Austurland


Austurland - 25.11.1975, Page 1

Austurland - 25.11.1975, Page 1
ÆJSTURLAND MÁLGAGN ALÞYGUBANDALAGSINS A AUSTURLANDI 25. árgangur. Neskaupstað, 25. nóvember 1975. 48. tölublað. Helgi Seljan: Þegar ívagnar Arnalds flutti hina merku ræðu sína á Alþingi á dögunum um skattlausu fyrir- tækin og þá milljarða, sem ríkið yrði af vegna fáránlegra fyrning- arreglna og annarrar hagræðing- ar, fór svo sem vænta mátti, að Aibert Guðmundsson þoldi ekki mátið. í orði kveðnu kvaðst hann ekki hafa neitt við tillöguna að athuga þ. e. að hún yrði skoðuð. En þegar hann fór svo að ræða um þessi fyrirtæki þá kom í ljós, að ekkert þótti honum sjálfsagð- ara en þessi fyrirtæki slyppu við þá sjálfsögðu skyldu að greiða til samfélagsins. Alveg sérstaklega þótti honum hart aðgöngu, ef forstjórum þeirra og eigendum yrði gert að sýna lágmarkstekjur af vinnu sinni, sem manni skildist á öðr- um þingmanni sjálfstæðismanna aðværi geysiieg, fyrirtækin nán- ast byggð upp af vinnu þessara eigenda eingöngu, en hreint ekki af lánsfé, almannafé eða beinni fíkisaðstoð. Sá heitir Guðmundur H. Garð- arsson, er svo talaði. Báðir kváðu þeir fjarstæðu að verðleggja þeSsa vinnu á sama hátt og aðrir verða að gera. Báðum þótti mesta fjarstæða að svo göfug tegund vinnu væri skattlögð í almannaþágu. Að baki lá ósögð hugsun beggja, tegund vinnunnar var of göfug til að leggjast undir mæli- stiku veraldlegrar skattlagning- ar. Ég hef sundum hugleitt það, hvii'ík göfgi og hugsjón liggur að baki hjá þessum atvinnurek- endum, með tapið eitt í ágóða- hiut ár eftir ár. Ég hef líka oft hugsað með mér þvíHkt fegins- efni það yrði þessum tapkóngum ef ríkið — samfélagið létti nú þessu hugsjónaoki af þeim og þjóðnýtti allt saman, þar hefur r áðið mannleg vorkunnsemi mín með þessum vesæla og hrjáða hugsjónalýð. Ég neita því hins vegar ekki að ólutokans ótugtarskapur og ári ljótur grunur haía ætið sótt nart að mér, þegar ég hefi litið fátæikt þessara aðila á skatt- skýrsiunum. Hún hefur nefni- lega hvergi birst nema þar. Og að öllu gamni slepptu þá veit öll alþýða þessa lands, að ómældar fjárhæðir renna frá henni beint til þessara aðila og birtist síðan í ljósi dýrustu húseigna, lúxus- bíla og ótafinna utanlandsferða, svo nokkuð sé nefnt. En þetta sáu þessir þingmenn ekki, annar sór jafnvel fyrir að hann vissi nokkuð til shkra hluta hjá skattleysingjunum alkunnu. En verkamenn, sjómenn og bændur, sem auk strits síns og starfs leggja sinn mikla skerf til samfélagsins hefðu gjarnan mátt heyra þær nafngiftir, sem Albert Guðmundsson gaf þess- um skattleysingjum og verka- lýðsieiðtoginn Guðmundur H. Garðarsson lagði sina fullu bless- un yfir. „Máttarstólpar þjóðfé- lagsins“ skyldu þeir heita og menn kannast svo sem við nafn- giftina. En í ljósi framlagsins til samfélagsins — hvaða þjóðfélag er þá verið að meina — hvernig má skilja orðið máttarstólpi. Við vitum hvað við er átt — þeir eru máttarstólpar þess þjóð- félags einkagróðans, sem þessir menn eru talsmenn fyrir og vilja Sunnudaginn 16. 11. 1975 var haldinn á Eskifirði stofnfundur Félags iðnnema á Austurlandi. Til fundarins var boðað að frum- kvæði nema Iðnskóla Austur- lands, Neskaupstað. Fundinn sóttu iðnnemar hvaðanæva að af Austurlandi. Einnig sátu fund- inn þau Kristinn G. Hrólfsson formaður I.N.S.Í. og Kristín Ás- mundsdóttir meðstj. I.N.S.