Austurland


Austurland - 10.03.1983, Blaðsíða 2

Austurland - 10.03.1983, Blaðsíða 2
__________Aösturland_______________________ MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Ritnefnd: Elma Guðrnondsdóttir, GuAmnndur Bjarnason, Kribtlnn V. Jóhannssun og Þórhallur Jónasson. Ritstjóri: Smári Gcirsson: Sími 7630. Auglýsingur og dreifing: Birna Gcirsdóttir s. 7571, h. s. 7454. Pócthólf 31 — 740 Neskaupstað. Ritstjórn, afgrciðila, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupsrtað, sfntl 7571. Prentia: NESPRENT. ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á AUSTURLANDI Um húsnœðismál Einn stærsti jtátturinn í lífsafkomu manna snýr að húsnasð- ismálum. Við íslendingar höfum far um margt haft sérstöðu miðað við t. d. aðrar norrænar jtjóðir. Við byggjum stórt og dýrt, vitandi, að vísu, að vandaðar byggingar eru nauðsyn á landi hér, en staðallinn er engu að síður mjög ríflegur, svo ekki sé meira sagt. Við byggjum ekki mikið af leiguhúsnæði |). e. forysta hins opinbera eða byggingarsamvinnufélaga er þar tæpast til úrlausnar. Við höfum aðeins að litlu leyti byggt á félagslegtim lausnum, pó á j>ví hafi orðið nokkur breyting til batnaðar. Menn virðast vilja byggja eigin einbýlishús og }>au stór og dýr, jafnvel pó bestu árum ævinnar sé með því kapp- hlaupi fórnað fyrir ytri gæði meir en annað. Þessari }>róun }>arf og verður að snúa við. í fyrsta lagi knýr verðtrygging lána á félagslegar lausnir, íbúðir við hæfi með lánum til langs tíma. í öðru lagi er ijóst að j>jóðartekjur fara minnkandi, minna verður til skipta, tekjur manna einfaldlega ekki nægar til að standa undir dýrasta húsnæði. í }>riðja lagi verður að forða fólkj frá }>eim linnulausa þrældómi og streitu. óvissu og vandr- æðum, sem húsnæðisvandamál skapa og þá ekki síst, jægar menn reisa sér í upphafi hurðarás um öxl. í fjórða lagi á }>að ekki að vera nær skylda hvers manns innan við j>rítugt eða p. u. b. að vera kominn í eigið húsnæði. Leiguhúsnæði á að vera sjálfsagður |>áttur í öllu okkar húsnæðiskerfi, j>ar sem hið opin- bera kemur inn í með einhverjum hætti, eða stéttarfélög og samvinnufélög standa j>ar að. Eftir að verðtrygging lána varð staðreynd, hlýtur megin- markmið lánakerfisins að beinast að lengri lánum. hærri lán- um til lengri tíma. Félagslegar lausnir eiga að vera vaxandi jiáttur s. s. nú er um sinn og hefur verið, en )>ær leysa ekki allan vanda. Nú er veitt meira fé til félagsiegra framkvæmda í verkamannabústaðakerfið en áður, en þörfin j>að mikil, að hvergi hrekkur til. Nýir þættir í húsnæðiskerfinu s. s. lán til orkusparandi að- gerða og á ný ti| endurbóta og meiriháttar breytinga hafa reynst fjárfrekari en menn hugðu. Kaup á eldra húsnæði og lánveit- ingar til }>ess hafa farið vaxandi sem betur fer. En hvoru tveggja — félagslegar aðerðir með svo háu lánahlutfalli og nýir pætt- ir í útlánum hafa valdið pví að almenn lán eru of lág. of lágt lilutfall er lánað til of skamms tíma og þyrfti að tvöfaldast ef vel ætti að vera og lánstíminn að lengjast að mun. Þar við bæt- ist svo lakari fyrirgreiðsla bankanna. svo til vandræða horfir. Hér j>arf að brjóta blað s. s. tillögur liggja nú fyrir á Alj>ingi frá félagsmálaráðherra. En það kostar fjármuni og þá fjármuni verðum við að fá og pá fjármuni J>arf pá um leið að nýta sem skynsamlegast, f>ví við höfum sannarlega bruðlað í húsnæðis- málum okkar. f fyrsta lagi þarf að efla samvinnu ríkis og sveitarfélaga um félagslegar lausnir, sem henta hverjum stað. Hér þarf að hyggja bæði að leigu- og söluhúsnæði jöfnum höndum. Byggingarsamvinnufélög m. a. samtök ungs fólks um sameiginleg byggingarátök þarf að efla sérstaklega og veita eðlilega fýrirgreiðslu umfram j>á hefðbundnu, ef þar er rétt að staðið. Leita |>arf allra leiða til að minnka byggingarkostnað okkar sem mest. húsnæðið sé gott og öruggt án íburðar og of- hlæðis. Þar