Austurland - 08.12.1983, Síða 6
Austurland
Neskaupstað, 8. desember 1983.
®7222
Slökkvilið
Neskaupstaðar
ÞAÐ ER LÁN f AÐ SKIPTA VIÐ
Auglýsingasími
AUSTURLANDS SPARISJÓÐINN
er 7629 Sparisjóður Norðfjarðar
Tónskóli Fljótsdalshéraðs:
Öll strokfjölskyldan
1 gangi
Tónskóli Fljótsdalshéraðs
hóf 13. starfsár sitt í sept. sl.
Nemendur í skólanum eru nú
92 þar af 20 í undirbúnings-
deild.
f skólanum er kennt á flest
hefðbundin hljóðfæri s. s. pí-
anó, gítar og blásturshljóðfæri.
Pá bættist við kennsla á strok-
hljóðfæri fyrir ári síðan, er ung-
ur Englendingur, David
Knowles, hóf störf við skólann.
En hann er menntaður píanó-
og cellóleikari. Nú eru 19 nem-
endur á strokhljóðfæri. Er öll
strokfjölskyldan í gangi, þ. e.
fiðla, víóla, celló og kontra-
bassi.
Kennsla fer aðallega fram í
Egilsstaðaskóla og Egilsstaða-
kirkju.
Málverkasýning
á Djúpavogi
Gréta Jónsdóttir opnar mál-
verkasýningu í Héraðsbóka-
safninu á Djúpavogi laugardag-
inn 10. des. nk.
A sýningunni verða 16 vatns-
litamyndir, 50 olíumálverk og 7
ámálaðar rekaspýtur.
Petta er 3. einkasýning Grétu
en hún býr nú á Hamri í Ham-
arsfirði. Verkin á sýningunni
eru öll til sölu og sýningin verð-
ur opin til 18. des. nk.
Aðventusamkoma
í Norðfjarðarkirkju
A sunnudaginn kemur, 11.
desember, kl. 2 e. h. verður að-
ventusamkoma í Norðfjarðar-
kirkju. Þessi aðventusamkoma
verður að mestu leyti tónlist sem
tengist jólum og aðventu.
Kirkjukór Norðfjarðarkirkju
syngur jóla- og aðventulög und-
ir stjórn organistans, Agústar
Ármanns Þorlákssonar. Ágúst
mun einnig leika einleiksverk á
orgelið. Þá verður samleikur á
orgel og þverflautu sem Ágúst
og Hildur Þórðardóttir leika.
Eftir samkomuna í kirkjunni
verður kaffisala í Safnaðarheim-
ilinu á vegum kirkjukórsins. Þar
ætlar kirkjukórinn að syngja
nokkur létt lög.
Undanfarin ár hafa aðventu-
kvöldin í Norðfjarðarkirju verið
vel sótt. í ár breytum við svolítið
til og væntum þess að Norðfirð-
ingar fjölmenni á sunnudaginn
í kirkjuna.
Auk stundakennara eru tveir
fastráðnir kennarar við skólann
og þrír stundakennarar.
Þá var í haust stofnuð deild
frá skólanum úti á Eiðum. Þar
er nú kennt á píanó, blokkflautu
og gítar. Sjá þau Helga Þór-
hallsdóttir og Stefán Jóhanns-
son um þá kennslu.
Þar sem ekki fékkst fjárveiting,
eins og lög um tónlistarskóla gera
ráð fyrir til að reka þessa deild,
ber Eiðahreppur einn kostnaðinn
af framtaki þessu.
Hefðbundnir jólatólnleikar
skólans fara fram í Egilsstaða-
kirkju 15. desember nk.
David segir nemanda sínum Védísi Ingólfsdóttur til á fiðlu.
Ljósm. M. M.
4. bindi
Eskju
Út er komið 4. bindi „Eskju
- bókarinnar um Eskifjörð" eft-
ir Einar Braga. Fjallar það um
sögu verkalýðshreyfingarinnar
á staðnum og er 264 síður, prýtt
220 myndum. Á næsta ári eru
80 ár frá stofnun fyrsta verka-
mannafélags á Eskifirði. Það
varð skammlíft, en haustið 1914
var stofnað Verkamannafélagið
Árvakur, sem enn starfar.
