Austurland - 23.08.1984, Page 4
Austurland Neskaupstað, 23. ágúst 1984. Auglýsingasími AUSTURLANDS er 7756 /^EFLUM HEIMABYGGÐINjAígí, 'S' SKIPTUM VIÐ ' SPARISJÓÐINN Sparisjóður Norðfjarðar
Knýjandi úrbætur
á Norðfjarðarvegi
Nýr
framkvæmdastj óri
Egilsbúðar
Þaö er mál manna, sem vel
þekkja til þjóövega landsins, að
hvergi sé að finna annað eins
torleiði og í brekkunum ofan
Eskifjarðar á leiðinni til Norð-
fjarðar. Þar fer saman mikill
bratti, beygjur og afar slæmt
ástand vegarins með „þvotta-
bretti“, gróti og skorningum.
Hér er um að ræða eins konar
bráðabirgðaslóð frá því Odds-
skarðsvegur var tengdur þjóð-
vegakerfinu fyrir 35 árum og lít-
ið sem ekkert gert í viðhaldi á
undanförnum árum.
Nú lofar Vegagerðin endur-
bótum í haust, sem raunar var
gefinn ádráttur um strax í fyrra
í framhaldi af lagfæringum á efri
hluta leiðarinnar upp að jarð-
göngum sumarið 1982.
Er gert ráð fyrir viðgerð og
styrkingu á kaflanum frá Sand-
skeiði niður í Eskifjarðar-
kaupstað, en ekki eru neinar
Nú um helgina og í næstu viku
verða haldin Austurlandsmót í
knattspyrnu í öllum flokkum.
Keppt verður á þremur stöðum,
í Neskaupstað, á Eskifirði og í
Breiðdal.
í Neskaupstað verður keppt í
6. flokki laugardaginn 24. ágúst
og hefst keppnin klukkan 10. 9
lið keppa í tveimur riðlum og er
Ieikið þvert á völlinn og notuð
lítil mörk.
Á Eskifirði veðrur keppt í 5.
og 3. flokki. 6 lið eru skráð til
leiks í 5. flokki og 3 í 3. flokki.
Keppnin fer fram sunnudaginn
25. ágúst og hefst klukkan 11.
Fimmtudaginn 30. ágúst
Alþýðubandalagið í Nes-
kaupstað kýs ritnefnd AUST-
URLANDS ár hvert til eins árs
í senn. Á félagsfundi 15. ágúst
sl. var kosin ný ritnefnd. í henni
eiga sæti: Einar Már Sigurðar-
son, Elma Guðmundsdóttir,
Guðmundur Bjarnason, Smári
Geirsson og Þórhallur Jónas-
son. Er það sama fólkið og sat
í ritnefndinni síðasta ár, nema
Einar Már Sigurðarson, sem
kemur inn í ritnefndina í stað
breytingar á veglínunni þessu
samfara.
Þá er í athugun nýtt vegar-
stæði á Norðfjarðarvegi upp úr
Eskifirði og hyggst Vegagerðin
ljúka á næsta vetri útfærslu á
mismunandi leiðum, sem þar
koma til álita, þannig að
ákvörðun megi taka við endur-
skoðun vegaáætlunar.
Þeir sem um Norðfjarðarveg
aka, eru að vonum langþreyttir
á því ófremdarástandi, sem ríkt
hefur. Þær úrbætur, sem ráð-
gerðar eru í haust, hefðu þurft
að koma fyrr, en verða vel
þegnar.
Jafnframt þarf að þrýsta á um
uppbyggingu framtíðarvegar
milli Eskifjarðar og Norðfjarð-
ar. Fátt skiptir íbúa byggðarlag-
anna meira en greiðar sam-
göngur, því að öll samskipti efl-
ast í kjölfarið.
veður keppt í 4. flokki og fer
keppnin fram í Neskaupstað. 6
lið eru skráð til leiks og hefst
keppnin klukkan 14.
Helgina 1. og 2. september
verður keppt í Breiðdal í meist-
araflokki karla og kvenna. í
karlaflokki keppa 8 lið en aðeins
tvö í meistaraflokki kvenna.
Keppnin í Breiðdal hefst klukk-
an 12 báða dagana.
Það verður því nóg um að
vera í knattspyrnunni á næst-
unni og í framhjáhlaupi má geta
þess að á morgun klukkan 19
keppa Austri og Þróttur í Nes-
kaupstað í íslandsmóti 3. deild-
ar. G. B.
Kristins V. Jóhannssonar, sem
baðst undan endurkosningu.
Um leið og AUSTURLAND
óskar nýrri ritnefnd alls góðs í
starfi, vill blaðið þakka Kristni
V. Jóhannssyni störf hans í rit-
nefnd í harntær 20 ár, þar sem
hann hefir alla tíð verið sérstak-
lega góður liðsmaður. Væntir
AUSTURLAND þess, að það
fái að njóta skrifa hans og eigi
hann áfram að, þó að hann hverfi
úr ritnefndinni nú. Ritstj.
Iðunn Haraldsdóttir.
Aðalfundur Alþýðubanda-
lagsins í Neskaupstað var hald-
Allt síðan haustið 1982 hefur
verið starfrækt öldungadeild við
Menntaskólann á Egilsstöðum.
