Austurland - 01.05.1975, Qupperneq 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað 1. maí 1975.
| ÍUSTURLAND I
| Útgefandi: í
I Kjördœmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi ' I
| Ritstjóri: Bjarni Þórðarson. |
| NESPRENT |
t\AAAA/\AA/VVVVV'V\AAAAAAAAAAAAAAA.\A./VAAAA. VWVVWW/WVWWWYVWYWVWYYWWW \ V V\WYVIVVWVV
Upp úr öldudalnum
Frá því 1. maj síðast var hátíðleguir haidinn hafa þau tíðindi
gerst á landi hér, sem eru mjög alvarleg fyrir launþega. Frá völd-
um fór ríkisstjórn^ sem verið hafði launþegum vinsamleg. Hún
hafði treyst atvinnu'gtrundvöllinn og af ráðstöfunum hennar leiddi
það, að kaupmáttur launa óx mikið, þrátt fyrir örann vöxt verð-
bólgunnar. Við tók ríkisstjórn, setn gert hefur hverja stórárásina
á fætur annarri á lífskj örin og henni hefur tekist að koma fram
þeim vilja sínum að draga stórlega úr kaupmætti vinnulauna. Þetta
er hennar aðferð til að reyna að jafna verslunarhallann og auka
gróða kaupsýslu- og stóratvinnurekendastéttanna.
Því miðuir hafa launastéttirnar ekki snúist gegn þessum að-
förum á þann hátt, sem við hefði 'mátt búast. Þær héldu undan,
höfðust lítið að og forðuðust átök. Að vásu mögluðu þær en létu
ríkisstjórninni haldast uppi að rýra æ ofan í æ afkomu alþýðu-
heimilanna. Verkalýðsstéttin beitti 'hvergi því öflugasta vopni,
sem bún á í fórum sínum — samtökunum.
Verkalýðsbaráttan nú á dögum er skrítið fyrirbæri. Fáeinir
verkalýðsforingjar heyja þessa baráttu við siamningaborð þar Siem
einkum er rökrætt um ’meira og minna upplognar sikýrslur um
afkomu atvinnuveganna og þjóðarbúsins. Verkalýðurinn sjálfur er
varla með í leiknum og farið er mjög leynt með það, sem gerist
við samningaborðið. Forðast er að halda fundi 1 verkalýðsfélögun-
um til að ræða ástandið og taka ákvarðanir um hvað skuli gera og
hvernig baráttunni skuli hagað. Félagsfundir eru yfirleitt ekki
haldnir, nema óhjákvæmilegt sé og þá einkum til að segja upp
samningum og siamþykkja þá samninga, sem þófið hefur leitt til.
Verkalýðshreyfingin hefur villst af leið. í stað þess að virkja
fjöldann til átaka gerist nú allt bak við luktar dyr sáttasemjara og
þeir, sem allt eiga undir því, sem þar gerist, fá ekki einu sinni að
fylgjast með( hvað 'þá að ákvörðunin sé j þeirra höndum, nema að
nafninu til.
Hér á þarf að verða snögg breyting. Hætta á Maraþon-samn-
ingafundum; en legga málin fyrir stéttarfélagsfundina til ákvörð-
unartöku. En því rniður er ekkert, sem til breytinga bendir. Nýja
samninga á að gera fyrir 1. júní. Ekkert bólar á því, að verkalýðsr
félögin haldi fundi til undirbúnings þeim átökum, stím framundan
eru. Sjálfsagt e.r þæft af kappi og ef að vanda lætur verður áfram
þæft í marga mánuði eftir að samningar renna út og þá lotið að
litlu.
Niðurlæging launþegasamtakanna er mi'ki'l. Starfið er í algjöru
lágmarki og þá sjaldan fundir eru haldnir e,r fundarsókn dræm.
Þetta er bein afleiðing af þeirri starfsaðferð, sem ætlar verka-
lýðsféliögunum það hlutverk helst, að samþykkja það; sem fáeinir
foringjar hafa verið að bralla með atvinnurekendu’m og ríkis-
valdi.
í dag, á baráttudegi sínum, eiga launþegar að strengja þess heit,
að hefja samtök sín úr þeim öldudal, sem þau svo lengi hafa verið
í, gera þau að því vopni, sem þeim er ætlað að vera í vöm og sókn
í kjarabaráttunni og sókninni til betra og fegurra mannlífs.
VWAVAWWWVWVVVAWVWAWVWWWWWVAAAVWWWWWWWWVWVWVWAVAVWWVWVWAWWW/
Sendum félögum okkar
og annarri alþýðu landsins
baráttukveðjur 1. maí.
FISKVINNSLUSTÖÐ SÍLDARVINNSLUNNAR HF.
NETAGERÐ FRIÐRIKS VILHJÁLMSSONAR HF.
KAUPFÉLAGIÐ FRAM
VERSLUN BJÖRNS BJÖRNSSONAR HF.
BIFREIÐAÞJÓNUSTAN NESKAUPSTAÐ
SAMVINNUFÉLAG ÚTGERÐARMANNA
OLÍUSAMLAG ÚTVEGSMANNA
VIGGÓ HF.
ÚTGERÐ HF. SÍLDARVINNSLUNNAR
SKIPA- OG FLUGAFGREIÐSLA GUÐM. SIGFÚSSONAR
STEYPUSALAN HF.
BÆJARSJÓÐUR NESKAUPSTAÐAR
BÓKAVERSLUN HÖSKULDAR STEFÁNSSONAR
NESPRENT
RAFTÆKJAVINNUSTOFA KRISTJÁNS LUNDBERG
VERSLUN AÐALSTEINS HALLDÓRSSONAR
SPARISJ ÓÐUR NORÐFJARÐAR
EGILSBÚÐ
NES—APÓTEK
VERSLUN ÓSKARS JÓNSSONAR
RAFBYLGJA HF.
VERKALÝÐSFÉLAG VOPNFIRÐINGA
i VERKAMANNAFÉLAGIÐ FRAM SEYÐISFIRÐI
MÁLM- OG SKIPASMIÐAFÉLAG NORÐFJARÐAR
VERKAMANNAFÉLAGIÐ ÁRVAKUR, ESKIFIRÐI
VERKALÝÐSFÉLAG REYÐARFJARÐARHREPPS
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG FÁSKRÚÐSFJ.
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG STÖÐVARFJ.
VERKALÝÐS- OG SJÓMANNAFÉLAG DJÚPAVOGS
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ JÖKULL, HORNAFIRÐI
VERKALÝÐSFÉLAG FLJÓTSDALSHÉRAÐS
VERKALÝÐSFÉLAG BREIÐDÆLINGA
IÐNAÐARMANNAFÉLAG NORÐFJARÐAR
wvwwwvwwwwwwvwwvwwvvwvvvvwvvvwvwvwwvwvwwwwwvwwwwvvwwwwv