Austurland - 27.10.1988, Blaðsíða 1
Austurland
Tölvupappír
//•>
## WNESPRENT
S 71189 & 71135
Síldin
Afsöltunogfrystingu
Talsverður dagamunur hefur
verið á síldveiðinni hér eystra
undanfama daga. Eins hefur áta
verið að angra síldarverkendur
en verkstjómm frystihúsa, sem
blaðið ræddi við í gærmorgun,
bar saman um að hún væri nú á
undanhaldi og eins væri meira af
stórsíld í aflanum. í fyrrinótt var
mest síldveiði á Seyðisfirði og þar
var um stórsíld að ræða sem hent-
aði vel bæði í frystingu og salt.
í gærmorgun, miðvikudag,
var búið að salta í 39.138 tunnur
á landinu öllu og hefur megin-
hluti þess verið saltaður á Aust-
fjörðum. Þó hafði verið saltað í
747 tunnur í Vestmannaeyjum,
873 tunnur í Grindavík og 26
tunnur í Þorlákshöfn.
Norðfjörður
Skotið á
sumarbústað
Talsverðar skemmdir voru
unnar á sumarbústað í Norð-
fjarðarsveit fyrir skömmu og er
talið að það hafi verið um síð-
ustu helgi. Þar hefur verið á
ferðinni skúrkur með hagla-
byssu og skotið inn um glugga
á bústaðnum og urðu miklar
skemmdir á klæðningu innan-
húss af þeim sökum.
Málið var kært til lögreglu en
var óupplýst þegar blaðið fór í
prentun. hb
Söltun á einstökum höfnum
hér eystra var í gærmorgun orð-
in sem hér segir:
Tunnur
Vopnafjörður .... 3.528
Seyðisfjörður.......... 7.682
Neskaupstaður .... 519
Eskifjörður............ 8.518
Reyðarfjörður .... 3.779
Fáskrúðsfjörður . . . 5.384
Stöðvarfjörður .... 1.622
Djúpivogur............. 1.992
Hornafjörður........... 4.468
Af einstökum söltunarstöðv-
um hefur mest verið saltað hjá
Strandarsíld á Seyðisfirði 3.921
tunna, Norðursíld á Seyðisfirði
3.761 og hjá Pólarsíld á Fá-
skrúðsfirði 3.651 tunna.
Mun meira hefur nú verið
fryst af síld en áður og hafði
blaðið samband við nokkra síld-
arfrystendur í gærmorgun. Mest
hafði þá verið fryst hjá Síidar-
vinnslunni í Neskaupstað 410
tonn. Þar af 320 tonn á Japans-
markað, 60 tonn á Evrópumark-
að og 30 tonn höfðu verið fryst
í beitu. Hjá Fiskvinnslunni á
Seyðisfirði höfðu verið fryst 235
tonn, sem skiptust þannig að
120 tonn höfðu verið fryst á Evr-
ópumarkað, 69 tonn á Japans-
markað og 46 tonn í beitu. Hjá
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar
höfðu í gærmorgun vcrið fryst
220 tonn. Á Japansmarkað fara
100 tonn, 80 á Evrópumarkað
og 40 tonn höfðu verið fryst í
beitu. Hjá Ness hf. í Ncskaup-
stað höfðu í gærmorgun verið
fryst 190 tonn sem skiptust
þannig að 130 tonn höfðu verið
fryst á Japansmarkað og 60 tonn
á Evrópumarkað. hb
Stödvarfjördur
Tjónið
20-30 milljónir
Talið er að kviknað hafi í út
frá rafmagni, þegar saltfiskverk-
unarhús Hraðfrystihúss Stöðv-
arfjarðar brann um síðustu
helgi. Guðjón Smári Agnarsson
framkvæmdastjóri sagði í sam-
tali við AUSTURLAND í gær
að menn frá Rafmagnseftirliti
ríkisins hefðu komist að þessari
niðurstöðu í fyrrakvöld.
Húsið sem brann var um 1000
m2 steinsteypt hús og sagði
Guðjón Smári að í því væri allt
ónýtt nema útveggir. Talsverðar
birgðir saltfisks og saltsíldar
skemmdust í brunanum og áætl-
ar hann að tjónið sé 20 - 30
milljónir króna.
í húsinu hefur síldarsöltun
haustsins farið fram og sagðist
Guðjón Smári ekki úrkula von-
ar um að hægt yrði að salta
áfram á Stöðvarfirði því nú væri
verið að kanna hvort hægt væri
að nýta húsnæði bræðslunnar
undir söltun en þó kæmi upp
vandamál varðandi lagerpláss
fyrir síldina. Hann sagði að um
40 - 50 fastráðnir starfsmenn
hefðu unnið í þessu húsi og
héldu þeir allir áfram vinnu,
bæði í frystihúsi og við hreinsun
brunarústanna.
Guðjón Smári sagði óljóst
hvenær hafist yrði handa við
endurbyggingu hússins, staða
fyrirtækisins væri mjög erfið
núna og því væri ekkert ljóst í
þeim efnum. hb
Eskifjöröur
Nýr bátur í flotann
Ingvar Gunnarsson útgerðar- er beitningavél um borð í
maður á Eskifirði hefur nú honum.
keypt vélbátinn Núp frá Greni- Núpur kom til Eskifjarðar í
vík. Núpur er nýlegur tæplega síðustu viku og hóf þegar línu-
200 tonna alhliða fiskibátur og veiðar úti fyrir Austfjörðum. hb
NES^/lDEÓ © 71780
, TOSHIBA
QjtUUU/ ORBYLGJUOFNAR
Raðgreiðslur