Austurland


Austurland - 09.05.1975, Page 1

Austurland - 09.05.1975, Page 1
MALGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS A AUSTURLANDI 25. árgangur. Neskaupstað; 9. maí 1975. 21. tölublað. Gerður G. Óskarsdáttir, skólastjóri: lausnin er gjörbreytt Pfélog Rœða flutt í Neskaupstað 1. maí „Þögn er kvenna kostur“. Þannig hljóðaði málshátturinn sem sonur minn 8 ára fékk í páskaegginu sínu nú um pásk- ana 4 kvennaári. Víða leynast uppeldisáhrifin. Þótt einhverjir vilji gera þessi orð að sínum þá er ekki þar með sagt að þær konur úr verkalýðsstétt sem ekki treystu sér til þess að á- varpa félaga sína hér á baráttu- degi verkalýðsins 1. maí, hafi færst undan vegna þeirrar trúar shinar að þögnin skyldi vera þeirra hlutskipti. Þar lágu aðrar ástæður að baki. Það þarf þvert á móti að heyrast í miklu fleiri konum, ekki síst þeim se'm vinna við undirstöðuatvinnuvegina. En mikið vinnuálag, hlé- drægni og minnimáttarkennd cía vanmat á eigin getu, sem skapast hefur við aldalanga kúg- un á hér sök að máli. Konum til uppörvunar vil ég segja: Það er ekki eins frábrugðið og 'margir halda að hafa skoðun og láta hana í ljósi í litlum hópi og að flytja skoðun sína fyrir stænri hópi_ Hjá verkakonum sem öðru verkafólki skipta 2 stundir í eftirvinnu sköpum um lífsaf- komuna og að auki tvöfaldast vinnuálagið á konum við heim- ilsstörfin, sem litið er á sem sjálfsagðan hlut að þær vinni nær einar. Með því að sam- þykkja og horfa aðgerðarlausir á það að konurnar vinni þjónustu störfin á heimilinu einar, lýsa karlar vanmati á konum og störfum þeirra. Húsbóndahug- myndina þarf að uppræta. Kon- ur eru fyrirvinnur sjálfra sín og bama sinna jafnt sem karlar. Sameiginlega sjá hjónin heimil- inu fyrir nauðsynlegum þörfum. Verkalýður gegn atvinnu- rekendum Kúgun kvenna er aðeins hluti þeirrar undirokunar seín allt verkafólk býr við í okkar þjóð- félagi. Tvö andstæð öfl togast á, verkalýðurinn og atvinnu- rekendurnir. Orðið verkalýður leyfi ég mér að nota um alla þá sem selja vinnu sína: þá sem Gerður G. Óskarsdóttir vinna við framleiðsluna á sjó eða landi, verslunar- og skrif- stofufóik, fólk í öðrum þjónustu- greinum og opnbei'a starfsmenn. Opinberir starfsmenn hafa fast- ráðninguna fram yfir lausráðið verkafólk. en þessir aðilar hafa það nú sameiginlegt að ekki verður lifað af dagvinnunni einni. Allir þessir aðilar þurfa nú að taka höndum saman í baráttunni og gjörbreyta baráttuaðferðun- um frá því sem nú er. Skipu- lagsbreyting þarf að verða á verkalýðsfélögunu’m og aðildar- félögum BSRB. Það þarf að hleypa af stað um- ræðum, láta fólkið sjálft takast á um vandamálin, leyfa and- stæðunum að koma upp á yfir- borðið, því það gefur auga leið að það er langt frá því að allir séu á einni skoðun innan verka- lýðsfélaganna. í verkalýðshreyf- ingunni er fólk með ólíkar stjórnmálaskoðanir, Það er talað um að halda verkalýðshreyfing- unni saman, en það er ekki enda- laust hægt að halda henni sam- an á kostnað hvers sem er, sam- staða samstöðunnar vegna er einskis virði — þá