er enn mikið óunnið. Auka þarf og styðja eininga- húsaframleiðslu og gera j>au hús sem aðgengilegust m. a. með aukinni fyrirgreiðslu frá pví sem nú er. Bankarnir komi með skipulegum og beinum hætti inn í lánamyndina sem og líf- eyrissjóðirnir, |>annig að hærra lánshlutfall sé tryggt fyrr og betur en nú er. Jafnhliða séu lán úr húsnæðiskerfinu lengd s. s. kostur er. En án fjármuna verður ekkert af j>essu gert, j>etta fjár- magn má sækja inn í um margt óhófseyðslu okkar. j>etta fjár- Jóhannes Stefánsson sjötugur Frctmhcdd af 4. síðu. j>að minnsta aldrei alvarlega. Meðan Jóhannes barðist á hinum pólitíska vígvelli, sem hann hefur í raun og veru gert mest alla sína ævi og gerir enn, j>ótt hann sé ekki lengur í fremstu víglínu, var hann harðskeyttur og vígfimur. í j>ví sambandi eru mér minnis- stæðar ýmsar viðureignir hans við pólitíska mótherja á fram- boðsfundum hér fyrir bæjar- stjómarkosningar og fengu andstæðingar hans oft hinar mestu flengingar, en j>ó ekki svo að meiddi, j>ví Jóhannes var og er alltaf drengilegur. Því miður var ég aldrei áheyr- andi á framboðsfundum í N— Múlasýslu j>egar Jóhannes var j>ar í framboði, en ýmsa Norð- mýlinga hefi ég hitt, bæði mótherja og samherja okkar Jóhannesar í pólitík, sem sagt hafa mér frá snörpum og skemmtilegum orrustum hans við mótframbjóðendur sína, en par átti hann miklu fleiri aðdáendur, en nokkurn tíma urðu hans kjósendur. Það gerði „Rússagrýlan”. Drauga- trú. hvort sem hún er pólitísk eða ópólitísk. var og er kannski enn. meiri til sveita en í bæjum. Ekki verður skiiið svo við afmælisgrein um Jóhannes Stefánsson, að ekki verði minnst hér á samstarf hans við pá Bjama heitinn Þórðar- son og Lúðvík Jósepsson. Þegar ég hóf störf hér í bæ 1940 vom |>eir þremenning- amir orðnir landsþekkt stærð á sviði stjómmálanna, enda var aldrei nein pólitísk logn- molla í kringum j>á félaga. Allir vom j>eir skarpir, ein- beittir og skaprikir, eldhugar með glæsta framtíðarsýn fyrir íslenska j>jóð og j>ar með og ekki síst fyrir sína heima- byggð. Þótt allar j>eirra fram- tíðaráætlanir hafi ekki ræst, j>á hefur pó samstarf peirra skil- að ríkulegum arði til nútíðar og framtíðar, sem ég veit að framtíðin rnun skilja betur og meta, en samtíðin. í afmælisgrein um Jóhann- es má heldur elcki gJeyma j>eim félaga og samstarfs- manni. sem reynst hefur hon- um mestur og bestur á lífsleið- inni, eiginkonu hans Soffíu Björgúlfsdóttur. við samborg- arar þeirra og vinir, sem þekkt höfum þau í gegnum árin. vit- um að hjónaband þeirra hefur verið með eindæmum ástúð- legt og gott. Þau eiga tvo syni Valgarð og Ólaf og tvö barna- börn, sem ég veit að hafa orð- ið þeim til mikillar gleði og hamingju. Jóhannes! í tilefni þessara tímamóta í lífi þínu, sendum við Guðrún og böm okkar, þér og þinni fjölskyldu, ein- lægar heillaóskir, með kæru þakklæti fyrir velgjörðir og vináttu fyrr og síðar. Stefcín Þorleifsson. Ég þykist vita það að marg- ir verða til þess að senda Jóhannesi Stefánssyni kveðj- ur og árnaðaróskir á sjötugs- afmælinu og því kannski ó- þarfi af mér að leggja þar orð í belg, en þó að ég endurtaki eflaust margt af því sem aðrir drepa á j>á er í sjálfu sér ekk- ert við því að segja. það er aðeins áhersluatriði. staðfest- ina á réttmæti umsagnarinnar. Ég hefi þekkt Jóhannes allt frá því ég kom fyrst til Aust- urlands 1939, en eftir að ég settist að hér í Neskaupstað 1946 urðu kynni okkar strax mjög náin. Fyrst áttum við samleið í félagsmálum. Á þeim árum voru það fá fé- lagssamtök í bænum sem voru Jóhannesi óviðkomandi og vann hann þar mikið starf sem ég vænti að aðrir en ég minn- ist á á þessum tímamótum ævi hans. Ég vil þó geta þess að Jóhannes var í mörg ár formaður skólanefndar eins og það hét í þá daga og átt- um við þar ánægjulegt sam- starf. Jóhannes var áhugasam- ur um fræðslumál og kunni á þeim góð skil. Ég er ekki í vafa um