Austurland


Austurland - 01.03.1984, Síða 1

Austurland - 01.03.1984, Síða 1
Austurland Alþýðubandalagið Neskaupstað: Félagsvist í Egilsbúð kl. 845 í kvöld 34. árgangur. Neskaupstað, 1. mars 1984. 9. tölublað. Kvótinn kominn Nú þessa dagana eru útgerð- armenn fiskiskipa stærri en 10 lestir að fá í hendur yfirlit yfir það aflamagn sem sjávarútvegs- ráðuneytið ætlar þeim að veiða á þessu ári. Hafa ýmsir hrokkið við þegar þeir hafa séð hver hlutur þeirra er í heildarkvótan- um. Austfjarðatogararnir fara illa að því leyti út úr kvótaskipting- unni. að þorskur hefur verið hátt hlutfall af afla þeirra undanfarin ár og þar sem skerð- ingin er mest á þorski þá skerð- ist kvóti þeirra tiltölulega mest. Eftir því sem undirritaður kemst næst þá er aflamagn Austfjarðatogaranna frá 2400 - 2900 tonn og af því þorskur 1050 - 1200 lestir. Bátar undir 10 lestum fá ekki sér kvóta heldur er heildarkvóti yfir allt landið. Smærri bátum er skammtaður afli sem hér segir: Verkalýðsfélag Norðfirðinga samþykkir samningana Á fundi í Verkalýðsfélagi Norðfirðinga sl. þriðjudag voru nýgerðir kjarasamningar milli Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands samþykktir með þorra atkvæða gegn þremur, en 30- 35 manns voru á fundinum. Sem kunnugt er af fréttum eru nýgerðir kjarasamningar umdeildir, en langflest verka- lýðsfélög hafa samþykkt þá. Sigfinnur Karlsson forseti Alþýðusambands Austurlands var einn af þcim sem skrifaði undir samninginn syðra og leggur því til við félögin hér eystra að hann verði samþykkt- ur. í stuttu samtali við blaðið sagði Sigfinnur að hann hefði stutt samningana vegna þess að hann mæti stöðuna þannig aö ekki væri hægt aö ná fram samningum með átökum á vinnumarkaðinum. sem skiluðu launafóki betri árangri en þessir samningar. Pó sagði Sigfinnur að eitt ákvæði í samningnum væri afar slæmt og það væri að miða lágmarkstekjur við 18 ár í stað 16. - Slíkt væri skref aftor á bak. en því ákvæði hefði.<verið hnekkt í Neskaupstað og vænti hann þess að önnur félög fengju þetta líka í gegn. G. B. Tímabil 1 Tímabil 2 Tímabil3 Tímabil 4 jan-apríl maí-júní júlí-ágúst sept.-des. Árið allt tonn.ósl. tonn, ósl. tonn, ósl. tonn, ósl. tonn. ósl. 1. Þorskur .... . . . 1 350 2 500 3 230 1 220 8 300 2. Ýsa . . . 100 70 130 400 700 3. Ufsi 80 200 820 200 1 300 4. Karfi — — — — — 5. Skarkoli .... . . . 5 5 15 25 50 6. Grálúða .... . . . — — — — — 7. Steinbítur . . . . . . 100 160 80 110 450 Menn skulu taka eftir að í töflunni er miðað við óslægðan fisk. Á síðasta ári fengu trillur á Norðfirði undir 10 lestum í kringum 1000 lestir af þorski þannig að ljóst er að einhver verður nú skerðingin hjá smærri bátunum. G. B. Frá Hreppsmálaráði AB á Egilsstöðum Hreppsmálaráðið heldur fund um umhverfismál mánudaginn 5. mars kl. 20:30 að Dynskógum 3 (kjallara) Allir félagsmenn AB eru hvattir til að koma og láta ljós sitt skína. Stjórnin Aukin þjónusta í angnlækningum Kvótinn bitnar ekki síður á trillum en togurum. Undanfarin ár hefur Fjórð- ungssjúkrahúsið í Neskaupstað eignast fullkominn tækjabúnað til augnlækninga. Það er Lions- klúbbur Norðfjarðar sem hefur staðið fyrir fjársöfnun með ýmsu móti og tækin hafa verið valin í samráði við Friðbert Jón- asson augnlækni. Friðbert hefur verið í Nes- kaupstað undanfarið og við tókum hann tali og spurðum um tækin. Austfirðingar afla drjúgt Ríflega þrír fjórðu af út- að verðmæti um 3.5 milljarðar flutningsverðmæti okkar er króna upp úrsjó. Hlutur Aust- fiskur og fiskafurðir. firðinga í þessum afla var tæp Á árinu 1982 var heildarafli 115 þús. tonn að verðmæti 460 landsmanna rúm 785 þús. tonn millj. króna. í þjóðarbúið Ef borinn er saman afli ein- stakra landshluta miðað við íbúafjölda kemur dæmið þannig út: Aust- Suður- Reykja- Vestur- Vest- Norðurl. Norðurl. firðir land nes land firðir vestra eystra Bolfiskafli á íbúa (tonn) . . . Heildarafli á íbúa (tonn) . . . 6.04 4.58 1.40 8.78 5.58 1.57 4.35 7.36 2.50 3.04 5.30 9.07 3.21 3.39 Aflaverðmæti á íbúa (þús. kr.) 35.07 21.09 6.20 23.03 40.57 15.24 14.94 Mannfjöldi 1. 12. 1982 . . . . 13.068 19.824 140.143 15.109 10.452 10.770 26.087 Á töflunni sést vel hve stór hlutur Vestfirðinga og Austfirðinga-og raunar landsbyggðarinnar allrar er. Það væri ekki amalegt að geta sjálfir ráðstafað þeim gjaldeyri sem fyrir þennan afla fæst. Krjóh. - Þessi tækjabúnaður gerir kleift að veita þá þjónustu, sem á að veita á stofum og hcilsu- gæslustöðvum. Og nú voru að bætast við tækjaeignina verk- færasett til ýmissa smærri augn- skurðlækninga vegna aðgangs að skurðstofu hér. Hverju breytir það fyrir heimamenn? - Það er auðvitað geysilega hagkvæmt t. d. fjárhagslega, hvort sem á það er litið frá sjón- armiði sjúklings eða ríkisins að geta gert hér aðgerðir sem spara ferðalög til Reykjavíkur og dvöl þar. Sem lítið dæmi má nefna að ég gerði í gær aðgerð með einu þessara tækja. Þetta tæki kostaði minna í innkaupi en ferð þessa eina sjúklings suður. Tæk- ið dugar hinsvegar í mörg ár og margar aðgerðir. Hvernig er aðstaðan fyrir augnlækna hér? - Hún er orðin mjög góð og hér er hægt að veita alla þjón- ustu nema stærri aðgerðir á aug- um. Þörfin er líka mikil. Ég kem á um það bil 6 mánaða fresti og hitti 350 - 400 mannsá ári. Sá tækjabúnaður sem Fjórðungs- sjúkrahúsið ræður nú yfir gerir kleift að flytja þessa þjónustu til fólksins í stað þess að flytja allt fólkið til þjónustunnar í Reykjavík. Krjóh. Félagar í Lionsklúbbi Norðfjarðar ásamt Friðberti Jónassyni augn- lœkni við smásjá til augnskoðunar, sem þeir afhentu FSN ífyrra. Ljósm. Sig. Amf.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.