Hefur starfsemi þessi mælst vel
fyrir bæði hjá nemendum og
kennurum og vinsældir deildar-
innar farið vaxandi. Nú á haust-
önn 1984 verður ýtt úr vör í
fimmta skipti og boðið upp á
kennslu í sex greinum. Þeir
áfangar, sem kenndir verða nú
í haust eru: Enska (ENS 103),
rekstrarhagfræði (HAG 103),
félagsfræði eða sagnfræði (FÉL
103 eða SAG 103) og lögfræði
(LÖG 113). Allir þessir áfangar
eru byrjunaráfangar og öllum
opnir. Auk þess verða kenndir
famhaldsáfangar í vélritun og
tölvuritvinnslu.
Skráning nemenda stendur
nú yfir og fer hún fram á skrif-
stofu skólans, sem opin er alla
virka daga frá 8 til 12. Einnig er
Efnt verður til námskeiðs í
trjá- og skógrækt í Húsmæðra-
skólanum á Hallormsstað dag-
ana 1. -7. sept nk. Námskeiðið
er samsvarandi þriggja eininga
áfanga framhaldsskóla en ann-
ars eru allir, sem áhuga hafa á
velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir, en nokkur sæti eru nú laus.
Námskeiðið samanstendur af
verklegum æfingum, fyrirlestr-
um og myndasýningum. Meðal
námsþátta eru: kynning á skóg-
ræktarstarfi, bygging, starfsemi
og flokkun plantna, plöntu-
greining og plöntusöfnun, líf-
verur í trjám og runnum, vist-
fræði skógarins og framvinda,
plöntuuppeldi, gróðurnýting og
Þann 15. ágúst urðu fram-
kvæmdastjóraskipti við félags-
heimilið Egilsbúð í Neskaup-
stað. Þá lét Elma Guðmunds-
dóttir af starfi framkvæmda-
stjóra eftir að hafa gegnt því í
inn fyrir skömmu og þar m. a.
fjallað um ýmis félagsleg og
hægt að skrá sig hjá áfangastjóra
í síma 1684. Miðað er við, að
kennsla hefjist mánudaginn 10.
september og skráningu verður
að ljúka í seinasta lagi föstudag-
inn 7. september. Gjald fyrir
fullt nám á hustönn 1984 er 1800
krónur og greiðist við skrán-
ingu. Fullt nám er það nám, sem
telur 9 einingar (t. d. 3 byrjun-
aráfangar) eða meira. Stundi
nemandi nám í minna en 9 ein-
ingum minnkar gjaldið í sam-
ræmi við það. Heimilt er að
endurgreiða námsgjaldið hverfi
nemandi frá námi í upphafi
annar.
Allir þeir sem áhuga hafa á
starfi öldungadeildar Mennta-
skólans á Egilsstöðum á haust-
önn 1984 eru hvattir til að hafa
samband við skólann sem fyrst.
flokkun plantna, umhirða skóga
og nýting.
Auk þessa er veitt fræðsla
með myndasýningum um: starf
skógræktarfélaganna, umhverf-
isvernd og náttúrusamtök, land-
nýtingu - landeyðingu o. fl.
Leiðbeinendur á námskeið-
inu verða: Jón Loftsson, skógar-
vörður, Hallormsstað, Skarp-
héðinn Þórisson, líffræðingur,
Þórður Júlíusson, líffræðingur.
Kostnaður: gisting, kennsla
og fullt fæði er kr. 3000.-.
Tekið er á móti umsóknum í
Menntaskólanum á Egils-
stöðum í síma 1684, milli kl. 9
og 12 virka daga.
Fréttatilkynning
tæp þrjú ár. Við framkvæmda-
stjórastarfinu tók Iðunn Har-
aldsdóttir. Síðastliðin fimm ár
hefir hún unnið á skrifstofu Líf-
eyrissjóðs Austurlands í Nes-
kaupstað.
flokksleg málefni. Starf félags-
ins var þróttmikið á síðasta
starfsári.
Töluverð mannaskipti urðu
nú í stjórn félagsins og m. a.
formannsskipti. Fráfarandi for-
maður félagsins, Bergþóra Ara-
dóttir, er flutt úr bænum.
Stjórn ABN fyrir næsta starfs-
ár skipa: Viggó Sigfinnsson,
formaður, Kristín Lundberg,
varaformaður, Ragnar Guð-
mundsson, ritari, Valur Þórar-
insson, gjaldkeri og Kristinn
ívarsson, meðstjórnandi. Vara-
stjóm skipa Einar Þórarinsson
og Klara ívarsdóttir.
B. S.
Virkjunarvegur
í Fljótsdal
í tíð fyrri ríkisstjórnar var
mótuð um það stefna um leið
og lög voru sett um Fljótsdals-
virkjun, að framkvæmdaundir-
búningi og framkvæmdum við
virkjunina yrði dreift á nokkurt
árabil, m. a. til að auðvelda
heimamönnum hlutdeild í verk-
efnum. í samræmi við þetta var
uppbygging virkjunarvegar í
byggð inn Fell og Fljótsdal hafin
á árinu 1982, en verulega var
dregið úr því verki á síðasta ári.
Nú er vinna að hefjast á ný
við virkjunarveginn og ráðgert
að verja til hans 8 millj. kr. í ár.
Verður endurbyggður kaflinn
frá Arnheiðarstöðum inn fyrir
Geitagerði í Fljótsdal og auk
þess lagfært með sprengingum í
klettahafti og beygjum innan
við Ekkjufell í Fellum.
Fjármagn til þessa kemur af
framkvæmdafé Landsvirkjunar.
H. G.
H. G.
Austurlandsmót
í knattspyrnu
Ný ritnefnd AUSTURLANDS
Yiggó Sigfínnsson formaður ABN
Oldungadeild ME
Fréttatilkynning
Skógræktarnámskeið