Austurland - 05.01.1979, Síða 2
Föstudagur 5. jandar 1979
___________ÆUSTURLAND________________________
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Blaðnefnd: Ágúst Jónsson, Árni Þormóðsson, Bjarni Þórðar
son, Guðmundur Bjarnason og Kristinn V. Jóhannsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir s. 7571 — h. s. 7374.
Auglýsingar og dreifing: Stefanfa Aradóttir s. 7571 og 7698.
Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgrciðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
sími 7571.
Prcntun: Nesprent.
Útgefandi kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Þáttur Bjarna er stór
Nú er að hefjast 29. árgangur Austurlands.
f 28 ár hefur blaðið haldið uppi merki sósíalisma og lagt
af mörkum mikilvægan pátt í baráttu íslenskrar alþýðu.
Ailan þennan tíma hefur Bjami Þórðarson verið ritstjóri
blaðsins og borið hitann og þungann af útgáfunni.
Með hugsjón sósíalismans að markmiði hefur hann sýnt
fádæma elju og þrautsegju og haldið uppi reglulegri útgáfu
vikublaðs, lengur en nokkur annar á Austurlandi, sem á vafa-
laust drjúgan j?átt í pví, að Alpýðubandalagið er nú stærsti
stjómmálaflokkurinn á Austurlandi.
Um þessi áramót urðu |>au tímamót í sögu biaðsins, að
Bjarni lét af ritstjórn og um leið voru gerðar nokkrar breyting-
ar á blaðinu, svo sem greint hefur verið frá. Áfram verður
haldið í }>á átt í von um að blaðið geti betur sinnt hlutverki
sínu.
Þessar breytingar verða töluvert átak sem einungis nær
árangri með samstillingu þeirra krafta sem • vinna vilja að
velferð blaðsins.
Þakklæti til Bjama Þórðarsonar fyrir hans mikla starf, sýna
flokksmeim best með pví að taka hvatningu hans í kveðjuorð-
um hans til blaðsins, „að flokksmenn hvarvetna í kjördæminu
sinni blaðinu meir hér eftir en hingað til svo j>að verði sem
bitrastur brandur í sókn Alþýðubandalagsins, alþýðuhreyfing-
arinnar, kjördæmisins og landsins í heild“.
Einn spari, annar eyði
f útvarpsþætti í vetur var fyrrverandi forsætisráðherra
spurður álits á jöfnun raforkuverðs.
Hann svaraði }>ví til, að hann óttaðist að ef verðjöfnun
yrði komið á myndi ]>að draga úr spamaði.
Mörgum leikur vafalaust forvitni á að vita við hvað stuðst
er í slíku svari.
Samkvæmt upplýsingum Orkustofnunar frá 17. nóvember
sl. greiðir meðalfjölskylda í Reykjavík 59 þúsund kr. á ári fyrir
rafmagn til heimilisnotkunar. Meðalfjölskylda á orkusvæði
Rarik greiðir hins vegar 112 þúsund kr. fyrir sömu notkun.
Verkamaður á Seyðisfirði j>arf j>ví að vinna viku lengur en
verkamaður í Reykjavík einungis fyrir kostnaði við rafmagn
til heimilisnotkunar og J>á eru ótaldir aðrir liðir sem hærri
em s. s. sími, húsahitun, matvæli o. fl.
Af j>essu er ljóst hverjir J>að em sem fyrr j>urfa að spara.
Sú skoðun Geirs Hallgrímssonar, að einn eigi að spara handa
öðrum að eyða, kemur að sjálfsögðu ekki á óvart, slík hefur
stefna flokks hans ætíð verið.
Öllu undarlegra er, að landssamtök launamanna skuli hafa
látið slíkt viðgangast og ekki beitt sér í j>essu jafnréttismáli.
Iðnaðarráðherra hefur sagt sinn vilja vera verðjöfnun raf-
orku í samræmi við stefnu Alj>ýðubandalagsins.
Ef Landssamtök launamanna eru meira en nafnið eitt, ber
}>eim að styðja tillögur hans, sem fela eingöngu í sér leiðrétt-
ingu á misrétti.
