Austurland - 25.10.1984, Page 1
Austurland
34. árgangur. Neskaupstað, 25. október 1984.
MUNIÐ
Waxoyl
RYÐVÖRNINA
Benni & Svenni
39. tölublað.
Af verkföllum:
Verkfalli bókagerðarmanna lokið
Á mánudagskvöld náðust
samningar í vinnudeilu bóka-
gerðarmanna og viðsemjenda
þeirra, en verkfall hafði þá stað-
ið í rúmar sex vikur. Verkfalli
var aflýst á mánudagskvöld og
dagblöðin komu út á þriðjudag.
Samningarnir, sem gilda til
ársloka 1985, fela að sögn í sér
17 - 21% launahækkanir á
samningstímabilinu. Þar af
kemur 10% launahækkun strax,
síðan þrisvar sinnum 3% hækk-
un á samningstímabilinu, per-
Verkfall BSRB kemur ákaf-
lega misjafnlega niður á þeim
skólum sem hafa framhaldsnám
innan sinna vébanda. Sumir
skólanna hafa starfað allan
verkfallstímann án þess að til
verulegrar röskunar hafi komið,
aðrir hafa þurft að fella niður
kennsiu í tiltölulega skamman
tíma og enn aðrir stöðvuðust
strax 1. október og munu ekki
starfa með eðlilegum hætti fyrr
en að verkfalli loknu.
Þeir skólar, sem bjóða upp á
framhaldsnám á Austurlandi,
eru misjafnlega settir að þessu
leyti. í Menntaskólanum á Eg-
ilsstöðum eru flestir kennarar í
Bandalagi háskólamanna og
því ekki í verkfalli. Þess vegna
féll kennsla aðeins niður í til-
tölulega skamman tíma í skól-
anum og munu vera líkur á að
haustönn verði að mestu hægt
að Ijúka á eðlilegum tíma. í
Framhaldsskólanum í Neskaup-
stað, Alþýðuskólanum á Eið-
um, Heppuskóla á Höfn og
Seyðisfjarðarskóla eru hins veg-
í sumar og haust hefir maura-
faraldur herjað á greni hér aust-
anlands. Maurinn virðist helst
leggjast á greinar trjánna, fyrst
upp við stofninn, en éta sig síð-
an út eftir þeim og er nú farinn
að eyðileggja vaxtarsprota
þessa árs, sem eru óvenju
langir. Þessi trjámaur virðist
vera víða um Austurland og er
um tvær tegundir af honum að
ræða a. m. k. T. d. er ein teg-
und hans á Hallormsstað og
önnur í Neskaupstað og á Eski-
firði.
Skógræktarmenn hafa þungar
sónuuppbót í tvennu lagi, 3000
kr. 1. des. og 1500 kr. 1. mars
og auk þess einhver minni at-
riði. Bókagerðarmenn sam-
þykktu samninginn með mikl-
um meirihluta atkvæða.
Bæjarstarfsmenn á Akureyri
samþykktu nýjan kjarasaming
á mánudagskvöld einnig, en
með naumum meirihluta. Verk-
falli er því aflétt þar.
Borgarstarfsmenn í Reykja-
vík felldu samkomulagið, sem
íhaldið lét samninganefndina
ar flestir eða allir kennarar í
BSRB og því í verkfalli. í öllum
þessum skólum hefur ekkert
verið kennt frá því í byrjun okt-
óber.
Þeir skólar, sem ekki hafa
starfað sökum verkfallsins, hafa
í hyggju að breyta skipulagi
haustannar á þann veg, að nem-
endur fái þá kennslu sem gert
er ráð fyrir áður en að annar-
prófum kemur. Ekki verða þó
teknar endanlegar ákvarðanir
um þessar breytingar fyrr en að
verkfalli loknu og munu
skólarnir hafa samráð um þær.
Auk þessara skóla á Austur-
landi, sem þurfa að gera sérstak-
ar ráðstafanir vegna verkfalls-
ins, eru margir aðrir skólar víðs-
vegar um land í sömu sporum.
Má þar t. d. nefna alla iðnskóla
landsins, fjölbrautaskólana á
Akranesi, Suðurlandi og Sauð-
árkróki, Framhaldsskólann í
Vestmannaeyjum, Verk-
menntaskólann á Akureyri og
alla grunnskóla með framhalds-
deildir.
áhyggjur af þessum maur, því
að hann virðist ætla að eyði-
leggja grenitrén gjörsamlega og
þar með áratuga starf áhuga-
fólks og starfsmanna Skógrækt-
ar ríkisins.
Jón S. Einarsson í Neskaup-
stað tjáði blaðinu, að nú væri
verið að rannsaka maurinn nán-
ar og til stæði að gera herferð
gegn honum með úðun. Bæjar-
yfirvöld eru hófð með í ráðum
um þessi mál, en gera má ráð
fyrir, að töluvert dýrt verði að
haldagrenimaurnum ískefjum.
