Austurland


Austurland - 09.05.1975, Síða 3

Austurland - 09.05.1975, Síða 3
Neskaupstað, 9. maí 1975. AUSTURLAND 3 er þú hagar þér eftir þeim aldeilis nákvœmlega, — í teiti og trega — þá muntu um annan og þennan heim þekkja til allra vega! Byrgöu að kveldi bæinn þinn og breiddu vel fyrir glugga, svo rummungur enginn ráðist inn rónni frá þér að stugga. Vefðu svo að þér frúna fast, fingrum lokk henni greiddu, — svo ólund eyddu — en fái hún marktækt flemturskast feld yfir hana breiddu. En finnirðu að morgni furðuspor framan við þína glugga og vilji þíns hjarta veikja þor voðaleg kvíðaskrugga, töltu í bæinn títt og ótts talsímann höndum þrífðut — að hlust upp hífðu, — sýslumanninum segðu skjótt, söguna frá þér drífðu. Aftur svo skjóstu í skaflinn út skoðaðu förin betur, ígrunda þau og yfir lút eins og þú framast getur. Hittirðu merki um hóf og klœr hræðslunni skaltu kingja, — en sálma syngja —. Segðu við Drottin: Sit mér nær! Svo skaltu í prestinn hringja. S.Ó.P. L 4USNIN ER . . . Framhald af 1. síðu. tröllríður húsum. og áhugaleysið nær svo langt að fyrir kemur að enginn fáist til að vera trúnað- armaður á stórum vinnustöðum. Lifað verði af dagvinnu- tekjum Það er fyrir mörgu að berjast og á sumum sviðum hafa opin- berir starfsmenn náð lengra eins og 3ja 'mánaða barneignafiríið og verðtryggður lífeyrissjóður. Hér er um mismunun að ræða; þenn- an rétt á allt launafólk. heimt- ingu á að fá. Um sjóði eins og lífeyrissjóði og atvinnuleysis- tryggingasjóði er samið um í samningum og þá slegið af öðr- um kröfum, því eru þessir sjóð- ir eign verkalýðsins og fráleitt er að aðrir séu að ráðskast með þá, eins og t. d. að lalþingismenn séu að ákveða að atvinnuleysis- tryggingasjóður verði notaður tl þess að launa konur sem hverfa frá Sitörfum vegna bams- burðar. Kröfuna u'm að konur tapi ekki launum í ki’ingum barnsburð, þarf að setja á odd- inn en þar þarf að knýja á tryggingakerfið. En höfuðkrafa verkalýðsins nú er að sjálfsögðu sú að hægt verði að lifa af dagvinnutekjun- um. Lausnin er gjörbreytt þjóðfélag En fullnaðarlausn á málefn- um okkar verkálýðsins fæst ekki fyrr en við höfum byggt upp gjörbreytt þjóðfélag, þar sem eignarhaldi á framleiðslutækj- unum hefur verið breytt í sam- eign og farið verður að skipu- leggja framleiðsluna. Einkaat- vinnurekendur reyna alltaf að halda launutn niðri. Þar gengur þeim best við þá sem minnst mega sín, því er það þeim m. a. í hag að halda konum sem mest og lengst niðri. Vakning kvenna er þeim í óhag. Gegn heimsvaldastefnu Menn verða einnig að minnast þess að baráttan er ekki aðeins hér heima, hún nær til alls heimsins. Því ber okkur að vinna með alþýðu annarra landa; ntyrkja þær þjóðir seto verða AA\WAAA/VAAAAAAA\AAAA\AAWWAAAA\AA\AAA\\WAAAWAA\AAAAAAAA\A\WV\AAAWWWWWWWAW W\ ) ECILSBUD ( I Það er líf og fjör í rúminu | | Sýnd föstudag kl. 9. Aðalhlutverk Dirch Passer. Bönnuð | I innan 14 ára. Síðasta sdnn. | I Geimfarar í háska f I Æsispennandi og tæknilega snilldarlega gerð mynd um | | örlög geitofara, sem geta ekki stýrt geimfari