Austurland - 29.05.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR, 29. MAÍ 1987.
3
„Frelsið" í verslunarálagningu dýrkeypt
Athyglisverðasta frétt síðustu
viku kom frá Verðlagsstofnun,
sem birti niðurstöður verð-
könnunar á vörum í Reykjavík
og Bergen. Samanburðurinn
var afar óhagstæður fyrir
Reykjavík og liggur öðru frem-
ur í langtum hærra innkaups-
verði á flestum þeim vöruteg-
undum, sem könnunin tók til.
Ritstjóri DV telur þessa niður-
stöðu með réttu „mikið áfall
stuðningsmönnum frjálsrar
samkeppni“. Þótt talsmenn Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna
neiti því að heildsalar taki enn
umboðslaun, sem sömu aðilar
töldu að hyrfu með frjálsri
álagningu, eru flestir á öðru
máli.
Formaður Neytendasamtak-
anna, Jóhannes Gunnarsson,
segir að eðlilegt sé að kröfur
komi fram um að verðlagsá-
kvæði verði tekin upp á nýjan
leik. Ásmundur Stefánsson hef-
ur sett fram þá hugmynd, að
hámarksverð út úr búð í
Reykjavík megi ekki vera hærra
en í Bergen og milliliðirnir geti
slegist um hagnaðinn innan
þeirra marka.
Á sama tíma og þetta er rætt
er verið að telja dagana þangað
til opnað verður 3 hektara hús-
næði yfir 70 verslanir í Kringlu-
mýrinni í Reykjavík. Ymsir
hafa undrast þau miklu umsvif
og útþenslu annarra verslunar-
halla á höfðuborgarsvæðinu.
Hér sem annars staðar sannast
það að verðmæti falla ekki af
himnum ofan, og hluti af upp-
sprettum verslunargróðans birt-
ist okkur í könnun Verðlags-
stofnunar.
Einherji hefur nú leikið tvo
leiki í II deild íslandsmótsins í
knattspyrnu og hefur þeim báð-
um lokið með jafntefli 1-1.
Fyrst gerði Einherji jafntefli við
IR í Reykjavík og sl. föstudag
gerði liðið jafntefli við KS á
Siglufirði.
Keppni í þriðju deild Norður-
og Austurlandsriðli hefst nú um
helgina. 7 lið leika í riðlinum og
í fyrstu umferð leika saman
Þróttur og Tindastóll í Nes-
kaupstað kl. 14 á laugardag og
á sama tíma leika Austri og HSÞ
b á Eskifirði. Leik Reynis frá
Árskógsströnd og Magna
Grenivík hefur verið frestað til
16. júní en Sindri frá Hornafirði
situr yfir í fyrstu umferðinni.
Þá hefst einnig íslandsmótið
í 4 deild um helgina og taka 6
lið héðan af Austurlandi þátt í
mótinu. Á föstudag kl. 20 leika
Valur og Leiknir á Reyðarfirði
og á laugardag kl. 14 mætast
Huginn og Hrafnkell á Seyðis-
Svo er eftir að sjá, hvort póli-
tískur vilji er til að lækka þenn-
an kúf og færa eitthvað af hagn-
aði verslunarinnar til baka til al-
mennings, m. a. á landsbyggð-
inni. HG
firði. Umferðinni lýkur svo með
leik Hattar og Súlunnar á Egils-
staðavelli kl. 14 á sunnudag.
Ekki er að efa að áhorfendur
fjölmenni á þessa fyrstu leiki
sumarsins og hvetji sína menn
til sigurs.
Hestamennska
Reiðnámskeið hófst þann 25.
maí sl. hjá hestamannafélaginu
Blæ á Norðfirði og taka 35
manns þátt í námskeiðinu og
eru börn þar í meirihluta.
Kennari á námskeiðinu er
Bjarni Sigurðsson skólastjóri
frá Þorlákshöfn.
í gær var bæjarstjórn ásamt
bæjarstjóra boðið formlega í
eina kennslustund á reiðnám-
skeiðinu og með því vildu hesta-
menn kynna forráðamönnum
Neskaupstaðar starfsemi hesta-
mannafélagsins Blæs.
Hin árlega firmakeppni fé-
lagsins fer fram laugardaginn
30. maí og hefst hún klukkan
16. Verður hún með hefð-
bundnu sniði og e. t. v. verður
eitthvað um óvæntar uppákom-
ur og að lokinni keppninni verð-
ur öllum börnum boðið að fara
á hestbak. Firmakeppnin verð-
ur haldin á Hafnartúninu og eru
allir hestavinir boðnir velkomn-
ir. Fréttatilkynning
Kirkja
Messa í Norðfjarðar-
kirkju nk. sunnudag, 31.
maí kl. 18 (6) síðdegis.
Athugið breyttan messu-
tíma. Sóknarprestur
Túnþökur
Verð með túnþökur til sölu
Vinsamlegast gerið pantanir sem
allra fyrst í síma 7141 eftir kl. 1900
Bjarni Jónsson Þrastarlundi
m
NESKAUPSTAÐUR
Knattspyrnupunktar
VERKMENNTASKÓLI AUSTURLANDS
SÍMAR 97-7620 OG 97-7285, PÓSTHÓLF 262, 740 NESKAUPSTAÐUR
Innritun
Innritun nemenda, sem ætla að stunda nám í
Verkmenntaskóla Austurlands skólaárið 1987
- 1988, lýkur 25. júní nk.
Skrifstofa skólans verður opin alla virka daga
til 10. júlí á milli kl. 9 og 12
Hægt er að afla upplýsinga um námsframboð
og starfsfyrirkomulag skólans með því að
hringja á skrifstofuna á opnunartíma hennar
(S 7285 & 7620), eðaí skólameistara (S 7630)
Skólameistari
Kökubasar
Sjálfsbjargar verður í
safnaðarheimilinu
laugardaginn
30. maí kl. 15
Ágóði rennur til endur-
hæfingarstöðvarinnar
Verið velkomin
Nefndin
Sjálfsbjargar-
félagar
Mætið til skrafs um
útimarkaði sumarsins
o. fl. föstudaginn 29. maí
kl. 14 - 18 eða hafið
samband í síma 7779
Formaður
NESKAUPSTAÐUR
Frá Bæjarsjóði
Neskaupstaðar
1. júní nk. er 5. gjalddagi fyrirframgreiðslu
útsvara og aðstöðugjalda 1987
Þriðji og síðasti gjalddagi fasteignagjalda var
15. maí sl.
Þeir sem eru í vanskilum með áðurtalin gjöld
eru hvattir til að gera skil nú þegar
Dráttarvextir verða reiknaðir 1. júní
Fjármálastjóri
MYNDLIST ARS YNIN G
Þuríður Una Pétursdóttir
og Jónína Kristín Berg
sýna myndir í Egilsbúð,
dagana 28. — 31. maí og 5. — 8. júní
Sýningin verður opin
frá kl. 1600 — 2 200 ofantalda daga
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
Menningarnefnd Neskaupstaðar
1—”1 litl-ri iT
Garðyrkjusti e Animónur, bóndarósi Hafið sam £>ðin á Grísará E-31129 >01 Akureyri 30 tegundir sumarblóma r, garðrósir, skrautrunnar, pottablóm, matjurtir band, sendum hvert á land sem er