Austurland - 18.06.1987, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR, 18. JÚNÍ 1987.
Austurland
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Útgefandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Einar
Már Sigurðarson, Sigrún Þormóðsdóttir og Smári Geirsson
Ritstjóri: Haraldur Bjarnason (ábm.) S 7750 og 7756
Auglýsingar og dreifing: Áshildur Sigurðardóttir ® 7750 og 7629
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Egilsbraut 11 • Pósthólf 31 • 740 Neskaupstaður S 7750
Prentun: Nesprent
Bættar samgöngur eru undirstaða framfara
Nú er koraið sumar og um leið geta Austfirðingar vænst þess að geta á nokkuð öruggan
hátt ferðast á milli byggða í fjórðungnum án þess að ófærð á vegum og vegleysum þeim er
kallast þjóðvegir hindri för þeirra. Þó er langt í frá að ástand vega hér að sumarlagi sé eins
og viðunandi getur talist í lok tuttugustu aldar.
í því sambandi er helst að nefna að enn tíðkast hér fjallvegir í mikilli hæð þegar aðrar
þjóðir sem búa við svipað landslag hafa fvrir mörgum árum og jafnvel áratugum leist slík
vandamál með gerð jarðganga.
Hérlendis hafa ráðamenn hins vegar einblínt á beinharða krónutölu við gerð jarðganga í
stað þess að reyna á einn eða annan hátt að gera sér grein fvrir þeim fjölmörgu hagsmunum
fyrir landið í heild sem jarðgangagerð snertir. Vegna hins þrönga hugsunarháttar hafa hug-
myndir um jarðgangagerð því ávallt verið afgreiddar sem draumsýn fyrir framtíðina.
Jarðgöng á milli byggða eru ekki eingöngu hagsmunamál þeirra sem á einangruðum stöðum
búa. Tilkoma þeirra skapar svo fjölmarga möguleika að til mikilla þjóðþrifa hlýtur að teljast.
A tímum markaðshyggju og hagnaðarvonar eins og alfarið hefur ríkt hér á undanförnum
árum má telja furðulegt að svo arðbærum verkefnum skuli ekki hafa verið hrint í framkvæmd.
Mið tilkomu jarðganga til þeirra staða sem eru hvað verst settir á Austfjörðum í dag má
tengja saman mörg smá byggðarlög í eitt nokkuð stórt markaðs- og atvinnusvæði. Slíkt svæði
hlýtur að skapa möguleika á fjölbreyttara atvinnulífi, blómlegra menningarlífi og um leið er
það líklegra til að vaxa og dafna.
Það er rétt að kostnaðartölur um gerð slíkra samgöngubóta eru háar. En hve háar fer
einungis eftir því hvaða viðmiðun er tekin. Séu þær miðaðar við venjulega vegagerð er um
svimandi upphæð að ræða, en sú viðmiðun er bara ekki réttlát. Sparnaður á öðrum sviðum
er margfaldur, t. d. lögn raflagna í slík göng í stað lína yfir fjöll, sem lítið öryggi veita að
vetrarlagi, hugsanlega gæti hitaveitulögn einhvers staðar legið um slík göng og þannig veit
byggð hitaveitu sem ekki ætti kost á því annars. Sparnaður íbúanna yrði umtalsverður þar
sem reikna má með að með stærra markaðssvæði geti þeir keypt fjölbreyttari þjónustu í
fjórðungnum en ella og á það jafnt við um neysluvörur, sem aðra þjónustu svo sem heilbrigð-
isþjónustu.
Pað vafðist ekki fyrir ráðamönnum að leggja mikið fé í stóriðju til að efla atvinnulíf í
fjórðungnum og ber að virða það. Sú hugmynd er nú líklega dottin upp fyrir og er því ekki
úr vegi fyrir fjárveitingavaldið að verja þeim peningum sem í það fyrirtæki hefðu farið til
raunhæfra samgöngubóta. Með slíkri ráðstöfun er ekki nokkur vafi á að atvinnulífi á Austfjörð-
um er mikill greiði gerður og Austfirðingar geta þá hver og einn jafnvel framleitt útflutnings-
afurðir á við enn fleiri Reykvíkinga í stað þess að framleiða á við 23 eins og verið hefur. Iib
NESKAUPSTAÐUR
Starfsfólk vantar
á Dagheimilið Sólvelli, Neskaupstað
Umsóknareyðublöð
hjá forstöðumanni
Sólvellir
Neskaupstaður
Skólaslit í Nesskóla
Nesskóla Neskaupstað var
slitið föstudaginn 22. maí.
í skólanum voru 226 nemend-
ur í 12 bekkjardeildum, þar af
42 nemendur í forskóla.
Auk skólastjóra Gísla Sig-
hvatssonar voru 15 fastráðnir
kennarar viðskólann. Breyting-
ar á starfsliði verða litlar en
mikil og góð festa hefur ríkt í
þeim efnum undanfarin ár.
Samstarf heimila og skólans
var með ágætum. Foreldradagar
voru tveir og talsvert var um
beina aðstoð foreldra í skóla-
starfinu einkum í sambandi við
hvers konar föndurstarf.
Fréttabréf skólans kom fjór-
um sinnum út á skólaárinu en
þar var greint frá helstu við-
burðum og upplýsingum komið
á framfæri varðandi starfsemi
skólans.
Félagslíf nemenda var veru-
legt. Margar kvöldvökur haldn-
ar og þorrablót í lok janúar.
Árshátíð var haldin í Egilsbúð
10. aprfl að viðstöddu fjöl-
menni.
Skólablaðið Gerpir kom einu
sinni út á skólaárinu, efnismikið
og vandað blað.
Þá voru haldin þrjú íþrótta-
mót auk skákmóts skólans.
Sýning á vinnu nemenda fór
síðan fram sunnudaginn 10.
maí en þar var jafnframt boðið
upp á ýmis skemmtiatriði og
kaffiveitingar.
Var mjög gestkvæmt í skólan-
um þennan dag sem í alla staði
var hinn ánægjulegasti.
Ágóði af hinum ýmsu þáttum
félagsstarfsins kostaði síðan 3
daga skólaferðalag nemenda í
6. bekk norður í land dagana
25. - 27. maí.
í útileguna
Svefnpokar,
í veiðina:
Hjól, flugur
stangir,
Bókaverslun Brynjars Júlíussonar
Hafnarbraut 15 Neskaupstað fí 7132