er farið að slá af cg slíkur afsláttur kostar allt- af eitthvað. Það verður að varast að líta á hann setn sjálf- sagðan hlut. Þag þarf að stofna til funda og það tíðra funda í ,að þess að fólk kemur nú sam- an tvisvar í kringum hverja samningagerð, til þess að segja upp samningum og til þess að samþykkja samninga. Ráð er að færa eitthvað af starfseminni út á vinnustaðina, mynda nokkurs konar starfshópa á hverjum vinnustað og slá saman fól'ki af smærri vinnustöðum. Þannig virkjast fólk fræðist u’m mál- efni sín, þjálfast og venst á að tjá sig um þau, kemst í tengsl við forystuna og finnur sig vera áhiifaríkt afl í sinni eigin bar- áttut í stað þess að samþykkja árlega uppstillta fámenna for- ystu, sem annast alla samninga- gerð, pukrar að valdboði sátta- semjara á bak við læstar dyr og tekur á herðar sér ábyrgð á atvinnuvegunum eftir að hafa látið troða í sig meira og minna upplognum tölum, sbr. 9 manna karlanefndina. Það er ekki verk- efni verkalýðsins að bjarga af- kömu atvinnuveganna, afkoma heimilanna skiptir hann höfuð- máli. Stjórnmálaspekúlantar og opinberir embættismenn hafa það hlutverk að stjórna efna- hagslífinu. Samvinna verkalýðs við atvinnurekendur getiuir aldrei verið í þágu nema annars aðilans. Önnur starfsemi innan verka- lýðsfélaganna liggur einnig niðri þar á ég við fræðslu- og menn- ingarstarfsemi. Starfsemina sér maður í launuðum starfsmanni og skrifstofu sem aðeins er opin á almennu’m vinnutíma. Tengsia leysi og almennt áhugaleysi Framhald á 3. síðu Sorgnrflíondur om ntjolkurmdl í fyrrakvöld var haldinn í Neskaupstað borgarafundur um mjólkurmál. Forgöngumaður fundarins og framsögumaður var Sigurjón Ingvarsson. Sú var ástæðan fyrir íundar- boðuninni, að það hefur þótt við brenna. að mjólk frá ’mjólkur- stöðinni hér væri gölluð, hvort sem um er að kenna ófullkomn- um vélbúnaði, vankunnáttu eða vanrækslu. Fundurinn var afbragðsvel sóttur og umræður fjörugar. Til máls tóku tíu manns, auk frum- mælanda. I lok fundarins var samþykkt svohljóðandi ályktun: „Almennur fundur mjólkur- neytenda í Neskaupstað haldinn 6. maí 1975 telur ástandið í mjólkurmálum bæjarins algjör- lega óviðunandi og að ekki verði lengur komist hjá að gera þar á verulegar úrbætur. Fundurinn beinir þeim ein- dregnu tilmælum til heilbrigðis- nefndar og heilbrigðisfulltrúa a? þessir aðilar hlutist nú þegar til um það að rannsakað verði ástand tækja og búnaðar mjólk- urstöðvarinnar svo og hæfni og kunnáttu þeirra, sem við mjólk- urstöðina vinna“. Krakkar - athugið Það vantar duglega sölumenn til að selja Austurland. Hafið samband við Guðmund Bjarnas. eftir helgi. Leiðrétting Austurland sem út ko’m 2. maí átti að vera 20. tbl. en ekki 19. eins og á því stóð. ÚR BÆNUM Afmæli Ólöf Stefánsdóttir, afgreiðslu- stúlka, Miðstræti 7 varð 60 ára 6. maí. Hún fæddist hér í bæ og hefur jafnan átt hér heima. ■ WWWVWWVWVWVW/VWVWWVWWWWWVW> Minningarkort Sjálfsbjargar fást j Apótekinu og Bókabúðinni vwwwwwwwvwwvwvwwvwwvwwvww

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.