Austurland


Austurland - 16.01.1976, Blaðsíða 1

Austurland - 16.01.1976, Blaðsíða 1
MALGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS A AUSTURLANOI 26. árgangur. Neskaupstað, 16. janúar 1976. 3. tölublað. Helgi Seljim: Uid trygginpmdl og jleiro Þegar frumvarp til f járlaga var lagt fram í haust var til- kynnt um tveggja milljarða nið- urskurð á almannatryggingaliðn um, án allrar skilgreiningar á því, hvað skyldi skorið. Ein- hverjum datt í hug sparnaður.t. d. hjá þeirri fjölmennu Trygg- ingastofnun okkar, en það kom víst aldrei til tals. Eftir rnikið st'mabrak og basl og fjölmarg- ar niðurskurðarhugmyndir, kom í Ijós, að hver þeirra sem farin yrði, mundi reynast stjórninni þung í skauti, svo ekki sé meira sagt. Svo heppilega vildi þó til, að þegar reikningsskekkjur í fjáriagafrumvarpinu — upp á hundruð milljóna — jafnvel milljarða — höfðu verið leiðrétt- a:, kom í ljós, að ekki þurfti nema um 1700 milljónir, svo skrautblóm fjármálaráðherra þyrftu ekki að fölna. Og nú voru góð ráð dýr. í ráðþrotinu og fálminu var til þess gripið að iáta sveitarfélögin gerast innheimtuaðila fyrir ríkið vegna sjúkratrygginganna upp á nær 1200 milljónir, auðvitað án þess að láta svo lítið að tala við L íu um málið. Og ríkisálögurnar lækkuðu nm 1200 millj. með þeirri ein- földu aðferð að láta sveitarfé- lögin leggja 10% viðbótarútsvar á gjaldendur sína. En af hverju þessi talnaleikur? Einhvern við- bótartilgang hlaut hann að hafa. Jú, með þessu móti komst at- vinnureksturinn í landinu með öilu hjá þvi að greiða þessa upp- hæð eða minnsta hluta hennar og launafólk hlaut hér að bera þyngstar byrðar. En þetta snjallræði nægði ekki til. Nú varð að velja sérstaklega úr þá, sem best væru til þess fallnir að taka á sig þessar 500 millj. sem enn vantaði upp á. Og þá reyndist auðvellt að finna. Þeir, sem sérstaklega þurfa á lyf jum að halda að ?ækn- isráði, þeir sem sérfræðiþjónustu og rannsókna þarfnast. Hér var um að ræða útgjöld, sem nema á þriðja þúsund á hvert manns- barn í landinu, nálægt 12 þúsund á meðalfj ölskyldu, svo allir mega sjá, að hér er um drjúga upphæð að ræða hjá þeim, sem hér þurfa óistaklega á að halda. Þar verða elli- og örorkuþegar harðast úti og er það í góðu sam- ræmi við stjórnarstefnuna í heild. Þegar vinstri stjórnin var að lyfta kjörum þessa fólks á mann- sæmandi stig, þótti þeim sjálf- stæðismönnum síst nóg að gert, enda í andstöðu þá. Nú eru þeir hins vegar í að- stöðu til að sýna hug sinn og fúsir feta þeir framsóknarmenn í slóðina niður á við í þessu sem öðru. Vissulega ber að gleðjast yíir því, að beinn áformaður niður- skurður trygginganna lækkaði niður í 14 þess, sem áætlað var. En eftirtektarverðar eru leiðirn- ar, sem valdar eru og hér hafa verið raktar. Utsvarsleiðin ein út af fyrir sig er dæmigerð um ráðlaust fálm, þó með þeirri áráttu að hiifa skuli atvinnu- rekstri í þessu efni sem öðrum. Og umhyggjan fyrir sveitar- félögin er lýsandi þegar þessu er nú á þau bætt á sama tíma og verið er að gefa þeim vilyrði um að losna við útgjöld til sjúkratrygginganna að fullu. Eftir er svo að ræða um önnur atriði f járlaganna nú, stórminnk- andi framkvæmdir um land allt í Ijósi þeirra talna, sem fjárlögin gera ráð fyrir á meðan öllu er haldið á fullri ferð í rekstri og eyðslu og jafnvel tekin erlend eyðslulán til þess eins, að hið dýrðlega viðskiptafrelsi fái að blómstra áfram. Og framsókn hefur ekki við að hneigja sig í vinnumennskunni. Að því mun vikið síðar. Darðskjdlftar