Austurland - 08.12.1983, Page 2
2
FIMMTUDAGUR' 8. DESEMBER 1983.
----------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Kristinn V. Jóhannsson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir S7374.
Auglýsingar og dreifing: Áshildur Sigurðardóttir
S7629 - Pósthólf 31 — 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7571.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Stjórn aukins ójöfnuðar
Eðli núverandi ríkisstjórnar er alltaf að koma $kýr-
ar í ljós. Það fer ekkert á milli mála að hún þjónar
fyrst og síðast fjármálaöflum af ýmsu tagi, en stendur
fyrir sífelldum árásum á kjör þeirra sem minnst bera
úr býtum í þjóðfélaginu.
Nú þegar kjör launafólks h'afa verið skert meira
en dæmi er um í áratugi keppast tálsmenn ríkisstjórn-
arinnar við að boða auknar hagsbætur til handa inn-
flytjendum og peningafurstum. Bönkum skal gefið
frelsi til að stofna útibú, þann 1. febrúar skal tekin
upp hin svokallaða „frjálsa verslunarálagning“, skatt-
frelsi hlutafjár skal aukið og auknum möguleikum
til gjaldeyrissóunar er heitið. Það skal engan undra
þó talsmenn innflutningsverslunar og peningavið-
skipta brosi sínu breiðasta um þessar mundir.
Á meðan þessu fer fram leitar síðan ríkisstjórnin
að nýjum tekjustofnum fyrir ríkissjóð og eins og
vænta mátti er hún í þeim efnum fullkomlega sam-
kvæm sjálfri sér; ekki skulu auknar álögur á verslun-
ina og peningastofnanir þrátt fyrir góða afkomu þess-
ara greina eins og sést á gegndarlausri offjárfestingu
í verslunarhöllum og bankahúsnæði. Nei, ríkisstjórn-
in leitar á allt önnur mið til að auka tekjur ríkissjóðs.
Nýverið var upplýst að í heilbrigðisráðuneytinu
lægju fyrir tillögur, sem gera ráð fyrir því að sjúkling-
ar taki stóraukinn þátt í kostnaði vegna dvalar á
opinberum sjúkrastofnunum. í þessum tillögum er
m. a. gert ráð fyrir að sjúklingarnir greiði 300 kr. á
dag fyrstu 10 dagana sem þeir liggja á sjúkrahúsum
og þeir greiði einnig ákveðið fast hlutfall af lyfjakostn-
aði. Auðvitað er hér ekki um neitt annað en skatt-
lagningu að ræða og reyndar er vart hægt að hugsa
sér auðvirðilegri skattlagningaraðferð. í stað þess að
heimta aukna fjármuni frá þeim einstaklingum og
aðilum, sem eru bersýnilega aflögufærir, skal níðst
á þeim sem sjúkir eru.
Þetta sýnir betur en flest annað hvert eðli ríkis-
stjórnar Steingríms Hermannssonar er. Hún er stjórn
sem mun stuðla að auknum ójöfnuði í þjóðfélaginu,
stjórn sem mun vernda gróðabrall og brask af öllu
tagi, en skerða kjör þeirra sem minnst bera úr býtum.
Launafólk í landinu verður að bindast samtökum og
efla og styðja þann sjórnmálaflokk sem einarðlegast
berst gegn hinni ranglátu stjórnarstefnu. Það fer ekk-
ert á milli mála að sá flokkur er Alþýðubandalagið.
5. G.
FRA ALÞINGI
Aldrei fór þaö svo að menn
fengju ekki skammdegismál,
sem umræðan snerist um öðru
fremur.
Varaformaður og varaþing-
maður krata fann trulega, að
of fáir mundu muna hann og
því var um að gera að hressa
upp á það og koma nú með
bjórinn inn í fáfengilega um-
ræðu manna um frið, lífskjör
og erlenda auðhringi. Og
þjóðaratkvæði skyldi það
kosta, svona rétt eins og þegar
sveitarstjórnir ákveða at-
kvæðagreiðslu um hundahald
samfara kosningum hjá sér.
Skammdegisumræðunni var
bjargað, en alvarlegu ástandi
í áfengis- og fíkniefnaniálum
okkar bætist ekki liðsauki til
úrbóta.
Og nú muna menn hann
Magnús H. Landsfundur Al-
þýðubandalagsins vísaði til-
lögu um bjórinn frá með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða
gegn 18 og því undrumst við
félagarnir dálítið meðreiðar-
svein Magnúsar, Guðrúnu
okkar Helgadóttur.