Í. Á fundinum kom meðal annars fram að allmikið er um það á félagssvæðinu að ákvæði kjara- samninga séu ekki virt, á það einkum við um viðauka við kjara gera enn meiri á kostnað launa- fólks í landinu. Betur var ekki hægt að lýsa viðhorfi Sjálfstæðisflotoksins til þjóðfélagsmála. Það eru ekki framleiðslustétt- irnar til sjávar og sveita, sem eru máttarstólpar þjóðfélagsins — þó þær leggi grunn að þjóð- arauðnum með starfi sínu og leggi auk þess til samfélagsins margfaldan hlut á við hina „máttarstólpana11. Nei, að áliti þeirra sjálfstæð- ismanna eru það braskararnir, sem stela undan stórfúlgum, millihðakóngarnir sem arðræna almenning þeir og aðrir slíkir eru máttarstólpar þjóðfélagsins. Mætti ég biðja launafólk, sem hefur glæpst til að trúa orðtak- inu „stétt með stétt“ að hug- leiða nú i fullri alvöru hvaða samleið það eigi með þessum m'áttarstólpum ibaldsins. Kannski opnast augu þeirra nú, þegar á launþega á að leggja síauknar byrðar á sama tíma og það er talin goðgá að snerta við þessum skattlausu máttarstólp- um. Einhverjir hljóta að sjá gegnum blekkingavefinn og þekkja um leið sinn vitjunar- tíma. Oft var þörf en nú er nauðsyn. samninga iðnnema. Virðist svo að í sumum tilfellum skorti tugi þúsunda kr. á að nemi hafi feng- ið greidd tilskilin laun. Væntir stjórn félagsins þess að eiga góð samskipti við viðkomandi iðn- fyrirtæki og meistara til leiðrétt- ingar þessara mála. Fundurinn samþykkti uppsögn kjarasamn- inga og að fela I.N.S.Í. gerð nýrra fyrir hönd félagsins. Athafna- svæði félagsins er Norður- og Suður-Múlasýsla, Seyðisfjörður, Neskaupstaður og Eskifjarðar- kaupstaður. Stjóm félagsins Framh. á 2. síðu. „Gunna" Leikfélag Neskaupstaðar frum sýndi leikritið „Gunna“ sl föstu- dagskvöld. Leikrit þetta er eftir Asu Sólveigu, unga reykvíska konu. Verkið gerist nú á tímum í Keykjavík og fjailar um hús- næðisvandamál ungra hjóna. Það kemur vel fram í sýning- unni hver staða leigjandans er í otokar þjóðfélagi. Hann er ofur- seldur duttlungum húseigandans og er ekki einu sinni frjáls til þess að gera fátæklega ibúðina örlitið persónulegri og viðkunn- anlegri. Ungi maðurinn er erm í iðnnámi sínu og þau hjónin lifa við þröngan kost. Peningavand- ræðin eru mikil og þó svo að leit- að sé eftir nýrri íbúð daglega fæst litið út úr því. Húseigendur í hinu frjálsa þjóðfélagi sam- keppninnar aumka sig ekki yfir ungt efnalítið fólk, sem ef til vill á þegar orðið börn, heldur bjóða íbúðir siínar til leigu á ok- urverði og lítið sem ekkert af leigutekjunum má gefa upp til skatts. Fyrirframgreiðslur þær, sem krafist er, eru ósvífnar og því er ungu fólki oft íyrinmunað að lifa í mannsæmandi húsnæði. Ef að slys henda svo fyrir- vinnuna þá er kerfið þungt 1 vöfum og erfitt við að eiga, í sambandi við útvegun húsnæðis. Ekki bæta fordómarnir ástand ið. Þó svo að full þörf sé á er ekki talið æsikilegt að konan vinni úti til þess að létta undir. í þjóðfélagi karlmannsins er konan oft algengasta húsdýrið. að er hún, sem situr heima í óvhtlegri íbúðinni. Þótt undirtónninn í „Gunnu“ sé alvarlegs eðlis, þá er ekki þar með sagt að leikritið sé þung- lamalegt og dapurlegt. Mikið er um skemmtileg tilsvör og fyndin atvik í lífi þessa unga fólks. Þetta leikrit þjónar í raun tvennum tilgangi. Það er skörp þjóðfélagsádeila, sem skilur mikið eftir í huga áhorfandans, en einnig nýtur hann ánægju- legrar kvöldstundar — þvá ekki fer á milli mála að leikritið er stórskemmtilegt. Leikendur j „Gunnu“ eru 7 og allir skila þeir hlutverkum sín- um með miklum sóma. Elísabet Þorgeirsdóttir leikur Gunnu af miklu öryggi og tilþrifum og oft fer Grímur Magnússon á kostum Framh. á 2. síðu. Frá blaðinu. Aifsilýsingamóttaha Austurlands er á fimmtudögum kl. 13—17 í síma 7571. Annars í síma 7136. Félag iðnnema ó Austurlandi

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.