valda tjóni Kelduhverfi og á Kópaskc Rétt fyrir jólin byrjaði gos í Leirhnjúk skammt frá Mývatns- sveit, en einmitt þar brunnu Mývatnseldar fyrir hálfri þriðju öld. Þeir eldar geysuðu í 4—5 ár og ollu miklu tjóni og óttuð- ust menn, að nú sem stundum áður mundi sagan endurtaka sig. En gosið hefur farið sér hægt og er nú næstum ekkert. Ástæða kann þó að vera til að óttast að það sæki aftur f sig veðrið eða að eldur komi upp annarsstaðar á þessu svæði, því jarðhræringar eru miklar. Jarðhræringar hafa einkum r tnað á Kelduhverfingum og Kópaskersbúum og hafa valdið m klum óþægindum og tjóni. Einkum urðu íbúar Kópaskers hart úti á þriðjudaginn. Þá varð mikill jarðskjálfti um 5,5 stig á Richter-mælikvarða. Átti kipp- urinn upptök sín 12 krn suðvest- ur af Kópaskeri í sjó fram. Urðu þá miklar ske'mmdir á húsum og öðrum mannvirkjum á Kópa- skeri og eru sum íbúðarhúsin óíbúðarhæf. Flestir íbúar stað- arins voru þegar fluttir á brott, en manntjón varð ekki. Veruleg- ar skemmdir urðu einnig á brúm og vegum. Jarðskjálftinn fannst víða um land, m. a. um alla Austfirði frá Breiðdal til Vopnafjarðar. Er mjög fátítt, ef ekki dæmalaust, að jarðskjálfta verði vart á Aust- urlandi. Þó hafði fyrir nokkru fundist jarðskjálfti á Seyðisfirði og Egilsstöðum. Virkjunin, sem nú er unnið að við Kröflu, er í næsta ná- grenni við gosstöðvamar og hafa menn óttast nokkuð um afdrif Framhald á 3. síðu Frá lngflTlárneínd Nefnd sú, er vinnur á vegum austfirsku átthagafélaganna að því, að Inga T. Lárussyni tón- skáidi, verði reistur minnisvarði, svokölluð IngaTLárnefnd, hefur opnað gíróreikning nr. 19760, sem þeir geta greitt inn á, sem styðja vilja þessa fyrirætlun. Reikningsnúmerið 19760 er ártalið í ár að viðbættu einu núlli, en í ár er ætlað að varðinn rísi í fæðingarbæ tónskáldsins, Seyðisfirði. Ingi lést árið 1946 svo að á þessu ári eru liðin 30 ár frá andláti hins ástsæla lista- manns. áshorun Fundur í Alþýðubandalags- félagi Fljótsdalshéraðs haldinn 13. janúar 1976, lýsir fullri sam- stöðu með aðgerðum sjómanna gegn Nató-herstöðvunum. Fund- urinn lítur „mjög alvarlegum augum“ heimóttarskap ríkis- stjórnarinnar í 'landhelgismálinu og krefst tafarlausra stjórnmála- slita við bretia og úrsagnar úr Nató. Ftr vel of stoð Fyrsta erindi í fyrirlestraröð þeirri, sem Aiþýðubandalagið í Neskaupstað hefur skipulagt og frá var greint í síðasta blaði, var flutt síðastliðinn sunnudag. Ræddi þar Helgi Seljan, alþing- ismaður um flutning ríkisstofn- ana og dreifingu valds. Var er- indið einkar fróðlegt og urðu talsverðar umræður að því íluttu. Fundurinn var vel sóttur og gefur góð fyrirheit um árangur þessarar fræðslustarfsemi. Næsta erindi flytur Lúðvík Jósepsson, alþingismaður klukk- an fjögur á sunnudaginn kem- ur. Fjallar hann um landhelgis- 'i ið og er öllum heimill að- gangur og þátttaka í umræðum. Sjflldséðir gestir Dagana 24. og 25. jan. n. k. fá austfirskir körfuknattleiksmenn heimsókn alla leið vestan af fjörðum. Lið Harðar á Patreksfirði kem- ur þá og leikur tvo leiki við sambandslið U. í. A. á Eskifirði. Úrslit þessara leikja eiga að skera úr um hvort liðið kemst í úrslit 3. deildar íslandsmótsins í vetur. Það er von undirritaðs að vel takist til með móttöku þessara sjaidséðu gesta, og er því skorað á aila unnendur körfufcnattleiks (og helst miklu fleiri) að mæta í íþróttahúsinu á Eskifirði til að sjá þessa viðureign austfirðinga og vestfirðinga. — SB

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.