í þessu máli á hún fáa fylgis-
menn okkar á meðal, ef
nokkra, enda hefur forystu-
sveit íslenzkra sósíalista ávallt
talið það skyldu sína að hamla
gegn öllu, sem aukið gæti
vandann í áfengismálum
okkar. En nóg um bjórinn.
Ríkisfjölmiðlarnir
til skammar
Undarlegar eru fréttir ríkis-
fjölmiðlanna. Þar er því slegið
upp sem miklum tíðindum, að
Sverrir Hermannsson sé farinn
að upplýsa síðustu svik ÍSALS
og hefur án efa margur
hugsað: Batnandi manni er
bezt að lifa. Ekki var vikið að
því einu orði að þessar upplýs-
ingar þurfti Hjörleifur að toga
með töngum upp úr Sverri. I
annarri atrennu tókst loks að
fá svör og mátti greina hryggð
í rómnum að þurfa að upplýsa
Alþingi um einkavinina góðu.
Þáttur ríkisfjölmiðlanna var til
skammar svo sem oft áður.
Umræðunnar í heild að engu
getið, enda var frammistaða
sjálfstæðismanna slík að meira
að segja Mogginn hefur
kveinkað sér við að birta, enda
var ekki annað að heyra á þeim
Birgi ísleifi og Gunnari
Schram en þeir væru talsmenn
álhringsins að ógleymdum
sjálfum ráðherranum. Því
hryggilegra og alvarlegra er
þetta sem staðreyndin er sú að
nú fara þessir menn með æðstu
völd þessara mála. En suður í
Sviss hafa menn fagnað og
hugsað hlýlega til heiðurs-
mannanna nýju, sem þeir herr-
ar sögðu í sumar, að væru
mjög hagstæðir fyrir álhring-
inn. Og eflaust lofa þeir
Mammon sinn fyrir að vera nú
lausir við erkióvininn Hjörleif
úr valdastóli.
Öflugur
stuðningur við
landbúnaðinn
Stefnumörkun Alþýðu-
bandalagsins í landbúnaðar-
málum liggur nú fyrir, flutt af
Steingrími J. Sigfússyni og
öðrum þingmönnum flokks-
ins. Þar er megináherzla lögð
á landnýtingu, kjarajöfnun og
hagsmuni bænda jafnt og neyt-
enda.
Þar er kveðið upp úr um öfl-
ugan stuðning flokksins við
blómlegan landbúnað og
nauðsyn byggðar sem víðast í
landinu. Er vel að flokkurinn
skuli svo myndarlega á málum
taka og leggja þar með áherzlu
á landbúnaðinn sem einn
helzta hyrningarstein íslenzks
atvinnulífs.
Þá hafa þeir Helgi, Skúli og
Steingrímur endurflutt tillög-
una um nýtingu bújarða sem
dvalarheimili fyrir aldraða.
Tómlega hefur tillögunni verið
tekið á þingi hingað til, en hún
hefur vakið verðuga athygli og
stuðning þeirra, er fást við úr-
lausn á málefnum aldraðra.
Tillagan er komin frá bænda-
fólkinu sjálfu og það veit betur
en aðrir hvar skórinn kreppir.
I utanríkismálum ber æ
meira á eingangrun íhaldsins.
Að vísu vita menn lítt um vilja
meirihluta framsóknarmanna,
en þar ganga þó einstaka upp-
réttir gegn Geirslínunni, vit-
andi um vilja kjósenda sinna,
sem enn eru fjölmargir gegn
þjónkunarstefnunni við er-
lenda herra.
Fróðlegt verður að fylgjast
með umræðunni um friðarmál-
in og fá innsýn í stefnu flokk-
anna, alveg sér í lagi ráðherra
Framsóknar, sem virðast í
einu og öllu fylgja Geir. Þögn
þeirra mun a. m. k. staðfesta
það.
H. S.
I7I4SVJN
VERSLUN — VIDEÓ S7707 Handskorin VERSLUN — VIDEÓ S7707
íslensk skrautkerti
I Bamafatnaður ýmiss konar Sænsktrévaia Ódýr jólapappír
Puma íþróttagallar úr furu Jólakort
Puffins kuldaskór Glös Jólamerki'
á alla fjölskylduna Silfurplett Jólatré
Inniskór á konur og karla Kertastjakar Jólaljós
Fingravettlingar á Vinsælu Og alls konar
dömur og herra sjússamælamir jólaskraut
komnir
UÉM2M Lítið inn!
VERSLUN — VIDEÓ Opið alla daga VERSLUN — VIDEÓ
S7707 kl. 1 - 6 ®7707