Austurland - 07.06.1984, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR, 7. JÚNÍ 1984.
----------Austurland--------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Kristinn V. Jóhannsson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Ólöf Þorvaldsdóttir S7374.
Auglýsingar og dreifing: Ólöf Þorvaldsdóttir
S7629 - Pósthólf 31 - 740 Neskaupstað.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7571.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Allt er að stöðvast
„Er samstaða um það í ríkisstjórninni að leggja
fiskveiðar og fiskvinnslu í rúst og iandsbyggðina í
eyði?“
Þannig spyr Ragnhildur Kristjánsdóttir frá Eski-
firði í grein í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Ragn-
hildur rekur með öðrum útgerðar- og fiskvinnslufyr-
irtæki og þekkir því til hlítar þau mál sem hún fjallar
um í grein sinni.
Hún minnir þingmenn á sína miklu ábyrgð og segir:
„En nú held ég að þeir ættu að staldra við og hugsa
um hvar þeir ætla að taka peninga til að byggja fyrir
í Reykjavík þegar þeir verða búnir að flæma bróður-
partinn af fólkinu við sjávarsíðuna burt, til sín í
sæluna náttúrlega.“ Og hún lýsir þvf hvernig ástandið
er orðið og segir: „Það er mannskemmandi og niður-
lægjandi að vera vanskilamaður til langframa, eins
og sjávarútvegsfyrirtækin eru nú orðin. Við krefj-
umst þess að úr verði bætt án tafar. Við krefjumst
þess réttlætis að fá að standa undir þjóðarbúskapnum
án þess að atvinnutækin étist upp í vanskilum og
dráttarvöxtum, og án þess að við sjálf bíðum tjón á
sálu okkar við að reyna að halda í horfinu.“
Þessi hörðu orð Ragnhildar Kristjánsdóttur eru
því miður aðeins raunsönn lýsing á ástandinu í ís-
lenskum sjávarútvegi nú, og hafi einhver efast ætti
hann að sannfærast eftir að forráðamenn fyrirtækja
á Austfjörðum hafa ákveðið að hætta veiðum frá 24.
júní nk. Slíka ákvörðun taka menn ekki fyrr en allt
um þrýtur, en nú er svo komið að eigið fé fyrirtækj-
anna er uppurið og lánsmöguleikar fullnýttir svo í
raun er sjálfhætt.
Hvernig getur svona ástand skapast? Hvernig
þjóðfélag er það sem þannig býr að undirstöðuat-
vinnuvegi sínum? Hvernig getur setið við völd ríkis-
stjórn sem er svo gjörsamlega úr tengslum við at-
vinnulíf landsmanna að hún skilji þetta ekki?
Það er 15 - 25% tap á útgerð skuttogara, 5% tap
á saltfiskverkun og frystingin er á núlli og stefnir í
tap vegna birgðasöfnunar og óhagkvæmari samsetn-
ingu framleiðslunnar en gert var ráð fyrir. Samkeppn-
isaðstaða sjávarútvegsins gagnvart öðrum atvinnu-
vegum innanlands hefur stórversnað og það sem
meira er um vert - gagnvart sjávarvöruframleiðslu
annarra þjóða á erlendum mörkuðum. Stjórnvöld
virðast alls ekki gera sér grein fyrir þeirri vá sem
fyrir dyrum er hjá þeim atvinnuvegi sem í raun stend-
ur undir því velferðarríki sem hér hefur verið og
undir 75 - 80% af allri gjaldeyrisöfluninni.
Verði ekki brugðist hart við og farið að ráðum
þeirra manna, sem gjörþekkja sjávarútveginn stoppa
ekki bara skipin á Austfjörðum heldur um allt land
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir land og þjóð.
Krjóh.
Lúðvík
sjötugur
Lúðvík Jósepsson
fyrrum ráðherra verður
sjötugur laugardaginn 16.
júní næstkomandi.
Lúðvík verður staddur
í Neskaupstað á afmælis-
daginn og vinir hans og
félagar hafa ráðgert að
halda afmælisbarninu hóf
í Egilsbúð þann dag.
Nánar verður sagt frá
þessu í næsta tölublaði
AUSTURLANDS.
Kirkja
Hátíðarmessa í Norðfjarðar-
kirkju hvítasunnudag kl. 1030
f. h.
Athugið breyttan messutíma.
Sóknarprestur.
Dýptarmælir
í góðu lagi óskast
Upplýsingar 0 2425
á kvöldin
Sambýli á Egilsstöðum
Starfsfólk óskast
Sambýli fyrir fatlaða á Egilsstöðum tekur til
starfa 1. september nk.
Ó skum því eftir að ráða forstöðumann frá 15.
ágúst og starfsmenn frá 1. sept. nk.
Sambýlið er ætlað andlega hömluðu fólki og
er fyrir 6 íbúa
Umsóknir sendist til:
Svæðisstjórn Austurlands
um málefni fatlaðra
Vonarlandi Egilsstöðum
fyrir 15. júní nk.
Uppl. 0 97-3805 eftir kl. 1900
NESKAUPSTAÐUR
Frá Heilbrigðisnefnd
Neskaupstað
Norðfirðingar og bændur í Norðfjarðarsveit
Fegrum bæinn og sveitina, fjarlægjum allt
drasl af lóðum okkar
Það ber öllum, sem umráðarétt hafa yfir
lóðum, að hreinsa þær og lagfæra
Einnig eru þeir bæjarbúar sem kunna að eiga
óþarfa hluti á opnum svæðum beðnir um að
fjarlægja þá
Bíll fer um bæinn og hirðir rusl dagana 14. og
15. júní
Heilbrigðisfulltrúi
Sjómannadagsráðþakkar öllumþeim sem lánuðu myndir tUsýningar sl. sjómannadag.
Við vonum að okkur verði vel tekið síðar þegar við fölumst eftir myndum úr þessu
fjölbreytta safni tU birtingaríSjómannadagsblaðinu okkar. Þessa dagana er verið að
skUa myndunum til réttra eigenda. Ef einhver telur sig vanta mynd að 2 — 3 vikum
liðnum er viðkomandi beðinn að snúa sér tU Magna Kristjánssonar. Því miður kom
ekki fram á sýningu myndanna hver annaðist hina smekklegu uppsetningu
sýningarinnar, en það var Þuríður Una Pétursdóttir myndmenntakennari.
ALGJORAR TOPPlVEYTsroiR - ALLT NYTT!
10 to Midnight (Charles Bronson)
Leitin að dvergunum (Peter Fonda)
Bad Boys (Götustrákar)
2 Áfram (Carry On) myndir
The Hunter (Steve McQueen)
Önnur tilraun
Airplain (Stórkostleg gamanmynd)
Going South (Grín-vestri
m/Jack Nicholson)
China Town (Jack Nicholson, Faye
Dunaway. Leikstj.: Roman Polanskr
Myndinvartilnefndtil 10 Óskars-veiðlauna)
The Last American Virgin
(Bráðfyndin gamanmynd)
Munið langtímaleiguna
OPIÐ ALLA DAGA 1 - 9
VERSLUN — VIDEO