B. S.
gera í síðustu viku. Verkfall
borgarstarfsmanna hófst því
aftur á sunnudag.
Samningurinn var felldur
með % atkvæða, svo að úrslitin
voru mjög afgerandi.
Nei, sögðu 1385 eða 66.4%.
Já sögðu 680 eða 32.6%. Á
kjörskrá voru 2452. Atkvæði
greiddu 2088 eða 85%.
Samkomulagið á Seltjarnar-
nesi var einnig fellt og verkfall
byrjað þar aftur.
Ekkert hefir gerst í samninga-
viðræðum BSRB og ríkisins síð-
ustu viku og virðist litlu hafa
breytt, þó að forsætisráðherra
og fjármálaráðherra hafi komið
inn í viðræðurnar „sjálfir", eins
og sagt var í fréttum útvarpsins.
Þá hafa viðræður Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveitenda-
sambandsins hrokkið í baklás
og er helst að skilja, að verka-
lýðsforingjarnir séu loks farnir
að efast um að skattatilfærslur
séu raunveruleg kjarabót fyrir
launþega.
Blaðamenn hafa boðað verk-
fall 28. okt. og er ekki vitað,
þegar þetta er skrifað, hvort til
þess kemur eða ekki. Vel gæti
svo farið, að dagblöðin stöðvuð-
ust aftur í næstu viku.
B. S.
Bragð
er að . .
„Því miður hafa ýmsar að-
gerðir stjórnvalda ekki reynst
eins skilvirkar og vonir stóðu til
og því hefur reynt nokkuð á þol-
rif manna hér eystra - einkum
þeirra er standa í eldlínunni við
daglegan rekstur fiskvinnslufyr-
irtækjanna. Samfara þessu hef-
ur nú um sinn orðið vart nokk-
urrar þenslu á höfuðborgar-
svæðinu og þess eru dæmi að
fólk héðan hafi leitað suður eftir
atvinnu. Þetta hefur enn aukið
mönnum bölsýni."
Þessi orð eru ekki sótt í
„bölmóðssöng" stjórnarand-
stöðunnar, heldur orðrétt í rit-
stjórnargrein Þingmúla, mál-
gagns sjálfstæðismanna hér
eystra. Bragð er að þá barnið
finnur!
Framhaldsskólar misjafnlega settir
Grenimaurafaraldur
Frá samkomu málm- og skipasmiða. Á myndinni sjást greinilega
f. v. Björn Gígja, Björgvin Jónsson, Erna Vilmundardóttir og
Anna Jóhannsdóttir. Aftast sést framan á Árna Porgeirsson og í
hnakka Konráðs Ottóssonar og Bjarna Guðmundssonar.
Ljósm. Sigurður Arnfinnsson.
Málm- og skipasmiðafélag
Norðfjarðar 20 ára
Mánudagskvöldið 15. október sl. efndi Málm- og
skipasmiðafélag Norðfjarðar til samkomu í Egilsbúð
í Neskaupstað í tilefni þess að þá voru liðn 20 ár frá
stofnun félagsins. Félagið var stofnað 15. október
1964 og hefur síðan unnið
um félagsmanna.
Upphafið
Stofnendur Málm- og skipa-
smiðafélags Norðfjarðar voru
11 norðfirskir iðnaðarmenn,
sem áður höfðu verið í Iðnað-
armannafélagi Norðfjarðar. Til-
gangur félagsins var að sameina
alla starfandi járniðnaðarmenn,
bifvélavirkja og skipasmiði í
Neskaupstað innan sinna vé-
banda og berjast fyrir hagsmun-
um þeirra s. s. hækkun kaup-
gialds, styttingu vinnutíma,
auknum réttindum og bættum
vinnuskilyrðum.
í fyrstu stjórn félagsins áttu
eftirtaldir menn sæti: Bjarki
ötullega að hagsmunamál-
Þórlindsson formaður, Björgvin
Jónsson ritari og Sigurður G.
Björnsson gjaldkeri.
Kvíarnar færðar út
Fyrstu 10 árin náði starfs-
svæði félagsins einungis yfir
lögsagnarumdæmi Neskaup-
staðar, en á árinu 1974 gengu
nokkrir Eskfirðingar í félagið og
Fáskrúðsfirðingar komu til liðs
við það tveimur árum síðar.
Á aðalfundi félagsins 1977 var
lögum félagsins breytt í sam-
ræmi við þessa þróun og varð
þá starfssvæði félagsins allt
Austurland.
Framh. á 3. síðu.
Frá samkomu málm- og skipasmiða. Á myndinni eru talið /. i'
Elías P. Ragnarsson, Guðrún Sigurðardóttir, Halldór Porsteinsson
og Anna Prúður Sigfúsdóttir. Ljósm. Sigurður Arnjinnsson