Jólamót Hattar í frjálsum íþróttum 1978
Laugardaginn 16. desember var
haldið jólamót í frjálsum íprótt-
um innanhúss í Valaskjálf á Egils-
stöðum. Þetta var opið mót og pví
öllum félögum boðin pátttaka. Því
miður sáu sér ekki fært að mæta
aðrir en Þróttur frá Neskaupstað
sem kom með f jölmennt lið. Þökk-
um við peim kærlega fyrir kom-
una.
Á mótinu voru sett mörg Aust-
urlandsmet og sýnir pað, að okk-
ar unga frjálsípróttafólk er í stöð-
ugri framför.
Helstu úrslit eru pessi:
S-telpur 10 ára og yngri
Hástökk með atrennu:
1. Katrín Einarsdóttir,
Hetti 1,20 m
2. Helga Haraldsdóttir,
Hetti 1,10 m
3. Þórey Haraldsdóttir,
Þrótti 1,05 m
Langstökk án atrennu:
1. Helga Magnúsdóttir,
Hetti 2,11 m
2. Katrín Einarsdóttir,
Hetti 2,06 m
3. Þórey Haraldsdóttir,
Þrótti 1,96 m
Strákar 10 ára og yngri
Hástökk með atrennu:
1. Magnús Þórhallsson,
Hetti 1,10 m
2. Þorsteinn Steinpórsson,
Hetti 1,05 m
3. Þorsteinn Halldórsson,
Þrótti 1,05 m
Langstökk án atrennu.
1. Guttormur Brynjólfsson,
Hetti 1,87 m
2. Þorsteinn Einarsson
Hetti 1,76 m
3. Jón Kristinsson,
Hetti 1,71 m
Stelpur 11—12 ára
Hástökk með atrennu:
1. Anna María Arnfinnsdóttir,
Hetti (Austurl.met) 1,40 m
2. Inga Birna Hákonardóttir,
Hetti 1,25 m
3. Vigdís Hrafnkelsdóttir,
Hetti 1,25 m
Langstökk án atrennu:
1. Guðrún Smáradóttir,
Þrótti (Austurl.met) 2,22 m
2. Vigdís Hrafnkelsdóttir,
Hetti 2,21 m
3. Jónína Róbertsdóttir,
Þrótti 2,18 m
Strákar H—12 ára
Hástökk með atrennu:
1. Magnús Steinpórsson,
Hetti (Austurl.met) 1,45 m
2. Sigfinnur Viggósson,
Þrótti (Austurl.met) 1,45 m
3. Símon Hermannsson,
Þrótti 1,25 m
Langstökk án atrennu:
1. Símon Hermannsson,
Þrótti (Austurl.met) 2,27 m
2. Sigfinnur Viggósson,
Þrótti 2,11 m
3. Magnús Steinpórsson,
Hetti 2,11 m
Telpur 13—14 ára
Hástökk með atrennu:
1. Arney Magnúsdóttir,
Hetti (Austurl.met) 1,50 m
2. Þórdís Hrafnkelsdóttir,
Hetti 1,30 m
3. Ása J óhannsdóttir,
Hetti 1,30 m
Langstökk án atrennu:
1. Arney Magnúsdóttir,
Hetti 2,40 m
2. Sigríður Ó. Halldórsdóttir,
Þrótti 2,23 m
3. Þórdís Hrafnkelsdóttir,
Hetti 2,20 m
Piltar 13—14 ára
Hástökk með atrennu:
1. Ármann Einarsson,
Hetti 2,40 m
2. —3. Sveinn Ásgeirsson,
Eysteinn Kristinsson,
Þrótti 1,35 m
Langstökk án atrennu:
1. Ármann Einarsson,
Hetti 2,53 m
2. Eysteinn Kristinsson,
Þrótti 2,36 m
3. Friðrik Ottósson,
Þrótti 2,26 m
Þrístökk án atrennu:
1. Ármann Einarsson,
Hetti (Austurl.met) 7,62 m
2. Eysteinn Kristinsson,
Þrótti 6,95 m
3. Sveinn Ásgeirsson,
Þrótti 6,67 m
Karlar
Hástökk með atrennu:
1. Stefán Friðleifsson,
(Austurlandsmet) 1,90 m
Hástökk án atrennu:
1. Stefán Friðleifsson, 1,45 m
Frjálsípróttaróð Hattar
SKÁK
Taflfélag Norðfjarðar
Ýmislegt hefur verið á döfinni
hjá Taflfélagi Norðfjarðar pað
sem af er pessu starfstímabili. Áð-
ur hefur verið sagt frá Skákkeppni
stofnana og nú sér fyrir endann
á Skákmóti T. N. 1978. Því móti
átti reyndar að ljúka fyrir jól en
vegna veikinda hefur pað dregist
á Ianginn. Þegar einni skák er
ólokið stendur Páll Baldursson
best að vígi með 7 v. af 8 mögu-
legum, en Heimir Guðmundsson
getur orðið jafn honum vinni hann
pessa einu skák sem eftir er. Fari
svo munu peir tefla einvígi um
fyrsta sæti. f 3. sæti varð Einar
G. Bjömsson með 6 v. og í 4.
sæti Frímann Sveinsson, hlaut 5
v. Keppendur voru 9.
Jólahraðskákmót T. N. fór fram
29. desember sl. Keppendur voru
12 og helstu úrslit urðu pessi: 1.
Eiríkur Karlsson 11 v., 2. Ómar
Geirsson 10 v., 3. Páll Baldursson
9 v„ 4. Gísli Sighvatsson 8 v.
Aðalfundur T. N. verður hald-
inn í Gagnfræðaskólanum fimmtu-
dagskvöldið 11. janúar nk. og
hefst kl. 20.
Austfirðingar í 1. deild
Skáksveit Skáksambands Aust-
urlands teflir nú í I. deild eftir
sigur í II. deild á síðasta keppnis-
tímabili. Keppni í I, deild hófst
helgina7.—8. október sl. I Mun-
aðarnesi í Borgarfirði en par
mættu allar 8 sveitir deildarinnar
og tefldu fyrstu prjár umferðirn-
ar. Mikil forföll voru í austfirsku
sveitinni og má segja að hún hafi
mætt vængbrotin til leiks enda
beið hún lægri hlut í öllum um-
ferðunum prem. Eftir miklar hrak-
farir í 1. umferð, par sem glímu-
skjálfti hrjáði Austfirðinga mjög,
sóttu peir stöðugt í sig veðrið og
mega vel við sinn hlut una prátt
fyrir allt. í 1. umferð tapaði sveit-
in fyrir Mjölni, Rvík. 1:7 í 2.
umferð fyrir Akureyringum 3 : 5
og í 3. umf. fyrir Keflvíkingum
3H : 4M-
Að loknum pessum umferðum
var austfirska sveitin í neðsta sæti
ásamt Hreyfli í Rvi'k., með IVi v.
Ljóst er að fallbaráttan stendur á
milli pessara sveita. í 4. umf. sem
tefld var 26. nóv. sl., átti Hreyfill
að mæta Austfirðingum hér eystra
en fékk keppninni frestað til mars
eða apríl. Það dró til tfðinda í
pessari umferð pegar sveit Kópa-
vogs lagði sveit Taflfélags Rvíkur
að velli : 3% en slíkt hefur
ekki skeð í nokkur ár. Keppnin
í ár er mun tvísýnni en áður hefur
verið. T. R. hefur reyndar náð
nokkru forskoti en ekki eins ótví-
ræðu og undanfarin ár og mega
vara sig. Um 2. sæti er baráttan
ákaflega tvfsýn. Annars er staðan
í I. deild pessi pegar allar sveitir
hafa lokið 4 umferðum nema
Hreyfill og Austfirðingar:
____________________________________ 1. Taflf. Rvíkur 22 v., 2. Hafn-
_ . ,, M , . * arfjörður 17M v„ 3.-4. Kópa-
Bæjarmálaráöið i Neskaupstað: yogur og Mjölnir 17 v > 5. Akur.
Fundur kl. 8 á hverju miðvikudagskvöldi. eyri \6Y2 v„ 6. Keflavfk 15 v.
7.—8. Austfirðingar og Hreyfill
^______^_. iy2 v. — E. K,