju lög eru mjög breytt
frá því sem áður var og er þar
kannske helzt að nefna, að nú
eiga landssamböndin beina aðild
að sambandsstjórn og skipa þar
fulltrúa eftir félagatölu sinni.
Á samfcandsþingi eru nú kosn-
ir 15 menn í miðstjórn og 18
menn í sambandsstjórn og síðan
kjósa landssambönd með 2500 og
færri félagsmenn 1 mann ihvert,
sambönd með 2500—5000 2 menn,
sambönd með 5—10000 3 hvert
og landssambönd með yfir 10000
félagsmenn 4 hvert.
Þá voru ýmsar fleiri mikilvæg-
ar breytingar gerðar á lögum
sambandsins sem ekki er hægt að
gera grein fyrir hér vegna rúms-
ins.
Þess má að lokum geta, að um-
ræður um þessi helztu mál þings-
ins voru óvenju litlar og va'kti
það athygli að ýmsir þeir er sjald-
an setja sig úr færi til að stíga
í pontuna og láta ljós sitt skína,
gerðu það ekki nú og má nefna
sem dæmi, að um atvinnu- og
kjaramál tóku menn eins og Ösk-
ar Hallgrimsson, Jón Sigurðsson,
Guðjón Sigurðsson og Sverrir
Hermannsson ekki til máls.
Þá má og geta þess, að þing-
heimi gafst ekki kostur á að fá
að heyra í eina atvinnupólitíkusn-
um á þinginu, Baldri Óskarssyni,
en hann var nú kosinn í miðstjórn
ASl en atvinna 'hans er sú að
vera framikvæmdastjóri FUF og
erindreki Fiamsóknarflokksins.
Hús til sölu
Hús Gunnars Þórarinssonar er
til sölu. Matsverð 915 þús. kr.
Útborgun eftir samkomulagi.
Byggingafélag alþýðu.
Æusturland
Ritstjóri: i
Bjarni Þórðarson. <
NBSPRENT |
Auglýsiii i
Ausfurlandi
Ársháiíð
Kvennadeildar Slysavarnarfélagsins verður haldin laugardag-
inn 7. des. kl. 9 síðd. í Egilsbúð.
DAGSKRÁ:
Upplestur.
Stúlknakvartett með hljómsveit. [
GamanjVísur o. fl.
DANS. — Þorlákur og félagar leika.
Félagskonur eru beðnar að hafa með sér bolla fyrir sig og
gesti sína.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag (föstudag) frá kl. 4—6 í
Egilsbúð.
Árshátíðarnefnd.
Þing ASÍ samþykkir . . .