Austurland - 29.05.1987, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR, 29. MAÍ 1987.
Neskaupstaöur
Snyrtilegur bær
Hreinsunarherferðin tókst
með miklum ágætum, veðrið lék
við okkur og fjölmargir bæjar-
búar hjálpuðust að við að fjar-
lægja tugi tonna af rusli úr
bænum. Bærinn okkar hefur
tekið miklum stakkaskiptum,
nú er bara að fylgja málinu eftir
þannig, að ekki sæki aftur í
sama farið.
Annars er það hreint ótrúlegt
hvað mikið rusl safnast fyrir á
einu ári. Á hreinsunardaginn
voru tveir vörubílar í stöðugum
flutningum allan daginn og
höfðu ekki undan.
Þó saxast hafi verulega á hina
ýmsu ruslahauga í bænum að
undanförnu, vantar enn tölu-
vert á að verkinu sé allsstaðar
% Skák
Verkalýðsfélag
með skákmót
Verkalýðs- og sjómannafélag
Fáskrúðsfjarðar gekkst fyrir
skákmóti um páskana. Keppt
var í tveimur flokkum. I meist-
araflokki voru 6 keppendur og
í unglingaflokki 10 keppendur.
Úrslit voru sem hér segir:
Meistaraflokkur: 1. Magnús
Valgeirsson 4Vi vinningar, 2.
Ingólfur Kristjánsson 4 vinning-
ar, 3. Hilmar Gunnþórsson 3
vinningar.
Unglingaflokkur: 1. Harpa
Pálmadóttir 5 vinningar, 2.
Hjörvar Högnason 5 vinningar,
3. Heiðar Atlason 4 vinningar.
Verðlaun voru afhent 21.
maí sl. í Verkalýðshúsinu og í
máli formanns Verkalýðsfélags-
ins, Eiríks Stefánssonar, kom
þá fram að mót sem þetta yrði
árlegur viðburður og að hús
Verkalýðsfélagsins stæði opið
þeim sem efna vilja til móta-
halds í skák. MSIGB
Æfmæli
Guðrún Árnadóttir, Nesgötu
27, Neskaupstað, varð 50 ára
24. maí sl. Hún fæddist í Hafn-
arfirði og fluttist til Neskaup-
staðar árið 1971.
Anna S. Árnadóttir, Mýrar-
götu 20, Neskaupstað, er 95 ára
í dag 29. maí. Hún fæddist á
Eyvindará, Egilsstaðahreppi,
en fluttist til Neskaupstaðar
1941. Anna er elsti íbúi Nes-
kaupstaðar og dvelur nú á elli-
deild Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað.
lokið, enn standa sundurrifin og
hálfónýt bílhræ í bænum og enn
vantar mikið á að búið sé að
hreinsa svæðið umhverfis
steypusílóið og bifreiðaþjón-
ustuna, þó mikiðhafi einnigver-
ið flutt þaðan.
Ástæða þess að ég nefni það,
sem eftir er, er sú að þegar svo
stór hópur bæjarbúa, sem raun
ber vitni, hefur lagt jafn mikið
á sig til að bærinn okkar verði
snyrtilegur, þá eiga þeir líka
heimtingu á að þurfa ekki að
hafa rusl hinna fyrir augunum.
Bæjarverkstjóri mun því strax í
næstu viku hefjast handa um að
fjarlægja það rusl, sem eftir er
á kostnað eigenda.
Járnarusl, bxlhræ og annað
óbrennanlegt rusl á að flytja að
gömlu öskuhaugunum sunnan
við kirkjugarðinn, en brennan-
legu rusli skal ekið í sorpþróna.
Meiningin er sú, að þegar bær-
inn okkar hefur verið hreinsað-
ur af öllu járnarusli þá verði
gömlu sorphaugunum lokað og
sáð í moldarbakkana. Bæði með
tilliti til umhverfisins og þeirra
íbúa, sem næstir búa á Bökkun-
um þarf að ljúka þessu verki
strax.