Verkakonur voru í sérstöku fé-
lagi, Framtíð, frá 1918 til 1971,
er félögin sameinuðust undir
nafni Árvaks. Er það eitt hið
elsta og langfjölmennasta félag-
ið í bænum og gætir hagsmuna
bæði sjómanna og landverka-
fólks. Vegna fyrrnefndra tíma-
Gömul mynd af húsi Verkalýðsfélagsins Árvakurs.
móta ákvað Árvakur að standa
straum af kostnaði við útgáfu
þessa bindis Eskju.
Liðin eru 17 ár frá því er
undirbúningur hófst að skrán-
ingu á sögu Eskifjarðar og 12 ár
síðan fyrsta bókin kom út. Hef-
ur sérstök byggðarsögunefnd
unnið að framgangi málsins í
nánu samstarfi við höfundinn.
Alls eru þessi fjögur bindi yfir
1200 síður og myndir á sjöunda
hundrað. Er stefnt að því að
ljúka meginverkinu fyrir 200 ára
afmæli kaupstaðarins, en Eski-
fjörður var einni þeirra sex ís-
lensku verslunarstaða, sem hlutu
kaupstaðarréttindi 18. ágúst
1786. Síðan hafa menn hug á að
halda útgáfu söguritsins Eskju
áfram um ókomin ár eftir því sem
efni fellur til og ástæður leyfa.
Á hlífðarkápu er litmynd af
Hólmatindi eftir Bolla Davíðs-
son. Útgefandi er Byggðarsögu-
nefnd Eskifjarðar.
Leikfélag
Neskaupstaðar:
Frumsýning
á föstudag
Leikfélag Neskaupstaðar
fumsýnir leikritið „Hjálpar-
sveitin“ eftir Jón Steinar
Ragnarsson nk. föstudag.
Þetta er 33. leikrit sem leikfé-
lagið setur upp, nútíma leikur
sem er saminn í tilefni „árs
aldraðra“. Að þessu sinni er
það yngri kynslóðin sem
spreytir sig í öllum hlutverk-
um.
Leikfélag Neskaupstaðar
hefur ekki sett á svið leikrit í
2 ár, og er þetta skemmtileg
tilraun með ungu fólki til að
endurvekja leiklistaráhuga á
staðnum.
Leikstjóri er Sólveig
Traustadóttir.
Næg atvinna
á Borgarfirði
Atvinnuástand hefur verið
gott í haust á Borgarfirði. En
það ástand gæti breyst ef gæftir
verða stirðar og engin síld berst
hingað á land. í október hafa
bátarnir lítið getað róið vegna
óhagstæðs veðurs, en þrátt fyrir
það hefur fólk haft vinnu við
saltfisksverkun, en talsvert var
saltað af fiski í sumar.
Margir vonuðust eftir vinnu
við síld í haust en þær vonir urðu
að engu, því aðeins einn smá-
slatti af síld barst hingað í haust.
Pétur.
Ný bók:
Norðfjörður - saga útgerðar og fiskvinnslu
Um þessar mundir er að
koma út bókin Norðfjörður -
saga útgerðar og fiskvinnslu eft-
ir Smára Geirsson skólameist-
ara í Neskaupstað. Bókin er gef-
in út af Samvinnufélagi útgerð-
armanna og Síldarvinnslunni hf.
í Neskaupstað í tilefni af því að
á árinu 1982 voru 50 ár liðin frá
stofnun fyrrnefnda félagsins og
25 ár frá stofnun hins síðar-
nefnda.
Bók þessi er sagnfræðileg út-
tekt á helstu þáttum norðfirskr-
ar atvinnusögu allt frá þeim
tíma áð fiskvinnsla og útgerð
varð sjálfstæður atvinnuvegur í
byggðarlaginu. í bókinni er
fjallað um ýmsa þætti er snerta
atvinnuþróun á Austfjörðum & r • ri '
þessum tíma og er því óhætt að CjtlY öYYl(XY(l CjeiYSSOYl
fullyrða að ritið höfðar ekki ein-
vörðungu til Norðfirðinga,
heldur einnig til allra sem áhuga
hafa á austfirskri atvinnusögu
og sögu sjávarútvegs almennt.
Norðfjörður - saga útgerðar
og fiskvinnslu er tæplega 380
blaðsíður í stóru broti og eru
um 300 ljósmyndir í bókinni.
Formála ritar Lúðvík Jóseps-
son, formaður stjórnar Sam-
vinnufélags útgerðarmanna.
Prentsmiðjan Hólar hf. ann-
aðist vinnslu bókarinnar, en
Árni Pétursson hannaði kápu.
Innkaupasamband bóksala ann-
ast dreifingu.