að hann hefði orðið frábær kennari. Honum lætur svo einstaklega vel að umr gangast börn og ungmenni. Hver hefur ekki séð Jóhannes á spjalli við krakkana á göt- unni? Alltaf léttur í tali með spaugsyrði á vörum. Reyndar finnst mér Jóhann- es alltaf hafa verið uppalandi í öllum sínum þáttum. Hann er mikið snyrtimenni og þol- ir engan subbuskap hvorki utanhúss eða innan Hvers konar sóðaskapur er honum mikill þymir í augum og oft hefur hann látið til sín taka umhverfismál og snyrtingu bæjarins. Ég hefi stundum sagt við hann, að hann væri bæðj siða- og tyftunarmeistari bæjarins og færist hvort tveggja vel. í mörg ár hefur Jóhannes verið fréttaritari Ríkisútvarps- ins. Nú brá svo við að hann var fjarverandi í 2—3 mánuði á þessum vetri eryda heyrðist ekki orð frá Neskaupstað þann tíma. Við vorum eigin- lega hætt að vera til. En um leið og hann kom heim kem- ur hver fréttapistillinn af öðr- um frá Jóhannesi Stefánssyni magn má þrátt fyrir kveinstafi sækja inn í bankana og lífeyris- sjóðimir verða að leggja allir sinn skerf, og hann aukinn. en ekki svíkjast að mestu undan eins og sumir þeir best stæðu í dag. Félagsmálaráðherra sýndi það með tillögum sínum á þingi, hve öflugan bakstuðning j>ær í raun eiga, því að þeim stóðu bæði fulltrúar hinna félagslegu lausna sem og hins frjálsa framtaks. Þeim þarf því að hrinda í framkvæmd sem fyrst og Alþýðubandalagið lætur þar í engu á sér standa, ef hinir vilja fylgja því og ráðherra þess alla leið. Á það hefur því miður skort þrátt fyrir vandaðan undirbúning. — H. S. í Neskaupstað og að minnsta kosti mér. og vonandi fleirum. fannst bærinn miklu þýðing'- armeiri en áður. M. a. sagði Jóhannes frá því að ekki hefði verið lagt útsvar á elli- launafólk í Neskaupstað í áratugi. Þetta hefur Steindór Steindórsson fyrrum skóla- meistari heyrt. því að hann gerir það að umtalsefni í pistli sínum um aldraða sem ég rak augun í fyrir skömmu. Jóhannes er frábær frétta- maður. Hann hefði farið létt með starf blaðamannsins ekki síður en kennarastarfið, en j>að er með hann eins og aðra hæfileikamenn að geta unnið öll störf vel og svo var auðvit- að með ævistörfin, sem voru margvísleg og ég veit að aðrir mér færari munu gera þeim þætti skil. Ennfremur hætti ég mér ekki út í að rekja afskipti hans af stjórnmálum en þar var hann liðtækur í betra lagi. Ég dáðist alltaf að ræðum hans, bæði málflutningi og ekki síð- ur málfari. Ambögur eða bögu mæli heyrðust ekki úr hans munni. Ég vænti þess að nú þegar hann hefur dregið sig í hlé úr dagsins önn gefi hann sér tíma til að skrásetja eitthvað frá liðinnj tíð, því að hann á létt með að skrifa. Þó að hann sé aðeins sjötugur, en það kall- ast eldci hár aldur í dag þegar meðalaldur þjóðarinnar er að verða 78 ár, þá hefur hann verið þátttakandi í þróun þessa bæjarfélags frá upphafi bæði atvinnu- og menningar- lega séð. Þegar Jóhannes var sextug- ur hafði Bjarni Þórðarson við hann langt viðtal sem birtist í Austurlandi 9. mars 1973. bæði fróðlegt og skemmtilegt og gaman að rifja það upp nú 10 árum síðar. Við hjónin óskum svo Jó- hannesi langra en umfram allt góðra lífdaga og sendum honum og Soffíu bestu kveðj- ur með þakklæti fyrir langa og góða vináttu. Gunnctr Ólafsson. Mitt í þrasi og þingsins önn- um er ég á það minntur að sá síungi Jóhannes Stefánsson sé að verða sjötugur. Hlý skal kveðjan send kærum vini þó hvergi væri hér tíundað sem skyldi allt sem vert værj að minna á við þessi tímamót. Þeir frægu þremenningar frá Neskaupstað sem voru merkis- berar nýs tíma í atvinnu- og uppbyggingarsögu rauða bæj- arins eru of þekktir til þess að náið þurfi að rekja sam- starf og sameiginlega baráttu sem leiddi til þess árangurs sem er allra stolt sem unna Framhald á 3. síðu. Bíll til sölu Jbada sport árgerð ’79. Ekinn 46 þús. km. Upplýsingcir í síma

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.