Umgengnin við sorpþró
bæjarins hefur oft verið til um-
ræðu og margar leiðir verið
reyndar til að bæta þar úr, en
enginn hefur borið tilætlaðan
árangur. Ég ætla því að leita til
ykkar um aðstoð við úrbætur og
máli mínu til stuðnings nefni ég
nokkur atriði:
Dæmi um úrgang, sem bæjar-
starfsmenn hafa verið að losa úr
þrónni eru: Vírrúllur, bobbing-
ar, stálkör, baðkör, reiðhjól.
þakjárn, þvottavélar o. fl. og
þetta hafa ekki verið eitt og eitt
tilfelli, bárujárni af heilu íbúð-
arhúsi hefur verið sturtað í
þróna, svo dæmi sé tekið. Auð-
vitað gera menn sér grein fyrir
því að þessir hlutir brenna ekki.
Þegar svo stórum og þungum
hlutum er hent í þróna þá ryður
járnið léttara efni niður úr
þrónni, þaðan sem það svo fýk-
ur um svæðið.
Til að koma í veg fyrir svona
umgengni var ákveðið að hafa
soprþróna aðeins opna á vissum
tímum og þá starfsmenn til að
taka við ruslinu. Sú aðferð
reyndist þannig að aldrei leið
vika án þess að keðjan, sem lok-
aði veginum, væri slitin og rusli
hent á víð og dreif og aðrir fóru
með ruslið sitt að keðjunni ofan
við hesthús og hentu því þar á
götuna, fuglinn sá svo um að
dreifa draslinu um stórt svæði.
Það fór þó ekkert á milli mála
hver skildi þannig við, því að
allt rusl er merkt ef betur er að
gáð. Eina leiðin til úrbóta er því
sú, að allir hugsi sig um þegar
þeir henda rusli í og við sorp-
brennsluþróna.
í sumar verður haldið áfram
vinnu við fegrun og snyrtingu í
bænum, gangstéttar verða lagð-
ar í miðbænum, áfram verður
unnið að uppbyggingu í skrúð-
garðinum og ekki hvað minnsta
fegrunaraðgerðin er endurbæt-
ur á félagsheimilinu Egilsbúð.
Bærinn okkar er að verða
mjög snyrtilegur þar vantar að-
eins herslumuninn á, Ijúkum
verkinu fyrir helgi og látum
snyrtilegt umhverfi hvert sem
litið er verða stolt okkar fallega
bæjar.
Bestu þakkir fyrr frábært
framlag. Asgeir Magnússon
Túnþökur til sölu
Guðröður Hákonarson
® 7668 eða 7244
ÞVI EKKI ÍSLENSKA ISVEL?
★ ísvél er framleiðir betri ís.
★ ísvél, íslensk hug- og handarsmíð.
★ ísvél sem er ódýrari.
+ ísvél sem fylgja betri greiðslukjör.
•jc ísvél sem kominerá lOára reynsla.
•ir ísvél sem hefur 1. flokks þjónustu.
■ir ísvél sem kemst nánast alls staðar fyrir.
■jc ísvél sem er hafin útflutningur á.
■if ísmark ísvél, framleiðsluafköst
0.5-100 tonn á dag, hvort sem er úr
n fersku vatni eða sjó.
ÍSVÉLAR HF
-
Höföabakka 3 Sirm 91-83582
P.O Box 4305
Raykjavik.
Seyðisfjörður
Félagslíf eldra fólks og yngra
Um síðustu áramót var Kristjana Bergs-
dóttir ráðin í hálft starf sem félagsmálafull-
trúi á Seyðisfirði. Það hefur vakið athygli
fréttaritara að hún hefur rœkt þetta starf af
mikilli alúð og dugnaði og margt hefur ver-
ið og er á döfinni.
Hér verður drepið
borgara og barna og
það sem af er árinu.
Félagsstarf eldri borgara
Félagsmálanefnd skipaði í
vetur þriggja manna hóp til að
vinna að uppbyggingu félags-
starfs eldri borgara og stofnun
félags þeirra í fyllingu tímans.
