Austurland - 22.02.1979, Síða 3
Úr Idnsfjdrdstlun
Framhald af 1. síðu.
sem n úeru horfur á. Aukning á
raforkunotkun á Vopnafirði er
fyrirsjáantega 20% næstu 2 ár en
fer lækkandi úr því samkvæmt
spá Orkuspárnefndar.
Aðveitustöðvar í Reyð-
arfirði og Neskaupstað
Áður var fram komið sam-
kvæmt fjárlögum, að fé yrði veitt
til aðveitustöðva við Stuðla í
Reyðarfirði 54 m. kr. og í Nes-
kaupstað 82 m. kr. auk marghátt-
aðra annarra framkvæmda á veg-
um Rafmagnsveitnanna. Þá eru
eru nokkrar til lúkningar fram-
kvæmda og frágangs við Austur-
línu til kaupa á háspennusíma
og varaspennis fyrir byggðalínurn-
ar.
Hitaveita á
Egilsstöðum
Til hitaveitu Egilsstaða og Hlaða
eru áætlaðar 200 m. kr. á árinu
1979 par af 170 m. kr. sem er-
lend lántaka samkvæmt lánsfjár-
áætlun. Af heimamönnum er nú
unnið af kappi að því að ljúka
nauðsynlegum framkvæmdaund-
irbúningi í samráði við Orkustofn-
un og að ganga frá margháttuð-
um samningsatriðum við Iðnaðar-
ráðuneytið vegna þessa nýja mann-
virkis.
Mun í ráði að virkja það vatn,
sem nú fæst úr tveimúr borhol-
um við Urriðavatn, og tengja í
um helming húsa á Hlöðum og í
Egilsstaðakauptúni fyrir lok árs-
ins.
Fjarvarmaveita á Höfn
Áætluð fjárfesting vegna fjar-
varmaveitu á Höfn er 150 m. kr.
þar af 65 m. kr. samkvæmt láns-
fjáráætlun en aðrar 65 m. kr. úr
lánásjóði íslenskra sveitarfélaga
eða orkusjóði. Er áformað að
nýta í fyrstu heitt frárennslisvatn
frá olíustöð Rarik til veitunnar
en síðan komi til sérstök kyndi-
stöð sem nýti afgangsraforku og
svartolíu. Unnið er að samninga-
undirbúningi við iðnaðarráðuneyt-
ið og Rarik um hlut rafmagns-
veitnanna að málinu. Er lagt til
grundvallar að Rarik reisi og reki
kyndistöðina en Hafnarhreppur
sjái á sama hátt um dreifikerfi
fyrir byggðina.
Tenging Austur-
Skaftafellssýslu við
landskerfið brýnni en
áður
Ljóst er að þýðing þess að hraða
tengingu Austur-Skaftafellssýslu
við landskerfið og binda þar með
enda á olíuvinnslu til rafmagns-
framleiðslu þar er orðið enn
brýnna verkefni en áður var talið
í Ijósi 100% hækkunar á gasolíu.
Er kostnaður við olíustöðina á
Höfn nú áætlaður 900 m. kr. á
árinu 1980 miðað við hækkað
olíuverð. Samkvæmt upplýsingum
sem blaðið aflaði sér frá Hjörleifi
Guttormssyni iðnaðarráðherra,
eru þessi mál nú í athugun á veg-
um ráðuneytisins og rafmagns-
veitnanna og hefur ráðuneytið í
undirbúningi víðtækt endurmat á
orkubúskap okkar og fram-
kvæmdaþörf í ljósi verðþróunar
á innfluttu eldsneyti að undan-
förnu og hugsanlegrar eldsneytis-
framleiðslu hér innanlands í ekki
mjög fjarlægri framtíð.
DAGMAMMA
Dagmömmu vantar handa 4
mánaða gömlu barni.
Upplýsingar í síma 7283 og 7212.
Sjúkrahúsið
Neskaupstað
Tilboð óskast í að fullgera sjúkrahúsbygginguna í
Neskaupstað.
Nú pegar er lokið við múrhúðun, hitalögn tengd,
vatns- og skolplagnir frágengnar að tækjum og loft-
ræstistokkar uppsettir að mestu.
Verkinu skal skila í þrem áföngum. Verklok eru áætl-
uð 15. nóvember 1981.
EGILSBÚÐ Ar===
Sími 7322 □□□□□□ □□□□□□□□□c
Neskaupstnð
ROCKY
Hörkuspennandi hnefaleikamynd með ítalska folanum
Sylvester Stallone. Mynd þessi var sýnd í Tónabíó
á síðasta ári við metaðsókn, 36.000 manns. — Sýnd
fimmtudag (í kvöld) kl. 9. — Hækkað verð. — Kvöld-
bann 14 ára.
NÝTT TEIKNIMYNDASAFN
Sunnudag kl. 3.
SJÖ HETJUR
Hörkuspennandi mynd með úrvalsleikurum. Aðalh.
Yul Brynnar, Eli Wallach, Steve Mc Queen, Charles
Bronson, James Coburn. Endursýnd sunnudag kl. 9.
Bönnuð innan 14. ára.
ROCKY
Sýnd mánudag kl. 8. — Bönnuð innan 12 ára. (Ath.
breyttan sýningartíma) — Síðasta sinn.
Útboðsgögn verða afhent gegn 25.000 kr. skilatrygg-
ingu á skrifstofu vorri Borgartúni 7. Reykjavík og enn-
fremur hjá sjúkrahúsráðsmanninum Neskaupstað.
NESKAUPSTAÐUR
Bæjarskrifstofurnar verða lokaðar vegna breytinga
fimmtudaginn 1. mars.
ATHUGIÐ
Hvers konar notkun bæjarmerkis og 50 ára afmælis-
merkis Neskaupstaðar er óheimil án sam}>ykkis bæjar-
yfirvalda. Þeim, sem kunna að hafa hug á að nota merk-
in við útgáfu minjagripa, korta eða einhvers annars, er
bent á að snúa sér til starfsmanns afmælisnefndarinnar,
Ágúst Ármanns Þorlákssonar, í síma 7625, Neskaup-
stað.
AFMÆLISNEFND
BÆJARSTJÓRl
Sólþurrkaður saltfiskur, sími 7174.
Bíll til sölu
Wagoneer 8 cyl. árgerð 1974, keyrður 60 jmsund km.
Tilboð — Upplýsingar í síma 97-7401, frá kl. 5—7.