sínu til jarðar. | 1 Aðalhlutverk Gregory Peck. Sýnd laugardag kl. 9. Bönnuð í I innan 12 ára. Hækkað verð. | i Þjófurinn frá Damaskus ? | Sýnd sunnudag kl. 3. Síðasta sinn. | ! Ógnun á hafsbotni \ I Hörkuspennandi mynd. Sýnd sunnudag kl. 5. Bönnuð ? I innan 12 ára. | I Hefndaræði \ | Raunsönn mynd, byggð á raunverulegum atburðum um | Í hættumar af tilraunum stórveldanna með eiturefni til hem- 1 | aðarþarfa, tekin í litum. Aðalhlutverk George C. Scott. Sýnd | I sUnnudag kl. 9. Bönnuð innan 14 ára. | \vvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv\vvvv\vvv\vvvvvvvvvv\v\vvvvvvv\vvvvvvvwv\vvvvwvvvvvvv\www rWVWWWVVWWWWVWWVVWWVWWWWVWWWWWWWVVWVWWWVWWVWWWVWVWVVWW IPóst- og símamálastjórnin ; Útboð I Óskað er tilboða í smiði og fullnaðarfrágang póst- og | símahúsa á Breiðdalsvík, Djúpavogi og Stöðvarfirði. | Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Tæknideildar Pósts | og sítoa, Landssímahúsinu í Reykjavík; svo og hjá viðkom- | andi stöðvarstjórum, gegn 15.000.- kr. skilatryggingu. | Tilboð verða opnuð á skrifstofu Tæknideildar Pósts og | síma mánudagimn 19. maí 1975 kl. 11 f. h. I WAWWAA/VWVWWWWWVWV vwvvv wwwvwwww wvw vwwwwwwwwwwwwwwwvww fyrir árás og kúgun heimsvalda- stefnunnar. Sigur bláfátækrar bændaþjóðar gegn einu mesta stórveldi heims hlýtur að verða okkur hvatning, en við megum ekki gleyma því að við erum í hernaðarbandalagi með þessu stórveldi, þar höfum við verk að vinna. Baráttudagur verkalýðsins 1. mai í ár er baðaður ljómanum af sigri alþýðunnar í Kambodiiu og Viet-Nam. Sigurinn þar er sigur frelsis og vonar um betri heito. En þeir atlburðir hafa lika kennt okkur að sigur næst ekki nema með baráttu og ekki tjóir að gefast upp. þótt fcarátt- an verði löng og ströng. Baráttudagur — Baráttuár 1. maí á ekki að vera hátíðis- dagur með hornablæstri einum saman og skemmtunum, heldur baráttudagur fyrir betra mann- lífi og- bættum kjörum alþýðu heims. Á sama hátt á kvenna- árið ekki að vera hátíðarár eða minningarár uto 1101 árs búsetu kvenna í landinu (á þjóðhátíð- arári var ekki að sjá að konur hefðu byggt landið með körlum) hvað þá heldur hjálparár. Nei kvennaárið á að vera bar- áttuár. Sigurinn í verkalýðsbar- áttunni vinnst ekki ef helmngur verkalýðsins, konurnar, er ekki með. Án þátttöku 'kvenna verð- ur ekki um neina fjöldahreyf- ingu að ræða. (Það dregur líka úr baráttugleði verkamannsins að eiga heima eiginkonu. sem honum þykir vænt um, en sem er á móti félagsmálavafstri hans). Uppvakning kvenna er ekki aðeins verkefni fyrir kven- fé’.agana í verkalýðshreyfing- unni heldur karlfélaganna einnig, en verkefni þeirra er ekki að ýta aðeins við konum og stjórna þeito síðan sem leikbrúð- um. heldur að kveðja konur til starfa sem jafningja og þjálfa þær sem aðra til umbyltinga. Þá tounu verkakonur gera sér grpin fyrir því að þær verða að berjast við hlið karlanna. Verkalýðshreyfingin verður að gera kvennabaráttuna að sinni, þar sem varkalýðsbaráttan ekki nema með þátttöku kvennanna.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.