Eldra fólk hefur komið reglu-
lega saman í safnaðarheimilinu
á undanförnum mánuðum og er
þar spilað og spjallað.
Smíðanámskeið fyrir eldri
borgara var haldið undir hand-
leiðslu Jóns Björnssonar hand-
menntakennara og var það vel
sótt og gagnlegt.
Staðlað námskeið á vegum
Menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu, sem nefnt er
„Árin okkar“, var fengið og
stóð það yfir eina helgi. Félags-
ráðgjafar frá Borgarspítalanum
voru leiðbeinendur á námskeið-
inu þar sem farið var yfir helstu
hagsmunamál aldraðra og ýmis-
legt sem tengist verklokum,
heilsufari og tómstundum. Að-
sókn að námskeiðinu var góð og
ríkti almenn ánægja með það.
Ástæða er til að hvetja önnur
byggðarlög að notafæra sér til-
boð MFA um þetta ágæta
fræðslunámskeið.
á félagsstarfsemi eldri
unglinga á Seyðisfirði
Leikfélag Seyðisfjarðar bauð
eldri borgurum á Egilsstöðum á
sýningu á Síldin kemur, síldin
fer á annan páskadag. Um 100
manns komu. Eldri borgarar á
Seyðisfirði stóðu fyrir kaffiveit-
ingum og reyndist þetta hvort
tveggja vera hin besta
skemmtun. Áhugi er fyrir
auknu samneyti og samstarfi við
nágrannabyggðir á þessu sviði.
Félagsstarf
barna og unglinga
Leiksjtórinn Hlín Agnars-
dóttir, sem starfaði hjá leikfé-
laginu í vetur hélt leiklistarnám-
skeið fyrir börn á öllum aldri og
tókst það afar vel. Nokkrir ungl-
inganna tóku síðan þátt í sýn-
ingu leikfélagsins á Síldin
kemur, síldin fer.
í febrúar var sólarkaffi og á
öskudag var kötturinn sleginn
úr tunnunni með tilheyrandi
gamni.
í félagsheimilinu voru
nokkuð reglulega unglingadans-
leikir og kvikmyndasýningar.
Borðtennisklúbbur keypti
með aðstoð bæjarins og fyrir-
tækja þrjú góð borðtennisborð
og var þeim komið upp í félags-
heimlinu. Eru þau mikið notuð
og vinsæl.
Unglingarnir standsettu her-
bergi í kjallara félagsheimilisins
og hafa rekið þar samkomustað
að eigin frumkvæði. í vor hefur
módelklúbbur haft þar aðsetur.
Ljósmyndaklúbbur er með
góða aðstöðu í félagsheimilinu
og starfar allnokkuð.
Sögustundir fyrir yngri börn
voru í bókasafninu síðari hluta
vetrar einu sinni í viku. Tókust
þessar stundir vel og kölluðu
krakkarnir, sem sóttu þær sig
„bókaormana".
Þegar voraði var efnt til hjól-
reiðanámskeiðs og var þar mjög
fjölmennt. Farið var yfir allar
almennar reglur og hvað helst
skal varast í umferðinni. í góða
veðrinu stönsuðu námskeiðs-
nemarnir oft á álitlegum stöðum
og var þá umhverfið skoðað og
stundum grillaðar pylsur og far-
ið í leiki. Hjólreiðanámskeiðinu.
lauk 23. maí en þá hafði lögregl-
an hina árlegu hjólreiðaskoðun.
Leiðbeint var um útbúnað hjól-
anna o. fl. Síðan var farið í
þrautakeppni í þremur
flokkum. 1 fyrsta lagi var keppt
í flokki 6 ára og yngri. í öðru
lagi var keppt á BMX-hjólum
og í þriðja lagi á venjulegum
hjólum.
Margir fóru heim með verðla-
un sem voru hjólhestapumpur,
bjöllur o. s. frv.
o
I næsta blaði verður greint
frá hugmyndum um áframhald-
andi uppbyggingu félagsstarf-
seminnar á Seyðisfirði. JJ/SG